Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Kleppsmýrarvegur 6, Reykjavík, fnr. 202-3167, þingl. eig. Klepps- mýrarvegur 6 ehf., gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkurvatns sf., Reykjavíkurborg, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Efniviður ehf., þriðjudaginn 26. nóvember nk. kl. 10:00. Nökkvavogur 17, Reykjavík, fnr. 202-2725, þingl. eig. Baldur Berg- mann Heiðarsson, gerðarbeiðandi Ríkisskattstjóri, þriðjudaginn 26. nóvember nk. kl. 10:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 21. nóvember 2019 Tilboð/útboð ÚTBOÐ Vestmannaeyjahöfn Endurbygging Skipalyftukants 2020 Vestmannaeyjahöfn óskar eftir tilboðum í endur- byggingu Skipalyftukants. Helstu magntölur eru: • Brjóta 111 m af kantbita • Taka upp 15 stálþilsplötur • Reka niður 69 stálþilsplötur • Setja upp 111 m af stálþilsfestningum • Fylla um 2.800 m3 • Steypa 111m af kantbita Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2020. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 25. nóvember. Óska skal eftir útboðsgögnum á netfangið sagverk@outlook.com. Skila skal tilboðum á netfangið olisnorra@vest- mannaeyjar.is eigi síðar en fimmtudaginn 12. desember 2019, kl. 14:00. Vestmannaeyjahöfn Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Zumba Gold 60+ kl. 10.30. Hreyfisalurinn er opinn kl. 9.30-11.30, líkamsrækt- artæki, lóð og teygjur. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr., vegleg- ir vinningar. Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með Hönnu kl. 9-9.45. Göngubretti, æfingarhjól með leið- beinanda kl.13. Línudans kl. 13.30. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími 535 2700. Áskirkja Okkar árlega jólahlaðborð verður fimmtudaginn 28. nóv- ember kl. 19. Mæting 18.30. Matur frá Grillvagninum; síldartvenna, hangikjöt, hamborgarhryggur og lambalæri ásamt meðlæti, ís og ávextir. Söngur og gleði. Happadrætti á sínum stað. Verð 6500 kr. Skráning hjá Petreu í síma 891 8165 fyrir 26. nóvember. Allir vel- komnir. Safnaðarfélag Áskirkju Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30- 10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11.30- 12.20. Brids í handavinnustofu kl. 13. Bíó kl. 13.15. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10. Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Handaband kl. 13. Bingó kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30-12.30 og vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Verið öll hjartanlega velkomin á Vitatorg. Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan Kirkjuhvoli opin kl. 14 –17. Allir velkomnir. Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjóna- kaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15. Bókband með leiðbein- anda kl. 13-16. Kóræfing kl.13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. botsía-æfing, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist FEBK. Gullsmára Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13. Gleðigjafarnir kl. 13.30. Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl. 8-12. Línudans kl. 10.30. Brids kl. 13. Korpúlfar Skraustskriftarnámskeið með Þorvaldi í Borgum kl. 13, þátttökufjöldi 9 manns. Fleiri skrautskriftarnámskeið með meistara Þorvaldi verða eftir áramót, nánar auglýst síðar. Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogs- sundlaug. Gönguhópar Korpúlfa leggja af stað kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll, kaffispjall á eftir. Brids kl. 12.30 í Borgum og hann- yrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Tréútskurður á Korpúlfs- stöðum frá kl. 13-16 og hið vinsæla föstudagsvöfflukaffi kl. 14.30- 15.30 í Borgum í dag. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11. Föstudagsskemmtun kl. 13.30. Uppl. í s. 411 2760. Selfoss Í íþróttahúsi Vallaskóla kl. 10, ringo. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman á Skólabraut kl. 13. Kaffi á eftir. Spilað í króknum kl. 13.30 og í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Munið skráning- una á ,,Gaman saman" í salnum á Skólabraut fimmtudaginn 28. nóvember nk. Veitingar með jólalegu ívafi, samvera, dans og söngur. Upplýsingar og skráning í síma 893 9800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Íslendingasögur / fornsagna-nám- skeiðið Laxdæla kl. 10 og kl. 13. Leiðbeinandi Baldur Hafstað. Dans- leikur í Stangarhyl 4, sunnudagskvöld 24. nóvember kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum. Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni frá kl. 13- 14. Kaffi kl. 14-14.30. Allir velkomnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Laugavegi 178, 105 Reykjavík sími 551 3366. