Morgunblaðið - 22.11.2019, Side 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019
✝ Þorsteinn Ólaf-ur Þor-
steinsson fæddist í
Reykjavík 8. nóv-
ember 1963. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 8.
nóvember 2019.
Foreldrar hans
voru Ólöf Péturs-
dóttir, f. 30. ágúst
1926, d. 16. nóv-
ember 2013, og
Þorsteinn Ólafsson, f. 6. októ-
ber 1919, d. 15. september 2017.
Þorsteinn Ólafur kvæntist
hinn 9. nóvember 2013 Svönu
Berglindi Karlsdóttur, f. 5. maí
1972. Hún er dóttir Kristínar
Guðjónsdóttur, f. 10. júní 1939,
og Karls Thomsen Holm, f. 16.
september 1935. Dóttir Þor-
steins Ólafs og Svönu er Bríet
Mjöll, f. 13. október 2009. Dóttir
Þorsteins Ólafs af fyrra sam-
bandi er Elísabet Sóldís, f. 26.
apríl 1999. Dóttir Svönu af
fyrra sambandi er Alexandra
Ísfold Alexandersdóttir, f. 3.
desember 1995.
Þorsteinn Ólafur var yngstur
Norræna fjárfestingabankanum
árið 1986 og á árunum 1987-
1993 hjá Pricewaterhouse-
Coopers, þá Coopers and Ly-
brand.
Störf hans í flugheiminum
hófust árið 1994 þegar hann var
ráðinn til Air Atlanta og þar
gegndi hann ýmsum störfum
m.a. sem framkvæmdastjóri
reikningssviðs, aðstoðarmaður
forstjóra og innri endurskoð-
andi.
Þorsteinn gekk til liðs við Av-
ion Group við stofnun fyrir-
tækisins árið 2005, þá sem for-
stöðumaður bókhaldssviðs.
Þegar Avion Aircraft Trading
var stofnað tók hann þar við
stöðu fjármálastjóra og sá jafn-
fram um eignastýringu.
Frá 2009 hefur hann stjórnað
rekstri Avion Aircraft Trading,
Avion Leasing og Viking leigu,
og starfað sem sem samn-
ingamaður og ráðgjafi varðandi
kaup, sölu og leigu flugvéla.
Þorsteinn Ólafur tók virkan
þátt í flokksstarfi Framsókn-
arflokksins og sat um tíma í
miðstjórn flokksins.
Þorsteinn Ólafur hefur setið í
stjórnum ýmissa fyrirtækja
bæði innanlands og erlendis.
Útför Þorsteins Ólafs fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag, 22. nóvember 2019, klukk-
an 13.
systkina sinna en
þau eru: 1) Sigrún
Guðmundsdóttir, f.
8. júní 1947, maki
hennar er Friðrik
Jónsson, f. 26. febr-
úar 1945. 2) Pétur
Þorsteinsson, f. 17.
júlí 1950, maki
Kristín Ármanns-
dóttir, f. 27. sept-
ember 1965. 3)
Jóna Þorsteins-
dóttir, f. 22. ágúst 1955, maki
Sveinn Jóhannsson, f. 16. janúar
1954. 4) Heiðdís Þorsteins-
dóttir, f. 31. maí 1960, maki
Pálmi Egilsson, f. 14. október
1956.
Þorsteinn Ólafur ólst upp í
Laugarneshverfinu. Hann gekk
í Laugarnesskóla og Lauga-
lækjarskóla. Hann útskrifaðist
sem stúdent frá Verslunarskóla
Íslands árið 1983. Hann fór í
Háskóla Íslands og útskrifaðist
þaðan úr viðskiptafræði á end-
urskoðunarsviði árið 1988.
Á námsárunum vann Þor-
steinn Ólafur í Kirkjugörðum
Reykjavíkur. Hann vann hjá
„Mjög erum tregt tungu at
hræra“ kvað Egill Skalla-Gríms-
son.
Eins er mér innanbrjósts nú
þegar elskulegur bróðir minn er
fallinn frá. Hann var litli bróðirinn
sem ég gætti. Hafði áhuga á fót-
bolta og heillaðist af skák þegar
Spassky og Fischer háðu sitt ein-
vígi á Íslandi. Hann var bók-
hneigður og grúskari í sér. Var
sendur eitt sumarið í sveit, hringdi
í foreldrana eftir skamman tíma
og óskaði eftir að verða sóttur því
hann væri búinn að lesa allan
bókakost sveitaheimilisins.
