Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 32
Kjallarapoppsveitin Andy Svarthol fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar, sem nefnist Mörur, með tón- leikum í Hressingarskálanum í kvöld kl. 21. Sveitina skipa bræð- urnir Egill og Bjarki Viðarssynir. Þeir segja lögin á plötunni skapa heilsteyptan hljóðheim þar sem áhrif úr mörgum áttum eru hrist saman í tilraunakenndan og bragðmikinn kokkteil. Mið- ar fást á tix.is. Andy Svarthol fagnar nýrri plötu í kvöld FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 326. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Knattspyrnumaðurinn Kjartan Henry Finnbogason ætlar sér markakóngstitil í Danmörku í vetur og vill koma liði Vejle aftur upp í úr- valsdeildina. Þá vonast hann til þess að markheppnin færi honum sæti í íslenska landsliðinu á nýjan leik. Kjartan hefur ennfremur geng- ið í gegnum erfiða tíma eftir að bróðir hans lést fyrir skömmu. »26 Sá markahæsti gengur í gegnum erfiða tíma ÍÞRÓTTIR MENNING Hljómsveitin Thoroddsen / Weiss / van Endert Project kemur fram á tónleikum Múlans í Kaldalóni Hörpu í kvöld kl. 21. Sveitin, þar sem gítar- leikarinn Björn Thoroddsen er í fararbroddi, er samstarfsverkefni djasstónlistarmanna frá Íslandi og Þýskalandi. Hún hefur það að mark- miði að ferðast milli Evrópulanda og fá þekkta tónlistarmenn hvers lands til liðs við sig til að flytja tón- list sem sameinar ólíka menningar- heima. Á tónleik- unum koma fram auk Björns þeir Philipp van Endert á gítar, Ólafur Jóns- son á saxófón, Þor- grímur Jónsson á bassa og Peter Weiss á trommur. Björn Thoroddsen og félagar í Kaldalóni Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrsta samsýning Vatnslitafélags Íslands er í Gallerí Göngum við Há- teigskirkju og hefur vakið athygli, að sögn Dereks Karls Mundells, formanns félagsins, en henni lýkur 30. nóvember. „Aðsóknin hefur ver- ið mjög góð. Þetta er sölusýning og margir hafa sýnt mikinn áhuga á myndunum,“ segir hann. Á sýningunni eru 50 myndir eftir 33 listamenn. Sýningarnefndin skip- aði þriggja manna dómnefnd fag- manna utan félagsins en með reynslu af vatnslitamálun og kennslu í faginu. Hver félagi mátti senda inn allt að þrjár myndir og bárust 177 myndir frá 63 mynd- listarmönnum. „Úrvalið var mikið og dómnefndin var aðeins sammála um eina mynd,“ segir Derek. Félagið var stofnað 19. febrúar á þessu ári að frumkvæði Dereks, sem kom fyrst til Íslands 1973 og hefur búið hér frá 1976. Hann kenndi vatnslitamálun í Myndlista- skóla Kópavogs í 11 ár og hafði ákveðið með góðum fyrirvara að hætta að vinna, þegar hann yrði 67 ára. „Ég stóð við það í fyrra, en þá hafði ég lofað sjálfum mér að stofna félagið.“ Tilgangur félagsins er að efla stöðu vatnslitamálunar í landinu og stuðla að samvinnu félaga á því sviði. Yfir 170 manns eru í félaginu, atvinnu- eða áhugalistamenn á aldr- inum 27 til 93 ára. Derek leggur mikið upp úr því að félagið sé virkt með fyrirlestrum, námskeiðum, samvinnu og samsýningum. „Ég hef fengið inni fyrir okkur í Gerðubergi í Breiðholti og Gjábakka í Kópavogi og þar höfum við komið saman, skipst á hugmyndum og málað.“ Mikil gæði og viðurkenningar Íslenskir vatnslitamálarar standa mjög vel, að sögn Dereks. Til dæmis eru um 50 manns í norræna vatns- litafélaginu. Þeir sýna reglulega er- lendis og íslenskir vatnslitamálarar hafa fengið viðurkenningar á alþjóð- legum sýningum. „Þegar ég kenndi fann ég að áhuginn jókst stöðugt. Oft var sagt að Íslendingar gætu ekki verið vatnslitamálarar því þeir hefðu ekki þolinmæðina sem þyrfti en þessi sýning er ágætismerki um gæðin sem eru til staðar.“ Ekki er algengt að eingöngu vatnslitamyndir séu á sýningu hér- lendis. Derek segir að samsýning norrænna vatnslitamálara og mynd- listarmálara í félagi frá Wales, sem starfi undir vernd Karls Bretaprins, fyrir tveimur árum hafi því vakið talsverða athygli. Að auki hefur ver- ið ákveðið að næsta samsýning Vatnslitafélagsins verði í Mosfells- bæ að ári. Derek er frá Englandi, með há- skólapróf í landbúnaðarefnafræði og listasögu. Hann starfaði lengi hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins en hefur sinnt myndlistinni í frí- stundum, sótt námskeið í þá veru og haldið sýningar. Honum bauðst fyrrnefnt kennarastarf 2007 og seg- ist hafa stokkið á það. „Ég greip það og sé ekki eftir því enda var þetta mjög skemmtilegur tími.“ Eiginkona Dereks er Alda Möller. Þau kynntust í námi á Eng- landi og segir hann að hún hafi fengið hann með sér í sumarfrí til Íslands 1973. „Ég er enn í sum- arfríi,“ segir hann ánægður með líf- ið og tilveruna, en sýningin er opin klukkan 10-16 á virkum dögum og 14-17 um helgar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gallerí Göng Derek Karl Mundell, formaður Vatnslitafélags Íslands, við eigin mynd á sýningunni. Veröld með vatnslitum  Fyrsta samsýning Vatnslitafélags Íslands í Gallerí Göngum Margverðlaunaðar þýskar innréttingar Verið velkomin í sýningarsalinn að Suðurlandsbraut 26 Suðurlandsbraut 26 – S: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga www.alno.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.