Morgunblaðið - 20.11.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.11.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty Haldari 8.990,- Buxur 3.990,- Samfella 10.950,- Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Það styttist í að haustþingi 150. lög- gjafarþingsins ljúki og þingmenn fari í jólaleyfi. Nú standa yfir nefndar- dagar á Alþingi en þingstörf hefjast að nýju á mánudaginn. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis eru 12 þing- fundardagar fram að jólahléi, sem á að hefjast föstudaginn 13. desember. Á þessum tímapunkti er vert að skoða hvaða þingmenn hafa talað lengst á yfirstandandi þing. Í ljós kemur að í efsta sætinu er Guð- mundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins. Samkvæmt yfirliti á vef Alþingis hefur Guðmundur Ingi flutt 166 ræður og athugasemdir. Hann hefur talað í samtals 505 mín- útur, eða rúmlega átta klukkustundir. Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra er næstur í röðinni. Hann hefur flutt 144 ræður og athugasemdir og talað í 409 mínútur. Inga Sæland, Flokki fólksins, hefur talað í 326 mín- útur, Birgir Þórarinsson Miðflokki í 299 mínútur, Þorsteinn Sæmundsson, Miðflokki, í 284 mínútur, Björn Leví Gunnarsson Pírati í 283 mínútur og Þorsteinn Víglundsson,Viðreisn, í 256 mínútur. Það sem af er 150. löggjafar- þinginu hefur verið flutt 1.661 þing- ræða og hafa þær staðið yfir í rúmar 11 klukkustundir. Þingmenn hafa flutt 1.227 athugasemdir, samtals í tæpar 34 klukkustundir. Samkvæmt starfsáætlun þingsins eiga nefndarfundir að hefjast 14. jan- úar að loknu jólaleyfi. Þingfundir hefjast svo að nýju 20. janúar. Stefnt er að þingfrestun miðvikudaginn 10. júní 2020.  Þingmenn fara í jólafrí 13. desember Guðmundur Ingi Kristinsson Bjarni Benediktsson Guðmundur Ingi hefur talað mest allra þingmanna Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sjúkratryggingar Íslands hafa greitt um 2,8 milljarða króna vegna svokallaðra sjúklingatrygginga á rúmum áratug. Þó eru aðeins 35- 40% umsókna samþykkt. Umsókn- um hefur fjölgað ár frá ári og heildarfjárhæð greiddra bóta sömu- leiðis, þótt stór frávik séu í einstaka árum. Áætla má að bætur séu 6,5 til 8 milljónir að meðaltali í hverju samþykktu tilviki. Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) annast greiðslu bóta fyrir ríkið, samkvæmt lögum um sjúkratrygg- ingar sem tóku gildi í byrjun árs 2001. Með þeim eru sjúklingum tryggðar bætur vegna líkamlegs eða geðræns tjóns sem þeir hafa orðið fyrir á sjúkrahúsi, heilsugæslustöð eða öðrum heilbrigðisstofnunum. Réttur sjúklinga til bóta einskorð- ast ekki við mistök lækna eða ann- ars heilbrigðisstarfsfólks heldur getur hann einnig orðið til vegna al- varlegra fylgikvilla meðferðar og bilana eða galla í tækjum á um- ræddum stofnunum. Sjúkratryggingar Íslands sjá að- eins um sjúklingatryggingu fyrir heilbrigðisstofnanir í ríkisrekstri. Umsóknum vegna sjálfstætt starf- andi heilbrigðisstarfsfólks á að beina til tryggingafélaga viðkom- andi. Meðalbætur 6,5 til 8 milljónir Sjúkratryggingar hafa á undan- förnum árum fengið 150 til 190 um- sóknir á ári um greiðslur út á sjúk- lingatryggingu og greitt út nálægt 400 milljónum í bætur á ári. Sam- kvæmt yfirliti frá SÍ hafa borist 1.658 umsóknir frá ársbyrjun 2008 til loka október í ár og á þessu tíma- bili hafa verið greiddir út um 2,8 milljarðar kr. í bætur. Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Jóns Þórs Ólafssonar þingmanns kemur fram að á ár- unum 2008 til 2018 samþykkti SÍ 512 umsóknir af 1.540 nýjum um- sóknum sem bárust á þessum tíma. Er hlutfall samþykktra umsókna um þriðjungur, samkvæmt því. Bótaskyldu hefur verið synjað í flestum þeirra rúmlega þúsund mála sem liggja óbætt hjá garði. Málsmeðferð er þó ekki lokið í hluta nýju umsóknanna. Sjúkratryggingar veita þær upp- lýsingar að bótaskylda sé samþykkt vegna um það bil 35-40% umsókna og leiði samþykki oftast nær til greiðslu bóta. Þetta hlutfall er sagt svipað og í hinum norrænu ríkj- unum. Út frá þessu má áætla að meðalbætur séu á bilinu 6,5 til 8 milljónum fyrir hverja samþykkta umsókn. Ekki er hægt að bera upplýsingar SÍ og heilbrigðisráðuneytisins beint saman því umfjöllun um umsókn tekur nokkra mánuði, meðal annars vegna gagnaöflunar, og er oft ekki lokið á sama ári og umsókn berst. Greiðslur Sjúkratrygginga vegna sjúklingatrygginga 2008-2019* 225 200 175 150 125 100 75 50 25 0 450 400 350 300 250 200 150 100 50 0 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19* 103 97 125 89 88 187 246 389 251 460 398 402 1.658 um-sóknir árin 2008-2019* 512 Samþykktar umsóknir árin 2008-2018 *Janúar til október 2019 Heimild: Sjúkratryggingar og heilbrigðisráðuneytið Umsóknir M.kr. 112 136 114 151 166 117 Fjöldi umsókna Útgjöld, milljónir kr. 2,8 milljarða króna útgjöld alls árin 2008-2019* 400 milljónir á ári vegna sjúklingatrygginga  Umsóknum um bætur vegna mistaka í opinbera heilbrigðis- kerfinu fjölgar ár frá ári  35-40% umsækjenda fá bætur Erla María Markúsdóttir Hallur Már Hallsson Guðrún Hálfdánardóttir „Hugmyndin er sú að Ísland sé stað- urinn þar sem kvenleiðtogar vilja koma saman út af því sem hér hefur verið gert, til þess að fá hvatningu, til þess að fá hugmyndir, til þess að leita lausna og til þess að bæta heiminn,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Women Political Leaders (WPL), um Heimsþing kvenleiðtoga sem hófst formlega í Hörpu í gær. Um 450 kven- leiðtogar frá um 80 löndum eru staddar á heimsþinginu sem stendur yfir í tvo daga. Þetta er í annað sinn sem þingið fer fram hér á landi en ríkisstjórn Íslands og Alþingi gerðu samkomulag við WPL í fyrra um að efna til Heimsþings kvenleiðtoga á Íslandi ár hvert næstu fjögur ár. Hótað lífláti og fangelsun Einn gesta á heimsþinginu er blaðakonan Maria Ressa frá Filipps- eyjum. Ressa hefur starfað við blaðamennsku í yfir 30 ár og í tvo áratugi starfaði hún við rannsókn- arblaðamennsku og erlendar fréttir sem yfirmaður skrifstofu CNN bæði í Manila og Jakarta í Indónesíu. Hún stýrði síðar fréttastofu stærstu sjónvarpsstöðvar Filippseyja, ABS- CBN. Henni hefur verið hótað og hún nefnd öllum illum nöfnum. Myndir af henni með myllumerkinu „hand- takið tíkina“ hafa verið birtar á sam- félagsmiðlum, henni hefur verið hót- að lífláti, fangelsun og nauðgunum. Ástæðan fyrir hótunum í hennar garð er fréttaflutningur hennar og uppljóstrun á fölskum fréttum í heimalandinu. „Á Filippseyjum getur verið erfitt að greina á milli staðreynda og skáldskapar en við hjá Rappler neit- um að gefast upp og höldum áfram rannsóknarblaðamennsku þó svo það þýði að við séum skotmark yfir- valda,“ segir Maria Ressa. „Takk Ís- land fyrir að láta ykkur annt um fólkið sem hefur verið drepið í eitur- lyfjastríðinu. Ég er miður mín yfir ástandinu á Filippseyjum í dag; landi sem hefur skrifað undir sátt- mála um mannréttindi,“ segir hún ennfremur. „Ég hef verið blaðamað- ur í meira en 30 ár og aldrei upplifað neitt í líkingu við árásirnar sem ég hef þurft að þola, líkt og kemur fram í þætti CSB 60 Minutes um síðustu helgi. Þar sést hvernig áróðursvél- inni er beint að mér,“ segir Maria Ressa. Nánar er rætt við hana á mbl.is. Miður sín yfir ástandinu í heimalandinu  Maria Ressa frá Filippseyjum er gest- ur á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í Hörpu Maria Ressa er þekktur blaðamaður frá Filippseyjum. Hanna Birna Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.