Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 25
Í VESTURBÆNUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Njarðvíkingar virðast vera með tak á KR-ingum miðað við úrslitin í leikjum liðanna síðustu misserin í körfuknattleiknum. Njarðvík vann alla þrjá leikina gegn KR í deild og bikar á síðasta keppnistímabili og í gær náði Njarðvík í útisigur gegn KR í Dominos-deildinni 78:75. Njarðvík er að rétta úr kútnum eftir rólega byrjun en í síðustu um- ferð valtaði liðið yfir Þór Akureyri með sextíu og tveggja stiga mun. Nú eru Njarðvíkingar ekki nema tveim- ur stigum á eftir KR og fjórum á eft- ir efstu liðunum. „Ég hafði engar áhyggjur af stöð- unni í deildinni vegna þess að við er- um með það gott lið og svipaðan leik- mannakjarna og í fyrra. Við höfum verið á fullu í síðustu fjórum leikjum og mér finnst við vera farnir að spila eins og við eigum að gera. Við erum ekkert hissa á því að hafa unnið hérna í KR-heimilinu. Alls ekki. Maður vinnur svona leiki vegna þess að maður hefur trú á því og finnst það ekkert svakalega merkilegt,“ sagði hinn þrautreyndi Njarðvík- ingur, Logi Gunnarsson, þegar Morgunblaðið spjallaði við hann. Chaz Williams er athyglisverð við- bót við lið Njarðvíkinga. Lágvaxinn en leiftursnöggur og KR-ingar lentu í vandræðum gegn honum. Williams veit nokkurn veginn að hverju hann gengur. Var áður hjá Einari Árna í Þór Þorlákshöfn og lék þá einnig með Maciej Baginski og Ólafi Helga Jónssyni. Njarðvíkingar spila öfluga vörn eins og stigatala þeirra í deild- inni sýnir og leikur liðsins er að miklu leyti agaður. Greinarhöfundur bjóst við því að sjá meiri neista í KR-liðinu en raun- in varð eftir mjög góð úrslit í síðustu umferð þegar KR vann toppliðið Keflavík á útivelli. Liðið átti tvo kafla í gær þar sem það hitnaði veru- lega og skoraði þá níu og ellefu stig í röð. En þess á milli gekk liðinu ekki vel að opna vörn Njarðvíkur. Mér finnst á köflum sóknin vera of hæg hjá KR-ingum. Með allar þess- ar skyttur hefði ég haldið að heppi- legt væri að láta boltann ganga hratt og bíða eftir góðum skotfærum. Of oft finnst mér menn vilja klappa boltanum. KR-liðið mun smám sam- an verða betra. Það er öllum ljóst. Kristófer er að komast í leikæfingu eftir meiðsli og Björn Kristjánsson sneri aftur á völlinn í gær. Njarðvík með tak á KR  Fjórði sigur Njarðvíkinga í röð gegn KR  Þriðja tap KR í deildinni í vetur  Logi var ekki undrandi á úrslitunum  Sóknin of hæg hjá meisturunum? Morgunblaðið/Árni Sæberg Barátta Hart var barist um hvert frákast í viðureign KR og Njarðvíkur í gærkvöld. Njarðvíkurliðið vann leikinn. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 Það að skara fram úr á heimsvísu krefst mikils meira en þess að hafa framúrskarandi hæfileika, í því umhverfi sem íþróttafólki hefur verið skapað hér á landi. Þeir sem ætla sér að ná langt þurfa vissulega hæfi- leika en svo þurfa þeir ann- aðhvort að hafa óhemju öflugt bakland (lesist: ríka foreldra) eða vera afburðagóðir sölumenn. Og hvað eiga þeir að selja? Jú, sjálfa sig. Leiðin fyrir Jón og Gunnu á verðlaunapall á Ólymp- íuleikum krefst þess að þau séu góð í að selja eigin ímynd til fyr- irtækja og ná sér þannig í styrkt- arsamninga. Þetta skrifaði ég hér í blaðið fyrir fimm árum þegar ég velti vöngum yfir stöðu okkar fremsta íþróttafólks í einstaklings- greinum. Þessari staðreynd um að það færi eftir geðþótta for- kólfa fyrirtækja hvort og hvaða íslensku íþróttamenn gætu lifað í þannig umhverfi að þeir gætu sinnt sinni íþrótt nægilega vel til að standast alþjóðlegan sam- anburð. Miðað við skrif íþróttafólks undanfarnar vikur hefur lítið breyst í þessum málum, þrátt fyrir að framlag ríkisins til Af- rekssjóðs ÍSÍ hafi hækkað mikið eða úr 70 milljónum króna árið 2015 í 400 milljónir króna á þessu ári. Skíðamaðurinn Sturla Snær Snorrason bendir á í at- hyglisverðum pistli að án styrkja í gegnum þann sjóð væri reyndar engin von fyrir íslenskt íþrótta- fólk. En vegna þess hve illa gangi að fá frekari styrki frá fyr- irtækjum yfirgefi sífellt fleiri af- reksíþróttaheiminn. Svokallaðar samfélags- miðlastjörnur virðast framar í goggunarröðinni en íþróttafólk hjá fyrirtækjum. Okkar fremsta fólk í einstaklingsgreinum þræl- ar sér því út í námi og vinnu til að eiga fyrir næstu æfingatörn eða keppnisferð og að sjálfsögðu kemur það niður á árangri. En jafnvel þó að „okkar fólk“ komist á Ólympíuleika og heims- meistaramót er fjárhagslegt ör- yggi afreksíþróttamannsins með minnsta móti hér á landi. Alla vega sá ég ólympíufara mættan í vinnu á kvöldvakt á pítsustað og að selja áfengi í skutlarahópnum á Facebook, svona korteri eftir lokaathöfn síðustu Ólympíuleika. Dýrðarljóminn er ekki meiri en það. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Sinisa Bilic skoraði 27 stig og tók átta fráköst fyrir Tindastól þegar liðið vann Fjölni í Grafarvogi í gær í Dominos-deildinni í körfuknatt- leik með 12 stiga mun, 100:88. Tindastóll hefur þar með 12 stig eftir 8 leiki eins og Stjarnan. Viktor Lee Moses átti stórleik fyrir Fjölni. Hann skoraði 36 stig auk þess að taka níu fráköst. Róbert Sigurðsson var næstur með 14 stig. Tindastóll var með tögl og hagld- ir í leiknum frá upphafi til enda og var m.a. 22 stigum yfir í hálfleik, 63:41. iben@mbl.is Sannfærandi sigur Tindastóls Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigur Helgi Rafn Viggósson og fé- lagar í Tindastóli unnu Fjölni. Grindavík færðist einu sæti upp fyrir Val, í níunda sæti, með örugg- um sigri á Hlíðarendaliðinu í Mus- tad-höllinni í Grindavík í gærkvöld, 85:69, í Dominos-deildinni í körfu- knattleik karla. Grindavík var yfir að loknum fyrri hálfleik, 44:29, og hafði 24 stiga forskot eftir þriðja leikhluta, 73:49. Jamal K. Olasawere var stiga- hæstur hjá Grindavíkurliðinu með 20 stig. Valdas Vasylius var næstur með 19. Frank Aron Booker skor- aði 21 stig fyrir Val. iben@mbl.is Sætaskipti hjá Grindavík og Val Morgunblaðið/Hari Sterkur Valdas Vasylius skoraði 19 stig fyrir Grindavík gegn Val. DHL-höllin, Dominos-deild karla, fimmtudag 21. nóvember 2019. Gangur leiksins: 6:3, 9:8, 11:15, 14:19, 23:22, 24:28, 26:31, 31:37, 33:42, 41:54, 45:58, 49:61, 61:61, 61:63, 66:72, 75:78. KR: Kristófer Acox 16/9 fráköst, Jak- ob Örn Sigurðarson 15, Michael Cra- ion 10/7 frák./6 stoðs., Brynjar Þór Björnsson 9, Björn Kristjánsson 8/4 fráköst, Helgi Már Magnússon 7/7 fráköst, Jón Arnór Stefánsson 6, Matthías Sigurðarson 4/5 fráköst. Fráköst: 26 í vörn, 12 í sókn. KR – NJARÐVÍK 75:78 Njarðvík: Chaz Calvaron Williams 19/4 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Mario Matasovic 16/9 frá- köst, Wayne Ernest Martin Jr. 12/6 fráköst, Logi Gunnarsson 9, Kristinn Pálsson 8/7 fráköst, Jón Arnór Sverrisson 5/6 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 5/7 fráköst, Maciek Stan- islav Baginski 4. Fráköst: 25 í vörn, 16 í sókn. Dómarar: Kristinn Óskarsson, Leifur S. Garðarsson, Eggert Þór Að- alsteinsson. Áhorfendur: 400 Á ÁSVÖLLUM Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Haukar tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Coca Cola-bikars karla í handbolta með 30:26-sigri á Val í stórleik sigursælustu bikarliða Íslandssög- unnar í gærkvöldi. Haukar eru enn ósigraðir á toppi Olísdeildarinnar og komnir með farseðilinn í 8-liða úrslit bikarsins þrátt fyrir gríðarlega erf- iðan drátt. Ef lið ætla sér að vinna titla á þessu tímabili, þarf að komast í gegnum Hauka fyrst. Haukar geta helst þakkað markmanninum unga, Andra Sigmarssyni Scheving, en hann fór á kostum og varði 17 skot, þrátt fyrir að byrja á varamannabekknum. Varði hann þrjú víti og er hann orðinn helsti vítabani landsins. Samtals vörðu þeir Daníel Freyr Andrésson og Hreiðar Levý Guðmundsson aðeins sex skot í marki Vals og náðu sér ekki á strik. Það er í raun furðulegt að munurinn hafi ekki verið meiri þegar upp var staðið, miðað við mark- vörslu beggja liða. Haukar gerðu sig seka um umtalsvert magn mistaka í sóknarleiknum og hvað eftir annað köstuðu þeir boltanum frá sér í leit að Vigni Svavarssyni á línunni. Skutu þeir oft í slá og stöng og klikkuðu á góðum færum. Fyrir vikið áttu Valsmenn enn möguleika á sigri þegar skammt var eftir, en að lokum sigldu Haukar sigrinum í hús. Haukar eru búnir að tapa einum deildarleik á árinu 2019 og Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, á meira hrós skilið en hann oft fær. Til að vinna titla þarf að vinna Haukamenn  Haukar í átta liða úrslit bikarsins á kostnað Vals Morgunblaðið/Eggert Rautt Ýmir Örn Gíslason sá rautt spjald fyrir þetta brot á Adam Hauki Baumruk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.