Morgunblaðið - 20.11.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 20.11.2019, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 ✝ JónannaBjarnadóttir fæddist á Akureyri 17. júlí 1973. Hún lést í Barcelona á Spáni 30. október 2019. Foreldar hennar eru Hugrún Hjördís Sigurbjörnsdóttir, f. 7. desember 1949, og Bjarni Lúther Thorarensen vél- stjóri, f. 14. september 1946. Hugrún og Bjarni Lúther skildu þegar Jónanna var 10 ára. Seinni maður Hugrúnar er Ragnar eiga þrjú börn, Alexöndru Ýri, Júlíus Fannar og Elvar Hólm; Ragnar Hólm Ragnarsson, sam- mæðra, f. 2. apríl 1987, fjár- málastjóri við Menntaskólann á Akureyri. Kona hans er Karen Jóhannsdóttir, f. 11. maí 1989, grunnskólakennari. Sonur þeirra er Hrannar Ingi. Jónanna ólst upp á Akureyri hjá móður og stjúpföður. Hún lauk stúdentsprófi frá Verk- menntaskólanum á Akureyri ár- ið 1993. Jónanna var um tíma au pair í Bandaríkjunum en árið 1997 fluttist hún til Reykjavíkur og vann þar ýmis störf í verslun og þjónustu. Hinn 9. ágúst 2002 giftist Jón- anna Arnari Óskari Þór, f. 9. ágúst 1974. Foreldrar hans eru Stefán Magnússon, f. 11. maí 1943, og Kristrún Kristjáns- dóttir, f. 10. júlí 1939. Jónanna og Arnar eiga tvær dætur, Hugrúnu Gretu, f. 17. október 2001, og Hjördísi Emmu, f. 16. júlí 2006. Jónanna og Arnar byrjuðu sinn búskap í Grafarvogi og bjuggu þar til ársins 2004 þegar þau fluttu í Móaflöt 7 í Garðabæ. Þar bjuggu þau til ársins 2018 er þau fluttu til Spánar. Þar skyldi verða þeirra framtíðarheimili. Á búskaparárunum í Graf- arvogi byrjaði Jónanna að fram- leiða tækifæriskort og gjafavöru af ýmsu tagi sem hún seldi í blómabúðum og víðar. Fram- leiðslan byrjaði smátt en óx jafnt og þétt. Hún stofnaði fyrirtækið JB art til að halda utan um þessa starfsemi og síðustu árin þeirra í Garðabænum var fyrirtækið lifi- brauð þeirra beggja. Útför Jónönnu fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 20. nóvem- ber 2019, klukkan 11. Hauksson, f. 14. apríl 1953. Seinni kona Bjarna er Sig- ríður Magnúsdóttir, f. 11. júní 1944. Bræður Jónönnu eru: Stefán Thor- arensen, f. 2. apríl 1968, verkamaður á Akureyri; Elvar Thorarensen, f. 2. mars 1972, gæða- stjóri á Akureyri. Kona hans er Hrafnhildur Har- aldsdóttir, f. 29. júlí 1975, rekstr- ar- og fjármálastjóri við Verk- menntaskólann á Akureyri. Þau Elsku Jóna, fallega, glaða og yndislega mágkona mín. Ég gleymi því aldrei þegar ég hitti þig fyrst. Þú varst í eldhúsinu í Skarðshlíðinni með Hjördísi pínu- litla í fanginu og brostir út að eyr- um. Þú virtist himinlifandi yfir þessari nýju viðbót í fjölskylduna og ég man hvað mér þótti strax vænt um þig. Síðan þá hefur margt gerst og samverustundirn- ar verið ófáar en alls ekki nógu margar. Þú varst einstaklega ákveðin, hlý og góð og var þér um- hugað um alla í kringum þig. Þú tókst virkan þátt í námi og lífi stelpnanna þinna sem mér hefur alltaf þótt til mikillar fyrirmyndar. Takk fyrir að taka vel á móti mér fyrir 13 árum. Takk fyrir all- ar gistinæturnar í Garðabænum, það var ómetanlegt að eiga alltaf samastað hjá ykkur Arnari og stelpunum. Takk fyrir að vera dásamleg frænka fyrir Hrannar Inga. Á sama tíma syrgi ég það að ófætt barn fái ekki að kynnast Jónu frænku. Takk fyrir allt! Karen. Elsku Jóna frænka. Ég hitti þig fyrst aðeins nokkurra klukku- stunda gömul. Ég man auðvitað ekkert eftir því en þarna urðum við strax miklar vinkonur. Ég kom mjög oft í heimsókn til ykkar í Garðabæinn, annaðhvort í pössun eða bara í heimsókn með mömmu, pabba og Særúnu, og alltaf var ég dekruð upp úr skónum og mátti allt. Eins og ég sagði alltaf: „Fara til Nónu frænku í dúkkó.“ Þú varst með mér inni á gamlárs- kvöld þegar allir hinir fóru út að sprengja til að ég fengi ekki illt í eyrun. Þú fylgdist alltaf svo vel með mér og rukkaðir mömmu um snöpp ef það leið of langur tími. Þið fluttuð svo til Spánar 2018 og ég er alltaf að spyrja hvenær þið komið eiginlega úr þessu ferðalagi til að þú getir farið með mér í dúkkó. Ég er bara vön því að fólk skreppi til Spánar og komi fljót- lega til baka, þess vegna skil ég þetta ekki alveg. Takk fyrir að vera alltaf svona góð við mig og vera til staðar fyrir mig og okkur öll. Ég mun alltaf muna hversu góð þú varst alltaf við mig. Þín frænka, Magnea Hrönn. Þessi tími frá því að ég fékk þær hræðilegu fréttir að mín kæra frænka væri látin hefur liðið áfram í þoku. Hugur minn nær ekki utan um þetta, svo óraun- verulegur er þessi nýi veruleiki ennþá. Allt frá því að ég fæddist var Jóna á einhvern hátt hluti af lífi mínu. Þegar ég var barn pass- aði hún mig, þegar ég varð aðeins eldri og hún unglingur leit ég upp til hennar. Í mínum huga átti hún flottustu fötin, hlustaði á skemmtilegustu tónlistina og lifði ævintýralegasta lífinu. Alltaf leyfði hún mér, átta árum yngri, að vera með og aldrei leið mér eins og ég væri óvelkomin. Ég heyrði þær vinkonurnar ræða strákamál, hitti kærasta hennar og fylgdist með henni undirbúa sig fyrir útihátíðir. Þegar Jóna flutti til Bandaríkjanna varð hún penna- vinur minn. Það eru ekki allar frænkur sem hefðu nennt að skrif- ast á við litlu frænkur sínar einu sinni til tvisvar í mánuði yfir langt tímabil en það gerði hún. Eftir að við urðum báðar full- orðnar urðum við enn nánari vin- konur og jafningjar. Ég var tíður gestur á heimili fjölskyldunnar þar sem við frænkur töluðum mik- ið og lengi um allt og ekkert. Við vorum til staðar hvor fyrir aðra. Mig óraði ekki fyrir því að einn daginn, alltof snemma, væri kom- ið að kveðjustund. Það er ekki svo langt síðan ég talaði við hana og átti í samskiptum við hana í gegn- um samfélagsmiðla. Við rifjuðum upp gamla tíma, til að mynda ógleymanlega Londonferð, og ræddum um framtíðina og hvað okkur langaði að gera. Ég mun standa við minn part og Jóna mun fylgja mér í huga og hjarta. Þrátt fyrir að fjarlægðin hafi orðið meiri síðustu ár var á milli okkar sterk- ur strengur sem aldrei getur brostið. Þó styttist dagur, daprist ljós og dimmi meir og meir, ég þekki ljós, sem logar skært, það ljós, sem aldrei deyr. (Margrét Jónsdóttir) Kæra frænka, ég kveð að sinni, þar til við hittumst næst. Ég veit að Magga frænka tekur á móti þér og pabbi hristir hausinn yfir því hvað þið getið talað mikið og hátt. Ég hef ekki tölu á því hve oft við tvær horfðum á kvikmyndina Dirty dancing, borðuðum popp og drukkum appelsínudjús. Það mun ég gera í kvöld. Fyrir þig. Fyrir okkur. Elsku Arnar, Hugrún Greta, Hjördís Emma og stórfjölskyldan öll. Ég samhryggist ykkur inni- lega, þið eru alltaf og ætíð í huga mínum. Við erum ávallt til staðar fyrir ykkur. Þín litla frænka, Marín Hallfríður (Mæja). Það er þyngra en tárum taki að kveðja hana Jónu frænku. Í blóma lífsins fellur hún frá algjörlega fyrirvaralaust. Fjölskyldan var búin að koma sér svo vel fyrir í nýja landinu og Jóna byrjuð að stunda sína list af krafti og sinna fuglunum sínum sem áttu svo stórt pláss í hjarta hennar. Við fylgdumst með þessari hressu og orðhvötu stelpu vaxa úr grasi. Hún virkaði ófeimin, orð- heppin og uppátækjasöm. Kynnin jukust mikið þegar hún yfirgaf Norðurlandið og fluttist á mölina hér fyrir sunnan. Allt í einu vorum við komin í hóp nánustu ættingja. Við vorum í tíðu og reglulegu sam- bandi. Fylgdumst með því hvar hún vann og hvar hún bjó. Mætt- um í afmælin og ferminguna og ótal aðra óvænta hittinga. Við fengum ástarsöguna úr fataheng- inu í æð. Vorum númer í brúð- kaupinu í Villingaholti. Það var ógleymanleg gleði. Þeirri veislu gleymum við seint. Og terturnar í afmælunum. Glæsilegri með hverju árinu. Jóna var einstakur dýravinur. Oftast voru það fuglar sem áttu hug hennar. Sögur af stokkand- arsteggnum Andrési eru okkur mjög eftirminnilegar. Hann vandi komur sínar að svaladyrunum í Móaflötinni nánast daglega frá vori og fram á haust nokkur ár í röð. Þar gaf Jóna honum eitthvað gott í gogginn, úr lófanum ef svo bar undir. Ef Jóna var ekki komin út á pall þegar hann kom bankaði hann bara á dyrnar. Jóna tók móður- og uppeldis- hlutverkið alvarlega. Hún varð fljótt besti vinur dætra sinna. Fylgdist vel með námi þeirra og áhugamálum. Hvatti þær og leið- beindi. Það skilaði sér í duglegum og yndislegum stúlkum sem stunduðu skólann sinn og áhuga- mál af ánægju og gleði. Hún var skipulögð, fylgin sér og nákvæm fram í fingurgóma. Allt var undirbúið með góðum fyr- irvara. Það kom sér líka vel í rekstrinum á JB Art, fyrirtækinu sem þau hjónin ráku um árabil. Þar stóð allt eins og stafur á bók. Alla sína tíð glímdi Jóna við erf- itt og ólæknandi exem. Margt var reynt til þess að lækna það en ekk- ert gekk. En það var ekki hennar Jónu stíll að kvarta og ekki kunni hún að vorkenna sér. „Aðrir hafa það verra en ég,“ sagði hún stund- um ef hún var spurð um heilsuna. Jóna var í meira lagi glaðlynd. Hún var jákvæð og átti gott með að sjá björtu hliðarnar á lífinu og tilverunni. Og hún átt mjög gott með að tala og segja frá. Umræðu- efnin voru henni ekki fjötur um fót. Hún hafði alltaf frá einhverju að segja og símtölin voru stundum löng og stundum lengri en það. Með hryggð í hjarta og sárum söknuði kveðjum við yndislega frænku og vin sem var okkur mjög kær. Elsku Arnar, Hugrún Greta og Hjördís Emma. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi allar góðar vættir styðja ykkur og styrkja í þessari miklu sorg. Minningin lifir og yljar áfram meðan ævi endist. Kveðjum við þig hrærðum huga, full þakklætis og fagurra minninga. (ÞD 2004) Hallbjörg og Óskar Elvar (Habbý og Elli). Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Góð vinkona, bernskuvinkona mín, er farin frá yndislegum eig- inmanni sínum, frábærum dætr- um og okkur öllum. Elsku Jónanna mín er farin yfir í sumarlandið, ó hvað ég sakna þess að vita ekki af þér á Spáni þar sem þið bjugguð og nutuð í botn. Það var aldrei lognmolla í kring- um þig, þú með alla fuglana ykkar, þeir hefðu ekki getað fengið betri „mömmu“, öll listaverkin sem þú gerðir vááá ... Það var svo gaman að fylgjast með þér á samfélags- miðlunum. Held hreinlega að þú hafir aldrei setið auðum höndum, þvílíkur dugnaðarforkur. Ég man ekki nákvæmlega hvað við vorum gamlar þegar við kynntumst, en þú áttir sko flott- asta dúkkuhúsið í hverfinu, smábæinn þar sem hver leiksýn- ingin á fætur annarri var sett upp, Stebbi stuðari, manstu. Um tíma misstum við sam- bandið en vissum samt alltaf hvor af annarri. Ég er svo þakklát fyrir samtalið sem við áttum í sumar, virkilega langt og svo skemmti- legt. Okkar samband í seinni tíð var svolítið þannig að það skipti eiginlega ekki máli hvað við hitt- umst eða heyrðumst oft; það var alltaf eins og við værum nýbúnar að hittast eða heyrast. Þetta var ekkert mál. Við töluðum nú alltaf um það að heyrast örar, en það varð einhvern veginn aldrei þann- ig. Svona eftir á þakka ég virkilega fyrir samfélagsmiðlana og hvað þú varst dugleg að leyfa okkur að fylgjast með því sem þú og þið vor- uð að gera. Spánarlífið átti svo sannarlega vel við þig og ykkur öll, stelpurnar blómstruðu og þið hjónin líka, lífið var dásamlegt. Það hefur vantað orkubolta, dugnaðarfork og yndislega konu yfir í sumarlandið, elsku Jónanna mín, ég sakna þín sárt. Hvíldu í friði, minning um dásamlega vin- konu lifir um ókomna tíð. Við sjáumst síðar, þín vinkona Systa. Arnari, stelpunum og fjölskyldu Jónönnu sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Hrafnhildur Ósk, Erlendur og börn. Ég hitti Jónu seinast fyrir rúmu ári síðan þegar þau fjölskyldan voru að flytja til Spánar að hefja nýtt líf á hlýjum og sólríkum stað, þar sem þau gætu notið lífsins. Á leið sinni keyrandi frá Íslandi suð- ur á bóginn, komu þau við hjá okk- ur í Belgíu og gistu eina nótt. Við áttum góðar stundir saman. Þau voru öll glöð og spennt fyrir þessu mikla ævintýri sem framundan var. Eins og þeim var lagið var bú- ið að skipuleggja allt í þaula og þau höfðu greinilega vandað sig við að undirbúa lífið í nýja landinu. Þann- ig var allt sem Jóna tók sér fyrir hendur, vandað og svo vel gert. Það kom fram í framleiðslu henn- ar á gjafakortum, málverkum og tréhjörtum sem prýða fjölda heimila, bæði hér heima og erlend- is. En það kom þó eflaust best fram á hennar eigin heimili og fjöl- skyldu. Það var augljóst að Arnar og stelpurnar áttu hug hennar og hjarta. Þau eru samsteypt og hamingjurík fjölskylda. Þrátt fyrir að hrjást af langvinnum og erfið- um veikindum kvartaði hún ekki eða vorkenndi sjálfri sér. Ég held að svona veikindi hefðu bugað marga en með jákvæðni að vopni hélt hún áfram að horfa fram á veginn og njóta lífsins með fjöl- skyldunni sinni sem var henni svo kær. Það var einmitt þannig sem hún eyddi seinustu dögunum sín- um: í faðmi fjölskyldunnar í fríi í Barcelona. Elsku fjölskylda, elsku Arnar, Hugrún Greta og Hjördís Emma. Að missa Jónu svona skyndilega er sorglegra en orð fá lýst og tóm- ið í hjartanu verður seint fyllt. Hennar er sárt saknað. María Óskarsdóttir. Lífið er hverfult, elsku besta vinkona mín fallin frá aðeins 46 ára. Hvernig má það vera? 41 ár af vináttu sem einkenndist alla tíð af einstöku trausti sem aldrei bar skugga á. Fyrsta minn- ingin er um okkur fimm ára gaml- ar, sem við vorum reyndar nýlega búnar að rifja upp því við mundum hana báðar svo skýrt. Minning- arnar eru óteljandi; skólagangan, unglingsárin, rúnturinn, sveita- böllin, útilegurnar, svo ég tali nú ekki um öll fötin sem við þurftum að sauma okkur eins. Þetta er bara brot af ansi stórum minn- ingabanka sem er mér dýrmætari en allt, sagan okkar færi jú létti- lega í heila bók. Þó að stundum væru höfin á milli okkar breytti það ekki daglegum samtölum okk- ar og stundum nokkrum sinnum á dag ásamt öllum þessu rafræna, enda vorum við vissar um að við færum létt með að slá heimsmet í símanotkun. Við vorum líka dug- legar að segja hvor annarri hvað við værum þakklátar hvor fyrir aðra og okkar óslitnu vináttu, enda var það ekki sjálfgefið það sem við áttum. Tilgangurinn er óskiljanlegur en hlýtur að vera einhver. Þú í blóma lífsins; þú sem lifðir fyrir stelpurnar þínar sem þú varst svo stolt af; þú og Arnar þinn sem voruð búin að gera svo frá- bæra hluti; þú sem máttir ekkert aumt sjá og hvað þá þegar það sneri að dýrum; þú sem hugsaðir um alla. Á svona stundu er erfitt að sjá eitthvað sanngjarnt við lífið og tilveruna. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Ómar Ragnarsson/Gísli á Uppsölum) Að kveðja þig í hinsta sinn er mér óendanlega þungbært, og öll- um sem þig þekktu. En ég veit að þú munt vaka yfir öllum þínum og passa upp á allt og alla sem á eftir þér horfa, elsku stelpurnar þínar og Arnar, foreldra þína, bræður og mágkonur og alla sem um sárt eiga að binda. Þú markaðir djúp spor hjá öllum þeim sem eftir sitja, syrgja og munu sakna þín um ókomna tíð. Ég bið af dýpstu alúð engla mína eitt augnablik að skynja heita þrá; ég bið þá um að virkja vængi sína og vernda sál sem fallin er nú frá. Já, kæru englar, burt þið sælir svífið í sátt og friði yfir dúnmjúk ský. Ég veit að einhvern daginn læt ég lífið en lifi allar stundir fram að því. Ég minninganna yndi ekki leyni er englaskarinn hátt til himna fer. Um bjartan dag ég krýp á kné og reyni að kveðja sál sem alúð sýndi mér. (Kristján Hreinsson) Lífið verður aldrei eins án þín, yndislega Jóna mín. Takk fyrir allt okkar! Þangað til næst mín elsku besta. Elska þig alltaf. Þín vinkona, Hanna. Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á, í víðáttu stórborgarinnar. En dagarnir æða mér óðfluga frá og árin án vitundar minnar. Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk, að dáinn sé vinurinn kæri. Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk, að í grenndinni ennþá hann væri. Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur, að albesta sending af himnunum send er sannur og einlægur vinur. (Höf. ók. Þýð. Sig. Jónsson) Minning lifir, Kveðja frá frænkuklúbbnum, Hallbjörg, Harpa, Jóhanna, Sigurhanna, Anna Björg, Þóra, Sóley, Fjóla. Jónanna Bjarnadóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.