Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019 J acques Chirac, fyrrverandi borgarstjóri í París, forsætisráðherra og síðar forseti Frakklands, var jarðsettur í vikunni með viðhöfn. Það kallaði fram margvíslegar minningar frá löngum kynnum. Fjölbreyttur ferill Chirac átti um flest mjög glæsilegan feril en þó óvenjulegri en mætti ætla við fyrstu sýn. Það er vel þekkt, en engu að síður sérstakt, að franskir stjórnmálamenn í fremstu röð gegna iðulega embætti borgarstjóra í borgum af ýmsum stærðum um leið og þeir sitja á þingi eða í ríkisstjórn. Chirac var á virðulegasta enda þessarar hefðar, því hann var borgarstjóri Parísar frá 1977 til ársins 1995. Á þessu skeiði gegndi Chirac embætti forsætis- ráðherra á árunum 1986-88 og áður á árunum 1974- 76. Á fyrra skeiðinu var hann forsætisráðherra d’Estaings flokksbróður síns en á hinu síðara var hann forsætisráðherra Mitterrands, pólitísks and- stæðings. Chirac var borgarstjóri Parísar þar til hann varð forseti árið 1995 og gegndi því embætti til ársins 2007. Hann var um skeið forseti systurflokka Sjálfstæðis- flokksins í Evrópu og hittust þeir bréfritari undir þeirri regnhlíf. En fundirnir áttu eftir að verða marg- ir og undir ólíkum höttum, borgarstjóra og síðar for- sætisráðherra og í hans tilviki forseta en samskiptin við forseta Frakklands fara að mestu fram á milli for- sætisráðherra af Íslands hálfu, enda forseti Frakk- lands æðsti stjórnmálamaður franska stjórnkerfisins og hefur raunar mun meira vald en tíðkast um stjórn- málaforingja víðast í Evrópu. Þeirri skipan var komið á að undarlagi Charles de Gaulle með tilkomu „5. lýð- veldisins“ en hershöfðinginn setti það sem skilyrði fyrir endurkomu sinni í frönsk stjórnmál, eftir lausa- takatímabilið í kjölfar frelsunar Frakklands undan járnhæl Þýskalands. Óvenjuleg byrjun Chirac ákvað ungur að skella sér í stjórnmálaslaginn. En það vill gleymast hvernig upphafið var því að hann hóf sinn feril með því að skrá sig í flokk franskra kommúnista og hafði sig þar í frammi í nærri áratug. Það hafði afleiðingar sem slíku fylgdu á þeim tíma. Hann vildi komast í átökin í Alsír en yfirmenn hers- ins, sem þekktu fylgilag hans við kommúnista, reyndu að koma í veg fyrir það. Eins var hann í basli með að fá samþykki fyrir vegabréfsáritun til Banda- ríkjanna. Þegar kommúnisminn rann af hinum unga stjórn- málamanni söðlaði hann algjörlega um og kaus sér flokkinn sem fylgdi de Gaulle. En kannski varð þetta skeið í lífi hans til þess að festa í sessi velvilja í garð Rússa. Hann leit alla tíð á Pútín sem persónulegan vin sinn, enda vel heima í rússnesku og til dæmis um það er þýðing hans á Eu- gene Onegin eftir Pushkin á frönsku. Sveiflast til Þegar Chirac lét fyrir alvöru til sín taka í landstjórn- armálum þá gerir hann það sem efasemdamaður um EEC, eins og EU hét þá, eins og dæmið frá 1979 sýn- ir: „EEC er getulaust og staðreyndin er sú að það eru alþjóðlegir auðhringir sem eiga síðasta orðið um laga- setningu á svæði þess. Þetta er sú Evrópa sem blasir við Frökkum og þeir eru fastir í því kviksyndi sem hún er!“ Það má nefna fleiri leiðtoga sem hafa veifað þessu tré í upphafi brautar. John Major lét ekki standa sig að því að sjást í hópi samsærismanna þegar atlagan var gerð að frú Thatcher sem leiddi til falls hennar. Frægt var að þegar örlagaríkasti fundur samsæris- manna var haldinn kom Major sér undan að mæta þar sem hann ætti tíma hjá tannlækni. Þessi felu- leikur dugði honum til þess að frú Thatcher beindi stuðningi sinna manna að honum fremur en að þeim sem verið höfðu áberandi í hópi „svikaranna“. Og hann varð eftirmaðurinn. Sá hún mjög eftir þeim stuðningi