Morgunblaðið - 20.11.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.11.2019, Qupperneq 32
Den danske klarinettrio kemur fram á tónleikum tónleikaraðar- innar Klassík í Vatnsmýrinni í Nor- ræna húsinu í kvöld kl. 20. Tríóið skipa Tommaso Lonquich klarín- ettleikari, Jonathan Slaatto selló- leikari og Martin Qvist Hansen píanóleikari. Á efnis- skránni eru verk eftir Sunleif Rasmussen, Niels W. Gade, Robert og Clöru Schumann og Jo- hannes Brahms. Tríótöfrar hljóma í Norræna húsinu MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 324. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Helgi Kolviðsson, þjálfari karla- landsliðs Liechtenstein í knatt- spyrnu, hefur lokið fyrstu undan- keppni sinni með liðið. „Ég hef kynnst því hvernig þeir hafa hagað þessu í gegnum tíðina og er búinn að mynda mér skoðun á því hvernig best sé að vinna til framtíðar,“ seg- ir Helgi í ítarlegu viðtali við Morg- unblaðið. »25 Farinn að huga að næstu undankeppni ÍÞRÓTTIR MENNING „Ég mun fara en veit ekki alveg hvert. Það kemur í ljós. Áhugi er fyrir hendi hjá nokkrum liðum og það er ekki vandamál,“ segir Sig- valdi Björn Guðjónsson, landsliðs- maður í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið í dag en hann er fyrirliði Elver- um í Noregi. Samningur hans rennur út í sumar og Sigvaldi ætlar að róa á önnur mið en hann hef- ur vakið athygli með liðinu í Meistaradeild Evrópu. »24 Sigvaldi mun yfirgefa Elverum næsta sumar en að málið sé í vinnslu í ráðuneytinu, en það er auðvitað mikilvægt fyrir þessa hópa að sú vinna verði kláruð.“ Tæplega 300 tannlæknar starfa á Íslandi. Jóhanna segir að fjöldinn sé nægur en engu að síður vanti tann- lækna víða úti á landi. Vandamálið sé leyst með farandtannlæknum en það sé ekki boðleg þjónusta fyrir íbúa landsbyggðarinnar. „Það er þó örlítið flókið að leysa þann vanda þar sem tannlæknaþjónusta er aldrei rekin af ríkinu hér á landi, heldur eru þetta alltaf einkareknar stofur,“ segir hún. Jóhanna hefur setið í stjórn Tann- læknafélagsins undanfarin fjögur ár, síðasta árið sem varaformaður, en hún tók síðan við formennskunni af Elínu Sigurgeirsdóttur á dögunum. „Ég hef mikinn áhuga á félagsmál- um,“ segir hún, en Jóhanna er fjórða konan í starfi formanns í röð. Hún segir stöðuna endurspegla breytingu í stéttinni. Undanfarin ár hafi fleiri konur en karlar útskrifast sem tann- læknar, rétt eins og í flestum deildum háskólans. „Ég hafði áhuga á þessu sviði innan heilbrigðisgeirans og ákvað að láta á það reyna,“ segir Jó- hanna um tannlæknanámið. „Námið er gott hér á Íslandi og íslenskir tannlæknar veita fyrsta flokks þjón- ustu,“ heldur hún áfram og bætir við að ástæða sé til þess að ætla að tann- heilsa Íslendinga haldi áfram að batna. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrsta stjórn Tannlæknafélags Ís- lands var kosin 6. nóvember 1927. Kona var fyrst kjörin formaður fé- lagsins árið 2008 en nýkjörinn for- maður, Jóhanna Bryndís Bjarnadótt- ir, er yngsti formaður félagsins til þessa, verður fertug á næsta ári. Jóhanna útskrifaðist frá tann- læknadeild Háskóla Íslands vorið 2008 og hóf rekstur Tannlæknastof- unnar Turnsins á Smáratorgi í Kópa- vogi ásamt tveimur öðrum tann- læknum um haustið, í byrjun banka- hrunsins. „Það er kannski lýsandi fyrir andrúmsloftið á Íslandi fyrir hrun að um vorið 2008 ákváðum við að opna okkar eigin tannlæknastofu,“ segir hún. „Það fór svo að stofan var opnuð í sömu viku og Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, bað Guð að blessa Ísland. Eins og flestir geta ímyndað sér var það oft á tíðum erfitt og alls ekkert skemmtilegt að standa í því að reka nýtt fyrirtæki á þessum árum.“ Mikilvægir samningar Samkvæmt samningi Tannlækna- félagsins við Sjúkratryggingar Ís- lands eru tannlækningar barna að 18 ára aldri greiddar að fullu af SÍ fyrir utan 2.500 króna árlegt komugjald. Samningur vegna ellilífeyrisþega og öryrkja frá því í fyrrasumar kveður á um 50% endurgreiðslu en vonir fé- lagsins standa til þess að þátttaka SÍ í kostnaði verði aukin. „Við þurfum að standa vörð um þessa samninga og fylgja þeim eftir,“ segir Jóhanna. „Það er okkar helsta verkefni.“ Barnasamningarnir hafa tekið gildi í skrefum frá 2013 og renna út í jan- úar. Jóhanna segir að almennt sé mikil ánægja með þá og vonir standi til þess að þeir verði endurnýjaðir. „Það er mikið hagsmunamál fyrir fjölskyldufólk að börn komist til tann- læknis nánast ókeypis.“ Jóhanna segir að þegar samningar vegna ellilífeyrisþega og öryrkja hafi verið undirritaðir í fyrra hafi verið gengið út frá því að endurgreiðsla SÍ yrði hækkuð. „Við vitum ekki annað Jóhanna yngsti formaður tannlækna  Hóf rekstur eigin stofu í byrjun bankahrunsins 2008 Morgunblaðið/Eggert Formenn Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir, nýr formaður Tannlæknafélags Íslands, og Elín Sigurgeirsdóttir, fráfarandi formaður félagsins. ÁSKR I FTARLE IKUR MORGUNBLAÐS INS Heppinn áskrifandi hlýtur að gjöf Hästens HERLEWING® handgert rúm úr náttúrulegum efnum að verðmæti 3.225.900 kr. Fátt jafnast á við að opna Morgunblaðið eftir góðan nætursvefn. Fyrir einn af áskrifendum Moggans nær þessi ljúfa morgunstund nýjum hæðum eftir að við drögum í áskriftar- leiknum okkar föstudaginn 20. desember. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LESA MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið og Hästens eru stolt af því að vinna saman að því að gefa einum heppnum áskrifanda Morgunblaðsins Herlewing-rúm frá Hästens. Verslun Hästens á Íslandi er til húsa í Faxafeni 5, á sama stað og Betra bak. KAUPTU ÁSKRIFT Í SÍMA 569 11 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.