Fréttablaðið - 18.02.2020, Side 14
Þorvaldur Ingi Jónsson hafði lengi leitað að æfingum sem gætu hentað honum til
alhliða heilsueflingar og hafði
prófað ýmislegt þegar hann rataði
á fyrsta Qigong námskeiðið hjá
Gunnari Eyjólfssyni leikara fyrir
10 árum. Síðan þá hefur hann sótt
námskeið á hverju ári hjá þekktum
Qigong meisturum til að dýpka
þekkingu sína.
„Gunnar var einstakur og lagði
sérstaka áherslu á hugleiðsluna
í æfingunum. Áherslan er á lífs-
mátann og viðhorfin til lífsins.
Að við ræktum hugarfar leið-
togans og tökum ábyrgð á eigin
lífi. Við leggjum áherslu á að við
berum aldrei með okkur reiði eða
langrækni, horfum bjartsýn til
framtíðar, njótum andartaksins og
byggjum upp sterka núvitund og
einbeitingu,“ segir Þorvaldur.
„Qi er lífsorkan frá himni og
jörðu. Þegar við stundum Qigong
lífsorkuæfingarnar þá erum við að
njóta þess að vera hluti af hreinni
náttúrunni. Við hreinsum og
styrkjum hverja frumu líkamans.
Qigong hefur verið stundað í Kína
í yfir 5.000 ár. Þar hafa verið gerðar
margar rannsóknir á áhrifum
Qigong sem staðfesta mátt
æfinganna til alhliða heilsubótar
og lækninga,“ segir Þorvaldur.
„Qigong er í raun ekki íþrótt
heldur lífsmáti. Þessi lífsmáti hefur
hjálpað mér til að halda betur
bæði andlegri og líkamlegri heilsu.
Aukið jákvæðni og viljastyrk. Það
má því segja að regluleg ástundun
Qigong lífsorkuæfinganna sé
alhliða heilsubót fyrir mig og
grunnur að minni hamingju.“
Þorvaldur er viðskiptafræð-
ingur með MS-gráðu í stjórnun og
stefnumótun. Hann hefur mikinn
áhuga á góðum stjórnarháttum
þar sem allir geta notið sín til fulls
í vinnu og leik. „Um leið og við öðl-
umst innri styrk og erum óhrædd
við að standa með okkur og vera
gefandi manneskjur, þá erum
við leiðtogar í okkar eigin lífi. Þá
tökum við ábyrgð á okkur um leið
og við viljum að allir njóti sín sem
allra best. Það eru þessi lífsviðhorf
sem við erum að rækta með okkur
þegar við tileinkum okkur Qigong
lífsmátann,“ útskýrir hann.
Byggir á 5.000 ára þekkingu
Þorvaldur segir að Qigong lífs-
orkuæfingar hafi mjög styrkjandi
áhrif bæði andlega og líkam-
lega. „Eins og ég nefndi þá byggir
Qigong á 5.000 ára þekkingu
og reynslu. Við verðum til úr 23
litningum frá móður og föður,
upphafið er ein fruma. Því er rök-
rétt að segja að allar upplýsingar
um okkur séu í okkur sjálfum,“
útskýrir hann. „Við þekkjum öll
að þegar við erum lengi í erfiðum
tilfinningum, allt frá kvíða og reiði
að djúpri sorg, þá hættir líkams-
starfsemin að virka rétt. Svefninn
verður slæmur og við endum í
orkuleysi og veikindum. Ég legg
áherslu á, eins og Gunnar gerði,
að við byrjum aldrei æfingarnar
fyrr en við höfum stillt okkur inn á
jákvæðan huga. Tíminn í æfing-
unum er í raun heilög stund fyrir
hvern og einn. Við hvílum hugann
um leið og við njótum áhrifaríkrar
hugleiðslu, hreyfingar og öndunar.
Við opnum á hreinsandi orku-
flæði um allan líkamann. Í lok
æfinganna göngum við út í lífið
brosandi, fullhlaðin þeirri orku
sem við þurfum á að halda.“
Samkvæmt asískum fræðum
hafa hugsanir áhrif á líffærin og
lífsorkuna að sögn Þorvaldar.
