Morgunblaðið - 22.11.2019, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.11.2019, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 VINNINGASKRÁ 203 11078 22936 31504 42564 52092 61855 70810 635 11157 23168 31617 42651 52217 62133 70892 685 11214 23321 31868 42962 52500 62691 70949 686 11236 23717 32004 43440 52772 63378 70952 734 11300 23745 32454 43551 53014 63413 71168 992 11382 23819 32509 43672 53097 64011 71618 1585 11804 23863 32868 43677 53466 64399 71950 1989 11880 23942 33894 43992 53636 64601 71969 2322 12661 24289 33930 44139 53655 64673 72015 2983 12929 24500 34263 45058 54013 64705 72736 3531 13311 24611 34408 45224 54030 65046 72771 3633 13328 24656 34682 45787 55060 65089 73864 3814 13624 25044 34696 46008 55495 65448 73935 3945 13668 25683 34923 46112 55662 65802 74174 4054 13679 26411 35116 46213 55778 66224 74512 4105 14057 26591 35219 46331 56123 66241 74887 4775 14481 26937 35889 46343 56222 66260 75088 4870 14919 26991 36193 46859 56223 66769 75419 5350 14996 27234 37004 47154 56647 66800 75793 5902 15306 27407 37467 47184 56696 67174 75921 5953 15321 27483 37773 47243 56723 67381 76230 6030 15475 27658 37988 47368 56940 68152 76401 6527 16017 27722 38225 47986 57108 68318 76423 6998 16286 28128 38280 48163 57184 68353 76438 7383 16710 28184 38527 48660 57200 68463 76664 8317 17400 28574 38557 48816 57401 68790 76747 8506 18243 28583 38994 48881 57895 68949 76756 8629 18528 28995 39127 49159 58508 69614 77085 8664 18856 29001 39754 49889 58684 69733 78120 8998 19097 29131 39861 50489 59243 69966 78472 9058 19192 29641 39964 50652 59422 70098 79926 9122 19529 29872 40228 50734 59606 70222 9404 20035 29899 40833 50794 59819 70414 9560 20420 29906 41050 51035 61068 70494 10417 21116 30006 42149 51347 61272 70499 10546 21450 30134 42240 51368 61432 70505 10957 22533 30265 42443 51508 61535 70509 430 7775 20053 27971 34376 46255 57090 73755 892 9031 20286 28304 35304 47460 58468 74256 929 11926 21666 29331 35866 47815 58476 74863 1247 12473 22159 29656 38103 49191 60581 75278 1793 13364 22193 29761 38894 51747 66360 75633 2404 13728 22287 29903 40343 52195 66663 77194 2596 15664 23333 30736 40552 52228 67359 78050 2940 16421 23598 30834 42185 52387 68151 79192 3273 16558 24864 31389 42387 53052 68383 79680 3607 16729 25874 31709 44883 53433 69835 5499 17685 26146 31842 45460 54639 69915 5616 18931 26243 33647 45615 56510 71194 6007 19701 27866 34079 45827 57014 72883 Næsti útdráttur fer fram 28. nóvember 2019 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 3293 34659 35675 44127 63412 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 3417 17060 33554 56645 62220 72992 4438 21487 46206 56707 62255 73409 4764 24618 55776 60572 65799 76165 9831 27772 56227 61258 71622 79195 Aðalv inningur Kr. 4.000.000 Kr. 8.000.000 (tvöfaldur) 5 5 2 2 8 29. útdráttur 21. nóvember 2019 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nýlegar skoðanakannanir í Svíþjóð benda til þess að flokkur þjóðernis- sinna, Svíþjóðardemókratarnir, hafi sótt í sig veðrið og sé nú fylgismesti flokkur landsins. Er það einkum rak- ið til fjölgunar sprengju- og skot- árása glæpahópa síðustu mánuði og deilna um inn- flytjendamál. Stefan Löfven, forsætisráðherra og leiðtogi Sósíal- demókrata, virð- ist hafa misst tiltrú margra Svía í baráttunni við glæpahópana ef marka má könnun sem birt var eftir sjónvarpsviðtal við hann um málið á sunnudaginn var. Viðtalið var sýnt í fréttaþætti þar