Snemma beygðist krókurinn,
hann var kornungur farinn að
selja síðdegisblöðin og fann út að
besti sölustaður hverfisins var við
Ríkið á Laugarásvegi. Hann fór í
Versló og viðskiptafræði. Bróðir
minn virtist alltaf hafa of mikið að
gera, drjúgan hluta fullorðinsár-
anna var hann í vinnunni. En
sennilega hefur vinnan verið
áhugamál hans og ástríða. En
þrátt fyrir mikla vinnu kunni hann
að njóta, hafði mörg áhugamál,
sinnti félagsmálum og sýndi stór-
fjölskyldunni ræktarsemi. Hann
var hrókur alls fagnaðar á manna-
mótum, mælskur og skemmtileg-
ur, en í seinni tíð átti hann erfiðara
með félagsleg samskipti vegna
skertrar heyrnar. Hann hélt í
hefðir og sá til þess að ekki yrði
hróflað við fjölskyldujólaboðun-
um. Bróðir minn kunni að meta
góðan mat. Hann dró okkur systk-
inin gjarnan í land við að klára af
diskunum. Á fullorðinsárum
fannst honum lítið mál að tilreiða
flottar máltíðir með litlum fyrir-
vara og ósjaldan var mætt í veislur
hjá honum og Svönu. Alltaf höfð-
inglegar móttökur.
Það er ekki bara skammdegið
sem gerir dagana litlausa. Litrík-
ur persónuleiki er farinn. Einn
löst hafði hann að sumra mati,
hann var tímalaus, var ýmist á síð-
ustu stundu eða of seinn og sög-
urnar í því samhengi eru efni í
góðan farsa. Bróðir minn var
traustur, hjálpsamur og drengur
góður. Það er tómlegt til þess að
hugsa að geta ekki haft samband
eða hitt þennan öðling, t.d. í vin-
inni okkar handan fjallsins.
Ég er þakklát fyrir þær stundir
sem við áttum saman og minning-
arnar verma. Mestur er missir
Svönu og dætra. Votta þeim mína
innilegustu samúð.
Jóna Þorsteinsdóttir.
Óli bróðir minn var þremur ár-
um yngri en ég. Uppvöxtur okkar
var því samofinn alla tíð. Við ferð-
uðumst mikið með foreldrum okk-
ar og á hverju sumri var farið á
æskuslóðir þeirra, að Hlaðhamri í
Hrútafirði og í Borgarnes. Einnig
ferðuðumst við mikið um landið og
fórum í margar útilegur. Eitt
sumar fór Óli í sveit að Hlaðhamri
en ég hafði verið þar nokkur sum-
ur og unnum við þar saman að
ýmsum störfum. Hann tengdist
sveitinni vel og hafði alla tíð mikl-
ar taugar til Hlaðhamars.
Óli var lestrarhestur strax ung-
ur að árum og gat sökkt sér niður í
bóklestur tímunum saman. Hann
var mikill skorpumaður og sem
dæmi um það byrjaði hann oft
seint að læra fyrir próf en las svo
heilu og hálfu næturnar. Mamma
hafði miklar áhyggjur af þessum
venjum hans.
Óli var litla barnið á heimilinu
og var það jafnvel þó að hann yrði
fullorðinn. Mamma pakkaði inn
jólagjöfunum fyrir hann og lengi
fram eftir þvoði hún og straujaði
skyrturnar hans.
Fljótt kom í ljós áhugi Óla á
stjórnmálum. Hann mundi nöfn á
öllum ráðherrum og kunni skil á
þeim aðeins barn að aldri. Því var
öfugt farið með mig og eitt sinn
var ég í prófi á unglingsárum og
gat hækkað mig upp ef ég vissi
nafnið á utanríkisráðherra Ís-
lands. Þegar ég sagði frá þessu
heima voru pabbi og Óli mjög
hneykslaðir á mér yfir því að hafa
ekki haft hugmynd um svarið.
Óli var mikill matmaður, hann
naut þess að borða góðan mat.
Þegar við vorum börn nýtti hann
sér það hvað ég var matvönd og
borðaði yfirleitt matinn minn líka.
Oft fengum við systkinin að njóta
gestrisni þeirra hjóna þegar þau
reiddu fram veislumat eins og
ekkert væri.
Óli var viðskiptafræðingur og
öll fjármál voru honum hugleikin.
Hann var mjög nákvæmur og nat-
inn í störfum sínum og gat eytt
miklum tíma í hin minnstu smáat-
riði. Hann aðstoðaði okkur hjónin
við bókhald þegar við vorum með
rekstur á árum áður og tel ég að
ófáir hafi notið aðstoðar hans hvað
bókhald eða skattaskýrslu varðar.
Það er gott að geta yljað sér við
góðar minningar á erfiðum tímum
og mér þykir mjög vænt um að
Óli, Svana og Bríet komu til okkar
á Selfoss í sumar þar sem við átt-
um góðar stundir saman.
Við Óli vorum mjög náin systk-
ini og ræddum oft saman um ýmis
málefni. Hann var hlýr og yndis-
legur maður. Mér er efst í huga
mikið þakklæti og með söknuði
kveð ég góðan vin og bróður.
