Morgunblaðið - 30.10.2019, Side 4
Nóg er að gera í grín- og grímubún-
ingaversluninni á Laugavegi enda
hrekkjavakan í þessari viku og
margir Íslendingar sem missa ekki
af tækifæri til að klæða sig í búning
og gera sér glaðan dag. Fyrirtækið
er líklega í hópi þeirra elstu á
Laugaveginum, stofnað árið 1973 af
foreldrum Einars.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
rekstrinum þessi misserin?
Breytingar eru að verða á við-
skiptavenjum Íslendinga og sam-
keppni að aukast. Úrvalið er mikið
og aldrei hefur verið auðveldara að
versla við erlendar vefsíður, og ýms-
ar búðir sem bjóða vörur tengdar
hátíðum eins og öskudegi og
hrekkjavöku. Okkar styrkur er fólg-
inn í því að bjóða upp á grímuvörur
og aðrar vörur til skemmtana árið
um kring og getum við þar að auki
þjónað landsbyggðinni í gegnum
netverslunina HokusPokus.is. Á
vissan hátt erum við sérverslun með
vörur sem alla jafna er ekki hægt að
fá annars staðar og fólk sækir til
okkar þó það sé ekki endilega vant
að koma í miðbæinn til að versla.
Hvaða hugsuður hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Ég fór á fyrirlestur með Brian
Tracy fyrir nokkrum árum og líkaði
það vel. Minnisstæðustu bækurnar
eru sígildar og fela í sér jákvæða
hugsun og hvatningu í lífinu og við-
skiptum, s.s. eftir höfunda og áhrifa-
valda á borð við Norman Vincent
Peale og Dale Carnegie.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Með því að vera virkur í að sjá
sem mest um eigin rekstur ásamt
bókhaldi og að fylgjast með því sem
þar breytist, og tileinka mér nýj-
ungar sem snúa að markaðssetningu
sem er sífellt að verða flóknari.
Einnig reyni ég að fylgjast með því
sem er að gerast á mínu verksviði
með því að fara á sýningar erlendis
bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og
hafa gætur á því sem er að gerast í
kvikmyndaheiminum því að þar eru
skapaðar þær söguhetjur sem síðan
koma inn á grímubúninga- og fylgi-
hlutamarkaðinn.
Hugsarðu vel um líkamann?
Er búinn að vera að hlaupa reglu-
lega með KR-skokkhópnum frá því
hafa ekki komið til baka og nú er
það svo að ég get ekki hugsað mér
lífið án þess að komast reglulega út
að hlaupa.
Hvert væri draumastarfið
ef þú þyrftir að finna
þér nýjan starfa?
Er í draumastarfinu, að því leyti
að ég get best hugsað mér að vera
minn eigin herra. Það er mest gef-
andi, að mínu mati, að skapa sitt
eigið og sjá hvernig hugsun og
fyrirhöfn þróast. Í mínum rekstri
eru ótal áskoranir og með því
ánægjulegasta er þegar maður sér
eitthvað sem maður sá fyrir sér
rætast, sem og þegar maður byrjar
á einhverju nýju og fær að sjá það
vaxa. Svo er auðvitað fullt af verk-
efnum sem aldrei verða að neinu
en maður heldur áfram, og alltaf
eitthvað sem blómstar og nægir til
að viðhalda áhuganum og trúnni á
að maður sé að gera eitthvað rétt.
SVIPMYND Einar Arnarsson, eigandi Hókus Pókus
Þykir gaman þegar honum
tekst að sjá hlutina fyrir
Morgunblaðið/Hari
Einar byrjaði að skokka af kappi þegar hann varð fimmtugur og fuku strax tíu kíló sem ekki hafa komið aftur.
Rótgróin verslun hans á Laugaveginum lenti í öðru sæti á lista Creditinfo yfir framúrskarandi smáfyrirtæki.
2013. Hef tekið þátt í ógrynni af
tíu kílómetra keppnishlaupum og
fullt af hálfmaraþonum auk fjög-
urra heilla maraþona. Það síðasta
og besta var í Berlín í lok sept-
ember. Byrjaði á þessum hlaupum
árið sem ég varð fimmtíu ára og
náði strax af mér tíu kílóum sem
NÁM: Viðskiptabraut við Fjölbraut í Ármúla til 1985; flugvirkjun
við Spartan School of Aeronautics í Tulsa í Oklahoma til 1988;
B.S. í Aviation Maintenance Management við Embry Riddle
Aeronautical University útskr. 1992.
STÖRF: Flugvirkjun í USA og önnur störf 1993-1996. Flugvirki
hjá Icelandair 1997-2001. Eigandi og framkvæmdastjóri Hókus
Pókus ehf. frá 2002.
ÁHUGAMÁL: Ferðalög og uppbyggilegur tími með fjölskyldunni
eru ofarlega á lista. Þar að auki eru hlaup orðin fyrirferðarmikil
og svo hef ég í gegnum árin tengst flugi sem flugvirki, flugvéla-
smiður, einkaflugmaður og fleira.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Hrafnhildi Eiðsdóttur kennara
og eigum við saman börnin Einar Jarl og Evu Sigurbjörgu. Til
viðbótar á ég Ómar og Birki, og hún Finnbjörn og Eið.
HIN HLIÐIN
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019FRÉTTIR
Þægileg leið fyrir viðskiptavininn. Kemur honum í
beint samband við réttan starfsmann sem klárar
málið. Góð yfirsýn og gegnsæi með verkefnunum.
Kynntu þér málið á www.eignarekstur.is
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Þjónustugátt Eignareksturs
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
GRÆJAN
Ekki verður sagt um bandaríska
tæknirisann Apple að hann hafi
verið leiðandi í þróun hljóðdemp-
andi heyrnartóla. Allir helstu
framleiðendur hafa fyrir löngu
kynnt til sögunnar nett og full-
komin heyrnartól sem stungið er í
hlustina og nota nýjustu tækni til
að núlla út umhverfishljóð svo
hlusta megi á uppáhaldstónlistina í
algjöru næði í klið stórborganna.
En nú eru þau komin, heyrnar-
tólin sem beðið hefur verið eftir, og
hafa fengið nafnið AirPods Pro.
Greinilegt er að verkfræðingar
Apple hafa nýtt tímann vel því
nýju heyrnartólin hafa það fram
yfir keppinautana að vera óvenju
nett. Af myndum að ráða stendur
aðeins lítill stilkur út úr eyranu,
rétt eins og á við um hefðbundin
þráðlaus Airpods-heyrnartól, en
sambærileg heyrnartól annarra
framleiðenda eru fyrirferðarmeiri
og líta oft út eins og stórar bingó-
kúlur sem liggja utan á eyra not-
andans.
Þá liggja nýju heyrnartólin ekki
eins í eyranu og fyrri útgáfur Air-
Pods, og á þeim enda sem smeygt
er inn í hlustina er plastnibba sem
býr til nokkurs konar innsigli.
Koma nibburnar í þremur stærð-
um svo að heyrnartólin falli vel að
jafnt víðum sem þröngum eyrum.
Hægt er að stilla heyrnartólin
þannig að þau hleypi umhverfis-
hljóðum inn, sem getur oft borgað
sig, og vitaskuld hægt að svara
símhringingum eins og ekkert sé.
AirPods Pro koma á markað
vestanhafs í dag og kosta 249 dali.
ai@mbl.is
Loksins
tók Apple
við sér