Morgunblaðið - 20.11.2019, Side 2

Morgunblaðið - 20.11.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi HITABLÁSARAR ertu tilbúin í veturinn? Þegar aðeins það besta kemur til greina Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ný kvikmynd leikstjórans Rúnars Rúnarssonar, Bergmál, var frumsýnd í Háskólabíói í gær- kvöldi. Myndin samanstendur af 58 senum sem sýna húmor, sorg og fegurð í nútímasamfélagi og hefur henni verið vel tekið á kvikmyndahátíð- um. Rúnar, lengst til vinstri, stillti sér upp ásamt Lilju Ósk Snorradóttur og Ella Cassata frá fram- leiðslufyrirtækinu Pegasus og Vigfúsi Þormari Gunnarssyni sem sá um leikaraval í myndinni. Morgunblaðið/Eggert Bergmál Rúnars frumsýnt í Háskólabíói Freyr Bjarnason Sigurður Bogi Sævarsson „Ég tel að mjög margt hafi verið gert til bóta þegar kemur að laga- og regluverki um atvinnulífið á Íslandi undanfarinn áratug en það er eðli- legt að við förum yfir það núna og skoðum hvar sé hægt að gera frekari úrbætur,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Auka gegnsæi í rekstri stórra fyrirtækja Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun að grípa til margvís- legra aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi. Þetta eru viðbrögð í kjölfar Samherja- málsins sem upp kom í síðustu viku og hefur vakið miklar umræður. Meðal aðgerða er að auka gegnsæi í rekstri stærri fyrirtækja og stórra sjávar- útvegsfyrirtækja. Undirbúningur er hafinn að gerð lagafrumvarps um ríkari upplýs- ingaskyldu stórra fyrirtækja um efnahag sinn og starfshætti. Er þetta gert til að tryggja betur heil- indi og orðspor íslensks atvinnulífs. Af öðrum aðgerðum má tiltaka að sjávarútvegsráðherra mun hafa frumkvæði að því að Alþjóða- matvælastofnunin (FAO) vinni út- tekt á viðskiptaháttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í viðskiptum með aflaheimildir í þróunarlöndum. Ljúka á endurskoðun á því hvort yfirráð tengdra aðila í sjávarútvegi yfir aflahlutdeildum séu í samræmi við það hámark sem er skilgreint í lögum um stjórn fiskveiða. Þá á að tryggja viðbótarfjárveitingar til skattrannsókna og styrkja varnir gegn hagsmunaárekstrum og mútu- brotum. Sömuleiðis verður hugað að fjármögnun rannsóknar héraðs- saksóknara á Samherjamálinu. Vísar gagnrýni Loga á bug Forsætisráðherra vísaði í samtali við mbl.is í gær á bug gagnrýni Loga Einarssonar formanns Samfylking- ar á að Kristján Þór Júlíusson sjáv- arútvegsráðherra hefði setið ríkis- stjórnarfund um aðgerðir til að auka traust á atvinnulífinu með vísan til tengsla ráðherra við Samherja. Í þessu sambandi bendir Katrín á að ráðherrann hafi sagst munu víkja ef upp koma stjórnvaldsákvarðanir sem lúti beint að Samherja. Ráðstaf- anir nú séu allar almenns eðlis. »15 Upplýsingaskyldan verði ríkari  Samherji í brennidepli  Ríkisstjórnin grípur til ráðstafana  Tryggja verður orðspor og heilindi  FAO geri úttekt á kaupum fyrirtækja á veiðiheimildum í þróunarlöndum  Skatturinn fær meira fé Katrín Jakobsdóttir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Akureyri Samherjatogarinn Kald- bakur EA hér í sinni heimahöfn. Tillaga fulltrúa minnihlutans um at- kvæðagreiðslu meðal borgarbúa um byggingu gróðurhvelfingar í Elliðaár- dal var felld á fundi borgarstjórnar í gærkvöldi. Borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokks, Sósíalistaflokks, Mið- flokks og Flokks fólksins lögðu tillög- una fram og studdu. Allur meirihlutinn var á móti. Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins segjast þeir leggja ríka áherslu á verndun grænna svæða í borgarland- inu og séu – eins og margir fleiri – á móti framkvæmdum í Elliðaárdaln- um. Bygging 4.500 fermetra gróður- hvelfingar á 12 þúsund fermetra lóð á góðum stað sé mikil framkvæmd enda eigi verkefnið að kosta 4,5 milljarða króna. Algjör óvissa ríki um fjár- mögnun. Hér sé borgin að útdeila gæðum – lóð á besta stað í eigu Reyk- víkinga – án auglýsingar og án þess að greitt sé fyrir þau að fullu. Skatt- greiðendur þurfa að leggja út í mikinn kostnað, sem geti nálgast milljarð króna. Ef illa fari þurfi borgin að borga brúsann. „Íbúalýðræði er fyrir íbúa, en ekki á forsendum kjörinna fulltrúa, sem á allra síðustu stundu hlaupa til og leggja fram tillögu um íbúakosningu til þess að reyna að skapa sem mest moldviðri í von um að borgarbúar bíti á agnið og sjái ekki að verið er að and- mæla grænni uppbyggingu á Stekkjarbakka,“ sagði Líf Magneu- dóttir, borgarfulltrúi VG, í samtali við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Tillögu um íbúakosningu var hafnað í borgarstjórn  Elliðaárdalur og gróðurhvelfing voru til umræðu Gróðurhvelfing Tölvugerð mynd af gróðurhúsum framtíðarinnar. Hæstiréttur hefur fallist á að fjalla um mál manns sem var dæmdur í Landsrétti fyrir að brjóta gegn fyrr- verandi eiginkonu sinni og syni. Karlmaðurinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir tvö kyn- ferðisbrot gegn konunni og blygð- unarsemis- og barnaverndarbrot gagnvart syninum. Þá braut hann nálgunarbann og lög um fjarskipti með því að koma fyrir tækjum í bíl konunnar. Fátítt er að Hæstiréttur taki til meðferðar sakamál eftir að hlut- verki dómsins var breytt á síðasta ári. Beiðnum um áfrýjun í saka- málum er flestum hafnað. Í þessu umrædda máli var sótt um áfrýjun úr tveimur áttum. Ákæruvaldið taldi refsinguna of væga og maðurinn taldi dóm Landsréttar rangan því sök væri ósönnuð. Kynferðisbrot geng- ur til Hæstaréttar Viðræður í kjaradeilu Blaðamanna- félags Íslands og Samtaka atvinnu- lífsins halda áfram hjá Ríkis- sáttasemjara í dag. Fundað var í gær og fram á daginn í dag átti að fara yf- ir ákveðin atriði til lausnar deilunni. Óvíst er til hvers það leiðir, en fulltrú- ar deiluaðila eygja þó von um lausn. Kæra BÍ vegna meintra verkfalls- brota á mbl.is síðustu tvo föstudaga var þingfest í félagsdómi í gær. Frest- ur til andsvara er tvær vikur. Leitað að lausn í blaðamannadeilu Á ríkisstjórnarfundi í gær kom fram að utanríkisþjónustan hefur ekki fengið teljandi fyrirspurnir eða athugasemdir vegna Sam- herjamálsins. Áfram er fylgst með umfjöllun erlendis en ekki hefur þótt ástæða til aðgerða. Þá hefur SA fjallað um mál Samherja og segir allra hag að ásakanir í garð fyrirtækisins séu rannsakaðar. Fylgst með umfjöllun UTANRÍKISÞJÓNUSTAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.