Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 11
Það lætur nærri að segja að Zymetech hafi
fundið upp leið til að breyta verðlitlu þorsk-
slógi í gull. Eftir ítarlegar og kostnaðarsamar
rannsóknir hefur fyrirtækið sett á markað
vörur sem nota öflug þorskensím til að vinna
gegn húðkvillum og einkennum kvefs.
Margir lesendur ættu að kannast við fyrstu
vöru fyrirtækisins, en penzím-úði og gel komu
fyrst á markað árið 1999 og hafa reynst vel
fólki með þurra húð, útbrot og ertingu. Þá
hófst sala á munnúðanum PreCold um miðjan
þennan áratug en þar eru þorskensímin nýtt til
að veikla og draga úr fjölg-
un kvef-veira. Penzím
flokkast sem snyrtivara en
PreCold hefur farið í gegn-
um skipulagðar prófanir og
leyfisferla og flokkast sem
lækningavara.
Ágústa Guðmundsdóttir,
prófessor emeritus við HÍ
og rannsóknastjóri Zyme-
tech, segir leitina að verð-
mætum ensímum í fiski vera rétt að byrja og
næsta víst að í framtíðinni verði hægt að fram-
leiða alls kyns gagnlegar vörur sem nota fisk-
ensím sem virk innihaldsefni. „Að nýta þessi
ensím mun kalla á mikla rannsóknarvinnu, og
hefur okkar starfsemi aðallega takmarkast af
því að vegna þess hve möguleikarnir eru marg-
ir höfum við þurft að hafa sem skýrastan fókus
við einangrun ensímanna og prófanir,“ segir
hún.
Verðmætari en hnakkastykki
Þeir sem til þekkja gantast með að ef fram
heldur sem horfir muni sjávarútvegurinn veiða
dýrmætar tegundir eins og þorskinn meira
fyrir ensímin en fyrir flökin og hnakkastykkin.
Svo verðmætt er þetta hráefni þegar búið er að
hreinsa það frá slóginu og umbreyta í snyrti-
eða lækningavöru. „Ef við berum saman Pre-
Cold og þorskhnakka þá er munnúðinn 25
sinnum verðmætari og er samt unninn úr hlið-
arafurð sem í dag er oftast hent beint í sjóinn.“
Saga Zymetech er löng og merkileg og hófst
árið 1985 með rannsóknum dr. Jóns Braga
Bjarnasonar, eiginmanns Ágústu, en hann lést
árið 2011. „Jón Bragi var fenginn til að stýra
verkefni sem hafði það að markmiði að vinna
verðmæt efni úr hliðarafurðum sjávarútvegs-
ins. Ég kom svo að verkefninu árið 1988 og hef
unnið að rannsóknunum síðan. Þökk sé rausn-
arlegum styrk fóru rannsóknirnar vel af stað
og fyrsta einkaleyfið var í höfn árið 2000,“ seg-
ir Ágústa en Zymetech er með einkaleyfi bæði
fyrir þeim aðferðum sem notaðar eru til að
skilja ensímin frá slóginu, og fyrir notkun ens-
ímanna í snyrti- og lækningavörum. Þá eru
fleiri ný einkaleyfi á leiðinni.
Zymetech hóf snemma samstarf við sænska
fyrirtækið Enzymatica og varð úr að sameina
félögin í ársbyrjun 2016.
Veirurnar veiklaðar
Ensímframleiðslan fer fram úti á Granda og
fer slógið í gegnum flókið hreinsunarferli sem
skilar hágæðavöru. Kostir þorskensíma um-
fram t.d. ensím sem unnin eru úr innyflum
spendýra felast m.a. í því að þorskensímin eru
kuldavirk og þarf því minna magn af þeim til
að ná sömu virkni. Einnig er minni hætta á
smiti af völdum örvera sem sýkja menn þegar
unnið er með ensími úr þorski í stað ensíma úr
spendýrum.
Í tilviki PreCold er virknin ekki ósvipuð og í
náttúrulegu sjúkdómsvarnakerfi fisksins en
sömu gagnlegu ensímin má m.a. finna í slíminu
sem liggur ofan á roði þorsksins. „Nota á Pre-
Cold þegar vart verður við fyrstu einkenni
kvefs og úða upp í munn sex sinnum á dag. Úð-
inn myndar filmu í kokinu, þar sem kvef-
veirurnar fjölga sér, og veiklar helstu veiru-
afbrigði svo að þau sýkja hýsilinn ekki eins
auðveldlega,“ útskýrir Ágústa en tekist hefur
að sýna fram á það með rannsóknum að Pre-
Cold dregur úr særindum í hálsi, dregur úr
kvefeinkennum, hefur skjóta verkun og hjálp-
ar til að minnka notkun annarra lyfja sem eiga
að slá á einkenni kvefs.
