Fréttablaðið - 18.02.2020, Side 18

Fréttablaðið - 18.02.2020, Side 18
Þátttakendur svöruðu spurninga- lista með spurningum um heilsufar, lífsstíl, lyfjanotkun, mataræði, hreyfingu og notkun á snyrtivörum. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Sumar húðvörur innihalda hormónatruflandi efnasam-bönd og hafa margir haft áhyggjur af þeim vörum, sérstak- lega í sambandi við hormónatengt krabbamein. „Við höfum ekki fundið neinar vísbendingar um að mikil notkun húðvöru auki hættuna á brjósta- eða legkrabbameini,“ segir Charlotta Rylander, dósent við UiT-háskóla í Noregi, á vefsíðu forskning.no. Nokkrir vísinda- menn við UiT, háskólann í Ósló og Alþjóðaheilbrigðisstofnunina standa á bak við rannsóknina. „Bæði notendur snyrtivara og húð- sjúkdómalæknar hafa velt því fyrir sér hvort eitthvert samhengi sé á milli húðvara og krabbameins. Niðurstöður rannsóknar- innar birtust nýlega í tímaritinu Environ mental Health. Markmið hennar var að kanna hvort mis- munandi notkun húðvara leiði til aukinnar hættu á krabbameini í brjóstum og legi hjá miðaldra konum og eldri. Þegar rætt er um notkun á húðvörum er átt við handáburð, andlitskrem og húð- krem (body lotion). Miðað er við að notkunin sé að minnsta kosti Húðvörur ekki krabbameinsvaldandi Mikil notkun húðkrema eykur ekki líkur á brjósta- eða leghálskrabbameini, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem gerð var í Noregi. Mikill fjöldi kvenna á miðjum aldri tók þátt í rannsókninni. Norska rann- sóknin ætti að róa konur sem komnar eru á miðjan aldur en margar þeirra hafa verið hræddar við notkun snyrti- vara. MYND/GETTY tvisvar á dag. Þetta eru algengustu húðvörur sem konur nota daglega. Sumar þeirra innihalda paraben og þalöt. Paraben eru notuð sem rotvarnarefni í snyrtivörur. Þalöt eru samheiti yfir efni sem aðal- lega eru notuð sem mýkingarefni í plasti en einnig í snyrtivörum. Þessi efni komast hæglega inn í blóðrásina við notkun. Áhyggjur hafa beinst að því hvort þessi efni geti aukið hættuna á hormóna- tengdu krabbameini þar sem þau eru mikið notuð. Ekki var hægt að finna nein tengsl þarna á milli í rannsókninni. Upp úr 2000 voru settar hömlur á notkun parabena í snyrtivörum. Þær takmarkanir komu í kjölfar niðurstaðna sem gætu bent til tengsla milli parabena og auk- innar tíðni brjóstakrabbameins. Vísindamenn hafa nú rannsakað skaðleg áhrif þessara efna og hvort eitthvert samhengi gæti verið þarna á milli. Í rannsókninni voru norskar konur á aldrinum 46-68 ára sérstaklega skoðaðar en meðalaldur var 55 ár. Þátt- takendur svöruðu spurningalista með spurningum um heilsufar, lífsstíl, lyfjanotkun, mataræði, hreyfingu og notkun á snyrti- vörum. Alls tóku yfir 174 þúsund norskar konur þátt. Svörin voru borin saman við aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið um konur og krabbamein og ná allt til ársins 1991. Niðurstaðan sýnir engin tengsl á milli mikillar notkunar á alls kyns húðvörum og brjósta- eða leghálskrabbameins hjá konum, hvorki fyrir né eftir breyt- ingaskeiðið. Sérstök vörumerki í snyrtivörum voru ekki skoðuð auk þess sem einungis var spurt um handáburð, andlits krem og húð- krem (body lotion). Sömuleiðis var einungis verið að skoða ákveðinn aldur kvenna, ekki er hægt að fullyrða neitt um yngri konur sem byrja oft snemma að nota snyrti- vörur. Niðurstöðurnar ættu hins vegar að geta róað miðaldra og eldri konur. Rannsóknin ber nafnið, ef ein- hver vill kynna sér hana betur: Use of skincare products and risk of cancer of the breast and endo- metrium: a prospective cohort study. Öldum saman hefur grænt te verið órjúfanlegur hluti af lífi og fæðu margra Asíuþjóða. Þegar heilsufars- legir ávinningar þess eru skoðaðir kemur kannski ekki á óvart hversu margar asískar þjóðir eru ofarlega á listum yfir langlífustu þjóðir heims. Hér eru nokkrir af helstu ávinn- ingum tes. n Grænt te er talið auka langlífi en svo virðist vera sem mikið tedrykkjufólk lifi hreinlega lengur en aðrir. Mögulega spilar þar inn í að tedrykkjufólk borði hugsanlega hollari mat en gengur og gerist en rannsóknir gefa þó til kynna að það séu viss efni í grænu tei sem dragi úr líkum á fjölda sjúkdóma. n Grænt te er talið hægja á öldrun húðar en það er sneisafullt af andoxunarefnum sem veita vörn gegn ýmsu kvillum sem fylgja hækkandi aldri. n Grænt te er einnig talið draga úr líkum á margs konar aldurs- tengdum hjarta- og heilasjúk- dómum á borð við Alzheimer og Parkisons. n Þá er grænt te talið draga úr líkum á ýmsum gerðum krabba- meina, þar á meðal í blöðruhálsi, brjóstum og ristli. n Grænt te er ríkt af amínósýrunni L-Theanine sem stuðlar að slökun taugakerfisins. n Grænt te inniheldur hæfilegt magn koffíns og er koffín og L-Theanine saman talið bæta einbeitingargetu og heilastarf- semi. n Vissar rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl milli græns tes og þyngdartaps og er grænt te því oft innihaldsefni í megrunar- töflum og -dufti. n Grænt te er talið auka blóð- flæði sem hefur góð áhrif á bæði húðina og hjartað. n Grænt te dregur úr háum blóð- þrýstingi og þá sérstaklega mikil neysla yfir lengri tíma. n Grænt te er talið hafa bakteríu- drepandi áhrif og getur dregið úr andremmu ásamt því að hafa góð áhrif á tannheilsu. Grænt te er sennilega hollasti drykkur veraldar en 3-4 bollar á dag eru taldir afar heilsusamlegir. MYND/GETTY Hollasti drykkur í heimi Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ - s. 787 9933 vpallar@vpallar.is - www.vpallar is SJÁU MST Á VER K OG VIT 12. - 1 5. MA RS 20 20 Plettac vinnupallar - Protekt fallvarnarbúnaður Öruggar lausnir 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.