Morgunblaðið - 20.11.2019, Side 28

Morgunblaðið - 20.11.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 Jólahlaðborð Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Nú gefst þér tækifæri til að gleðja starfsfélaga, fjölskyldu og vini með konunglegum kræsingum frá Veislulist Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera stundina fallega með úrvals veitingum og persónulegri og góðri þjónustu. Örlítil handskrifuð bók eftir enska rithöfundinn Charlotte Brontë, vart stærri en eldspýtustokkur, var seld á uppboði í París fyrir 600 þúsund evrur, um 82 milljónir króna. Brontë skrifaði bókina, sem ber heitið The Young Men’s Magazine, árið 1830 þegar hún var 14 ára gömul. Í sögum bókarinnar er fjallað um ímyndaðan heim sem hinar þrjár Brontë-systur sköpuðu og kölluðu Glass Town. Kaupandinn er Brontë Society og snýr handritið litla „heim“, því það verður verður sýnt í Brontë Parso- nage Museum á fyrrverandi heimili Brontë-systranna þriggja í Ha- worth í Jórvíkurskríri. Brontë Soc- iety bauð einnig í bókina þegar hún var boðin upp árið 2011 en þá bauð einkaaðili betur. Nú stóðu samtökin að áheitasöfnun meðal almennings og söfnuðu nægu fé til að hreppa gripinn. Charlotte Brontë skrifaði sex slíkar bækur á þessum tíma, fimm eru enn til og hinar fjórar þegar varðveittar á safninu. Ljósmynd/Aguttes Smárit Titilsíða bókarinnar sem Charlotte Bronte samdi árið 1830. Smárit Charlotte Brontë fer heim  82 milljónum kr. safnað fyrir bók Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Lífgrös og leyndir dómar: Lækn- ingar, töfrar og trú í sögulegu ljósi er ný bók Ólínu Kjerúlf Þorvarðar- dóttur þjóðfræðings. „Þetta er í rauninni bók um þjóðfræði lækning- anna. Þekkingarfræðina aftan úr öldum og til samtímans má segja,“ segir Ólína. „Í bókinni eru upplýs- ingar um elstu íslensku lækninga- ráðin, sem mörg hver voru furðuleg og fjarstæðukennd en önnur hafa staðist tímans tönn,“ bætir hún við. „Ég kynntist þessu viðfangsefni þegar ég var að skrifa doktors- ritgerðina mína um brennuöldina, það er að segja galdramálin á Íslandi á 17. öld. Þá skoðaði ég öll galdramál sem komu fyrir í dómabókum Al- þingis og áttaði mig á því að í lang- flestum tilvikum var verið að dæma fólk á bálið fyrir lækningaviðleitni. Það virtist ekki vera gerður mikill greinarmunur á lækningum og galdri á þessum tíma og óljóst hvar skilin lágu,“ segir Ólína. Hún segir þetta hafa orðið til þess að hún fór að kynna sér betur efni gamalla lækningabóka. „Ég vildi skoða hvernig þessi þekkingar- og hugmyndasögulegu tengsl voru og sú athugun varð til þess að elstu ís- lensku lækningahandritin rak á fjörur mínar. Meðal þeirra er rit sem varðveitt er í Árnasafni og ég tel að rekja megi beint til Hrafns Sveinbjarnarsonar, merkasta læknis þjóðveldisaldar. Hingað til hafa lækningar Hrafns einungis verið þekktar af frásögnum í sögu hans, en nú gæti verið komið fram gagn sem sýnir hvaða þekkingargrunn hann hafði,“ segir Ólína. „Með því að lesa þau og bera þau saman við seinni tíma heimildir sé ég hvernig þekkingin þróaðist frá því að vera innfluttur þekkingararfur frá Evrópu, þar sem helst er getið um erlendar jurtir, yfir í að verða innlend þekking á íslenskum lækn- ingagrösum.“ Spurð segist Ólína aðallega skoða íslenska þekkingu og fræði í bókinni. „Ég lít þó líka til eldri fortíðar og út fyrir landsteina áður en lækningar koma við sögu okkar Íslendinga.