Fréttir - Eyjafréttir - Jun 2019, Blaðsíða 6
6 | Eyjafréttir | Goslok 2019
nýtt skip okkar eyjamanna
kom heim til Vestmannaeyja
þann 15. júní síðastliðinn.
Þessa dagana er unnið að því
gera skipið klárt fyrir rekstur
svo hægt verði að sigla því á
milli lands og eyja. Blaðamað-
ur eyjafrétta fór á dögunum
og kíkti um borð og tók smá
spjall við Ívar Torfason einn af
skipstjórum Herjólfs.
Aðspurður um megin muninn á
skipunum að hans mati sagði hann
að flutningsgetan væri miklu meiri
á nýja skipinu. „Aðal munurinn
er að við getum flutt fleiri farþega
og fleiri bíla á milli í hverri ferð.
Rekstrarkostnaðurinn ætti að verða
töluvert lægri á nýja skipinu, því
það er að hluta til keyrt á rafmagni
og við þurfum þar með ekki að
brenna eins mikilli olíu. Svo
er þetta skip hannað til þess að
sigla inn í Landeyjahöfn við þær
aðstæður sem eru þar,“ sagði Ívar
sem lýst mjög vel á skipið.
Ekkert líkt gamla skipinu á
nokkurn hátt
„Mér lýst mjög vel á skipið og
það er gríðarlega spennandi fyrir
mann í minni stöðu að fá svona
tæki í hendurnar og fá að stýra því.
Búnaðurinn er mjög góður og það
hefur verið vandað vel til verka
við valið á öllum tækjabúnaði.
Við erum núna að læra á skipið og
tileinka okkur það sem það hefur
uppá að bjóða því þetta er ekkert
líkt gamla skipinu á nokkurn hátt.
Ég hef miklar væntingar til þessa
skips,“ sagði Ívar.
skip velta í vondu veðri
Aðspurður um siglingar til Þorláks-
hafnar á veturna þegar veðrið
er vont sagði Ívar að það þyrfti
reynslan að leiða í ljós. „Við höfum
ekki farið í svoleiðis aðstæður enn
sem komið er og það er ekki hægt
að fá mynd af því fyrr en það gefst
reynsla í slíku veðri. Skip velta í
vondu veðri, gamli Herjólfur gerir
það og það mun þessi líka gera, þar
er enginn undankomu leið þar,“
sagði Ívar.
Á leiðinni heim frá Póllandi kom
smá bræla á einum kaflanum, þegar
blaðamaður spurði út í það sagði
Ívar að menn hefðu verið við öllu
viðbúnir en að skipið hefði komið
á óvart og það hefði verið betra en
menn bjuggust við.
Ívar Torfason skipstjóri:
Ég hef miklar væntingar
til þessa skips
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is