Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Blaðsíða 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019 Getan til að skapa ný verðmætier líklega mikilvægasta ein-kenni blómlegs og mann- vænlegs samfélags. Þá á ég ekki ein- göngu við efnahagsleg verðmæti, sem mælast í landsframleiðslu og kaup- getu, heldur einnig menningarleg og samfélagsleg verðmæti sem hafa úr- slitaáhrif á hversu vel fólki líður. Það var með stolti sem ég kynnti í vikunni nýsköpunarstefnu fyrir Ís- land, framtíðarsýn um hvernig við viljum að „Nýsköpunarlandið Ísland“ líti út árið 2030. Grunnstef stefnunn- ar er sú trú að framtíðarvelmegun þjóðarinnar byggist á því að búa til ný verðmæti. Þau munu ekki koma upp í hendurnar á okkur eða falla okkur sjálfkrafa í skaut. Fulltrúar allra þingflokka komu að gerð stefnunnar sem og fulltrúar úr atvinnulífi og vísinda- og háskóla- samfélaginu, auk ráðuneytis nýsköp- unar. Formaður stýrihóps var Guð- mundur Hafsteinsson, frumkvöðull og fyrrum yfirmaður vöruþróunar Google Assistant. Fimm hornsteinar Niðurstaðan er að við þurfum fimm hornsteina til að byggja upp Nýsköp- unarlandið Ísland: hugarfar, fjár- magn, markaðsaðgengi, umgjörð og mannauð. Hverjum og einum horn- steini er ítarlega lýst í stefnunni og þar eru sett fram næstum 100 stefnu- mið, áherslur og aðgerðir um þá. Nýsköpunarstefna verður auðvitað aldrei afgreidd endanlega með einni skýrslu, afmörkuðum lista af hug- myndum, einni yfirhalningu á stofn- anaumgjörð eða neinum þess háttar allsherjarlausnum. Sýn stjórnvalda verður því að snúast um nálgun og að- ferð frekar en eingöngu um einstakar aðgerðir. Tíu leiðarljós Stefnan leggur okkur einnig til tíu svohljóðandi leiðarljós: 1) Hugvit ein- staklinga er mikilvægasta uppspretta nýsköpunar. 2) Nýsköpun er samofin menningu, samfélagi og efnahagslífi. 3) Þykjumst ekki vita það sem ekki er hægt að vita. 4) Ósigrar eru óhjá- kvæmilegir en uppgjöf er óásættan- leg. 5) Engar lausnir eru endanlegar. 6) Nýsköpun er ekki línulegt ferli. 7) Nýsköpun er forsenda lífsgæða í for- tíð, nútíð og framtíð. 8) Fjármagn á að renna til rannsókna og frumkvöðla fremur en í umsýslu og yfirbyggingu. 9) Áherslan þarf að vera á árangur fremur en útgjöld og fyrirhöfn. Og síðast en ekki síst: 10) Þegar við horf- um út í heim þá horfir heimurinn til okkar. Ekki lúxus heldur nauðsyn Geta samfélagsins til að skapa verð- mæti með nýsköpun er ekki lúxus eða viðbót við það sem kallast hefðbund- inn atvinnurekstur. Það sem þykir hefðbundið í dag byggist að sjálfsögðu á nýsköpun og hugviti fyrri tíma. Öll framþróun, í öllum atvinnugreinum, byggist alltaf og alls staðar á einhvers konar nýsköpun. Málið snýst því ekki um iðnað eða nýsköpun, ferðaþjón- ustu eða nýsköpun, sjávarútveg eða nýsköpun, landbúnað eða nýsköpun – heldur nýsköpun í iðnaði, nýsköpun í ferðaþjónustu, nýsköpun í opinberri þjónustu og svo framvegis. Sýn og aðgerðir Það myndi brjóta í bága við sjálft eðli nýsköpunar að setja stefnu um hana fram sem einhvers konar tæmandi lista yfir það sem þurfi að gera í eitt skipti fyrir öll. Engu að síður eru bein- ar aðgerðir þó vitaskuld veigamikill þáttur í stefnumótuninni. Ég mun á næstunni kynna nokkrar þeirra að- gerða sem ég hef trú á að efli nýsköp- unarumhverfi Íslands með afgerandi hætti. Þær verða kynntar á tækni- og hugverkaþingi Samtaka iðnaðarins í nóvember. Nýsköpunarstefna þarf að vera þess eðlis að ekki sé tjaldað til einnar nætur og ekki bara til eins kjörtímabils. Hér hefur að mínu mati verið vandað það vel til verka með víðtæku samráði að stefnan á að geta staðið sem leiðarljós langt út fyrir nú- verandi kjörtímabil og núverandi rík- isstjórn. Það hefur verið ánægjulegt að finna góða samstöðu í stýrihópi um mótun stefnunnar. Ég kann öllum í hópnum mínar bestu þakkir fyrir sitt framlag og einnig verkefnastjórninni og öllum þeim frumkvöðlum, fyrir- tækjum og öðrum hagaðilum í ný- sköpunarumhverfinu sem lögðu okk- ur lið. Vonandi mun áfram eiga sér stað uppbyggileg samvinna um þær hugmyndir og aðgerðir sem kynntar verða á grundvelli þessarar vinnu á komandi mánuðum. Grundvöllur góðra lífskjara og velsældar Við höfum alla burði til að vera virkir og fullgildir þátttakendur í hröðum og síbreytilegum heimi nýsköpunar og tæknibreytinga. Það er áskorun sem við þurfum að takast á við til að tryggja framúrskarandi lífskjör og velsæld á Íslandi á komandi áratug- um. Nýsköpunarstefnan sem kynnt var í vikunni gerir okkur að mínu mati betur í stakk búin til þess en nokkru sinni fyrr. Nýsköpunarstefna kynnt Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’Markmið stefnunnarer að gera Ísland beturí stakk búið til að mætaáskorunum framtíð- arinnar með því að byggja upp traustan grundvöll fyrir hugvitsdrifna ný- sköpun á öllum sviðum. Eggert laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Sjóðheit steypujárnssending Lodge járnpanna, 26 cm Verð 9.500 kr. 6.okt. kl. 16 Komdu á Sígilda sunnudaga og upplifðu fjölbreytt úrval kammertónlistar í allan vetur. harpa.is/sigildir Camerarctica Mozart & Brahms SÍGILDIR SUNNUDAGAR KLASSÍSK TÓNLEIKARÖÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.