„Brosið og jákvæður hugur hefur
mjög sterk heilandi áhrif en niður-
brjótandi hugsanir hafa slæm
áhrif.“
Stress hefur áhrif á magann eins
og þekkt er en Þorvaldur segir
að færri viti að sorgin hafi áhrif
á lungu og ristil, reiði hafi áhrif á
lifrina og óttinn hafi áhrif á nýrun.
Hann segir allar þessar tilfinn-
ingar eðlilegar en þegar þær vara
lengi geta þær haft mjög slæm
áhrif á heilsuna.
„Í Qigong tölum við um lykil-
orkustöð líkamans, Dan-tian á
kínversku, rétt fyrir neðan nafla.
Langvarandi ótti og kvíði hafa
sérstaklega slæm áhrif á starfsemi
nýrna og veikja eðlilega líkams-
starfsemi. Við missum orkuna,
eldurinn í Dan-tian slokknar og
við verðum algerlega orkulaus. Við
höfum heyrt fólk sem hefur endað
í kulnun segja: „Þegar ég vaknaði
einn morguninn komst ég varla
fram úr rúminu, ég var algerlega
orkulaus.“ Með ákveðnum Qigong
æfingum getum við hreinsað líf-
færin og byggt upp jákvætt hugar-
far. Við öndum frá okkur öllu
dökku um leið og við fyllum okkur
hreinni, tærri orkunni. Æfingarn-
ar eru einfaldar en mjög áhrifa-
ríkar til heilunar og styrkingar
líffæranna. Þegar orkubrautir eru
opnar og hreinar getur líkaminn
unnið sitt verk. Innri þekking, frá
fyrstu frumunni, virkar sem allra
best. Við finnum að orkan eykst og
okkur fer að líða betur andlega og
líkamlega,“ segir Þorvaldur.
Fyrir unga sem aldna
Það eru til um það bil 3.000 Qigong
æfingar. Lífsorkuæfingarnar eru
einfaldar og flestir eiga að geta
gert þær. „Þetta er samhæfing
öndunar, hreyfingar og hugleiðslu.
Við stöndum oft með axlarbreidd
á milli fóta og sjáum okkur sem
sterk falleg tré, drögum að okkur
orku frá himni og jörðu. Áherslan
í æfingunum er á að við hugsum
ekkert, erum bara að njóta. Við
erum að hlaða okkur hreinni tærri
orkunni,“ segir Þorvaldur.
Hann leggur áherslu á að Qigong
sé bæði fyrir unga sem aldna.
„Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti, byrjaði að stunda
Qigong æfingar undir leiðsögn
Gunnars Eyjólfssonar árið 1994.
Á okkar fundum hefur hún oft
nefnt áhyggjur sínar af kvíða hjá
ungu fólki og nefnt að Qigong
æfingar gætu hjálpað. Við lifum
við ótrúlega mikið ytra áreiti. Við
þurfum öll að gefa okkur tíma til
að fara að hjarta okkar, sýna okkur
kærleika og virðingu. Með þessari
innri styrkingu í hugleiðslu og
hreyfingu finnum við hvert og eitt
okkar innri styrk og byggjum upp
jákvæðan huga,“ segir Þorvaldur.
„Hamingjan byrjar innra með
hverjum og einum. Lærum að
brosa til hjartans. Ein leiðin til að
taka ábyrgð á eigin lífi og heilsu er
regluleg ástundun Qigong lífsorku-
æfinga. Ég vona að sem flestir gefi
sér tíma til að kynna sér Qigong.
Það eru reglulega haldin námskeið
og æfingatímar í Qigong í Tveimur
heimum og ég er byrjaður að halda
námskeið úti um land. Munum að
brosa og styðja hvert annað. Kær-
leikur og friður ríki.“
Frekari upplýsingar um Qigong
má finna á Facebook-síðunum
Qigong lífsorka og Tveir heimar.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Í Kína hafa verið
gerðar margar
rannsóknir á
áhrifum Qigong
sem staðfesta
mátt æfinganna
til alhliða
heilsubótar
og lækninga.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Starfsfólk Sjúkratrygginga Íslands gerir Qigong æfingar með Þorvaldi.
Ein leiðin til að
taka ábyrgð á eigin
lífi og heilsu er regluleg
ástundum Qigong lífs-
orkuæfinga.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R