Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - jun 2019, Qupperneq 7

Fréttir - Eyjafréttir - jun 2019, Qupperneq 7
Goslok 2019 | Eyjafréttir | 7 Magnús Bragason hótelstjóri á Hótel Vestmannaeyjum líst vel á nýjan Herjólf. „Mér líst vel á nýja Herjólf, hann er fallega hannaður að innan og bjartir litir. Hann er rúmgóður, með stórum gluggum og miklu útsýni,“ sagði Magnús í samtali við Eyjafréttir. Hverjar eru væntingar þínar og vonir fyrir Vestmannaeyjar með bættum samgöngum? „Samgöngur hafa hamlað vexti ferðaþjónustu- fyrirtækja í Eyjum. Ég vona að það gangi eftir það sem stjórnvöld hafa sagt og nú verði hægt að sigla til Landeyja- hafnar á ársgrundvelli. Við vitum að ferðamenn hafa viljað koma til Vestmannaeyja á veturna, en hætt við vegna þess að siglt hefur verið frá Þorlákshöfn. Það hefur verið innviðarupp- bygging í ferðaþjónustu í Eyjum og við erum tilbúin í þetta spennandi verkefni. Því er mikil eftirvænting ríkjandi hjá okkur. Ég bind vonir mínar við að þetta muni takast vel og þá mun það gjörbreyta búsetu- skilyrðum í Vestmannaeyjum,“ sagði Magnús. Berglind Sigmarsdóttir formaður ferðamálasamtakan Vestmannaeyja og einn af eigendum veitinga- staðanna Gott og Pítsugerðarinnar er bjartsýn og vonar að skipið sé gott til siglinga. „Mér líst mjög vel á nýja skipið það sem ég hef séð, það er huggulegt og mér sýnist að það eigi að fara vel um farþega skipsins, en auðvitað skiptir það mestu hvernig skipið mun sigla og ég hef ekki siglt með skipinu svo maður er að horfa á hlut sem lítur vel út en maður veit ekki alveg hvað hann getur gert. Ég kýs þó langoftast að vera bjartsýn og vona að það sé rétt sem sagt er að það sé gott til siglinga,“ sagði Berglind Hverjar eru væntingar þínar og vonir fyrir Vestmannaeyjar með bættum samgöngum? „Ég held að vonir okkar allra séu að skipið getið siglt fleiri ferðir í Landeyja- höfn og að við bætist fleiri mán- uðir sem siglt þangað, bæði fyrir framan og aftan sumarið. Fyrir okkur í ferðaþjónustu væri það björgun að lengja tímabilið því eins og ég hef nefnt áður er ferðatíminn of stuttur til þess að fyrirtækin nái að lifa þennan lokaða tíma af, það er of langur tími sem er ekkert og fyrirtækin eru að reyna að lifa af á því sem sumarið gaf þeim, þessa þrjá mánuði. Þessi stöðuga óvissa hefur skemmt mest fyrir okkur, svo ef þetta fer að verða stöðugt getum við farið að markaðssetja vöru sem við vitum að við getum boðið uppá og unnið til baka það vantraust sem er komið út af óreglulegum siglingum hérna á milli. Þetta er svakalega spennandi og ég hlakka til að fara yfir á nýja skipinu,“ Kristín Jóhannsdóttir framkvæmda- stjóri Eldheima sagði í samtali við Eyjafréttir að nýi Herjólfur hefði komið sér á óvart. „Ég er búin að skoða skipið að innan. Það er mjög flott og kom mér á óvart hve rúmgott það er, ég hlakka til að fara fyrstu ferðina,“ sagði Kristín sem hefur miklar væntingar til skipsins. „Ég hef miklar væntingar til nýja skipsins. Ég trúi ekki öðru en að nýtt skip eigi eftir að geta meira en tæplega 30 ára gamalt skip. Ég er því mjög bjartsýn á að framundan séu betri tímar, með nýjum tækifærum,“ sagði Kristín. Hvað segir ferðaþjónustan um nýja Herjólf: Vonir um að skipið muni gjörbreyta búsetuskilyrðum í Vestmannaeyjum :: mikil eftirvænting og vonir um lengra ferðamannatímabil Betri tímar framundan með nýjum tækifærum Við erum tilbúin í þetta spennandi verkefni

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.