Morgunblaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 Stofnfundur Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál verður haldinn í Valhöll við Háaleitisbraut 1. desember 2019 Frjáls þjóð í frjálsu landi Dagskrá: 1. Fundur settur kl. 14:00 2. Kynning á félaginu 3. Samþykktir bornar undir atkvæði 4. Hátíðarávörp Að loknum stofnfundi verður aðventu- kaffi með hugvekju og tónlist. Húsið opnað kl. 13:30. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Undirbúningsnefnd Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Heildarfjárhæð arfs sem einstak- lingar hafa fengið hefur farið hækk- andi á umliðnum árum. Á síðasta ári erfðu einstaklingar tæplega 47 millj- arða króna samkvæmt skattframtöl- um fyrir árið 2018. Alls töldu 5.552 framteljendur fram arf á skattframtölum fyrir síð- asta ár samkvæmt nýjum tölum sem fengust hjá embætti Ríkisskatt- stjóra. Af þessari fjárhæð voru greiddir tæplega 4,5 milljarðar til ríkisins í erfðafjárskatt vegna síð- asta árs. Töldu fram 165 milljarða í arf á seinustu fimm árum Á síðustu fimm árum, þ.e.a.s. á ár- unum 2014 til 2018 fengu landsmenn samanlagt tæplega 165 milljarða króna í arf samkvæmt skattframtöl- um og voru erfingjar á þessu tímabili um 24.350 talsins. Tekjur ríkisins af erfðafjárskatti á þessu tímabili voru rúmir 15,8 milljarðar króna. Fram kemur á yfirlitinu sem fékkst hjá Ríkisskattstjóra, sem sýn- ir fenginn arf og fjölda þeirra sem töldu fram arf á skattframtölum ár- anna 2006 til 2019 vegna tekna ár- anna 2005 til 2018, að alls létu 1.604 eftir sig arf á seinasta ári. Skattleysismörkin eru ein og hálf milljón á hvert dánarbú Það eru sýslumenn sem sjá um að leggja erfðafjárskatt á dánarbú. Skattleysismörkin eru ein og hálf milljón á dánarbúið samkvæmt upp- lýsingum Ríkisskattstjóra. Ekki kemur fram hversu stór hluti fengins arfs í fyrra var fyrirfram- greiddur arfur eða hvernig fjárhæð- irnar skiptust á milli erfingja en meðalfjárhæð arfs framteljenda í fyrra var um 8,5 milljónir króna. Um 8% fékk arf undir tíu millj- ónum kr. árið 2017 Fram kom í svari Bjarna Bene- diktssonar, fjármála- og efnahags- ráðherra, við fyrirspurn Jóns Stein- dórs Valdimarssonar, þingmanns Viðreisnar, um arf og fjárhæðir erfðafjárskatts á Alþingi í fyrra, að miðgildi heildarverðmætis dánarbúa á árinu 2017 var 14,5 milljónir kr. og miðgildi arfsfjárhæðar erfingja var 3,5 milljónir króna. Langstærsti hluti erfingja, eða 98,6%, hlaut arf undir 50 milljónum kr. á því ári og 81,3% fengu arf undir 10 milljónum króna á árinu 2017 en skv. yfirliti Ríkisskattstjóra fengu 5.367 einstaklingar arf á því ári og var samanlagður arfur það ár rúmir 38,4 milljarðar kr. Í drögum að frumvarpi sem fjár- málaráðherra kynnti í haust á sam- ráðsgátt stjórnvalda um breytingar á lögum um erfðafjárskatt, er lagt til að erfðafjárskatturinn verði þrepa- skiptur. 5% erfðafjárskattur greiðist af fjárhæð allt að 75 milljónir kr. en 10% af því sem er umfram þá fjár- hæð. Skatttekjur lækka verði áform í frumvarpi lögfest Þá er lagt til í frumvarpinu að skattur af fyrirframgreiddum arfi verði í efra skattþrepinu þ.e. 10% skattur. Verði frumvarpið lögfest er búist við að tekjur ríkissjóðs af erfðafjárskatti lækki á næsta ári um 2 milljarða kr. og verði í kringum 3,2 milljarðar króna. Landsmenn erfðu 47 milljarða kr. í fyrra  15,8 milljarðar fóru í erfðafjárskatt á fimm árum Álagður erfðafjárskattur einstaklinga Tekjuárin 2005-2018, milljónir kr. Erfðafjárskattur Fjöldi