Morgunblaðið - 20.11.2019, Síða 14
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Eðlilegt er að almenningurhafi annars vegar upp-lýsingar um hagsmuni,gjafir og önnur fríðindi
æðstu handhafa framkvæmdavalds
og hins vegar vitneskju um það
hverjir það eru sem sinna hags-
munavörslu.“ Þetta segir í skýr-
ingum með frumvarpsdrögum Katr-
ínar Jakobsdóttur forsætisráðherra
um varnir gegn hagsmuna-
árekstrum hjá æðstu handhöfum
framkvæmdarvalds í Stjórnarráði
Íslands, sem birt hefur verið á Sam-
ráðsgátt stjórnvalda.
Lagðar eru til nýjar reglur sem
taka til ráðherra, aðstoðarmanna
ráðherra, ráðuneytisstjóra, skrif-
stofustjóra og sendiherra sem fjalla
um hagsmunaskráningu og gjafir,
samskipti við hagsmunaverði (lobbí-
ista í daglegu tali), aukastörf, starfs-
val að loknum opinberum störfum
og eftirlit með því að farið verði eft-
ir hinum nýju lagagreinum.
Fyrstu drög með efni frum-
varpsins voru birt sl. sumar en nú
eru frumvarpsdrögin komin fram.
Ein meginreglan sem lögfesta á er
sú að æðstu handhöfum fram-
kvæmdarvalds og aðstoðarmönnum
ráðherra verði gert að tilkynna
opinberlega um tiltekna hagsmuni
og gjafir. Er eina af róttækustu til-
lögunum að finna í 2. grein þar sem
segir orðrétt: „Æðstu handhöfum
framkvæmdarvalds og aðstoðar-
mönnum ráðherra er skylt að til-
kynna um eignir, skuldir, sjálf-
skuldarábyrgðir og aðrar ábyrgðir
sínar hérlendis og erlendis auk
sömu upplýsinga um maka þeirra
og ólögráða börn á framfæri þeirra.
Allar umtalsverðar breytingar á
framangreindum upplýsingum
skulu tilkynntar jafnóðum. Æðstu
handhöfum framkvæmdarvalds og
aðstoðarmönnum ráðherra er skylt
að tilkynna um allar gjafir sem þeir
fá í tengslum við starf sitt og öll
önnur hlunnindi og fríðindi, hvaða
nafni sem þau nefnast.“
Frá þessu eru þó tilgreindar
ýmsar undantekningar. Ekki verði
t.d. skylt að tilkynna um skuldir og
ábyrgðir vegna íbúðarhúsnæðis eða
bifreiða til eigin nota og vegna
námslána og svo skulda við banka
undir fimm milljónum kr. Skylt
verður að tilkynna um gjafir og fríð-
indi sem viðkomandi fá í tengslum
við starfið ef verðmæti þeirra er yfir
50 þúsund kr.
Hagsmunaverðir skráðir
Settar eru fram skýrari reglur
um aukastörf en nú gilda. Kveðið er
á um hvaða aukastörf og verkefni
samrýmast störfum þeirra sem
væntanleg lög ná til og hver ekki og
um opinbera skrá sem haldin verður
yfir þau. ,,Frumvarpið inniheldur
jafnframt reglur um takmarkanir á
starfsvali handhafa framkvæmdar-
valds að opinberum störfum lokn-
um, þ.e. bann við því að þeir gerist
hagsmunaverðir í tiltekinn tíma. Þá
á með frumvarpinu að koma á fót
skrá yfir hagsmunaverði sem verð-
ur gert skylt að tilkynna stjórnvöld-
um sérstaklega um sig og hlutverk
sitt.“
Skylt verður að skrá allar upp-
lýsingar um samskipti stjórnvalda
og hagsmunavarða verði frumvarpið
lögfest. Tilgreina þarf í greinargerð
ef hagsmunaverðir hafa átt aðkomu
að smíði stjórnarfrumvarpa. Þá er
sérstakt ákvæði sem gerir að verk-
um að æðstu handhöfum fram-
kvæmdarvalds verði óheimilt að
gerast hagsmunaverðir í sex mánuði
eftir að þeir láta af störfum fyrir
Stjórnarráðið.
Upplýsi hagsmuni,
gjafir og fríðindi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjórnarráðið Forsætisráðuneytið á að halda skrá yfir upplýsingar um
hagsmuni, gjafir og fríðindi og birta þær almenningi að hluta.
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Mikil ólgahefurverið í Ír-
an frá því að elds-
neytisverð var
hækkað í landinu á
föstudag. Í gær var greint frá
því að þrír öryggisverðir hefðu
látið lífið í óeirðum og hafa
minnst fimm fallið frá því að
óeirðirnar brutust út.
Stjórnvöld í Íran lokuðu fyr-
ir netið vegna óeirðanna og
erfitt er að fá yfirsýn yfir
ástandið. Tíðindamenn frétta-
veitunnar AFP sögðust hafa
séð brunarústir tveggja
bensínstöðva og skemmdir
víða, meðal annars á lög-
reglustöð og göngubrú.
Þrengt hefur að stjórnvöld-
um í Íran eftir að ríkisstjórn
Donalds Trumps Bandaríkja-
forseta ákvað að rifta kjarn-
orkusamningnum sem forveri
hans gerði við Írana. Aðgerðir
Trumps hafa haft sín áhrif.
Íranar hafa ávallt lagt
áherslu á að efla ítök sín í Mið-
Austurlöndum og orðið mikið
ágengt á undanförnum árum,
ekki síst í kjölfar þeirra átaka
sem brotist hafa út í kjölfarið
á arabíska vorinu.
Þegar kjarnorkusamningur-
inn var gerður í forsetatíð
Baracks Obama losnaði um
fjármuni sem höfðu verið
frystir. Þetta fé var hins vegar
ekki notað til að bæta ástandið
heima fyrir, heldur til hern-
aðarmála og reka útþenslu-
stefnuna.
Það er til marks
um áhrif ákvörð-
unar Trumps að
snúa við blaðinu og
grípa til refsi-
aðgerða að á þessu
ári munu útgjöld Írana til
hernaðar dragast saman um
28% að mati bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins.
Í fyrra drógust þau saman
um 9,5% miðað við 2017 að
mati alþjóðlegu friðarrann-
sóknarstofnunarinnar SIPRI í
Stokkhólmi. Voru Íranar engu
að síður í 18. sæti á lista
SIPRI yfir útgjöld ríkja heims
til varnarmála.
Samdráttur íransks efna-
hags er þó meiri en lækkun út-
gjalda til hernaðar. Gjaldmið-
ill landsins hefur hríðfallið og
olíuútflutningur dregist sam-
an um rúman helming.
Fyrir 10 árum reis upp mikil
alda mótmæla í Íran til að
mótmæla endurkjöri Mahm-
ouds Ahmadinejads til forseta
á þeirri forsendu að brögð
hefðu verið í tafli. Mótmælin
voru brotin aftur með hörku
og í kjölfarið lögð ofuráhersla
á að þurrka út allar tilraunir
til andófs og hugmyndir um að
klerkaveldið myndi lina tökin
og opna fyrir aukið lýðræði.
Viðbrögðin við mótmælunum
nú eru með sama hætti. Íranar
ætla áfram að nota umrótið í
Mið-Austurlöndum til að auka
áhrif sín og heima fyrir verður
járnhællinn notaður til að
kveða niður andóf og óánægju.
Mótmælum og
óánægju mætt
með hörku}
Ólga í Íran
Um helginafögnuðu gul-
vestungar því að
mótmæli þeirra
höfðu þá staðið í
heilt ár. Macron
forseta þótti þetta
ekki gleðiríkt tilefni. Og ekki
bætti úr að ársafmælið
breyttist skjótt í æsing, upp-
þot og loks í hreint stjórn-
leysi. Skiljanlegt er að Mac-
ron sé langþreyttur á
mótmælum, sem iðulega
þróast í íkveikjur og önnur
eignaspjöll og skilja eftir
lemstraða lögreglumenn sem
reyna af miklu hugrekki að
sinna því meginhlutverki sínu
að halda uppi lögum og
reglum og tryggja almanna-
frið.
Macron beindi að nokkru
reiði sinni yfir því hversu illa
fór á ársafmælinu og undan-
fara þess að hinum almenna
Fransmanni sem lætur, að
mati forsetans, ekki til sín
taka og fordæmir ekki „of-
stopa, skemmdarverk og
árásir á löggæslumenn“.
Sagði Macron að
með slíkri þögn og
skorti á fordæm-
ingu gæti stappað
nærri því að menn
yrðu virtir með-
sekir uppþots-
öflunum. Orð hans eiga nokk-
urn rétt á sér, en ekki er þó
víst að hinn „venjulegi
Frakki“ taki því vel að argur
forsetinn, sem hafi ekki í heilt
ár ráðið við ástandið sem til-
lögur hans sjálfs kveiktu,
beini nú ábyrgðinni óvænt frá
sér og yfir í fang almennings.
Í síðustu forsetakosningum
birtist Macron sem riddarinn
hugprúði á hvítum hesti og lét
eins og hann hefði ráð við
hverjum vanda, hertan hug,
afl og þrek svo að frá og með
kjöri hans yrði á öllum vanda
tekið. Það yrðu allt önnur tök
en forverarnir, Hollande og
Sarkosy, voru færir um að
beita. Macron veit að vegna
þess meinta aumingjadóms
missti Hollande forseti traust
sitt á hraða sem hafði ekki
sést fyrr.