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Sabrina kjóll St: S-XXL 6.990,- Bona kjóll St: S-XXL 6.990,- Bona kjóll St: S-XXL 7.550,- Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com DÖM NÁTTFÖT 9.500,- 11.500,- 5.900,- 9.500,- 9.500,- Í MIKLU ÚRVALI www.frusigurlaug.is Glæsileg vefverslun - Frí póstsending - Opið á laugardögum 11 - 16 MJÓDD | S. 774-7377mbl.is alltaf - allstaðar Elskulegur Al- freð, föðurbróðir okkar er farinn yfir móðuna miklu, mætur maður og duglegur. „Alla frænda“ eins og við köll- uðum hann, höfðum við þekkt vel alla okkar ævi. Fjölskyldur okkar bjuggu í nokkur ár í sama húsi, á Njálsgötu 82 í Reykjavík. Húsið keyptu afi okkar og amma, Eyj- ólfur Gíslason og Sigríður Guð- mundsdóttir, er þau fluttu úr Ölf- usinu og Eyrarbakka til Reykjavíkur í upphafi 20. aldar til að hefja sinn búskap. Alli var næstelstur fimm bræðra, pabbi okkar Gísli Eyjólfsson elstur. Þegar þeir hófu búskap sem var um líkt leyti þá byggðu þeir bræður og fjölskyldur þeirra þrjár hæðir ofan á gamla húsið. Amma og afi bjuggu á annarri hæð, Alli, Jonna (eftirlifandi kona hans, Guðjónía Bjarnadóttir) og fjölskylda hans á þriðju hæð og svo pabbi og mamma, Gísli og Sísí (Sigríður Ragnheiður Guðnadóttir) og við fjölskyldan á fjórðu hæð. Það var mikill samgangur á milli okkar og fjölskyldu Alla, Jonnu og þeirra þriggja barna, Kristínar, Ebba og Alla Jóa. Fjöl- skyldurnar urðu því mjög nánar og hafa böndin haldist sterk alla tíð. Við systkinin erum svo til öll á sama aldri og börn Alla og Jonnu Alfreð Eyjólfsson ✝ Alfreð Eyjólfs-son fæddist 25. september 1934. Hann lést 31. októ- ber 2019. Útför Alfreðs var gerð 19. nóv- ember 2019. því skorti okkur ekki leikfélaga öll okkar bernskuár á Njáls- götunni þar sem var oft glatt á hjalla, mikið fjör og ýmis- legt brallað. Þessi mikli og góði sam- gangur í þessu ynd- islega húsi og þessi ár sem við fjölskyld- urnar bjuggum á Njálsgötunni ásamt ömmu og afa eru sveipuð birtu og gleði. Þegar fjölskyldurnar fluttu af Njálsgötunni var alla tíð mikið tilhlökkunarefni að hitta Alla, Jonnu og börnin þegar tilefni gafst. Því þar var sannarlega fyndið og skemmtilegt fólk á ferð sem gat séð spaugilegu hliðar lífsins og oft var mikið hlegið þegar hópurinn hittist. Þó svo að Alli frændi væri viðurkenndur góður kennari og síðar skóla- stjóri var hann líka lögreglumað- ur sem okkur krökkum þótti ekki verra, þar sem við gátum sagt hrekkjusvínum hverfisins að við ættum þennan öfluga frænda að. Við minnumst Alfreðs með miklum hlýhug, væntumþykju og söknuði og þökkum honum fyrir samfylgdina og samveruna í líf- inu. Eftirlifandi eiginkonu hans, Jonnu og allri fjölskyldu hans vottum við okkar innilegustu og dýpstu samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Elísabet Gísladóttir, Sigríður Gísladóttir, Eyjólfur Gíslason. Sofðu unga ástin mín, – úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. (Jóhann Sigurjónsson) Elsku amma mín, þessi vísa kemur alltaf upp í huga minn þegar ég hugsa til þín sem og fleiri dásamlegar minningar úr Heiðargerðinu sem munu ylja mér um hjarta um ókomna tíð. Minningar um ferðinar með ykkur afa í hjólhýsið í Þjórs- árdal eru mér mjög kærar, allt- af gott veður og endalaus æv- intýri voru brölluð þar. Við þurftum meira að segja að flýja undan Heklugosi einu sinni en það minnkaði nú ekki þrá mína að fara með ömmu og afa í Þjórsó allar helgar. Einnig var alltaf gott að koma í Heiðargerði vitandi það að alltaf var til nóg að bíta og brenna og enginn skortur var á uppáhaldskökunum sem þótti nú ekki leiðinlegt, né að horfa bíómynd á laugardagskvöldum og með því. Kúrekamynd á RÚV var toppurinn. Síðan var alltaf farið með bænirnar og sungin þessi vísa hér að ofan fyrir svefninn. Ég man alltaf hve stolt þið voruð af húsinu og sérstaklega garðinum og lögðuð mikið í að allt væri fínt og flott þar, en boltaleikir Katrín Eðvaldsdóttir ✝ Katrín Eð-valdsdóttir fæddist í Reykja- vík 2. janúar 1929. Hún lést 10. nóv- ember 2019. Útför Katrínar fór fram 19. nóv- ember 2019. og fín blóm fara víst stundum illa saman og brotin klósett voru ekki vinsæl. Skrautskrift var þín sérgrein sem og ljóðalestur og sam- an urðu þetta flott- ustu tækifæriskort sem sést hafa. Eftir að afi lést varstu sterk og var það mér huggun harmi gegn við fráfall hans. Guðstrúin og trú á hina fram- liðnu sem þú stundum hafðir samband við, hjálpaði í harm- inum og gerir enn. Hin síðari ár í Sóltúni og á Hrafnistu voru þér erfið með hinum óboðna gesti sem stal huga þínum og breytti þínu lífi mikið, en þrátt fyrir erfið veik- indi varstu alltaf dugleg við að hreyfa þig og þægileg og var það umtalað á Hrafnistu hve mikið þú gekkst um gangana. Þær jólahátíðir og afmæli þar sem þú heiðraðir okkur fjöl- skylduna með nærveru þinni munum við að eilífu minnast. En nú ertu komin til afa sem þú beiðst eftir öll þessi ár og ég veit að hann beið eftir þér líka. Elsku amma mín, alltaf stóðu ykkar dyr opnar fyrir mér og verð ég ykkur ávallt þakklátur og einnig þakka ég innilega fyr- ir alla hjálpina og kærleikinn sem þið veittuð mér í gegnum árin. Mun ég reyna mitt allra besta til að innræta minni fjöl- skyldu þau gildi sem þið kennd- uð mér. Bless bless, elsku amma mín, ég bið að heilsa afa. Minning ykkar afa mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Þinn gullmoli, Árni Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.