Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jun 2019, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - jun 2019, Qupperneq 6
6 | Eyjafréttir | Goslok 2019 nýtt skip okkar eyjamanna kom heim til Vestmannaeyja þann 15. júní síðastliðinn. Þessa dagana er unnið að því gera skipið klárt fyrir rekstur svo hægt verði að sigla því á milli lands og eyja. Blaðamað- ur eyjafrétta fór á dögunum og kíkti um borð og tók smá spjall við Ívar Torfason einn af skipstjórum Herjólfs. Aðspurður um megin muninn á skipunum að hans mati sagði hann að flutningsgetan væri miklu meiri á nýja skipinu. „Aðal munurinn er að við getum flutt fleiri farþega og fleiri bíla á milli í hverri ferð. Rekstrarkostnaðurinn ætti að verða töluvert lægri á nýja skipinu, því það er að hluta til keyrt á rafmagni og við þurfum þar með ekki að brenna eins mikilli olíu. Svo er þetta skip hannað til þess að sigla inn í Landeyjahöfn við þær aðstæður sem eru þar,“ sagði Ívar sem lýst mjög vel á skipið. Ekkert líkt gamla skipinu á nokkurn hátt „Mér lýst mjög vel á skipið og það er gríðarlega spennandi fyrir mann í minni stöðu að fá svona tæki í hendurnar og fá að stýra því. Búnaðurinn er mjög góður og það hefur verið vandað vel til verka við valið á öllum tækjabúnaði. Við erum núna að læra á skipið og tileinka okkur það sem það hefur uppá að bjóða því þetta er ekkert líkt gamla skipinu á nokkurn hátt. Ég hef miklar væntingar til þessa skips,“ sagði Ívar. skip velta í vondu veðri Aðspurður um siglingar til Þorláks- hafnar á veturna þegar veðrið er vont sagði Ívar að það þyrfti reynslan að leiða í ljós. „Við höfum ekki farið í svoleiðis aðstæður enn sem komið er og það er ekki hægt að fá mynd af því fyrr en það gefst reynsla í slíku veðri. Skip velta í vondu veðri, gamli Herjólfur gerir það og það mun þessi líka gera, þar er enginn undankomu leið þar,“ sagði Ívar. Á leiðinni heim frá Póllandi kom smá bræla á einum kaflanum, þegar blaðamaður spurði út í það sagði Ívar að menn hefðu verið við öllu viðbúnir en að skipið hefði komið á óvart og það hefði verið betra en menn bjuggust við. Ívar Torfason skipstjóri: Ég hef miklar væntingar til þessa skips SARA SjöfN GREttiSdóttiR sarasjofn@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.