Morgunblaðið - 20.11.2019, Page 29

Morgunblaðið - 20.11.2019, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2019 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta dansverk er sannkölluð blanda tónlistar, dans og myndlistar. Og fyrir vikið mikið samstarfsverk,“ segir Rósa Ómarsdóttir, dansari og danshöfundur, um nýtt verk sitt, Spills, sem verður frumsýnt í Tjarn- arbíói í kvöld, miðvikudag, klukkan 20. Verkið fjallar um samband manns við umhverfi sitt og þá nátt- úruvá sem herjar á. Rósa er búsett í Brussel og verkið vann hún þar, í París og í Dan- mörku, en það er sett upp í sam- starfi Reykjavík Dance Festival og Tjarnarbíós. Meðframleiðendur verksins eru Theatre National de la Danse í París, Bora Bora Dans og Visuelt Teater í Árósum og Kunst- enwerkplaats Pianofabriek í Bruss- el. Verk Rósu hafa verið sýnd víða í Evrópu og hlotið góða umfjöllun og gagnrýni. Hún hefur komið reglu- lega hingað heim að sýna verk sín og hreppti hún árið 2016 Grímu- verðlaun sem danshöfundur ársins. Rósa bæði semur og flytur Spills en sviðsmyndina hannaði króatíska myndlistarkonan Dora Durkesac sem býr í Berlín, annar Berlínarbúi, Daninn Nicolai Hovgaard Johansen, semur tónlistina ásamt Rósu, ljósa- hönnun var í höndum Hákons Páls- sonar sem er búsettur í Brussel, Kristjana Björg Reynisdóttir hann- ar búninga og dramatúrg er hin belgíska Ingrid Vranken. Rósa segir að þetta sé því sannkölluð fjöl- þjóðleg framleiðsla. Rannsókn á vistkerfaaðferðum Rósa segir Spills að vissu leyti byggt á síðasta dansverki hennar, Traces, sem hún sýndi hér í apríl en var frumsýnt í Brussel árið 2017. „Eftir það fór ég í enn frekar rann- sókn á því sem mætti kalla vistkerfa- aðferðir. Við fórum að skoða hvernig við gætum búið til einskonar vist- kerfi og könnuðum í því ferli vist- kerfi í náttúrunni og hvernig allt hefur áhrif þar á hvað annað,“ segir Rósa. „Við skoðum líka hvernig tón- list getur haft áhrif á dans og dans á sviðsmynd, og hvernig sviðmynd getur haft áhrif á tónlist, og við ger- um það með því að skoða hvernig ósýnileg öfl geta tengt hluti.“ Rósa segir hlæjandi að þessi lýs- ing kunni að hljóma æði abstrakt en hún skýrir það betur. „Við erum til dæmis með vatn á sviðinu og bráðnandi ís, og með ljós sem sýna bylgjurnar sem koma í vatnið þegar droparnir af ísnum falla á það. Við gerum bylgjur sýni- legar. Við vinnum þannig með hita, raka, bylgjur, með hljóð úr rafsegul- sviðinu, og svo sköpum við á sviðinu einskonar landslagsmyndir sem taka breytingum fyrir augum áhorf- enda.“ Í verkinu er Rósa eina mann- eskjan á sviðinu en segist vera með ýmislegt þar með sér. Verkið er um klukkustundar langt og öll tónlistin er flutt lifandi. „Ég geri öll hljóðin á sviðinu, sem vísa til dæmis í mýr- lendi, helli, vind …“ segir hún. Með frábært teymi Þetta er frumsýningin á Spills og þegar spurt er hvort það sé stress- andi, þar sem verkið hljómar sam- kvæmt lýsingunni býsna marg- brotið, þá svarar Rósa brosandi að vissulega þurfi margt að ganga upp. „En ég er með frábært teymi með mér og þau láta allt ganga upp. En það þarf að huga vel að allskonar tækniatriðum.“ Verkið Spills er aftur sýnt annað kvöld, fimmtudag, og á fimmtudag- inn 28. nóvember, eftir viku. Sýning- arnar hefjast allar kl. 20. Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundurinn „Svo sköpum við á sviðinu einskonar landslagsmyndir sem taka breytingum fyrir augum áhorfenda,“ segir Rósa Ómarsdóttir. Dans um samband við umhverfið  Danshöfundurinn Rósa Ómarsdóttir frumflytur verkið Spills í Tjarnarbíói vinnunni, en hann á við áfengissýki að stríða og þó að hann telji sér trú um að þetta sé allt í lagi og hann hafi stjórn á hlutunum er raunin önnur og hann sekk- ur bara dýpra og dýpra. Andrea og Bóas, ungt stefnulaust par, er líka á villigötum vímuefna og hef- ur komist í kast við lögin. Hælisleitendur blandast í líf þeirra, menn sem Hörður óttast og tengir við hryðjuverk öðru fremur. Togstreita góðs og ills skín í gegn. Annars vegar er um að ræða hluti sem enginn ræður við og síðan er hver sinnar gæfu smiður. Hörð- ur stendur einn í sinni baráttu, tengist illa nema við handanheima, sem er honum þvert um geð. Talan tveir gegnir veigamiklu hlut- verki. Ógnirnar koma að honum tvær og tvær Harmleikurinn í Súðavík í janúar fyr-ir tæplega 25 árum er í ferskuminni og Stefán Máni tengir afleið-ingar mannskæða snjóflóðsins við líðandi stundu á áhrifamikinn hátt í spennu- sögunni Aðventu. Lögreglumaðurinn Hörður Grímsson frá Súðavík er í aðalhlutverki eins og svo oft áður hjá Stefáni Mána. Þessi rauðhærði rumur hef- ur sýnt og sannað hvers hann er megnugur í saman, en í öllum mótbyrnum eru tvær konur sem reyna að skilja hann, sem er ekki auðvelt, því fyrsti sopinn varð að öðrum og enginn má við margnum. Uppbygging sögunnar er góð, spennan er mikil og rauð ljós blikka úti um allt. Tekist er á við vandamál samtíðar á raunsæjan hátt og góða fólkinu send pilla fyrir að átta sig ekki á staðreyndum. Aðventa Gunnars Gunnarssonar var skrifuð fyrir nær 100 árum og lifir enn góðu lífi, er reyndar mest selda bók hans og er á náttborð- inu hjá Herði Grímssyni. Eins og Gunnar tekst Stefán Máni á við náttúruöflin og ytri og innri baráttu mannsins í sinni Aðventu og tekst vel upp. Hann dregur upp auðskiljanlega mynd af baráttu lögreglu við glæpamenn, en hugsunin er mun dýpri en hún virðist vera á yfirborðinu. Varnaðarorðin leyna sér ekki, enda veit enginn hvað átt hefur fyrr en misst hefur eins og bent er á í aðfaraorðum sögunnar. Vítin eru til þess að varast þau Glæpasaga Aðventa bbbbn eftir Stefán Mána. Sögur útgáfa, 2019. 296 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Spenna Í Aðventu tekst Stefán Máni að sögn rýnis á við ytri og innri baráttu mannsins. Um þessar mundir stendur yfir í Listasafni Ríkisháskóla Flórída í Bandaríkjunum, Museum of Fine Arts at FSU, í Tallahassee, sýning með verkum nokkurra íslenskra listamanna. Sýningin nefnist Ele- mental Iceland og listamennirnir sem sýna eru þau Valgerður Hauksdóttir, Elva Hreiðarsdóttir, Soffía Sæmundsdóttir, Rósa Sig- rún, Anna Gunnarsdóttir, Anna Þóra, Nicole Pietrantoni og loks Jó- hann Eyfells, en hann var um langt árabil búsettur og kenndi í Flórída áður en hann flutti vinnustofu sína til Texas. Þá eru einnig sýnd verk eftir meðlimi bóklistarhópsins Arkir. Á vef safnsins segir að á sýning- unni séu samtímagrafík, textílverk og skúlptúrar þar sem viðfangs- efnið sé einstakt landslag Íslands, jarðfræði og menningarsaga. Efni- viðinn sæki listamennirnir bæði í jarðveg og hafið. Sýningin í Tallahassee stendur til 7. desember. Íslenskir myndlistarmenn sýna í Flórída Íslandsverk Valgerður Hauksdóttir er einn sýnenda í háskólasafninu í Tallahassee. Um þessar mundir stendur yfir í sýningarsal Gallerís Gróttu á Eiðis- torgi sýning Kristínar Pálmadóttur myndlistarkonu. Sýning nefnist Ný sýn – Málverk og grafík og var opn- uð á Menningarhátíð Seltjarn- arness á dögunum, en Kristín var valin myndlistarmaður hátíð- arinnar. Hún útskrifaðist árið 1994 frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands með áherslu á grafík. Í tilkynningu kveðst hún hafa frá árinu 2000 unn- ið með tækni þar sem hún tekur ljósmyndir og vinnur þær áfram í grafík. Þá hafi hún einnig lagt stund á olíu- málun í mörg ár. „Margbreyti- leiki íslenskrar náttúru og magnaður kraft- ur jöklanna hef- ur verið aðal- áhrifavaldur í myndlist minni. Nú er framtíð þeirra og framtíð okkar í óvissu,“ skrifar hún. Síðasti sýningardagur er á laugardag. Ný sýn Kristínar Pálmadóttur Hluti af einu mál- verka Kristínar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.