sem fjallað var um ofbeldi glæpa- hópa sem beita nú sprengjum oftar en áður og hafa gert um 300 skot- árásir á árinu, flestar í tengslum við gengjastríð. Skömmu fyrir viðtalið var fimmtán ára piltur skotinn til bana í veitingahúsi í Malmö og jafn- aldri hans var í lífshættu á sjúkra- húsi vegna skotsára. Sænska dag- blaðið Dagens Nyheter segir að dauðsföllum meðal karlmanna á aldrinum 20-29 ára vegna skotárása hafi fjölgað um 200% í Svíþjóð milli áranna 2014 og 2018. Dauðsföllin af völdum skotárása í þessum aldurs- hópi eru algengari í Svíþjóð miðað við höfðatölu en í öðrum löndum Evrópusambandsins, m.a. tíu sinn- um tíðari en í Þýskalandi. Löfven var m.a. spurður hvort hann teldi að Svíþjóð stæði frammi fyrir sama vandamáli ef innflytjend- um hefði ekki stórfjölgað í landinu. „Já, ef efnahagslegi og félagslegi ójöfnuðurinn hefði verið sá sami, er það óbifanleg sannfæring mín,“ svaraði forsætisráðherrann. Svíþjóð hefur verið á meðal Evr- ópulanda sem hafa tekið á móti flest- um flóttamönnum og forsætisráð- herrann var spurður um fjölgun glæpa í hverfum þar sem margir inn- flytjendur frá fátækum löndum búa. „Skipulögð glæpastarfsemi tengist félagslegri einangrun og ég hef lengi bent á það. Þetta snýst um skort á störfum og skóla sem gegna ekki hlutverki sínu. Þetta getur komið fyrir hvern sem er. Þetta snýst ekki um það hvar fólkið er fætt,“ sagði Löfven. „Væri fólk sem fæddist í Sví- þjóð sett í sömu aðstæður væri út- koman sú sama.“ Forsætisráðherrann sagði að svarið við vandamálinu væri að efla lögregluna, setja ný lög og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða í hverfunum þar sem glæpunum hefur fjölgað. „Ungmennin eiga að sjá foreldrana fara í vinnuna og að það sé eðlilegt að vera í vinnu. Og börnin eiga að ganga í skóla,“ sagði hann. „Hörmuleg“ frammistaða Svör forsætisráðherrans sættu gagnrýni meðal vinstrimanna og hægrimanna sem segja þau hafa ver- ið óskýr og loðin. „Forsætisráðherra má ekki koma fram svona illa undir- búinn og með svo slæma framsetn- ingu,“ sagði Lena Mellin, stjórn- málaskýrandi dagblaðsins Afton- bladet sem styður Sósíaldemókrata. Hún sagði að frammistaða forsætis- ráðherrans í viðtalinu hefði verið „hörmuleg“. Göran Eriksson, stjórnmálaskýr- andi Svenska Dagbladet, sagði að forsætisráðherrann hefði í reynd vit- að hvað í stefndi. Löfven hefði varað við auknu ofbeldi glæpahópa árið 2015 en vandamálið hefði haldið áfram að versna eftir það og stjórn- inni ekki tekist að stemma stigu við ofbeldisglæpunum. „Eru þeir sem eru atvinnulausir í Svíþjóð einfaldlega berskjaldaðri, lifa þeir við svo miklu verri efna- hagslegar aðstæður en atvinnulausir í öðrum ESB-löndum að þeir leiðast út í alvarlega glæpastarfsemi? Varla,“ sagði blaðið Sydsvenskan sem gefið er út í Malmö. „Þetta dugar ekki,“ sagði leiðara- höfundur dagblaðsins Expressen. „Sú afstaða Löfvens að þróunin í glæpastarfseminni í Svíþjóð tengist á engan hátt innflytjendastefnunni er til marks um furðulega vanþekk- ingu,“ sagði Håkan Boström, leið- arahöfundur Göteborgs-Posten. Þjóðernissinnar með mest fylgi Expressen hefur birt skoðana- könnun sem bendir til þess að 66% sænskra kjósenda telji að Löfven hafi ekki staðið sig vel í baráttunni gegn ofbeldi glæpahópa og skipu- lagðri glæpastarfsemi. Þegar þátt- takendurnir voru spurðir hverjum þeir treystu best til að tryggja að haldið yrði uppi lögum og reglu í landinu nefndu flestir leiðtoga Sví- þjóðardemókratanna, Jimmy Åkes- son, eða 23% aðspurðra. 