Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - Jun 2019, Page 18

Fréttir - Eyjafréttir - Jun 2019, Page 18
18 | Eyjafréttir | Goslok 2019Maí 2019 Þegar afmælisnefnd í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli Vest- mannaeyjabæjar hóf formlega störf 10. september 2018 biðu hennar fjölmörg verkefni. Áður höfðu verið teknar ákvarðanir á vettvangi bæjarstjórnar um nokkur atriði sem tengjast afmælinu. Meðal fyrstu verkefna var að taka ákvörðun um með hvaða hætti þessara merku tímamóta væri minnst á prenti. Niðurstaðan var að gefa út 100 ára afmælisrit þar sem farið er í gegnum söguna með greinar- skrifum, viðtölum og ekki síst með annál þar sem stiklað er á stóru í sögu bæjarfélagsins síðustu 100 árin. Ritstjóri afmælisritsins er Sara Sjöfn Grettisdóttir og með henni í ritnefnd voru Kári Bjarnason, Ómar Garðarsson og Arnar Sigur- mundsson. Ritinu var dreift í öll hús bæjarins í síðustu viku og til áskrifenda Eyjafrétta á fasta- landinu. afmælisrit í tilefni af 100 ára afmæli kaupstaðarins :: samstarfverkefni eyjafrétta og Vestmannaeyjabæjar Hérna afhendir Sara Sjöfn Grettisdóttir ritstjóri Eyjafrétta og afmælisritsins Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyja fyrsta eintakið af afmælisritnu. Skapandi og gagnrýnin hugsun, læsi og þátttaka í lýðræðissam- félagi verður áfram undirstaða íslenska skólakerfisins. Á dögunum samþykkti Alþingi frumvarp sem festir í sessi faglega umgjörð um starfsemi lýðskóla. Til þessa hefur ekki verið nein löggjöf í gildi um slíka skóla. meiri fjölbreytni – minna brottfall Hlutverk lýðskóla er fyrst og fremst að búa nemendur undir lífið, gera þá að fjölhæfum einstakling- um og reiðubúna til að takast á við tilveruna. Fjölbreytni er mennta- kerfinu mikilvæg, nemendur hafa ólíkar þarfir og þeir þurfa að hafa val um sitt nám. Meðal ástæðna brotthvarfs úr framhaldsskólunum okkar er ákveðin einsleitni í náms- vali og það að nemendur finna sig ekki í námi. Það er vel að fjöl- breytni námsframboðs hér á landi hefur aukist, ekki síst á framhalds- skólastiginu og að fleiri nemendur séu opnir fyrir námskostum t.d. á sviði verk- og tæknigreina. lýðskóli á laugarvatni Lýðskólar vinna með lykilhæfni skólastarfs, líkt og kveðið er á um í aðalnámskrá framhaldsskóla, svo sem námshæfni, skapandi hugsun, sjálfbærni og lýðræðisleg vinnu- brögð en meðal markmiða þeirra samkvæmt frumvarpinu verður að mæta áhuga og hæfileikum nemenda sem vilja átta sig betur á möguleikum sínum og stefnu í lífi og starfi. Í dag starfa LungA- skólinn og Lýðháskólinn á Flateyri eftir hugmyndafræði lýðskóla. Willum Þór Þórsson, hefur ásamt þingflokki Framsóknar, lagt fram þingsályktunartillögu um stofnun lýðskóla UMFÍ á Laugarvatni. Í greinargerð með tillögunni segir að áhugi sé fyrir stofnun lýðskóla á Laugarvatni með aðkomu mennta- málayfirvalda og Bláskógabyggðar og að UMFÍ hafi nú þegar myndað samstarfsteymi við lýðskóla í Danmörku sem sé tilbúinn til að leggja sitt af mörkum í undir- búningi og framkvæmd. Nú þegar lagaumgjörð um lýðskóla liggur fyrir verður langþráður lýðskóli á Laugarvatni vonandi að veruleika. Þjálfun í lýðræðislegri hugsun Lýðskólar eiga sér langa sögu en Daninn N.F.S. Grundtvig er upp- hafsmaður þeirrar hugmyndafræði sem skólarnir byggjast á. Grundt- vig kynnti á fjórða og fimmta áratug 19. aldar til sögunnar annars konar nám og menntun en hið hefðbundna bóklega nám. Það byggðist á markmiði um að mennta dönsk ungmenni í menningu og sögu auk þess að hvetja þau til þátt- töku í lýðræðislegu samfélagi en lýðræðishugmyndir í Evrópu voru að ryðja sér til rúms um þetta leyti. Nemendur skyldu stýra skólanum og hlutverk kennara væri ekki að spyrja nemendur heldur svara spurningum þeirra. Áherslan skyldi vera á hið talaða orð, umræður og rökræður og þátttöku nemandans á öllum sviðum og búa þá þannig undir lífið. Ekki skyldu þreytt próf. Þá ættu nemendur og kennarar að búa á sama stað og markmiðið væri að nemendur tileinkuðu sér færni og þekkingu sem gagnaðist þeim í hinu daglega lífi. Fyrsti lýðskólinn var settur á laggirnar í Danmörku árið 1844 í Rødding í anda þessara hugmynda og starfar hann enn. Hugmyndafræði lýðskóla á ekki síður erindi við samfélagið í dag en árið 1844. Ólíkir skólar fyrir ólíka einstaklinga Silja dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins AðSEND GREIN:

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.