Fréttablaðið - 18.02.2020, Side 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG SKILDI EKKERT
HVAÐ VAR Í GANGI
ÞEGAR ÉG LEIT Á SÍMANN MINN
OG ÞAR BIÐU MÍN MILLJÓN
SKILABOÐ, ALLIR AÐ DEILA
FRÉTTUNUM AF KOMU ÞEIRRA
MEÐ MÉR.
Aðdáendu r bresk u hljómsveitarinnar Skunk Anansie á Ísla nd i g löddu st eflaust mikið í morg-un við þau tíðindi að
von væri á henni til landsins. Þetta
er í þriðja sinn sem sveitin heldur
tónleika á Íslandi, en báðir tónleik-
arnir fóru fram árið 1997.
Í viðtali við Morgunblaðið fyrir
seinni tónleika sveitarinnar sagði
Skin fyrri tónleikana á Íslandi hafa
verið þá allra skemmtilegustu sem
hún hefði nokkurn tímann spilað á,
svo búast má við að meðlimir sveit-
arinnar séu engu minna spenntir en
aðdáendur yfir Íslandsförinni.
Söng- og leikkonan Anna Mar-
grét Káradóttir hefur verið aðdá-
andi sveitarinnar lengi, en Skunk
Anansie á stóran hóp aðdáenda
hérlendis.
„Ég skildi ekkert hvað var í gangi
þegar ég leit á símann minn og þar
biðu mín milljón skilaboð, allir að
deila fréttunum af komu þeirra
með mér. Mér finnst það mjög fal-
legt hvað margir hugsuðu til mín.
Ég hef hlustað á Skunk Anansie
frá því ég var unglingur og það má
segja að unglingaveikin hafi orðið
bærilegri með hjálp tónlistarinn-
ar þeirra. Það er mikil útrás fólgin
í því að hlusta á tónlistina þeirra og
ákveðin sáluhjálp í ballöðunum.
Tónlistin hreyfir svo við manni,
það er svo mikil tilfinning í henni.
Ég spilaði Stoosh aftur og aftur. Við
vinkonurnar vorum allar með Skin
á heilanum, hún var og er svaka-
legur töffari. Tískan, röddin, hún er
allur pakkinn,“ segir Anna Margrét.
Eftirminnilegir tónleikar
Ein eftirminnilegasta uppákoma í
tónlistarlífi á Íslandi var þegar til
stóð að hljómsveitin spilaði nokkur
lög á þaki DV-hússins í Þverholti.
Brá Skin, söngkonu sveitarinnar, og
félögum heldur betur í brún þegar
þau tóku við gullplötu á svölum
hússins því það var strekkings-
vindur og ískalt. Brugðið var á það
ráð að færa tónleikana inn í húsið
þar sem aðdáendur fengu einstakt
tækifæri til að hlusta á átrúnaðar-
goð sín á nánum og lágstemmdum
tónleikum.
„Ég fór á seinni tónleikana þeirra
í september minnir mig. Ég komst
ekki á fyrri tónleikana því pabbi
minn var að halda upp á fimmtugs-
afmælið sitt og ég var nett brjáluð
yfir því. Ég fór samt á seinni tón-
leikana með þeim í Höllinni 1997,
árið sem ég fermdist, og var alveg
dolfallinn aðdáandi eftir það. Hef
ekki farið út að sjá þau en fylgist
reglulega með þeim og hvar þau eru
að spila hverju sinni. Það er búið að
vera á dagskránni að fara út á tón-
leika, þar sem ég hélt að Íslands-
draumurinn væri úti,“ segir hún.
Sönkonan Skin er ekki bara þekkt
fyrir kraftmikla rödd og frábæra
sviðsframkomu, heldur hefur hún
alltaf þótt bera af í töffaraskap og
tískuviti.
„Hún hefur líka haft mikil áhrif á
mig sem söngkonu og er mér mikil
fyrirmynd. Röddin hennar er svo
ótrúlega einstök og raddsviðið alveg
svakalegt. Það er svo mikil áskorun
að syngja lögin þeirra, ég elska það.
Margir vinir mínir eru líka aðdá-
endur. Ég hélt einmitt óskalagatón-
leika fyrir ekki svo löngu og það
kom mér á óvart hvað margir vinir
mínir vildu lag með þeim. Ég finn
mikinn áhuga hérlendis og sá það
mjög skýrt þegar ég sendi þeim þessi
litlu skilaboð þarna um árið,“ segir
Anna Margrét.
Bjóst ekki við svari
Fyrir fjórum árum hafði Anna Mar-
grét samband við sveitina og bað
hana um að koma og halda tónleika
á landinu. Það kom henni að óvart
þegar henni barst svar frá Sjálfri
Skin.
„Ég hafði samband við þau í ein-
hverju gríni og stakk upp á að þar
sem það væru að verða 20 ár síðan
þau komu til Íslands, þá væri það
góð hugmynd að halda afmælistón-
leika hérna. Mánuði síðar fékk ég
svar frà sjálfri Skin sem tók mjög vel
í þetta. Þetta vatt síðan upp á sig og
það höfðu margir viðburðahaldarar
samband við mig og sögðust tilbúnir
að skoða þetta. Það langaði marga
að reyna að fá þau aftur til landsins
en það þótti of stórt og dýrt svo ekk-
ert varð úr því. Það gleður mig því
óneitanlega mikið að sjá að þau eru
loksins að koma aftur til landsins.
Góðir hlutir gerast greinilega hægt,“
segir Anna Margrét og hlær.
steingerdur@frettabladid.is
Fékk skilaboð frá Skin
Hljómsveitin Skunk Anansie er væntanleg til landsins í haust.
Þetta verður í þriðja skiptið sem hún kemur til landsins og
heldur tónleika. Anna Margrét sendi skilaboð á sveitina fyrir
fjórum árum og fékk svar frá Skin, söngkonu sveitarinnar.
Anna Margrét hlakkar mikið til að sjá Skunk Anansie spila í Laugardalshöll í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Tónleikar Skunk Anansie fara fram þann 24. október í Laugardalshöll
Miðasala hefst klukkan 10.00 næsta föstudag á tix.is. MYND/GETTY
1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MARIA
BAPTIST
23. febrúar
Kl. 20.00
Silfurberg
BEINT FRÁ BERLÍN