“ Viðauki við bókina er viðamikill og þar má finna allar íslensku lækn- ingajurtirnar sem þekkust frá því að land byggðist og fram á 18. öld ásamt upplýsingum um náttúru- steina og annað sem talið var að kæmi að notum. Þá segir Ólína bók- ina aðgengilega fyrir jafnt fræði- menn sem almenning, enda sé hún skrifuð með báða hópana í huga. Engin töfralausn við neinu – Er mikilvægt að fólk þekki þessa sögu? „Já, ég held að það sé mjög nauð- synlegt fyrir nútímamanninn, sér- staklega núna þegar við erum að átta okkur á því á 21. öld að vísindin eiga kannski ekki svar við öllu. Að einhverju leyti þurfum við að hverfa aftur til heildrænni aðferða í heil- brigðismálum en við gerðum til dæmis mestalla 20. öldina þegar við héldum að það væri til pilla við öllu.“ Ólína segir að með bókinni hafi hún viljað brúa bilið milli gamallar þekkingar og nýrrar. „Til að mann- kynið geti þróast í farsælar áttir þurfum við að horfa til fortíðar og skilja hvernig þekking okkar er til orðin, á hverju hún byggir.“ Hún bætir við að þó að vísindin hafi að ýmsu leyti snúið baki við eldri hugmyndafræði hafi fortíðin á vissan hátt vitjað okkar á ný. Fólk sé í ríkari mæli að átta sig á gildi þess að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl og góðar matarvenjur og skoða hvaða ráða það geti sjálft gripið til áður en ráðist er í róttæk læknisfræðileg inngrip. „Þetta var það sem Hippókrates boðaði á sinni tíð. Mér finnst eins og augu fólks séu að opnast fyrir því að hefðin og nútímavísindin þurfi að ganga hönd í hönd.“ Morgunblaðið/Hari Fræði Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir fjallar um þjóðfræði lækninganna í bókinni Lífgrös og leyndir dómar: Lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi. Ekki til pilla við öllu  Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir hefur skrifað bók um þjóðfræði lækninga hér og skoðar þróun lækningafræða Einlæg saga af konu áfimmtugsaldri sem tekurþá drastísku ákvörðun aðskilja birtist í Tilfinn- ingabyltingunni. Sagan er raunsæ og leiðir lesandann í gegnum sorg- legt en frelsandi ferli. Auður hefur ekki farið í felur með það að þótt bókin sé skáldsaga sé hún sprottin upp úr skilnaði höf- undar. Það skilar sér vel til lesand- ans að þarna sé um einhvers konar afhjúpun að ræða og sú afhjúpun veitir sögunni aukna dýpt. Í bókinni er mikið rætt um ber- skjöldun og skömm og aðal- persónan gerir vel heppnaða tilraun til þess að horfast í augu við skömmina, sem fylgir skilnaði, áföll- um í æsku og öðru, og segja henni að hypja sig. Bókin færir lesandann nær þess- um veruleika skilnaðarins sem ótal Íslendingar hafa gengið í gegnum. Hver skilnaðar- saga er eflaust einstök en það er auðvelt að ímynda sér, án þess að vera fráskilin kona á fimmtugs- aldri, að í bókinni sé margt að finna sem aðrir sem hafa gengið í gegnum svipað tengi við. Auður lýsir sammannlegum þáttum og reynslu með hrein- skilnum hætti og snertir þannig við lesandanum. Höfundur spyr áleitinna spurn- inga um stofnunina hjónaband, hver ertu án þess sem þú hefur verið með í 18 ár? „Kannski er hjónaband virkjun á náttúrunni í manni. En hver er maður þegar virkjunin brestur?“ Svarið er einfalt og Auður ber það á borð fyrir lesandann. Þá er maður brostin stífla sem flæðir út um allt. Er það svo slæmt? Það er alla vega ekki niðurstaða bókarinnar. „Stofnunin hjónaband getur um- breyst í tálsýn þess sem við viljum vera; tjáningin svo mikil þjáning að það verður að beisla hana svo stofn- unin fái haldið,“ segir í bókinni, og þá er nú skárra að vera brostin stífla en stofnun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundurinn „Bókin færir lesandann nær […] veruleika skilnaðarins sem ótal Íslendingar hafa gengið í gegnum,“ segir um bók Auðar Jónsdóttur. Brostin stífla skárri en stofnun Skáldsaga Tilfinningabyltingin bbbbn Eftir Auði Jónsdóttur. Mál & menning, 2019. Innb., 246 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.