Fréttir - Eyjafréttir - jun. 2019, Síða 20
20 | Eyjafréttir | Goslok 2019
ferðinni var heitið til Póllands,
nánar tiltekið í þorpið stanin,
en þar búa aðeins um 1000
manns. Í hópnum voru fjórir
kennarar og fimm fulltrúar
10. bekkjar úr Grunnskóla
Vestmannaeyja. Tilgangur
ferðarinnar var fjórði og
síðasti liður verkefnisins saY
nO! let´s make a difference
bY combating xenOphobia en
verkefnið er hluti af erasmus+
áætlun evrópusambandsins.
Verkefnið stendur fyrir baráttu
gegn útlendingafælni en
útlendingafælni er að vera illa
við eða óttast útlendinga eða
fólk sem er mjög ólíkt manni
sjálfum. Útlendingahatur getur
átt við um ótta við fólk frá
öðrum löndum, annarri menn-
ingu, öðrum menningarkima,
eða fólk sem aðhyllist önnur
trúarbrögð. Í verkefninu
sameinast fjórar þjóðir til þess
að vekja athygli á málstaðnum
með því að bjóða fulltrúum
hverrar annarrar til síns
heimabæjar og fræða nem-
endur og kennara um þeirra
menningu, siði, trúarbrögð
og fleira. nemendur gista í
heimahúsum hjá fjölskyldum
sem þeir fá úthlutað. Ísland,
svíþjóð, Rúmenía og Pólland
eru þjóðirnar sem taka þátt og
skiptast þjóðirnar á að koma
í heimsókn hver til annarrar.
fyrsti fundurinn var í svíþjóð
haustið 2017, hér á Íslandi var
hist vorið 2018, í Rúmeníu
haustið 2018 og nú var komið
að því að hittast í Póllandi.
Brot úr ferðadagbókum og
hugleiðingum nemenda:
4.maí
Ferðalagið hófst í Herjólfi sem
sigldi til Landeyjahafnar klukkan
09:30. Við stoppuðum í Kringl-
unni á leiðinni til Keflavíkur og
fengum okkur að borða. Ferðinni
var svo haldið beint á flugvöll-
inn. Sjúklega mikil spenna var í
loftinu á leiðinni. Vélin okkar fór
í loftið klukkan 17:10. Við gistum
á flugvallarhóteli í Frakklandi í
eina nótt. Hótelið hét F1 Mulhouse
Bâle Airport og við getum nú bara
orðað það þannig að við höfum
öll gist á snyrtilegra hóteli. Á
leiðinni á hótelið lentum við í smá
ævintýri því okkur hafði verið bent
á að lítið mál væri að labba frá
flugvellinum á hótelið en annað
kom í ljós, okkur tókst nefnilega
að villast! Eftir að hafa þvælst um
flugvallarsvæðið og nágrenni þess í
rúman hálftíma ákváðu kennararnir
að fara til baka og taka leigubíl
þótt leiðin væri stutt. Á hótelinu
kom sér vel að Evelyn kennari talar
frönsku því starfsfólkið þar talaði
litla sem enga ensku.
5.maí
Við vöknuðum mjög snemma
og græjuðum okkur til að halda
ferðalaginu áfram, fórum frá hótel-
inu beint á flugvöllinn til að taka
næsta flug til Varsjár. Við flugum
með EasyJet og fengum mjög góða
þjónustu þar. Við þurftum svo að
bíða á flugvellinum í Varsjá í tæpa
6 tíma eftir krökkunum frá Svíþjóð
og Rúmeníu. Við kíktum auðvitað
á McDonalds og horfðum á Sigur-
laugu vinna íslandsmeistaratitil í
handbolta. Eftir þessa bið tók við
tveggja tíma rútuferð til Stanin,
þorpsins sem við gistum í. Þar búa
um 700 manns, svo það má segja
að það hafi lifnað yfir bænum þegar
50 nemendur frá Íslandi, Svíþjóð
og Rúmeníu mættu á svæðið.
Við vorum öll rosalega heppin
með heimili. Fólkið hugsaði um
okkur sem part af þeirra fjölskyldu,
útbjó handa okkur nesti, bjó um
okkur, og eldaði fyrir okkur. Þau
voru svo góð við okkur að við
vildum varla fara frá þeim og féllu
nokkur tár hjá sumum þegar kom
að því að kveðja. Okkur var boðið
að koma aftur næsta sumar og
taka fjölskyldurnar okkar með, við
erum auðvitað meira en til því það
yrði rosalega gaman að hitta þau
aftur og gera nýja hluti og kynnast
þorpinu ennþá meira. Við förum
klárlega aftur til Póllands, það er
staðfest.
