Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Qupperneq 2
Hver er kveikjan og hugmyndin að baki sýningunni? Það er í raun að það séu 20 ár að baki í þessu brölti, í grínheimum. Ég fann bara eftir því sem þetta nálgaðist að mig langaði að gera eitthvað úr þessu. Það var aldrei neitt annað sem kom til greina en einhvers konar sýning. Þegar ég spáði meira í það fannst mér góð hugmynd að horfa til baka, rifja upp, spá og kryfja. Hvernig kom hitt og þetta til og hvernig gerð- ist það? Hvernig fæðast sumar af þessum hugmyndum sem maður tekur þátt í? Það er líka svo margt sem gerist að tjaldabaki sem er gaman að segja frá. Í uppistandi, veislustjórn og öllum þessum þáttum sem ég hef komið að. Það er í rauninni þannig að maður nær ekki að komast yfir þetta allt. Listinn er enda- laus af uppákomum og kjaftæði sem ég þarf að koma frá mér. Hvernig verður stemningin, verður grín og glens? Það verður náttúrulega grín og glens en að sama skapi bara sögustund. Þetta eru hlutir sem ég hef orðið vitni að. Ég er að reyna að koma fólki á staðinn. Ef ég næ því væri það geggjað. En þetta er ekkert uppgjör, bara létt og skemmtilegt. Þú ferð yfir uppruna nokkurra landsþekktra karaktera, ekki satt? Jú, uppruna þeirra og hvernig þeir urðu til. Mikið af þessu varð til í útvarpi, maður hefur verið að hringja endalaust hingað og þangað sem einhverjir skrítnir karlar og svona. Sumir karakterar hafa fylgt mér lengur en aðrir. Sumir urðu til áður en ég varð fyndnasti maður Íslands 1999. Maður hefur verið í tómu rugli alla ævi, ef ég á að vera hreinskilinn. Alltaf eitthvert grín. Er eitthvað annað á döfinni hjá þér? Nei, í rauninni ekki. Þetta er búið að eiga hug minn og hjarta og mun gera þar til ég skila þessu af mér. Það er ýmislegt í farvatninu sem er í salti þar til ég verð búinn með þetta. Ég er einfaldur af því leytinu til að ég næ ekki að einbeita mér að of mörgu í einu. Ég er of gamall maður. Ég geri eitt vel frekar en margt illa. Morgunblaðið/Árni Sæberg PÉTUR JÓHANN SIGFÚSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Uppákomur og kjaftæði Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019 BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn Sunnumörk 2, Hveragerði, og Larsenstræti 5, Selfossi • Sími 483 1919, Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18 Vikan hefur verið óvenjumenningarleg hjá pistlahöfundi sem hefur far-ið bæði á kvikmynd á RIFF og í leikhús og það dag eftir dag. Kvik-myndin sem ég sá heitir Marianne og Leonard og er heimildamynd um hinn mikla meistara Leonard Cohen og hans norsku ástkonu Marianne. Frábær mynd um minn uppáhaldstónlistarmann sem synir mínir skilja ekki. Þeir segja hann „tala en ekki syngja“. Ég spyr á móti, hvað um rapparana sem þeir hlusta á? En alla vega, það er alltaf gaman að koma í Bíó Paradís sem hét í gamla daga Regnboginn. Það er einhver notaleg stemning þarna sem er ekki í öðr- um kvikmyndahúsum. Þar sem ég sat í salnum með poppið mitt og beið eftir meistara Cohen skaust gömul minning upp í hugann. Ég fór eitt sinni með systur minni og mági í Regnbogann en ekki man ég á hvaða mynd. Í hléi fórum við fram að rétta úr fótum og „mingla“ við fólk. Á leiðinni inn úr hléi ákvað ég að skjótast sem snöggvast á sal- ernið og sagðist koma að vörmu spori. Þegar ég svo geng inn í litla sal- inn er myndin byrjuð og skil ég ekk- ert í því að í sætum okkar þriggja situr bláókunnugt fólk. Hvergi bólar á systur minni og mági og dreg ég þá ályktun að þau hafa líklega líka farið á salernið á síðustu stundu. Í þá daga voru sætin númeruð og ég spurði fólkið kurteislega, í myrkrinu, hvort það gæti verið að þau væru í vitlausum sætum. Jú, þau játtu því, það gæti vel verið, og færðu sig í næstu röð. Ég settist niður, alein, og fór að horfa á myndina, enn að undra mig á því hvar sam- ferðafólk mitt væri. Fimm mínútur liðu og í myndinni var kafari að koma upp á yfirborðið. Vondir menn með byssur hlupu um og skutu í gríð og erg á bryggjunni. Enn bólaði ekkert á systur minni og mági. Nú fóru að renna á mig tvær grímur. Myndin mín fjallaði alls ekki um neina kafara og var enn síður ofbeldismynd. Ég fann hvernig ég roðnaði í myrkrinu. Það var ansi lúpuleg kona sem laumaði sér út úr salnum og inn í næsta sal. Kona sem var þar að auki búin að vísa blásaklausu fólki úr sætum sín- um. Ég laumaði mér í sætið við hliðina á systur minni sem horfði á mig hissa og hvíslaði: „hvar ertu eiginlega búin að vera?“ Roðnað í myrkrinu Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Nú fóru að renna ámig tvær grímur.Myndin mín fjallaði allsekki um neina kafara og var enn síður ofbeld- ismynd. Ég fann hvernig ég roðnaði í myrkrinu. Eva Rún Rúnarsdóttir Börnin mín, alveg klárlega. SPURNING DAGSINS Hvað gefur lífinu gildi? Eggert Jóhannesson Fjölskyldan. Matthildur Steinbergsdóttir Tónlist gefur lífinu gildi af því að ég er óperusöngkona. Karl Ólafur Hinriksson Fjölskyldan og heilsan. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina er frá AFP 20 ár eru liðin frá því Pétur Jóhann Sigfússon varð fyndnasti maður Íslands. Af því til- efni fer hann yfir ferilinn og rifjar upp skemmtileg atvik og uppákomur á uppistands- sýningu í Hörpu 9. og 23. nóvember. Miðar fást á tix.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.