Þurfa að geta tengst
erlendum fjárfestum
Zymetech er ekki eina íslenska fyrirtækið
sem tekist hefur að vinna mikil verðmæti úr
hliðarafurðum sjávarútvegsins og vonandi að
þau sem og fleiri bætist í hópinn. Ágústa segir
að mörgu leyti hentugt að stunda vinnslu,
rannsóknar- og þróunarstarf á Íslandi en það
eigi við um Zymetech og önnur sambærileg fé-
lög að þau reka sig á ákveðnar hindranir.
Stærsta fyrirstaðan er að vöntun er á fjár-
magni til að styðja við vöxt líftæknifyrirtækja,
en rannsóknirnar geta verið mjög kostn-
aðarsamar. Í tilviki Zymetech má áætla að það
hafi kostað á við einn togara að gera PreCold
að veruleika, eða um og yfir milljarð króna.
„Slíku fjármagni er varla til að dreifa, en ef t.d.
útgerðarfélög myndu vilja koma að svona
starfsemi þá þyrfti líklega hópur félaga að
sameinast um framtakið. Líklegra til árangurs
væri samt að leita leiða til að laða að erlent
fjármagn. Samstarf við erlenda fjárfesting-
arbanka, mögulega með einhverskonar að-
komu hins opinbera, myndi greiða leið öflugra
fjárfesta hingað til lands, og þannig hjálpa
fyrirtækjum eins og okkar að blómstra,“ segir
Ágústa og bætir við að ein af ástæðunum fyrir
samrunanum við Enzymatica hafi verið hversu
góðan aðgang sænska félagið hafði bæði að
fjármagni og markaðsþekkingu.
„Margir erlendir aðilar eru á höttunum eftir
góðum verkefnum til að fjármagna, og ættu að
hafa áhuga á því sem er að gerast í líftækni á
Íslandi. Með rétta bakhjarla gætu mörg ís-
lensk fyrirtæki á þessu sviði jafnvel orðið að
stórveldum áður en við vitum af, og gætu stytt
sér leið í vöruþróunar- og rannsóknarvinnunni
með því að kaupa innlend eða erlend félög
frekar en að þurfa að vinna allar rannsóknir
frá grunni.“
Eru rétt að byrja leitina að ensímum
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Vinnsla og rannsóknir á fisk-
ensímum kosta háar fjárhæðir en
geta orðið grunnurinn að dýrmætri
vöru. Óskandi væri að fá erlenda
fjárfesta inn í greinina svo líftækni-
fyrirtækin geti vaxið hraðar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Með því að vinna ensím úr innyflum þorsksins og nýta sem hráefni í snyrti- og lækningavörur
verður til vara sem er 25 sinnum verðmætari en þorskhnakkar.
Ágústa
Guðmundsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019 11
Afurðaverð á markaði
29. október 2019, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 410,56
Þorskur, slægður 533,64
Ýsa, óslægð 303,71
Ýsa, slægð 289,10
Ufsi, óslægður 161,31
Ufsi, slægður 193,37
Gullkarfi 250,97
Blálanga, óslægð 187,00
Blálanga, slægð 197,38
Langa, óslægð 233,29
Langa, slægð 237,35
Keila, óslægð 116,45
Keila, slægð 144,44
Steinbítur, óslægður 243,72
Steinbítur, slægður 514,35
Skötuselur, slægður 550,59
Grálúða, slægð 494,09
Skarkoli, slægður 375,16
Þykkvalúra, slægð 536,69
Langlúra, slægð 236,65
Sandkoli, óslægður 15,00
Bleikja, flök 1.620,00
Gellur 1.065,57
Hlýri, óslægður 244,00
Hlýri, slægður 429,78
Hvítaskata, slægð 24,00
Lúða, slægð 421,30
Lýsa, óslægð 91,53
Lýsa, slægð 132,64
Náskata, slægð 40,00
Sandhverfa, slægð 1.145,00
Skata, slægð 71,65
Stórkjafta, slægð 368,94
Undirmálsýsa, óslægð 171,59
Undirmálsýsa, slægð 169,61
Undirmálsþorskur, óslægður 232,28
Undirmálsþorskur, slægður 269,28
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Alhliða
Ræstingar
Öflugt gæðaeftirlit
og góð þjónusta
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | Opið virka daga 8:00-16:00
Hafðu samband og við gerum fyrir þig
þarfagreiningu og tilboð í þjónustu
án allra skuldbindinga.