síðar. Eins og sést hefur á slagnum um brexit er varla nokkur jafn ákafur undirlægjumaður ESB og John Major er og svífst hann einskis. Reyndar eru mörg dæmi um þessa tvöfeldni í Íhaldsflokknum. Cameron og William Hague kynntu sig til sögunnar sem virka efasemdamenn um ESB- aðild Breta, en þegar þeir nálguðust valdið og áhrifin verulega fór fyrir þeim eins og svo mörgum öðrum. Málið sem notað var til að fella frú Thatcher var ERM, aðlögunarefnið sem tengdist drauminum um hina sameiginlegu mynt. Frúin hafði illan bifur á þeirri hugmynd, en andstæðingarnir innan flokks notuðu hana til að koma henni frá. Bretar urðu svo aðilar að ERM og það endaði með miklum ósköpum fyrir þá og stórtjóni þegar alþjóðlegi braskarinn Sor- os gerði atlöguna að Bretum og Svíum með þeim af- leiðingum að þeir töpuðu óhemjulegum fjármunum af heimsókn sinni í þetta spilavíti. Frú Thatcher hafði haft rétt fyrir sér. En kannski varð þetta áfall til þess að Blair mis- tókst að koma Bretum í evrusamstarfið og eins að Svíar eru enn utan þess, þótt þeir séu, samkvæmt ESB-reglum, skuldbundnir til að taka upp evruna. Forsetinn Chirac lét sig hafa það að bera Maastricht-sáttmál- ann undir þjóðina, en hann var stórt skref í átt til eins ríkis í álfunni, sem er lokadraumurinn. Þegar lagt var í þjóðaratkvæðið með sáttmálann sýndu kannanir að 65% Frakka styddu aðild að honum. Kannski hafa þær kannanir orðið til þess að forsetinn lagði í þjóð- aratkvæðið. En þegar atkvæðin komu upp úr kass- anum studdi aðeins 51% þjóðarinnar þá niðurstöðu. Þá var ekkert fjasað um að munurinn væri sáralítill eins og gert er í umræðunni um útgöngu Breta nú, þar sem 52% samþykktu útgönguna. Frakkar felldu hins vegar síðar nýja stjórnarskrá ESB í þjóðaratkvæði. ESB-leiðtogarnir þorðu ekki að nota hefðbundna aðferð sína, sem er að halda nýjar atkvæðagreiðslur þar til lýðurinn þreytist og segir já. Aðferðin sem nú var notuð var að samþykkja allt sem var í brotlentu stjórnarskránni og setja í svokallaðan Lissabon-sáttmála, en taka út alla beina vísun í orðið stjórnarskrá, þótt afleiðingin af báðum plöggum væri nákvæmlega hin sama. David Cameron lofaði því hátíðlega að láta fara fram þjóðaratkvæði um Lissabon-sáttmálann yrði hann forsætisráðherra. Það varð hann, en sveik lof- orðið með aumu yfirklóri. Meðal annars þess vegna trúði enginn hjalinu um að hann myndi gera nýjan samning við ESB fyrir þjóðaratkvæðið um brexit í samræmi við kröfur sínar sem myndu gjörbreyta stöðu Breta í ESB. Merkel kanslari hafnaði öllum raunverulegum óskum hans og aðrir höfðu þá ekkert um málið að segja. Cameron fékk aðeins orðalags- breytingar sem ekkert gildi höfðu og var þó með láta- læti um árangur sinn. Þeir sem sáu um baráttuna gegn útgöngu sögðu honum að því fyrr sem kjósendur gætu gleymt hans sneypuför því betra. Cameron hafði heitið því margoft að fengi hann ekki sínar breytingar fram myndi hann leggja til við þjóðina að hún segði já við útgöngu. Hann fékk ekkert og sveik það heit líka. Góður maður, grimm örlög Jacques Chirac var mjög hlýr maður í viðkynningu og léttur í framgöngu og gæddur kímnigáfu sem var hvorki ögrandi né uppáþrengjandi. Hann naut þess að skiptast á skoðunum og umgangast fólk, svo hann naut lengi velvildar almennings. En síðasta kjörtímabil hans reyndist honum erfið- ast, þótt hann fengi kosningu í það sinnið með miklum meirihluta atkvæða. En því réð franska kosninga- kerfið en ekki vinsældir forsetans. Foringi hins stórflokksins, sósíalista, lenti í þriðja sæti í fyrri umferð kosninganna og datt því út. Jean Samferðamaður kvaddur Reykjavíkurbréf04.10.19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.