Heiðdís Þorsteinsdóttir.
Það er óraunverulegt og sárt að
sitja og skrifa niður minningar
sem koma upp í hugann, nú þegar
Óli okkar hefur kvatt í hinsta sinn.
Hlýja, trygglyndi, traust, hjálp-
semi og húmor eru meðal þeirra
orða sem koma upp í hugann þeg-
ar við minnumst Óla. Hann kom
inn í líf okkar fjölskyldunnar þeg-
ar þau Svana, rugluðu saman
reytum fyrir 12 árum. Alltaf var
maður jafn velkominn í Lækjar-
götuna þegar maður var á ferð-
inni, alltaf fékk maður faðmlag og
knús á kinn.
Það er gott að eiga margar góð-
ar minningar um Óla og þær eru
svo dýrmætar núna og verða um
ókomin ár. Það var stutt í glens og
grín hjá Óla. Hann var til að
mynda manna kappsamastur við
spilamennsku á gamlársnótt fyrir
norðan, þá var stutt í fallega smit-
andi hláturinn hans. Hann hafði
húmor fyrir sjálfum sér sem kom
meðal annars fram þegar mis-
skilningur varð vegna heyrnar-
skerðingar hans. Einhvern tím-
ann þegar verið var að ræða um
hús þá hafði Óli ekki alveg heyrt
rétt og spurði hann hvort einhver
væri með lús. En þegar hann
komst að hinu sanna hló hann ein-
læglega og allir veltust um í hlát-
urskasti. Við eigum eftir að sakna
þessara góðu stunda með honum
þar sem hann hló hæst sjálfur að
svona misskilningi og var ekkert
feiminn við að segja frá atvikum
sem þessum.
Óli reyndi allt sem hann gat til
að sannfæra okkur um að kjósa
flokkinn sem hann studdi af mikl-
um móð. Græni flokkurinn var al-
gerlega með þetta sagði hann og
stríddi okkur, en við stríddum
honum auðvitað bara á móti og
gáfum ekkert upp um það hvaða
flokk við kusum hverju sinni. Óli
var mikill áhugamaður um fót-
bolta og Liverpool var hans lið.
Áhuginn og gleðin voru einlæg
sérstaklega þegar vel gekk hjá
hans mönnum á vellinum. Við von-
um því svo sannarlega að Liver-
pool hampi deildarmeistaratitli á
Englandi, því þá munum við skála
fyrir Óla og hans mönnum.
Við erum óendanlega þakklát
fyrir það að Óli kom inn í líf Svönu,
því á þessum árum sem þau fengu
saman upplifðu þau svo margt
dásamlegt. Einu sinni sagði Óli frá
því að þegar hann var orðinn ást-
fanginn af Svönu þá hefði hann
farið á tónleika þar sem hún söng
og þá hefði hann endanlega kiknað
í hnjánum.
Við söknum þess að enginn
muni banka upp á á gamlársdag
fyrir norðan og biðji um að komast
á netið, því oft þurfti Óli að græja
eitthvað tengt bókhaldinu fyrir
áramót. Óli var nefnilega mikill
bisnessmaður og áttu tölur og
rekstur oft og tíðum hug hans all-
an. Þar var hann á heimavelli, ná-
kvæmur og samviskusamur fram í
fingurgóma. Óli var kannski ekki
sá allra stundvísasti, en það var
ekki það sem máli skipti heldur
það að hann mætti, einlægur og
hreinn og beinn því hann var ekk-
ert að reyna að vera einhver annar
en hann var. Hann var Óli sem
kom til dyranna eins og hann var
klæddur, einlægur, hlýr, traustur
og hjálpsamur. Hann var góður
maður sem við eigum eftir að
sakna sárt og við þökkum af heil-
um hug fyrir samfylgdina, hún var
okkur dýrmæt. Minning hans lifir
áfram með okkur um ókomna tíð.
Elsku Svana, Alexandra og
Bríet, við elskum ykkur til tungls-
ins og aftur til baka.
Fyrir hönd tengdafjölskyld-
unnar,
Fanney Ísfold Karlsdóttir,
Sigfríður Inga Karlsdóttir,
Guðjón Sigmar Karlsson og
Kristín María Gísladóttir.
