Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2019, Síða 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2019
Getan til að skapa ný verðmætier líklega mikilvægasta ein-kenni blómlegs og mann-
vænlegs samfélags. Þá á ég ekki ein-
göngu við efnahagsleg verðmæti, sem
mælast í landsframleiðslu og kaup-
getu, heldur einnig menningarleg og
samfélagsleg verðmæti sem hafa úr-
slitaáhrif á hversu vel fólki líður.
Það var með stolti sem ég kynnti í
vikunni nýsköpunarstefnu fyrir Ís-
land, framtíðarsýn um hvernig við
viljum að „Nýsköpunarlandið Ísland“
líti út árið 2030. Grunnstef stefnunn-
ar er sú trú að framtíðarvelmegun
þjóðarinnar byggist á því að búa til ný
verðmæti. Þau munu ekki koma upp í
hendurnar á okkur eða falla okkur
sjálfkrafa í skaut.
Fulltrúar allra þingflokka komu að
gerð stefnunnar sem og fulltrúar úr
atvinnulífi og vísinda- og háskóla-
samfélaginu, auk ráðuneytis nýsköp-
unar. Formaður stýrihóps var Guð-
mundur Hafsteinsson, frumkvöðull
og fyrrum yfirmaður vöruþróunar
Google Assistant.
Fimm hornsteinar
Niðurstaðan er að við þurfum fimm
hornsteina til að byggja upp Nýsköp-
unarlandið Ísland: hugarfar, fjár-
magn, markaðsaðgengi, umgjörð og
mannauð. Hverjum og einum horn-
steini er ítarlega lýst í stefnunni og
þar eru sett fram næstum 100 stefnu-
mið, áherslur og aðgerðir um þá.
Nýsköpunarstefna verður auðvitað
aldrei afgreidd endanlega með einni
skýrslu, afmörkuðum lista af hug-
myndum, einni yfirhalningu á stofn-
anaumgjörð eða neinum þess háttar
allsherjarlausnum. Sýn stjórnvalda
verður því að snúast um nálgun og að-
ferð frekar en eingöngu um einstakar
aðgerðir.
Tíu leiðarljós
Stefnan leggur okkur einnig til tíu
svohljóðandi leiðarljós: 1) Hugvit ein-
staklinga er mikilvægasta uppspretta
nýsköpunar. 2) Nýsköpun er samofin
menningu, samfélagi og efnahagslífi.
3) Þykjumst ekki vita það sem ekki er
hægt að vita. 4) Ósigrar eru óhjá-
kvæmilegir en uppgjöf er óásættan-
leg. 5) Engar lausnir eru endanlegar.
6) Nýsköpun er ekki línulegt ferli. 7)
Nýsköpun er forsenda lífsgæða í for-
tíð, nútíð og framtíð. 8) Fjármagn á að
renna til rannsókna og frumkvöðla
fremur en í umsýslu og yfirbyggingu.
9) Áherslan þarf að vera á árangur
fremur en útgjöld og fyrirhöfn. Og
síðast en ekki síst: 10) Þegar við horf-
um út í heim þá horfir heimurinn til
okkar.
Ekki lúxus heldur nauðsyn
Geta samfélagsins til að skapa verð-
mæti með nýsköpun er ekki lúxus eða
viðbót við það sem kallast hefðbund-
inn atvinnurekstur. Það sem þykir
hefðbundið í dag byggist að sjálfsögðu
á nýsköpun og hugviti fyrri tíma. Öll
framþróun, í öllum atvinnugreinum,
byggist alltaf og alls staðar á einhvers
konar nýsköpun. Málið snýst því ekki
um iðnað eða nýsköpun, ferðaþjón-
ustu eða nýsköpun, sjávarútveg eða
nýsköpun, landbúnað eða nýsköpun –
heldur nýsköpun í iðnaði, nýsköpun í
ferðaþjónustu, nýsköpun í opinberri
þjónustu og svo framvegis.
Sýn og aðgerðir
Það myndi brjóta í bága við sjálft eðli
nýsköpunar að setja stefnu um hana
fram sem einhvers konar tæmandi
lista yfir það sem þurfi að gera í eitt
skipti fyrir öll. Engu að síður eru bein-
ar aðgerðir þó vitaskuld veigamikill
þáttur í stefnumótuninni. Ég mun á
næstunni kynna nokkrar þeirra að-
gerða sem ég hef trú á að efli nýsköp-
unarumhverfi Íslands með afgerandi
hætti. Þær verða kynntar á tækni- og
hugverkaþingi Samtaka iðnaðarins í
nóvember. Nýsköpunarstefna þarf að
vera þess eðlis að ekki sé tjaldað til
einnar nætur og ekki bara til eins
kjörtímabils. Hér hefur að mínu mati
verið vandað það vel til verka með
víðtæku samráði að stefnan á að geta
staðið sem leiðarljós langt út fyrir nú-
verandi kjörtímabil og núverandi rík-
isstjórn.
Það hefur verið ánægjulegt að
finna góða samstöðu í stýrihópi um
mótun stefnunnar. Ég kann öllum í
hópnum mínar bestu þakkir fyrir sitt
framlag og einnig verkefnastjórninni
og öllum þeim frumkvöðlum, fyrir-
tækjum og öðrum hagaðilum í ný-
sköpunarumhverfinu sem lögðu okk-
ur lið. Vonandi mun áfram eiga sér
stað uppbyggileg samvinna um þær
hugmyndir og aðgerðir sem kynntar
verða á grundvelli þessarar vinnu á
komandi mánuðum.
Grundvöllur góðra
lífskjara og velsældar
Við höfum alla burði til að vera virkir
og fullgildir þátttakendur í hröðum
og síbreytilegum heimi nýsköpunar
og tæknibreytinga. Það er áskorun
sem við þurfum að takast á við til að
tryggja framúrskarandi lífskjör og
velsæld á Íslandi á komandi áratug-
um. Nýsköpunarstefnan sem kynnt
var í vikunni gerir okkur að mínu
mati betur í stakk búin til þess en
nokkru sinni fyrr.
Nýsköpunarstefna kynnt
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’Markmið stefnunnarer að gera Ísland beturí stakk búið til að mætaáskorunum framtíð-
arinnar með því að byggja
upp traustan grundvöll
fyrir hugvitsdrifna ný-
sköpun á öllum sviðum.
Eggert
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Sjóðheit steypujárnssending
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 9.500 kr.
6.okt. kl. 16
Komdu á Sígilda sunnudaga
og upplifðu fjölbreytt úrval
kammertónlistar í allan vetur.
harpa.is/sigildir
Camerarctica
Mozart
& Brahms
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
KLASSÍSK TÓNLEIKARÖÐ