Morgunblaðið - 20.11.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.11.2019, Qupperneq 4
Ljósmynd/Jón Ragnar Ólafsson Eyjafjöll Rútan fór út í Hofsá en var dregin upp með stórri dráttarvél. Tveir sjúkraflutningamenn, karl og kona, slösuðust nokkuð þegar þau fuku til og duttu í björgunar- aðgerðum eftir að rúta fór út í Hofsá undir Eyjafjöllum snemma í gær- morgun. Í rútunni voru 23 farþegar sem sakaði ekki. Björgunarsveitar- menn, lögregla og fleiri fluttu fólkið í fjöldahjálparstöð sem Rauði kross- inn opnaði í félagsheimilinu Heima- landi. Þar dvaldist fólkið uns það fékk far áleiðis með öðrum bíl. Rút- an sem fór í ána var dregin upp með traktor. Snarvitlaust veður var á svæðinu þegar þetta gerðist og fór vindur í 40 m/s í verstu hviðum. Í gildi var gul viðvörun frá Veðurstofunni. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Hermannssyni hjá björgunarsveit- inni Dagrenningu á Hvolsvelli var karlinn sem slasaðist með djúpt sár á legg og sprungu í sköflungi og kon- an tognaði. Bæði voru þau þegar þetta gerðist með hjálma, sem eru ónýtir eftir bylturnar. Af því og slys- um fólksins að dæma var því for- takslítið ofsaveður undir Fjöllunum. Sjúkraflutningamenn slösuð- ust í aðgerð undir Eyjafjöllum  23 með rútu úti í Hofsá  Djúpt sár og sprunga í sköflungi 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 Superior herbergi ÁRSHÁTÍÐIN ER HÁTÍÐ HÓPSINS Superior herbergi Setjum saman girnilegan veislumatseðil fyrir vel heppnaða árshátíð. Hafðu samband og við förum yfir árshátíðarmöguleikana með þér. Pantanir í síma 483 4700 booking@hotelork.is hotelork.is Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Reykjavíkurborg á nú í samskiptum við lögregluna á höfuðborgarsvæð- inu um hvernig best sé að haga mál- um þannig að hægt verði að taka aft- ur í notkun biðstöðvar Strætó við Hagatorg í Vesturbæ Reykjavíkur og Hádegismóa í Árbæjarhverfi. Greint hefur verið frá því í Morgun- blaðinu að biðstöðvarnar voru tekn- ar úr notkun eftir að í ljós kom að óheimilt væri samkvæmt lögum að stöðva ökutæki á hringtorgi. Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, yfirverkfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir borgina gjarnan vilja halda umræddum biðstöðvum. „Það eru ákvæði í umferðarlögum um að hægt sé að setja sérákvæði sem gilda framar almennum um- ferðarreglum,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið og bendir á að slíkt hafi t.a.m. verið gert vegna gangbrauta sem nýverið voru settar upp á Hagatorgi. Með þeim er um- ferð gangandi vegfarenda stýrt yfir torgið. „Það voru íbúar í hverfinu sem á sínum tíma kölluðu eftir því gegnum verkefnið „Hverfið mitt“ að aðgengi yrði bætt yfir Hagatorg,“ segir hún. Umferð fólks handahófskennd Í kjölfarið kom Reykjavíkurborg fyrir myndavél á Hótel Sögu og tók hún upp umferð gangandi fólks yfir torgið. Myndgreining sýndi fram á að umferð gangandi er talsverð og handahófskennd um svæðið. Af þeim sökum telur borgin réttast að beina umferð fólks yfir Hagatorg á örugg- ari gönguleiðir. Spurð hvort Reykjavíkurborg telji Strætó valda hættu með því að stöðva vagna sína við Hagatorg og hringtorgið við Hádegismóa kveður Guðbjörg Lilja nei við. „Nei, við teljum enga hættu vera á ferð. Þessar stoppistöðvar valda heldur ekki neinum óeðlilegum töf- um að okkar mati. En við viljum auð- vitað ekki setja Strætó í þá stöðu að vera að fremja lögbrot og því vinnum við að lausn sem hentar öllum vel.“ Eftir að spurningar vöknuðu um lögmæti biðstöðva í hringtorgi í síð- ustu viku var einnig ákveðið að loka biðstöð í Hafnarfirði og var sú flutt annað. Guðbjörg Lilja segir Reykja- víkurborg nú einnig hafa brugðist við með uppsetningu á tímabundn- um biðstöðvum við Hádegismóa og Birkimel. Ekki liggur fyrir hversu lengi þær verða í notkun. „Við töldum í fyrstu að hægt yrði að leysa úr þessu máli á skömmum tíma, en það reyndist ekki vera. Og þess vegna komum við fyrir þessum biðstöðvum til bráðabirgða. Mikil- vægast er að vinna hlutina vel þó að það geti tekið smá tíma.