Morgunblaðið - 22.11.2019, Page 10

Morgunblaðið - 22.11.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 Audi Q5 TFSI e er knúinn rafmótor sem dregur allt að 40 km. skv. WLTP. Þú getur farið flestra þinna ferða í borginni eingöngu knúinn rafmagni. Vertu velkomin/nn í reynsluakstur. Tilkomumikið útlit, framsækin tækni og kraftur. HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is / 590 5000 Q5 TFSI e með kynningarpakka verð 9.990.000 kr. Skoðaðu sýningarsalinn okkar á netinu á www.hekla.is/audisalur Nýr & rafmagnaður Audi Q5 TFSI e. Vænst er minnst 1.000 manns í mat hjá Þorbirninum hf. í Grindavík í kvöld þegar þar verða á borðum fiskur og franskar upp á breska vísu. Þetta er hluti af bæjarhátíð- inni Fjörugur föstudagur sem hald- inn hefur verið í Grindavík í aðdrag- anda aðventunnar mörg undanfarin ár, þar sem er opið hús og bryddað upp á ýmsu skemmtilegu hjá fyr- irtækjum við Hafnargötu. Þorbjörninn hefur lengi séð fyrir- tækinu The Chesterford Group sem rekur veitingastaðina Fish ń chickn og Churchilĺs fyrir hráefni og selur því um 150 tonn af þorskflökum af ári hverju. Djúpsteiktur fiskurinn er matreiddur og seldur 40-45 veit- ingastöðum fyrirtækisins, sem eru flestir í London og nágrenni. Utan fara flökin með roðinu og með því í steikarpottana. „Við byrjuðum árið 2013 og veisl- an hér í húsi verður æ stærri,“ segir Eiríkur Dagbjartsson útgerðar- stjóri, sem hefur umsjón með við- burðinum. Hugh Lipscombe, eig- andi veitingahúsakeðjunnar bresku, kemur jafnan til landsins í tengslum við hinn fjöruga föstudag í Grinda- vík – þá jafnan með tvo til þrjá úr starfsmannahópi sínum – og sjá þeir um að matbúa fiskinn og frönsku kartöflurnar eftir kúnstar- innar reglum. „Ég bað Lipscombe að kenna mér hvernig matbúa skyldi fisk í deigi og svo djúpsteikja. Það gekk ekkert, svo úr varð að Bretinn sagð- ist myndu bara koma hingað sjálfur með föruneyti sínu og sjá um elda- mennskuna, eins og þeir hafa gert nú í mörg ár og finnst gaman,“ segir Eiríkur Dagbjartsson. sbs@mbl.is Fiskur og franskar í Grindavík Þorbjörninn Von er á þúsund manns til að borða steiktan fisk í kvöld. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Foreldrar barna í Hlíðaskóla sem búsettir eru í Suðurhlíðum í Reykja- vík mótmæla harðlega fyrirhugaðri breytingu á skólaakstri ungra barna í hverfinu. Hefur Reykjavíkurborg til skoðunar að leggja niður akstur með hópbifreiðum í nokkrum skóla- hverfum í borginni en á móti eiga nemendur kost á strætókorti án endurgjalds sé vegalengd frá heimili þeirra að skóla meiri en 1,5 km. Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata segja að breyting þessi sé meðal annars „til þess fallin að bæta að- gengi yngstu kynslóðarinnar að al- menningssamgöngum sem styður við markmið stjórnvalda í um- hverfis- og loftslagsmálum“. Eirný Þórólfsdóttir, sem situr í stjórn foreldrafélags Hlíðaskóla, segir engar strætósamgöngur vera á milli Suðurhlíða og Hlíðaskóla. Bendir hún jafnframt á að um erfiða gönguleið sé að ræða yfir Veður- stofuhæð, en þar sé bersvæði mikið, lítið um götulýsingar og vetrarþjón- usta lítil á göngustígum. Leiðin sé því vart örugg fyrir unga krakka. „Hægt er að velja um tvær erfiðar leiðir til að komast í skólann; með- fram Bústaðavegi, sem er stór um- ferðargata og hættuleg börnum, og yfir Veðurstofuhæð sem er á miklu bersvæði með tilheyrandi roki,“ seg- ir Eirný í samtali við Morgunblaðið. Foreldrar í Suðurhlíðum telja full- víst að einkabíllinn komi í stað skóla- bílsins ákveði borgin að fella niður þjónustuna, en slíkt sé vart í sam- ræmi við stefnu Reykjavíkurborgar í umhverfismálum. Verða smáhýsi á gönguleiðinni? Greint hefur verið frá því í Morgunblaðinu að verið sé að skoða hugsanlega smáhýsabyggð á Veður- stofuhæð. Verktaki greindi þá frá reynslu sinni af sambærilegri byggð á Granda í Reykjavík og lýsti hann meðal annars mikilli fíkniefnaneyslu og -sölu, þjófnaði, sóðaskap, vopna- burði og ofbeldisverkum. Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir því að foreldrar í Suðurhlíðum séu uggandi yfir því að smáhýsi verði reist á sömu slóðum og börn þeirra munu ganga til að sækja nám. Aðspurð segist Eirný vilja fá nán- ari upplýsingar um hugsanlega byggð. „Við höfum skilning á svona úrræðum en viljum vita meira.“ Mótmæla mjög áformum borgar  Foreldrar í Suðurhlíðum eru ósáttir við þá hugmynd að leggja af skólaakstur barna í hverfinu  Neyðast þá til að ganga meðfram umferðaræð eða um Veðurstofuhæð þar sem smáhýsi kunna að rísa Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gönguleið Val barnanna stendur á milli mikillar umferðaræðar eða Veðurstofuhæðar til að komast í skólann. Yfirskattanefnd hefur með úrskurði gert manni að greiða sekt vegna van- rækslu á að telja fram til skatts í skattframtölum sínum tekjur af veð- málum á erlendum veðmálasíðum vegna þriggja tekjuára. Þarf maður- inn að greiða alls 5,1 milljón kr. til ríkissjóðs og 3,1 milljón kr. til bæj- arsjóðs Kópavogs. Í bréfi skattrannsóknarstjóra rík- isins segir m.a. að maðurinn hafi „að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, staðið skattyfirvöldum skil á efnislega röngum skattfram- tölum“ með því að vanframtelja tekjur sínar sem til komu vegna veð- mála, tæpar 13,5 milljónir kr. Leiddi þetta til ákvörðunar um lægri tekjuskatts- og útsvarsstofn hans en vera bar gjaldárin 2015, 2016 og 2017, vegna tekjuáranna 2014, 2015 og 2016 og þar með til ákvörðunar lægri tekjuskatts og út- svars. Þá er sektin sögð „hæfilega ákveðin“ í úrskurðinum. Deilt var um berjasorbet Í öðru máli var deilt um tollflokk- un á berjasorbet. Í úrskurði yfir- skattanefndar kom fram að varan innhéldi ýmis bragð- og aukaefni og væri í skýringarriti Alþjóðatolla- stofnunarinnar (WCO) sérstaklega talin með frostpinnum sem dæmi um vöru sem félli undir vörulið 2105 í tollskrá. Var fallist á með tollstjóra að varan félli undir þann vörulið, nánar tiltekið tollskrárnúmer 2105.0099 sem annar ís til manneldis. Kröfu kæranda í þessu máli var því vísað frá. Græddi á netinu og sveik skattinn  Gert að greiða rúmar 8 milljónir kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.