Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.10.2019, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2019SJÓNARHÓLL KRISTINN MAGNÚSSON Há fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði skekkja sam-keppnisstöðu íslenzks viðskiptalífs. Fast-eignaskattar sem hlutfall af landsframleiðslu eru hæstir á Íslandi á öllum Norðurlöndum, eða um 2%, tvöfalt hærri en í háskattalandinu Svíþjóð, þar sem þeir eru um 1%. Þetta var á meðal þess sem fram kom á fundi Félags atvinnurekenda, Húseigendafélagsins og Lands- sambands eldri borgara um fasteignagjöld í síðustu viku. Þessi samtök, sem samanlagt endurspegla mjög breið- an hóp fasteignaeigenda, vildu leitast við að ná eyrum stjórnmálamanna, ekki sízt í sveitarstjórnum, en fast- eignaskattar eru tekjustofn sveitarfélaga. Tímapunktur- inn er ekki tilviljun; nú er stutt í að frumvörp til fjárhagsáætl- ana sveitarfélaga verði lögð fram, en þau innihalda meðal annars tillögur um álagning- arprósentu fasteignaskatta. Það er orðin vel þekkt stað- reynd að skattlagning á at- vinnuhúsnæði hefur farið mjög hækkandi undanfarin ár. Fasteignaskatturinn er tiltekið hlutfall af fasteignamati, en mat atvinnu- húsnæðis á landinu hækkaði um u.þ.b. 77% á árunum 2014 til 2020. Þótt sum sveitarfélög hafi lækkað álagn- ingarprósentu til að mæta þessum gríðarlegu hækk- unum matsins nemur hækkun skattbyrði atvinnulífsins vegna fasteignaskatts á þessum tíma um 70%. Það skipt- ir miklu máli í þessari mynd að stærsta sveitarfélagið, þar sem yfir 35% alls atvinnuhúsnæðis er að finna, hefur allan tímann haldið fasteignaskatti á atvinnuhúsnæði í lögbundnu hámarki, þótt álagningarprósenta á íbúðar- húsnæði hafi verið lækkuð til að sýna eigendum þess sanngirni. Sveitarfélögin láta stundum eins og þau beri enga ábyrgð á sífellt þyngri skattbyrði vegna fasteignaskatta. Það er út af fyrir sig rétt að fasteignamatið, sem skattur- inn er reiknaður út frá, er byggt á grundvelli laga frá Al- þingi. Einn vandinn við að nota þá aðferð til að leggja á skatt er að útreikningur matsins er gífurlega flókinn og ekki á færi annarra en sérfræðinga að skilja hann. Á áðurnefndum fundi komu fram dæmi um að erfiðleikum væri bundið að fá skýr svör frá fasteignamati Þjóðskrár um það hvernig mat tiltekinna eigna væri reiknað út. Það er óhætt að segja að skattur, sem skattgreiðandinn getur ekki skilið hvernig er reiknaður út og því síður séð fyrir hversu hár verður, sé vondur skattur. Á endanum eru það þó auðvitað sveitarfélögin sem bera alla ábyrgð á skattbyrðinni, enda ákveða þau álagn- ingarprósentuna. Sveitarfélög sem ætla enn eina ferðina að yppa öxlum og segja: „Við gerðum ekkert, við lögðum bara sömu prósentu og venjulega á fasteignamatið, það er ekki okkur að kenna að það hækkaði“ – þau hlaupast frá þeirri ábyrgð sem stjórnvöld og atvinnulífið bera sameiginlega á verðstöðugleika í kjölfar erfiðra kjarasamninga. Hækkanir fasteignaskatta á at- vinnuhúsnæði koma nefnilega ekki bara fram á greiðsluseðlum fast- eignagjaldanna. Þær velta út í verðlagið með ýmsum hætti í formi hækkunar á vörum og þjónustu fyrirtækja, sem verða með ein- hverjum hætti að standa undir sífellt hækkandi skatt- byrði. Fyrirtæki og einstaklingar sem leigja út húsnæði neyðast iðulega til að hækka leiguna vegna hærri fast- eignaskatta, enda nema þeir oftast nokkurra mánaða leigu yfir árið. Það galnasta við núverandi kerfi er að vegna þess að fasteignamat Þjóðskrár beitir svokallaðri tekjumatsaðferð hækkar fasteignamatið þegar leigan hækkar, sem veldur aftur hækkun á fasteignamatinu og þannig koll af kolli. Atvinnulífið getur ekki staðið undir enn meiri hækk- unum á fasteignasköttum. Til skemmri tíma litið þurfa sveitarfélögin að axla ábyrgð og lækka álagningar- prósentuna. Til lengri tíma litið þarf að skera upp þetta kerfi. Í byrjun árs skrifaði Félag atvinnurekenda Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra bréf og hvatti hann til að taka upp viðræður við sveitarfélögin um kerfis- breytingu. Ráðherrann hefur sýnt nauðsyn slíkrar breytingar skilning og æskilegt væri að eitthvert frum- kvæði að slíku kæmi líka frá sveitarfélögunum. Allt hugsandi fólk hlýtur að sjá að núverandi ástand gengur ekki til lengdar. SKATTAMÁL Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Skatturinn ógegnsæi og endalausi ” Hækkanir fasteigna- skatta á atvinnuhúsnæði koma nefnilega ekki bara fram á greiðsluseðlum fasteignagjaldanna. FORRITIÐ Við lifum stafrænu lífi og því ekki skrítið að margt af því sem er okk- ur kærast skuli vera á stafrænu formi. Leyndarmálin okkar eru líka stafræn og vissara að geyma þau ekki hvar sem er. Svo viljum við, rétt eins og með aðra dýrgripi sem við skiljum eftir okkur, að stafrænu djásnin lendi í vörslu ástvina okkar. Alveg eins og áður þurfti að tryggja að erfingjar myndu fá lykilinn að húsinu, númerið að peningaskápn- um og að einhver tæki myndaal- búmið uppi í stofuhillu í sína vörslu, þá þarf í dag að ákveða hver fær aðgang að gögnunum í tölvu- pósthólfinu, myndaalbúminu í skýinu og kóðann til að opna snjall- símann. Passbox leysir úr þessu með n.k. stafrænu bankahólfi. Notandinn skráir inn þær upplýsingar sem hann vill varðveita, s.s. notendanöfn og lykilorð, eða öryggiskóða, ásamt hvers kyns leiðbeiningum og til- mælum. Hann tiltekur líka hver á að fá hvaða upplýsingar sendar, og fá viðtakendurnir strax tilkynningu þar að lútandi. Viðtakandi getur síð- an sent Passbox beiðni um að fá að- gang að upplýsingunum þegar hann telur þörf á. Passbox sendir um leið fyrirspurn til þess sem stofnaði um- ræddan reikning, og ef ekkert svar berst innan tiltekins tíma fær við- takandinn umbeðin gögn afhent. Nota má lágmarksútgáfu Pass- box ókeypis en borga þarf 30 dala árgjald til að fá aðgang að öllum notkunarmöguleikum. ai@mbl.is Bankahólf fyrir staf- rænu gersemarnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.