Fréttablaðið - 18.02.2020, Side 11
Aðalfundur
Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, þriðjudaginn 10. mars 2020
í Þingsal 2 á Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík.
Dagskrá fundar
• Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.
• Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.
• Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.
• Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund:
a. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
b. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum.
c. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
d. Tillaga um breytingu á 6. gr. samþykkta félagsins varðandi vísun til verðbréfamiðstöðvar.
e. Tillaga um breytingar á starfsreglum tilnefningarnefndar.
f. Tillaga um skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
• Kosning stjórnarmanna félagsins.
• Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
• Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár.
• Önnur mál, löglega upp borin.
Upplýsingar
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja aðalfund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð.
Umboðsform er að finna á aðalfundarvef félagsins, www.reitir.is/adalfundir. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart
félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá að greiða atkvæði um
mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist á skrifstofu félagsins eða á netfangið
adalfundur@reitir.is eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 15.00 fimmtudaginn 5. mars 2020.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar eigi síðar
en 10 dögum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir kl. 15:00 að íslenskum tíma, laugardaginn 29. febrúar 2020. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir
fyrir fundinn á netfangið adalfundur@reitir.is og munu þær verða birtar samdægurs á aðalfundarvef félagsins.
Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum komi fram krafa um slíkt á fundinum frá einhverjum atkvæðis-
bærra fundarmanna eða fundarstjóri úrskurðar um slíkt. Stjórnarkjör skal vera skriflegt ef framboð koma frá fleirum en kjósa skal um.
Hluthafar geta gert kröfu um hlutfalls- eða margfeldiskosningu í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins. Slík krafa þarf að hafa
borist stjórn að lágmarki fimm sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir kl. 15.00 fimmtudaginn 5. mars 2020.
Tilkynningum um framboð til stjórnar félagsins skal skilað eigi síðar en sjö sólarhringum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir kl. 15:00
að íslenskum tíma, þriðjudaginn 3. mars 2020, á skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík eða á netfangið adalfundur@reitir.is.
Framboðstilkynningar skulu uppfylla skilyrði 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Jafnframt skulu frambjóðendur greina frá því hvort
þeir telji sig óháða félaginu og stórum hluthöfum þess samkvæmt skilyrðum í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja eins og þau eru
skilgreind á hverjum tíma. Framboðseyðublað er að finna á aðalfundarvef félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar eigi
síðar en sex sólarhringum fyrir aðalfund.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn, sbr. 13. gr. samþykkta félagsins.
Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ.á m. tillögur
stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund verða aðgengileg á aðalfundarvef félagsins. Einnig verða gögnin til sýnis fyrir hluthafa
á opnunartíma skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar á aðalfundarvef
félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14.30 á aðalfundardag.
Reykjavík, 17. febrúar 2020, Stjórn Reita fasteignafélags hf.