Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jun. 2019, Side 4

Fréttir - Eyjafréttir - jun. 2019, Side 4
4 | Eyjafréttir | Goslok 2019 3.-5. júní Vel heppnuð sjómannahelgi Sjómannahelgin var öll hin glæsilegasta í Vestmannaeyjum. Dagskráin hófst á fimmtudeginum og kláraðist á sjálfan Sjómanna- daginn. Margt var um manninn og var veðrið gott alla helgina. Óskar Pétur Friðriksson var á myndavél- inni alla helgina og myndaði fyrir Eyjafréttir. Á sjálfan Sjómannadaginn byrjaði dagskráin dagsins í Landakirkju með Sjómannamessu. Eykindils- konur voru með kaffisamsæti í Akóges. Klukkan þrjú hófst svo dag- skráin á Stakkagerðistúni eins og áður. Þar voru veitt verðlaun fyrir keppnir laugardagsins, sjómenn heiðraðir og vel valdir ræðumenn sögðu nokkur orð. Verðandi heiðr- aði Gísla Val Einarsson og Gísla Einarsson (sem vantar á myndina). Jötunn heiðraði Halldór Björgvins- son og Vélstjórafélagið heiðraði Gunnar Marel Tryggvason. 13. júní Ánægja með forseta heimsókn Forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier og Elke Büdenbender forsetafrú, forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, forsetafrú, ásamt fylgdarliði, komu í heimsókn til Vestmannaeyja þann 14. júní síðastliðinn. Um var að ræða hluta af opinberri heimsókn þýska forsetans til Ís- lands. Forsetahjónin heimsóttu meðal annars sjóvarmadælustöðina, Breka VE-61, borðuðu hádegismat á Slippnum, kíktu á stúlkurnar á TM mótinu í knattspyrnu og gengu einnig á Eldfell. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, bauð sendinefndinni til móttöku í Eldheimum til heiðurs forsetahjónunum. Virkilega vel heppnuð heimsókn og forsetahjón- in afar ánægð með heimsóknina. 14. júní Herjólfur kominn heim 14. júní var sannanlega gleðidagur fyrir íbúa í Vestmannaeyjum en þá var Eyjamönnum afhentur nýr og glæsilegur Herjólfur í heima- höfn. Það hefur verið beðið eftir þessum degi í þó nokkurn tíma og því mikil gleðistund að nýtt skip sé loksins komið. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra, voru við móttökuathöfnina þar sem nýr Herjólfur var afhentur Vestmannaeyingum. Við athöfnina nefndi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, formlega nýjan Herjólf og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp þar sem hann afhenti Vest- mannaeyingum hina nýju ferju. Í ræðu samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra kom fram að með nýjum Herjólfi standi vonir til að samgöngur verði betri og þjóni þörfum Vestmannaeyinga. Þá eru orkuskipti eitt af áhersluatriðum ríkisstjórnarinnar. Því hefði ekkert annað komið til greina en að ný ferja gengi fyrir umhverfisvænni orku. Þá fluttu forstjóri Vega- gerðarinnar, formaður bæjarráðs og fulltrúi Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ávörp og prestur Landa- kirkju blessaði skipið. 17. júní Hæ hó og jibbí Íslenska fánanum sást víða veifað í gær í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga. Vestmannaeyjabær var að vanda með dagskrá sem hófst á Hraunbúðum og svo var líf og fjör á Stakkagerðistúni um miðjan dag. Eins og áður var gengið í lögreglu- fylgd frá Íþróttamiðstöðinni niður Illugagötu, inn Faxastíg og áfram Vestmannabraut að Stakkagerð- istúni. Fánaberar úr Skátafélaginu Faxa leiddu gönguna og félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja léku undir. Helga Jóhanna Harðardóttir, formaður fjölskyldu- og tóm- stundaráðs setti hátíðina á Stakkó í gær og lúðrasveit Vestmanna- eyja spilaði nokkur vel valin lög og börn af Víkinni, 5 ára deild sungu einnig nokkur lög. Páll Magnússon, alþingismaður var með hátíðarræðuna í gær á eftir honum kom Fjallkonan Lísa María Friðriksdóttir og flutti hátíðarljóð. Ávarp nýstúdents var í höndum Dagbjartar Lenu Sigurðardóttur og Thelma Lind Þórarinsdóttir söng nokkur lög. Fimleikafélagið Rán sýndi atriði og svo voru hoppukast- alar og fjör fyrir börnin. 20 júní systurnar koma heilar og höldnu til Vestmannaeyja Mjaldrasysturnar Litla hvít og Litla grá lögðu upp í langt ferðalag frá Kína þann 19. Júní. Ferðalagið hófst klukkan fjögur um nótt að íslenskum tíma þegar vöruflutn- ingaþota Cargolux, Boeing 747- 400 ERF, lagði af stað frá Sjanghæ í Kína með mjaldrana um borð. Flugið tók tæpa ellefu klukku- stundir og lenti vélin í Keflavík rétt fyrir klukkan tvö þann 20. Þar tók við tollafgreiðsla auk þess sem fulltrúar MAST skoðuðu mjaldrana og gáfu út formlegt leyfi fyrir flutn- ingnum. Einnig var skipt um vatn að hluta í búrum systranna áður en lagt var af stað eftir Suðurstrand- aveginum seinnipartinn þann dag og rétt fyrir klukkan tíu um kvöldið keyrðu bílarnir með systurnar inní Herjólf sem kom klukkustund síðar í höfn í Vestmannaeyja. Mjaldrasysturnar var komið ofa í landlaugina í einangrun þar sem þær munu dvelja allavega í 40 daga. Þegar aðlögun þeirra er lokið verða þær fluttar á griðastað sinn í Klettsvík. Systurnar voru talsvert þreyttar eftir ferðalgið og en jöfnuðu sig fljótt og vel og una sér í dag vel í landlauginni. Viðburðaríkur júní SARA SjöfN GREttiSdóttiRsarasjofn@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.