Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 15

Morgunblaðið - 23.10.2019, Page 15
Góð mæting var á þriðjudagsfund rafmynta- ráðs í Háskóla Íslands í gær, en á fyrirlestra- röðinni er kafað ofan í alla anga rafmynta og und- irliggjandi tækni. Áhugi á rafmyntum og bálka- keðjum er þó nokkur í samfélag- inu, en fyrirlestraröðin í HÍ er op- in öllu áhugafólki um þessi mál. Sveinn Valfells, einn stofnenda fjártækni- fyrirtækisins Moneri- um, var fyrirlesari á fundinum í gær. Kafað ofan í rafmyntir og undirliggjandi tækni Morgunblaðið/Hari MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 15FRÉTTIR Við seljum umhverfisvænan pappír af öllum gerðum, þar á meðal ljósritunarpappír. Bjóðum sérskurð í þær stærðir sem henta. Þér er velkomið að líta við og finna þinn rétta pappír. PAPPÍR Arion banki hefur opnað á aðgengi að reiknings- og kortaupplýs- ingum frá öðrum bönkum í Arion banka appinu. Í tilkynningu frá bankanum seg- ir að um tímamót í fjármálaþjón- ustu hér á landi sé að ræða. „Allir sem eru með reikninga eða kort hjá fleiri en einum banka og veita heimild fyrir flutningi gagna, geta fengið heildstæða yfirsýn yfir fjár- mál og útgjöld heimilisins á einum stað í Arion appinu,“ segir í til- kynningunni. Nýjungin er samkvæmt tilkynn- ingunni, ekki aðeins fyrir við- skiptavini Arion banka heldur öll- um opin. Það eina sem þurfi að gera er að sækja Arion appið, skrá sig inn með rafrænum skil- ríkjum og tengja þá reikninga og kort sem hver og einn vill sjá. Að auki eru þessar upplýsingar tekn- ar saman og flokkaðar eftir út- gjaldaliðum heimilisins í samstarfi við Meniga. Iða Brá Benediktsdóttir, fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, segir að bankinn vilji stöðugt bæta sína þjónustu og appið sé ein mikilvægasta og vinsælasta þjón- ustuleið bankans. Á hverjum degi nýta að meðaltali 40 þúsund viðskiptavinir appið. Arion appið opnar á aðra banka FYRIRLESTUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.