Fréttir - Eyjafréttir - jun. 2019, Side 18
18 | Eyjafréttir | Goslok 2019Maí 2019
Þegar afmælisnefnd í tilefni af
100 ára kaupstaðarafmæli Vest-
mannaeyjabæjar hóf formlega störf
10. september 2018 biðu hennar
fjölmörg verkefni. Áður höfðu
verið teknar ákvarðanir á vettvangi
bæjarstjórnar um nokkur atriði sem
tengjast afmælinu. Meðal fyrstu
verkefna var að taka ákvörðun um
með hvaða hætti þessara merku
tímamóta væri minnst á prenti.
Niðurstaðan var að gefa út 100
ára afmælisrit þar sem farið er í
gegnum söguna með greinar-
skrifum, viðtölum og ekki síst með
annál þar sem stiklað er á stóru í
sögu bæjarfélagsins síðustu 100
árin.
Ritstjóri afmælisritsins er Sara
Sjöfn Grettisdóttir og með henni
í ritnefnd voru Kári Bjarnason,
Ómar Garðarsson og Arnar Sigur-
mundsson. Ritinu var dreift í öll
hús bæjarins í síðustu viku og
til áskrifenda Eyjafrétta á fasta-
landinu.
afmælisrit í tilefni
af 100 ára afmæli
kaupstaðarins
:: samstarfverkefni eyjafrétta
og Vestmannaeyjabæjar
Hérna afhendir Sara Sjöfn Grettisdóttir ritstjóri Eyjafrétta og
afmælisritsins Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyja fyrsta
eintakið af afmælisritnu.
Skapandi og gagnrýnin hugsun,
læsi og þátttaka í lýðræðissam-
félagi verður áfram undirstaða
íslenska skólakerfisins. Á dögunum
samþykkti Alþingi frumvarp sem
festir í sessi faglega umgjörð um
starfsemi lýðskóla. Til þessa hefur
ekki verið nein löggjöf í gildi um
slíka skóla.
meiri fjölbreytni
– minna brottfall
Hlutverk lýðskóla er fyrst og
fremst að búa nemendur undir lífið,
gera þá að fjölhæfum einstakling-
um og reiðubúna til að takast á við
tilveruna. Fjölbreytni er mennta-
kerfinu mikilvæg, nemendur hafa
ólíkar þarfir og þeir þurfa að hafa
val um sitt nám. Meðal ástæðna
brotthvarfs úr framhaldsskólunum
okkar er ákveðin einsleitni í náms-
vali og það að nemendur finna sig
ekki í námi. Það er vel að fjöl-
breytni námsframboðs hér á landi
hefur aukist, ekki síst á framhalds-
skólastiginu og að fleiri nemendur
séu opnir fyrir námskostum t.d. á
sviði verk- og tæknigreina.
lýðskóli á laugarvatni
Lýðskólar vinna með lykilhæfni
skólastarfs, líkt og kveðið er á um
í aðalnámskrá framhaldsskóla, svo
sem námshæfni, skapandi hugsun,
sjálfbærni og lýðræðisleg vinnu-
brögð en meðal markmiða þeirra
samkvæmt frumvarpinu verður
að mæta áhuga og hæfileikum
nemenda sem vilja átta sig betur
á möguleikum sínum og stefnu í
lífi og starfi. Í dag starfa LungA-
skólinn og Lýðháskólinn á Flateyri
eftir hugmyndafræði lýðskóla.
Willum Þór Þórsson, hefur ásamt
þingflokki Framsóknar, lagt fram
þingsályktunartillögu um stofnun
lýðskóla UMFÍ á Laugarvatni. Í
greinargerð með tillögunni segir að
áhugi sé fyrir stofnun lýðskóla á
Laugarvatni með aðkomu mennta-
málayfirvalda og Bláskógabyggðar
og að UMFÍ hafi nú þegar myndað
samstarfsteymi við lýðskóla í
Danmörku sem sé tilbúinn til að
leggja sitt af mörkum í undir-
búningi og framkvæmd. Nú þegar
lagaumgjörð um lýðskóla liggur
fyrir verður langþráður lýðskóli á
Laugarvatni vonandi að veruleika.
Þjálfun í lýðræðislegri hugsun
Lýðskólar eiga sér langa sögu en
Daninn N.F.S. Grundtvig er upp-
hafsmaður þeirrar hugmyndafræði
sem skólarnir byggjast á. Grundt-
vig kynnti á fjórða og fimmta
áratug 19. aldar til sögunnar annars
konar nám og menntun en hið
hefðbundna bóklega nám. Það
byggðist á markmiði um að mennta
dönsk ungmenni í menningu og
sögu auk þess að hvetja þau til þátt-
töku í lýðræðislegu samfélagi en
lýðræðishugmyndir í Evrópu voru
að ryðja sér til rúms um þetta leyti.
Nemendur skyldu stýra skólanum
og hlutverk kennara væri ekki
að spyrja nemendur heldur svara
spurningum þeirra. Áherslan skyldi
vera á hið talaða orð, umræður og
rökræður og þátttöku nemandans
á öllum sviðum og búa þá þannig
undir lífið. Ekki skyldu þreytt próf.
Þá ættu nemendur og kennarar að
búa á sama stað og markmiðið væri
að nemendur tileinkuðu sér færni
og þekkingu sem gagnaðist þeim í
hinu daglega lífi. Fyrsti lýðskólinn
var settur á laggirnar í Danmörku
árið 1844 í Rødding í anda þessara
hugmynda og starfar hann enn.
Hugmyndafræði lýðskóla á ekki
síður erindi við samfélagið í dag en
árið 1844.
Ólíkir skólar fyrir ólíka einstaklinga
Silja dögg
Gunnarsdóttir
þingmaður
Framsóknarflokksins
AðSEND GREIN: