Morgunblaðið - 20.11.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
60 ára Lilja Björk er úr
Hafnarfirði en býr í
Reykjavík. Hún er sér-
kennari í Ísaksskóla.
Áhugamál hennar eru
útivist, listir og lestur
bóka.
Maki: Lárus Þór Jóns-
son, f. 1960, heimilislæknir.
Börn: Jón Kristinn Lárusson, f. 1986,
Ólafur Már Lárusson, f. 1989, og Sigríður
María Lárusdóttir, f. 1992. Barnabörnin
eru orðin þrjú.
Foreldrar: Jón Árni Kristinsson, f. 1914,
d. 1984, trésmiður, og Sigríður Ingibjörg
Aradóttir, f. 1917, d. 2008, húsmóðir. Þau
voru búsett í Hafnarfirði.
Lilja Björk
Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Bíddu með mikilvægar ákvarðanir
fram í næstu viku. Það breytir engu að
vera eins og naut í flagi.
20. apríl - 20. maí
Naut Einvera í fallegu umhverfi lokkar um
þessar mundir, sem og lestur bóka. Sumt
verður maður bara að gera sjálfur. Allt er
þegar þrennt er.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu ekki að naga þig í handar-
bökin fyrir hluti sem þú færð engu um
ráðið. Þú skiptir líklega um vinnu eftir
nokkra mánuði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur þörf fyrir að bregða út af
vananum í dag. Einhver rekur inn nefið og
færir þér fréttir sem þú átt erfitt með að
trúa.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ekki missa stjórn á útgjöldunum
núna. Sýndu sanngirni og samstarfsvilja
og þá aðeins getur þú vænst þess að tillit
verði tekið til óska þinna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú fer uppskerutími í hönd hjá þér.
Þú nærð prófunum og getur því farið að
skipuleggja framtíðina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnst sérstaklega gaman að um-
gangast ungt fólk þessa dagana. Margt
smátt gerir eitt stórt. Þolinmæði er
dyggð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Með réttum félaga getur þú
myndað sterkt bandalag til að hrinda hug-
myndum þínum í framkvæmd. Hafðu eyr-
un opin og gríptu tækifærið þegar það
birtist.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það eru einhver atriði sem þú
þarft að fara betur í gegnum áður en þú
ert tilbúin/n til nýrra átaka. Ástin bankar
upp á, hleyptu henni inn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhleypir í makaleit rekast á
draumafélagann. Fréttir af ættingja valda
fjaðrafoki. Þú munt gera garðinn frægan
seinn meir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Veltu þér ekki upp úr fortíðinni.
Einhver lofar þér gulli og grænum skógum
og þú skalt íhuga málið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er góður dagur til fasteigna-
viðskipta. Léttu á hjarta þínu við góðan
vin. Þú ferð á stefnumót í kvöld sem á
eftir að breyta ýmsu hjá þér.
Á
rni Viðar Friðriksson er
fæddur 20. nóvember
1949 á Fjöllum í Keldu-
hverfi, N-Þing., en ólst
upp á Kópaskeri. „Ég
var í sveit hjá afa og ömmu í Sand-
fellshaga, og það var ekki bara á
sumrin því kennsla í barnaskólanum
var einungis annan hvern mánuð yf-
ir veturinn og frí þess á milli og þá
var ég líka í Sandfellshaga.“
Árni fluttist sumarið 1966 til
Akureyrar og lærði rafvirkjun hjá
Raforku hf. Hann var í hljómsveit-
inni Geislar og síðar í Flökkurum á
árunum 1967 til 1970. „Ég spilaði á
gítar og orgel en á harmonikku þeg-
ar spilaðir voru gömlu dansarnir.
Það eru engir alvöru gömlu dansar
nema spilað sé á harmonikku. Ég
tek stundum harmonikkuna með
mér þegar við förum í útilegu.“
Árni lauk námi frá Tækniskóla Ís-
lands sem rafiðnfræðingur 1972 en
flutti þá aftur til Akureyrar og veitti
útibúi Rafhönnunar á Akureyri for-
stöðu. Hann stofnaði ásamt fleirum
Raftákn sem er verkfræðistofa á
rafmagnssviði 1976 og var þar fram-
kvæmdastjóri nær óslitið þar til í
fyrra. „Ég er að selja mig út úr
fyrirtækinu, það er ekkert sniðugt
að einhverjir menn úti í bæ eigi
fyrirtækið. Það er betra að starfs-
mennirnir eigi það.“
Árni hefur verið virkur í ýmsum
félögum og stjórnum. Hann hefur
setið í nefndum Akureyrarbæjar svo
sem bygginganefnd, stjórn Tónlist-
arskóla Akureyrar og fleira fyrir
Framsóknarfélag Akureyrar. Hann
sat 17 ár í stjórn fóðurverksmiðj-
unnar Laxá lengst af sem formaður
stjórnar. Hann hefur setið í stjórn
samtaka atvinnurekenda á Akureyri
frá 2012 og sem stjórnarformaður í
fjögur ár. Hann situr nú í verkefna-
hópi um mótun orkustefnu fyrir Ís-
land sem fulltrúi Miðflokksins. „Það
er búin að vera mjög skemmtilegt
vinna að orkustefnunni og henni á að
ljúka fyrir næsta sumar. Þar kynnist
maður hvað frammámenn í orku-
fyrirtækjunum eru að hugsa. Við Ís-
lendingar eigum að búa til okkar eig-
in orkustefnu, en ekki taka upp
stefnu Evrópusambandsins eða
Noregs.“ Árni gekk í Lionsklúbbinn
Hæng á Akureyri 1976 og hefur ver-
ið virkur í Lionshreyfingunni og ver-
ið svæðisstjóri, umdæmisstjóri og
fjölumdæmisstjóri.
Árni fluttist með konu sinni og
yngri dóttur til Bonn í Þýskalandi
1988 og bjuggu þau þar í rúm tvö ár.
„Maður býr að því að hafa búið í
öðru landi og gott að kunna
þýskuna.“ Fyrir nokkrum árum
keyptu þau hjónin gamalt hús hér á
Akureyri, Aðalstræti 6 og eru að
gera það upp. Húsið er byggt 1845
og er því með elstu húsum á Akur-
eyri. „Ég hef gaman af smíðum og í
þessu gamla húsi eru mörg verkefni.
Eftir að ég lét af störfum sem fram-
kvæmdastjóri Raftákns hefur sést
meira eftir mig og markmiðið er að
verkefninu verði lokið að ári. Ég vil
Árni V. Friðriksson, fv. framkvæmdastjóri Raftákns ehf., Akureyri – 70 ára
Fjölskyldan Frá vinstri á myndinni eru Óttar, Þórdís, Jón Heiðar, Gerður, Guðrún, Jón Bragi, Þóra Aldís, Árni V.,
Anna Kolbrún, Gerður yngri, Anton, Katrín og Elín Karlotta um jólin 2013.
Búum til okkar eigin orkustefnu
Yngsta barnabarnið Árni og Ída. Hjónin Gerður og Árni stödd á alþjóðaþingi Lions í Las Vegas sumarið 2018.
40 ára Hafrún ólst
upp í Breiðholti en
býr í gamla Vestur-
bænum í Reykjavík.
Hún er sálfræðingur
að mennt og er
deildarforseti íþrótta-
deildar Háskólans í
Reykjavík. Hún situr í heilbrigðisráði
ÍSÍ. Helsta áhugamál Hafrúnar eru
íþróttir og hún er fréttafíkill.
Bróðir: Sigurður Kári Kristjánsson, f.
1973, lögmaður.
Foreldrar: Kristján Ágúst Ögmunds-
son, f. 1943, fv. forstöðumaður Laug-
ardalslaugar, og Elín Þórjónsdóttir, f.
1946, sjúkraliði. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Hafrún
Kristjánsdóttir
Til hamingju með daginn
München/Kópavogur Klara Marie
Mortensdóttir Raskov fæddist 22. júlí
2018 kl. 04.19 á spítalanum Rechts
der Isar í München í Þýskalandi. Hún
vó 3.855 g og var 52 cm löng.
Foreldrar hennar eru Erla Dögg
Guðmundsdóttir og Morten Höjslev
Raskov.
Nýr borgari