15% nefndu Löfven og 16% Ulf Kristersson, leið- toga hægriflokksins Moderaterna. Expressen hefur eftir Toivo Sjörén, sem stjórnaði könnuninni, að Löfven hafi fengið „falleinkunn“ í málinu. „Það er almennt mikil óánægja með frammistöðu hans, bæði meðal karla og kvenna og allra aldurshópanna.“ Áður höfðu skoðanakannanir bent til þess að Svíþjóðardemókratarnir yrðu stærsti flokkur landsins ef kos- ið væri nú og er það einkum rakið til óánægju kjósenda vegna ofbeldis glæpahópanna. Samkvæmt könnun rannsóknafyrirtækisins Demoskop fyrir Aftonbladet er fylgi Svíþjóðar- demókratanna 24% og þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn mælist stærstur í könnunum fyrirtækisins. 22,2% sögðust styðja Sósíaldemó- krata og það er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur fengið í könnunum Demoskop. Aðeins 17,8% styðja Moderaterna, ef marka má könnun- ina. Hún bendir til þess að fylgi Sví- þjóðardemókrata hafi aukist á kostnað Sósíaldemókrata og Mod- eraterna. Sósíaldemókratar hafa einnig misst fylgi til Vinstriflokks- ins, sem er með 9,8%. Á rætur í nasistahreyfingum Þjóðernisflokkurinn á rætur að rekja til nasistahreyfinga. Á meðal stofnenda hans árið 1988 voru nokkrir nasistar, þ. á m. Gustaf Ekström sem gekk í Waffen-SS-her- sveitir þýskra nasista í síðari heims- styrjöldinni. Einn forystumanna flokksins var um tíma í samstarfi við útvarpsstöð íslamskra öfgamanna sem breiddi út áróður um „heims- samsæri gyðinga“. Åkesson hefur reynt að milda ímynd Svíþjóðar- demókratanna til að auka fylgi þeirra en flokkurinn hefur ekki þvegið af sér öfgastimpilinn, m.a. vegna hatursfullra yfirlýsinga full- trúa flokksins á samfélagsmiðlum um innflytjendur, einkum múslíma. Hreyfing nýnasista, Norræna and- spyrnuhreyfingin, hefur sótt í sig veðrið í Svíþjóð síðustu ár, að sögn danska dagblaðsins Politiken. Það segir að ekki sé óalgengt að félagar hreyfingarinnar séu á götunum að dreifa áróðursritum og ræða við kjósendur eins og hún væri viður- kenndur lýðræðisflokkur en því fari fjarri að hún aðhyllist lýðræði. Daniel Poohl, ritstjóri tímaritsins Expo, segir að Norræna andspyrnu- hreyfingin hafi stofnað deildir á Ís- landi, í Noregi, Finnlandi og Dan- mörku en sé hvergi eins öflug og í Svíþjóð. Poohl telur að það sé ekki tilviljun, því að Svíar hafi í reynd aldrei gert upp við stuðningsmenn nasista í landi sínu, einkum vegna þess að þýskir nasistar hernámu ekki Svíþjóð í síðari heimsstyrjöld- inni, ólíkt Noregi og Danmörku. Sænska öryggislögreglan telur hættu á að félagar í Norrænu and- spyrnuhreyfingunni fremji hryðju- verk. Helmingur félaga hreyfingar- innar í Svíþjóð hefur verið dæmdur fyrir lögbrot og fjórði hver fyrir of- beldi, að sögn sænska ríkisút- varpsins. Fyrr í mánuðinum vísuðu pólsk yfirvöld sænskum félaga hreyf- ingarinnar úr landi þegar hann hugðist taka þátt í námskeiði í notk- un sjálfhlaðandi skotvopna, af sömu tegund og ástralskur öfgamaður beitti til að myrða 51 mann í skot- árásum á tvær moskur á Nýja- Sjálandi í mars. Svíinn sem var fluttur frá Póllandi hafði verið dæmdur fyrir sprengjuárás á flótta- mannamiðstöð í Svíþjóð. Hreyfing nýnasista sækir í sig veðrið Þjóðernissinnar í sókn í Svíþjóð  Aukið ofbeldi glæpahópa vatn á myllu Svíþjóðardemókrata Stefan Löfven AFP Nýnasistar Félagar í Norrænu andspyrnuhreyfingunni halda á fánum á torgi í miðborg Stokkhólms. Hreyfingin hefur fært sig upp á skaftið í Svíþjóð. Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.