“ segir hún. Þrengingarstefna í borginni Á fundi borgarráðs í síðustu viku lagði Vigdís Hauksdóttir, borgar- fulltrúi Miðflokksins, fram nokkrar spurningar er snúa að Hagatorgi og þeim framkvæmdum sem þar hafa staðið yfir. Vill borgarfulltrúinn m.a. fá að vita skilgreiningu Reykjavíkur- borgar á „hefðbundnu“ og „óhefð- bundnu“ hringtorgi, en fram hefur komið í Morgunblaðinu að Reykja- víkurborg telji Hagatorg vera „óhefðbundið“ hringtorg. Hefur Vig- dís einnig óskað eftir upplýsingum varðandi kostnað framkvæmdanna. „Ég tel borgina þurfa að svara þessu því hún virðist vera komin með nýja túlkun á hringtorgum,“ segir hún og heldur áfram: „Það er með ólíkindum að Reykjavíkurborg skuli ráðast í framkvæmdir sem þessar sem stangast svo á við lög. En þetta er nú ekki eina málið þar sem borgin fer gegn lögum, það er upp- lýst um lögbrot í nánast hverri viku.“ Segir Vigdís „þrengingarstefnu“ borgarinnar hafa náð nýjum hæðum. „Birkimelur var brytjaður niður og þrengdur með tilheyrandi mengun. Árásin á Hagatorg var næsti liður, hringtorg sem nú hefur fengið nýja skilgreiningu hjá Reykjavíkurborg.“ Sérákvæði opni biðstöðvarnar á ný  Reykjavíkurborg vinnur nú að því að leysa þá stöðu sem upp er komin vegna biðstöðva Strætó við Hagatorg og Hádegismóa  Greindu umferð fólks um Hagatorg  Borgarfulltrúi kallar eftir svörum Morgunblaðið/Eggert Óhefðbundið? Hringtorgið Hagatorg komst í hámæli í síðustu viku. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Búið er að selja rúman helming 228 íbúða sem komið hafa í sölu á Hlíðar- enda. Þær eru í 14 stigagöngum við Smyrilshlíð, Haukahlíð, Valshlíð og Fálkahlíð en salan hófst í sumar sem leið. Hlutfallið vekur athygli í ljósi þess að margar eru nýkomnar í sölu. Nú stendur yfir uppbygging 673 íbúða á reitum C, D, E og F á Hlíðar- enda. Reitur B fór í sölu sumarið 2017 en þar eru 40 íbúðir. Á reit E er búið að selja 65 af 106 íbúðum í sjö stigagöngum. Þar af eru fimm stigaganganna nær uppseldir. Á reit F er búið að selja 50 af 122 íbúðum en þar af eru 27 íbúðir í Smyrilshlíð 3 nýkomnar í sölu. Selja 115 af 228 íbúðum Samanlagt hafa því selst 115 af 228 íbúðum á þessum tveimur reit- um, eða rúmur helmingur. Miðað við að meðalverð sé 45 milljónir nemur söluverðmætið 5,2 milljörðum. Heildartalan gæti verið mun hærri. Stærri íbúðirnar eru þannig umtalsvert dýrari og geta þakíbúðir kostað vel á annað hundrað milljónir. Að sögn fasteignasala hafa margir skoðað íbúðir þegar boðið er upp á opið hús. Þegar Morgunblaðið skoð- aði íbúðir um síðustu helgi sagði sölumaður eigendurna opna fyrir því að taka við tilboðum. Umrædd íbúð var skráð seld síðdegis í gær. Heimavellir eiga margar íbúðanna sem komnar eru í sölu. Virðist félag- ið ætla að ljúka verkefninu á hlut- fallslega skömmum tíma með hlið- sjón af niðursveiflunni í hagkerfinu. Hröð sala íbúða á Hlíðarenda  Söluverðmætið vel á sjötta milljarð Seldar íbúðir á Hlíðarenda Samkvæmt söluvefjum 19. nóvember 2019 Fjöldi íbúða Seldar íbúðir Fjöldi % Haukahlíð 5 12 9 75% Smyrilshlíð 2 19 17 90% Smyrilshlíð 4 15 13 87% Smyrilshlíð 6 15 12 80% Fjöldi íbúða Seldar íbúðir Fjöldi % Smyrilshlíð 8 12 10 83% Fálkahlíð 10 20 2 10% Fálkahlíð 6 13 2 15% Alls 106 65 61% Hlíðarfótur Smyrilshlíð Ha uk ah líð Fálkahlíð Hlíðin.is Reitur E Seldar íbúðir á Hlíðarenda Samkvæmt söluvefjum 19. nóv. 2019 Fjöldi íbúða Seldar íbúðir Fjöldi % Valshlíð 4 12 1 8% Valshlíð 6 14 2 14% Valshlíð 8 17 8 47% Fálkahlíð 2 16 12 75% Fálkahlíð 4 18 16 89% Smyrilshlíð 5 18 11 61% Smyrilshlíð 3 27 0 0% Alls 122 50 41% 102 Reykjavík.is Reitur F

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.