Mótmæli gul-
vestunga í Frakk-
landi hafa staðið
ótrúlega lengi}
Gulvesti ársgömul
A
ð undanförnu hafa komið fram
upplýsingar um eitt stærsta spill-
ingarmál Íslandssögunnar. Þar er
sögð saga af uppsöfnuðum auði og
völdum í skjóli íslensks kvótakerf-
is og hvernig þeim völdum var beitt til þess að
arðræna Afríkuríki auðlindum sínum. Þar er
sögð saga þess hvernig fjármagn flæðir fram og
til baka í gegnum aflandsfélög þar sem
ógagnsæ fyrirtækjalöggjöf er notuð til þess að
fela slóðina. Sagan passar vel inn í klassíska
spillingarmynd beinna mútugreiðslna til ráða-
manna eins og þær birtast í kvikmyndunum.
En spilling á sér fjölbreyttari birtingarmyndir
en þetta. Spillingin birtist í öllum stærðum og
gerðum en þegar upp er staðið er spilling alltaf
jafn alvarlegt mál.
Ég bað fólk nýlega um að senda mér dæmi
um sögur af spillingu á Íslandi. Viðbrögðin stóðu ekki á sér
og innan sólarhrings voru komnar um eitt hundrað sögur.
Markmiðið með því að safna íslenskum spillingarsögum er
að læra, kenna og upplýsa um umfang. Ég bið um sögur á
nafnlausan og órekjanlegan hátt og ef það berast sögur
sem eru á einhvern hátt rekjanlegar þá verða þær ekki
birtar þannig. Allar haldbærar ábendingar um spillingu
eiga að sjálfsögðu að tilkynnast réttbærum yfirvöldum.
Það sem ég vil gera er að safna og sýna dæmi um það
hvernig birtingarmynd spillingar er í íslensku samfélagi
því það virðist lítið gert úr því að hér á landi ríki spilling.
Það er til dæmis vísað til þess að við séum neðarlega á lista
um spillingu í ríkjum heims. Það segir samt ekki alla sög-
una því íslensku spillingarsögurnar eru „per-
sónulegri“, í líkingu við gömlu góðu frændhygl-
ina.
Dæmi um sögur sem hafa borist:
„Ég varð vitni að því að tveir starfsmenn
voru að stela vörum af lager. Ég tilkynnti
þjófnaðinn og annar var rekinn en hinn var vel
tengdur og hélt starfinu.“
„Ríkisstarfsmaður skrifaði áfengi sem mat-
væli á reikning vegna ferðalags, þegar ég
kvartaði þá var ég tekinn úr ferðalagi sem ég
átti að fara í.“
„Menn verða að tilheyra réttum flokki til
þess að eiga séns á að fá pláss á bát.“
„Ég hef fengið skammir í vinnunni fyrir það
sem ég skrifa á netið og skilaboð um að það sé
fylgst með því sem ég segi.“
„Stærsti vinnuveitandinn á staðnum skipaði
öllu erlendu vinnufólki að kjósa ákveðinn flokk í sveitar-
stjórnarkosningum eða það myndi missa vinnuna.“
Sögurnar eru eins mismunandi og þær eru margar.
Markmiðið með sögusöfnuninni er ekki að fara á norna-
veiðar út frá einstökum sögum heldur að safna upplýsing-
um og læra. Til þess að geta stöðvað spillinguna þurfum
við fyrst að fá heildstæða mynd af þeirri spillingu sem ríkir
á Íslandi. Þá getum við ráðist að rótum hennar og kannski
komið í veg fyrir næsta Samherjamál. Ef þú átt sögu af
spillingu sendu hana þá endilega inn á: bit.do/spilling
Björn Leví
Gunnarsson
Pistill
#Spillingarsögur
Höfundur er þingmaður Pírata.
bjornlevi@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Ráðherra á skv. frumvarpinu að
halda skrá yfir tilkynningar um
hagsmuni, gjafir og önnur fríð-
indi æðstu handhafa fram-
kvæmdarvalds og skulu þær
birtar almenningi á vef Stjórnar-
ráðsins.
Ákveðnar undanþágur eru þó
gerðar og segir að óheimilt sé að
birta opinberlega þann hluta
skránna sem tekur til skrif-
stofustjóra, sendiherra og að-
stoðarmanna ráðherra. Sama
gildi um þann hluta skránna sem
tekur til maka og ólögráða barna
á framfæri æðstu handhafa og
aðstoðarmanna. Þessar upplýs-
ingar á þó að varðveita hjá for-
sætisráðuneytinu „og getur ráð-
herra m.a. á grundvelli vitneskju
um það sem þar kemur fram tek-
ið mál til skoðunar að eigin
frumkvæði og látið hlutaðeig-
andi ráðuneyti vita af óeðlilegum
hagsmunatengslum sem fram
koma í upplýsingunum“.
Birtar al-
menningi
SKRÁR UM HAGSMUNI