6.maí
Við byrjuðum daginn okkar
klukkan 07:00 og gerðum okkur
klár til að fara í skólann. Skól-
anum var skipt í tvær byggingar,
þá gömlu og nýju. Augljóst var
hvor byggingin var hvað því sú
gamla var orðin ansi slöpp. Við
fengum yndislegar móttökur þegar
við komum í skólann. Skólastjór-
inn stóð á tröppunum með brauð
og salt en það er siður í Póllandi
að bjóða gesti velkomna á þann
hátt. Við tókum lítinn brauðbita
og dýfðum honum í salt áður en
við borðuðum hann. Inni biðu
allir nemendur skólans, frá leik-
skólaaldri og upp úr. Þau stóðu á
ganginum með fána allra landanna
sem taka þátt í Erasmusverkefninu.
Í öðrum af tveimur íþróttasölum
skólans tók bæjarstjórinn á móti
okkur og bauð okkur velkomin.
Því næst sungu og dönsuðu nokkrir
nemendur skólans fyrir okkur.
Þau voru klædd þjóðbúningum og
sýndu þjóðdansa. Að því loknu
fengum við skoðunarferð um
skólann. Eftir það tók við nokkurs
konar hópefli til að hrista hópinn
saman. Því næst hófst vinnan við
verkefnið sjálft. Við nýttum jafn-
ingjafræðslu til að fræða nemendur
skólans, allt niður í leikskólaaldur,
um útlendingafælni og mikilvægi
þess að taka fólki eins og það er,
óháð uppruna þess og skoðunum.
Eftir hádegismat fórum við svo
með pólsku krökkunum í tíma.
Seinnipart dags fórum við í keilu
með öllum krökkunum og fengum
að borða líka. Eftir keiluna fórum
við þakklát að sofa.
7.maí
Dagurinn hófst á því að við fengum
kynningu á kappræðuaðferð sem
kallast “Oxford Style Debate”.
Þá eigast tvö fjögurra manna
ræðulið við og takast á um mis-
munandi sjónarhorn eða skoðanir.
Ræðuefnin okkar voru hvort betra
væri að koma í veg fyrir kynþátta-
fordóma og útlendingafælni með
forvörnum og fræðslu (lið 1) eða
að takast á við kynþáttafordóma
þegar þeir eiga sér stað og fræða
fólk eftir á (lið 2). Sigurlaug var
fulltrúi Íslands í keppninni og stóð
sig frábærlega. Það var niðurstaða
dómnefndar að jafnt væri með
liðum því bæði komu með góð rök
fyrir máli sínu. Eftir þetta fórum
við í tónlistartíma hjá eldri konu
sem var mjög lunkin á ýmis hljóð-
færi og spilaði á nokkur fyrir okkur
m.a. harmónikku, hristu og gítar.
Það sem okkur fannst skemmtileg-
ast var að hún kenndi okkur þjóð-
dansinn sem allir pólsku krakkarnir
kunnu, sem okkur fannst alveg
geggjað.
Eftir skólann fórum við öll heim
að græja okkur fyrir grill sem við
fórum svo í um kvöldið. Grillið
var sjúklega skemmtilegt og við
grilluðum pulsur og þeir sem vildu
spila körfubolta eða fótbolta gerðu
það en hinir borðuðu og lærðu svo
pólskan dans.
8.maí
Þennan dag vann hvert land fyrir
sig að áskorun til bæjaryfirvalda
í hverju landi með hvatningu um
að taka á kynþáttafordómum og
útlendingafælni. Áskoranirnar voru
gerðar á ensku og síðan lásum við
þær upphátt fyrir aðra þátttakendur.
Eftir það var mjög skemmtilegur
tími þar sem við unnum meira
með útlendingafælni og leiðir til
Hvetjum alla til þess að fara í svona verkefni:
Þroskandi fyrir allt og alla
:: erasmus+ í Póllandi 4.-10. maí 2019
Nemendur GRV sem tóku þátt í verkefninu. Jordan, Henrrieta, Emma
Rakel, Sigurlaug og Aron Kristinn.