Fréttir - Eyjafréttir - Jun 2019, Page 22
22 | Eyjafréttir | Goslok 2019
Ég vil byrja á að þakka elísu
mágkonu minni, rosalega vel
fyrir þessa áskorun Hún má
svo sannarlega eiga von á
matarboði fljótlega og kannski
skellum við bara í eitt gott
grillpartý ef við þorum??
Þegar ég elda, er ég voða-
lega lítið að fara eftir upp-
skrifum, meira bara svona
mallað og smakkað til, og
bara notað svona það sem er
til og finnst í skápunum. enn
hérna er uppskift að kjúllarétti
sem er mjög góður og einfalt
að elda. Og líka Döðluterta
sem er gott að hafa í eftirrétt
með ís.
kjúklingur í tómatrjómasósu
Fyrir 3-4
• 4 kjúklingabringur
• 1 pakki beikon
• 1 askja sveppir
• 1 rauðlaukur
• 1 dós tómatpúrra
• 1 paprika
• 2 msk. tómatsósa
• 200 g Philadelphia-rjómaostur
• 2 1/2 dl matreiðslurjómi
• salt og pipar
1. Skerið kjúklingabringurnar
í tvennt.
2. Hitið olíu á pönnu og brúnið
bringurnar og kryddið með salti
og pipar. Takið af pönnunni og
setjið í ofnfast mót.
3. Skerið beikonið í bita og steikið
á sömu pönnu. Setjið beikonið
yfir kjúklinginn.
4. Steikið sveppi og lauk á pönnu
upp úr beikonfitunni.
5. Hrærið tómatpúrru, papriku-
kryddi og tómatsósu og blandið
út á pönnuna með græn-metinu.
6. Bætið rjómaosti og mjólk saman
við og hrærið þar til rjómaostur
inn hefur bráðnað og allt
blandast vel saman. Smakkið til
með salti og pipar og hellið yfir
kjúklinginn.
7. Setjið inn 200°C heitan ofn í um
20 mínútur eða þar til kjúkling-
urinn er eldaður í gegn.
döðluterta
• 2 msk. Hveiti
• 1 bolli Saxaðar döðlur
• ½ bolli Sykur
• Tæpur bolli kókosmjöl
• 100 gr. Saxað dökkt súkkulaði
• 2 Egg
• 2-3 msk Matarolía
• 2/3 tsk. Salt
• 1 tsk. Lyftiduft
Setjið hveitið í plastpoka og
klippið döðlurnar út í.
Blandið öllu saman í skál og
hrærið saman.
Bakið við 175 í ca. 25 mín. Berið
fram með rjóma eða mjúkís
Ég ætla svo að skora á sigur-
þór starfsfélaga minn, hann er
að fara að gifta sig 13. Júlí nk.
og verður nú að fara að sýna
svaka takta í eldhúsinu.
Kjúklingur í dásamlegri
rjómasósu og döðluterta
maTGÆðinGURinn
Ingólfur Arnarsson
matgæðingur
Sara Elía kom
færandi hendi til
Rauða krossins í
Vestmannaeyjum
en hún hafði
safnað 26.000 kr.
sem hún vildi gefa
til hjálparstarfs.
Rauði krossinn
þakkar henni
kærlega fyrir
V
Elskuleg móðir mín systir og vinkona,
Sóley ólafSdóttir
sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmanna-
eyja,16. júní sl. var jörðuð í kyrrþey frá
Aðventkirkjunni í Vestmannaeyjum 21. júní.
Þökkum af alhug öllum þeim sem sem studdu hana í
veikindum hennar og þá ómetanlegu vináttu sem hún fann
fyrir og mat mikils.
Alfa og omega
upphaf og endir alls sem er,
þó svo dauðinn banki uppá,
sál, andi líkami.
Fæðing líf, dauði.
Þitt nýja ferðalag. Þitt nýja líf.
Þú ert þarna sem og hérna,
yndislega rósin mín.
Guð blessi ykkur öll,
Stefán Róbertsson,
Aðalheiður og Þorsteinn Ólafsbörn,
Sigurrós Sigurhansdóttir.