Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 Ægifagur Það var fallegt um að litast á höfuðborgarsvæðinu í gær í haustlitunum. Eins og stundum áður skiptust á skin og skúrir og í Mosfellsdalnum gaf að líta þennan fallega regnboga. Eggert Guðspjallamaðurinn Lúkas greinir frá því hvernig keisari Róm- verja ætlaði að fá vissu um fjölda þegna sinna til þess að hægt væri að skattleggja þá. Þess vegna komu boð frá Ágústusi keis- ara um að skrásetja skyldi alla heims- byggðina. Frásögnin hljóðar svo: „En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.“ Það eru aðeins örfáir sem lesa þennan texta með sjónum hag- fræðinnar. Flestir lesa textann frá sjónarhorni kærleika, ljóss og trú- ar. Að ekki sé talað um framhaldið í jólaguðspjallinu en þar koma tvær atvinnugreinar fyrir, heil- brigðisþjónusta og ferðaþjónusta, „Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betle- hem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gisti- húsi.“ Skattlagning og áráttuhegðun Í kennslubókum um skattlagningu er fyrst og fremst fjallað um tvenns konar skatt- lagningu. Áherslan er á tekjuskatt á tekjur einstaklinga og hagn- að fyrirtækja, og virð- isaukaskatt á veltu fyrirtækja. Virð- isaukaskattur er á endanlega neyslu. Þar til viðbótar er fjallað um greiðslu fyrir veitta þjónustu í samneyslu þar sem því verður við komið eða þar sem það þykir eðli- legt. Hér í landi er komin upp áráttu- hegðun um að skattleggja allt sem hreyfist. Enn alvarlegri er áráttan að skattleggja allt sem hægt er að skattleggja til að breyta neyslu og hegðun. Því minni trú sem stjórn- málamenn hafa á markaðs- hagkerfi, þeim mun meiri trú hafa þessir sömu stjórnmálamenn á að hægt sé að stjórna hegðun með skattlagningu og verðbjögun, á grundvelli verðteygni. Þannig þykir það sjálfsagt mál að skattleggja sykruð matvæli til að draga úr sykurneyslu og það þykir einnig sjálfsagt mál að skatt- leggja tekjur af fjáreignum, ekki til að draga úr fjáreignum, heldur til tekjuöflunar og „jöfnunar“. Ef röksemdafærslan um „sykurskatt“ er yfirfærð á fjáreignir ætti að draga úr fjáreignum því eftirspurn eftir fjáreignum mun minnka og þar með vextir að hækka. Svo er til samúðarsetning. „Það má ekki leggja á notkunargjöld vegna þess að þau koma svo ójafnt niður á greiðendum.“ Gjald er gjald og skattur er skattur. Á þessu er grundvallarmunur. Þeir sem keyra um Hvalfjarðargöng kaupa sömu þjónustu og slíta göngunum jafn mikið, hvort heldur ökumaður er tekjuhár eða tekju- lágur! „Sérstakur“ skattur á ferðaþjónustu Fyrir Alþingi liggja áform um „sérstakan“ skatt á ferðaþjónustu og er áætlað að hann skili allt að 1.750 milljónum króna. Þeir, sem reka ferðaþjónustufyrirtæki greiða skatta af hagnaði. Þeir, sem njóta ferðaþjónustu, greiða skatt af þeirri neyslu og þjónustu er þeir njóta. Ferðaþjónusta er að mestu leyti útflutningur á þjónustu og matvælum sem neytt er hér. Sá er munur á þeim þjón- ustuútflutningi og vöruútflutningi að fyrirtæki, sem framleiða vöru til útflutnings, greiða engan virð- isaukaskatt af starfsemi sinni en neytendur ferðaþjónustu greiða um 35 milljarða í virðisaukaskatt af sínum vöru- og þjónustu- kaupum. Að auki greiða leigjendur bifreiða um 5 milljarða í eldsneyt- isgjöld í akstri sínum. Starfsmenn greiða svo tekjuskatt af launum sínum, óháð atvinnugreinum. Og fyrirtæki greiða skatt af hagnaði. Tekið skal fram að njótendur vöru og þjónustu greiða virð- isaukaskatt, en ekki atvinnugrein- in ferðaþjónusta. Enn meiri áráttuhegðun Vissulega eru ferðamenn á hreyfingu og þá kemur áráttu- hegðunin; „skattleggjum allt sem hreyfist“. Þá kemur viðkvæðið: „skatturinn lendir á útlendingum“. Það er eins gott að útlendingar skilji ekki íslensku! Hver sem kemst að því að hann er aðeins skattborgari en ekki viðskiptavin- ur, fær viðbjóð og súrt bragð í munn! Og hættir viðskiptum við þegna slíks þjóðríkis sem lítur á viðskiptavin sem andlag til ráns! Á jaðrinum Til eru þeir sem ganga á göfl- unum en aðrir ganga af göflunum. En hagfræðin hugsar allt á jaðr- inum. Það er grundvallarspurning í hagfræði hvað gerist ef þú bætir við, ert á jaðrinum. Hvernig þróast tekjur og gjöld? Jað- artekjur verða að vera hærri en jaðargjöld til að öðlast ábata. Það er eins með ferðamenn. Hvað ger- ist ef ferðamönnum fjölgar? Meta þarf ábata og kostnaði. Sennilega er ábati af einum ferðamanni jafn ábata af hálfu tonni af þorski upp úr sjó. Til þess að afla tekna þarf að kosta einhverju til. Sá tekjuauki sem verður af ferðamönnum þarf að einhverjum hluta að ganga til að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn. Tekjuskattur af launum starfsfólks er almenn tekjuöflun ríkissjóðs. Sem fyrr segir þá er tekjuöflun í veltusköttum í ferðaþjónustu allt önnur og meiri en í öðrum útflutn- ingi. Það er með fólk eins og hunda. Hundar skilja ekki samband refs- ingar og rangrar hegðunar nema þeir séu staðnir að verki. Ferða- menn skilja ekki gjaldtöku nema í sambandi við veitta þjónustu. Í flestum löndum er „city tax“ í beinu sambandi við gistingu. Gisti- náttaskattur er að eðli svipaður en hann gengur til ríkisins. Eðlilegt er að gistináttaskattur gangi til nærsamfélagsins fremur en rík- isins. Það skilja kaupendur þjón- ustunnar. Ferðamenn og listakonur Ferðamenn eru um margt eins og listakonur. Listakonur mega ekki missa þessa nauðsynlegu spennu sem einkennir karlmanns- lausa konu. Við þurfum að halda spennunni en ekki að bæla spennuna. Guðspjallamaðurinn Lúkas hélt spennunni með því að skrifa Post- ulasöguna. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Ferðamenn eru um margt eins og lista- konur. Listakonur mega ekki missa þessa nauð- synlegu spennu sem einkennir karlmanns- lausa konu. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Sértæk skattlagning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.