Góður vinur er fallinn frá langt
um aldur fram. Í 50 ár fylgdust við
að í gegnum skólagöngu og svo líf-
ið sem tók við. Þó svo að við hefð-
um báðir sótt Laugarnesskóla og
svo Laugalækjarskóla þá má
segja að menntaskólaárin hafi
tengt okkur vináttuböndum. Við
vorum þrjú úr Laugarnesinu sem
byrjuðum nám við Verslunarskóla
Íslands, þá við Grundarstíg,
haustið 1979 og vorum við Þor-
steinn Ólafur saman í bekk. Mér
áskotnaðist fjólublá Ford Cortina
á þessum árum og þannig kom það
í minn hlut að sækja félagann á
morgnanna og koma okkur í skól-
ann. Oftar en ekki var minn maður
í seinna fallinu en Cortinan gerði
sitt gagn og framlengdi morgun-
lúrinn og tryggði þannig orku fyr-
ir daginn. Það kom fljótlega í ljós
að Þorsteinn var góður námsmað-
ur, talnaglöggur með eindæmum
og stálminnugur. Allt eiginleikar
sem nýttust honum vel í störfum
hans alla tíð. Við vorum báðir sam-
mála um að vera Framarar og átti
það við um íþróttir en ekki eins
þegar kom að pólitík. Eftir námið í
Verslunarskólanum lá leiðin í Við-
skiptafræðina í Háskóla Íslands.
Það voru ekki ófá kvöldin og helg-
arnar í lesstofunni í Árnagarði
sem við sátum saman og lærðum
og þá hafði slegist í hópinn núver-
andi eiginkona mín, hún Sigga. Að
háskólaárunum liðnum tók alvar-
an við og Þorsteinn sóttist í endur-
skoðunarstörf.
Á þessum árum minnkuðu sam-
skipti okkar þar sem ég bjó er-
lendis og eins úti á landi en það
breytti því ekki að vináttan og
traustið var alltaf til staðar. Taug-
in á milli okkar var sennilega
sterkari en ella þar sem við ólumst
upp við svipað bakland, yngstir í
hópi margra systkina og foreldrar
sem voru orðnir ráðsettir þegar
við komum í heiminn. Þegar þurfti
að ræða mikilvæg mál var gott að
eiga trúnaðarvin eins og Þorstein;
sannur klettur. Það er sárt að sjá á
eftir góðum vini en mestur er
missir þinn, kæra Svana. Guð
blessi þig og dóttur ykkar, hana
Bríeti Mjöll, sem og dóttur Þor-
steins af fyrra sambandi, hana El-
ísabetu Sóldísi.
Viðar Þorkelsson.
Þorsteinn Ólafur
Þorsteinsson
Fleiri minningargreinar
um Þorstein Ólaf Þor-
steinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HJÖRTUR J. HJARTAR
lést sunnudaginn 17. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju laugardaginn
23. nóvember klukkan 14. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á MND félagið eða önnur líknarfélög.
Jakobína Sigtryggsdóttir
Sigtryggur Klemenz Hjartar Ragnheiður Guðmundsdóttir
Ragna Hjartar Simon Reher
og barnabörn
Elsku pabbi okkar, tengdó og afi (nonno),
SALVATORE TORRINI,
lést á heimili sínu síðastliðinn mánudag.
Davíð Torrini Davíðsson
Emilíana Torrini
María Carmela Torrini
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir minn,
tengdafaðir og afi,
KRISTINN GÍSLASON ÁLFGEIRSSON
múrari,
Þorláksgeisla 12,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í
Reykjavík föstudaginn 15. nóvember.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, föstudaginn
22. nóvember, klukkan 15.
Ólafía Kolbrún Tryggvadóttir
Guðrún Kristinsdóttir Guðbrandur V. Guðgeirsson
og barnabörn
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýju
vegna andláts elsku móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIGERÐAR ÁGÚSTSDÓTTUR
leikskólakennara,
Furugerði 1, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Skjóls fyrir
góða aðstoð, umönnun og hlýju.
Baldvin H. Steindórsson Hafdís Engilbertsdóttir
Snorri Steindórsson Ingibjörg Þóra Ingólfsdóttir
Anna María Steindórsdóttir Stefán Erlendsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON
frá Böðmóðsstöðum,
Lækjarbrún 29, Hveragerði,
lést 18. nóvember.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 23. nóvember
klukkan 13.
Garðar R. Árnason Gunnvör Kolbeinsdóttir
Karólína Árnadóttir
Auðunn Árnason Maria C. Wang
Yndislegur sambýlismaður og besti vinur,
faðir okkar, stjúpfaðir, afi og langafi,
THEODÓR JÓNSSON,
fv. skipstjóri
frá Auðkúlu í Arnarfirði,
lést þriðjudaginn 19. nóvember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 5. desember
klukkan 13. Athöfnin verður táknmálstúlkuð.
Sólveig Júlía Baldursdóttir
Margrét Theodórsdóttir Ágúst Ingi Jónsson
Halldór Jón Theodórsson Ingibjörg Leifsdóttir
Sigrún Edda Theodórsdóttir Karl K. Á. Ólafsson
Guðbjörg Íris Atladóttir Ottó Sverrisson
Birna Sif Atladóttir Guðjón Helgi Ólafsson
Sigríður María Atladóttir Sigurjón Birgisson
Pálmi Þór Atlason Elín Guðmannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.