Fréttir - Eyjafréttir - jun. 2019, Síða 2
Goslokin eru mikilvægur liður í
uppgjörinu og þar eiga Eyjafréttir
gott hlutverk. Ótal endurminngar
fólks úr gosinu hafa verið sagðar
í Eyjafréttum. Þessi viðtöl og
þessar sögur verður að varðveita.
Ein reynslan sem hefur reyndar
ekki verið skrifuð er frá konu
sem var ung móðir í gosinu. Hún
var akkurat vakandi um það leiti
þegar síminn hringdi og látið var
vita að gos hefði byrjað. Hún var
genginn átta mánuði á leið með
sitt þriðja barn og inn í barna-
herbergi sváfu drengirnir hennar
tveir sem þá voru 6 og 7 ára.
Eins og aðrið fór hún með bát til
Þorlákshafnar, eiginmaðurinn var
skipstjóri á bátnum og hafði eins
og aðrir verið í landi þessa ör-
lagaríku nótt. Þegar í Þorlákshöfn
var komið fór hún í land með
drengina sína tvo, mánuður eftir
af meðgöngunni og í veskinu var
bankabók og bleyjur. Framhaldið
var óvitað en eiginmaðurinn
þurfti að sigla aftur til Eyja.
Þessi saga situr í mér því ég
reyndi að setja mig í hennar spor,
ég á tvo litla drengi og reyni að
ímynda mér stöðuna sem hún og
aðrar mæður voru í. Enginn vissi
hvað framundan var, hvert átti að
fara, hvenær eða hvort þau færu
heim aftur?
Gosið hefur án efa lagst mis-
jafnlega í fólk og eflaust margir
sem hafa aldrei náð að gera upp
þessa erfiðu lífsreynslu. Maður
skynjar á mörgum að þetta
gerðist bara og fólk hélt áfram að
lifa, kannski ekkert annað í boði
og ekki nein einasta áfallahjálp
að fá. Ef það er eitthvað sem er
einkennandi fyrir þessa tíma að
mínu mati að þá er það samstaða,
ekki bara Eyjamanna, maður
skynjar að flest allir á landinu
hafði verið boðnir og búnir til
að hjálpa til. Goslokin eru eins
og áður sagði mikilvægur liður
í uppgjörinu og það eru sögur
þarna úti sem ekki hafa verið
sagðar en að mínu mati þurfa
heyrast.
Dagskrá Goslokanna í ár er að
vanda glæsileg eins og sjá má á
síðu tólf í blaðinu. Þar má finna
eitthvað fyrir alla fjölskylduna.
Gleðileg Goslok!
Sara Sjöfn Grettisdóttir
ritstjóri
Hvenær eða hvort
við komumst
aftur heim?
Efnisyfirlit
[04] Viðburðaríkur júní
[06] Ég hef miklar væntingar til þessa skips
[07] Vonir um að skipið muni gjörbreyta
búsetuskilyrðum í Vestmannaeyjum
[07] Betri tímar framundan með nýjum
tækifærum
[07] Við erum tilbúin í þetta spennandi
verkefni
[08] Ætti að vera skyldueign á hverju
einasta Eyjaheimili
[10] Ákvað að freista gæfunnar og grafa
upp húsið sitt
[12] Dagskrá Goslokahátíðar
[13] Lífsviljinn og lífsgleðin í myndum
mínum
[14] Dreymdi fyrir gosinu og hvar hraunið
myndi enda
[16] Búið að vera draumur hjá mér lengi að
vinna meira með grafík
[18] Afmælisrit í tilefni af 100 ára afmæli
kaupstaðarins
[18] Ólíkir skólar fyrir ólíka einstaklinga
[20] Þroskandi fyrir allt og alla
[22] Kjúklingur í dásamlegri rjómasósu
og döðluterta
[23] Stærsta Orkumótið frá upphafi
[23] TM mótið haldið í þrítugasta sinn
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
Ritstjórn og ábyrgð: Sara Sjöfn Grettisdóttir
- sarasjofn@eyjafrettir.is
Umbrot: Sæþór Vídó - sathor@eyjafrettir.is
Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Aðsetur ritstjórnar: Ægisgata 2, Vestm.eyjum.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Næsta blað Eyjafrétta kEmur út 31. júlí
m i t t m á l
forsíðumyNd í Eigu ÞórariNs sigurðssoN
tEkiN af sigurgEiri jóNassyNi 24. apríl 1973