arfl áta Heimild: RSK '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 4.525 milljónir kr. 692 m.kr. Tekjuár Fjöldi framtala Fjöldi arfl áta Arfur Erfðafjár- skattur 2005 3.931 1.320 15.265 692 2006 3.992 1.298 15.530 737 2007 4.462 1.436 24.948 1.196 2008 4.094 1.274 19.114 911 2009 4.941 1.532 27.705 1.336 2010 6.611 2.114 42.658 2.085 2011 3.550 1.006 11.487 994 2012 3.918 1.140 16.409 1.522 2013 3.900 1.219 20.746 1.947 2014 4.165 1.297 21.697 2.025 2015 4.397 1.339 26.316 2.484 2016 4.869 1.532 32.442 3.090 2017 5.367 1.631 38.433 3.688 2018 5.552 1.604 46.999 4.525 2.114 1.320 1.604 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Spilafíkn er alvarlegasta fíkn sem ég hef kynnst.“ Þetta segir Björn, rúmlega fertugur karlmaður, sem hefur glímt við spilafíkn í yfir 20 ár. Hann hefur reynt ýmis meðferðar- úrræði, ýmist vegna hennar einnar og sér, eða vegna áfengis- og fíkni- efnaneyslu og segir spilafíknina vera þá fíkn sem erfiðast sé að vinna með. Hann heitir reyndar ekki Björn, en vill ekki koma fram undir nafni af tillitssemi við fjölskyldu sína, en einnig vegna þess að hann er með eigin atvinnustarfsemi og óttast að það muni koma niður á viðskiptum hans. Björn segist fyrst hafa áttað sig á því árið 1997 að það, sem hann taldi vera saklausa skemmtun, hafi verið alvarlegur vandi. Hann fór þá í með- ferð hjá SÁÁ fyrir fólk með spilafíkn og fannst að hann ætti að geta stjórn- að spilahegðun sinni eftir það. Það gekk ekki eftir og síðan þá hefur hann verið virkur spilafíkill, með hléum. Hann hefur spilað á net- inu en aðallega í spilakössum, eins og t.d. í Háspennu og í spilakössum í söluturnum. „Það átta sig kannski ekki allir á því, en það er hægt að spila ansi djarft í þeim og ég hef nokkrum sinnum unnið meira en 300.000 á kvöldi. En ég hef miklu oft- ar tapað jafnmiklu eða meiru á einu kvöldi.“ Spurður hvernig hægt sé að vinna og tapa svona miklum peningum þar sem eingöngu er hægt að spila fyrir í mesta lagi 250 krónur í hvert skipti segir hann það lítið mál. „Það er hægt að ýta á takkann á um tveggja sekúndna fresti. Ef það kemur eng- inn vinningur sem tefur fyrir, þá fara 7.500 krónur á mínútu. Á klukkutíma er það hátt í hálf milljón.“ Foreldrar skammta honum fé Núna er hann kominn í þá stöðu í lífinu að hann hefur afhent foreldrum sínum umráð yfir öllum sínum fjár- munum og eignum. „Ég er 43 ára og foreldrar mínir skammta mér pen- inga og ég þarf að gera þeim grein fyrir í hvað þeir fara. – Veistu hvað þú hefur spilað fyrir mikla peninga á þessum tíma? „Það gætu verið 50-100 milljónir, kannski minna – kannski meira. Ég gæti örugglega fundið út nákvæmari upphæð, en ég hreinlega vil það ekki.“ Hans skoðun er að takmarka eigi aðgengi að spilakössunum. „Ég er ekki á því að það eigi að banna spilakassa, það er engin ástæða til þess frekar en að banna margt annað sem sumir verða háðir. En þeir ættu að vera á afmörkuðum stöðum og undir eftirliti.“ Morgunblaðið/Eggert Spilasalur Björn segir spilafíkn vera alvarlegustu fíkn sem hann hafi kynnst og er þeirrar skoðunar að takmarka eigi aðgengi að spilakössum. Alvarlegasta fíkn sem ég hef kynnst  Lengri útgáfa af viðtalinu við Björn og umfjöllun um spilafíkn frá ýmsum sjónarhornum er á mbl.is. Ísland er í fimmta sæti á nýbirtum lista yfir lífsgæði þjóða heims og fell- ur um tvö sæti frá því í fyrra. Um er að ræða Quality of Nationality Index, QNI, sem birtur hefur verið árlega um nokkurt skeið. QNI-listinn raðar þjóðernum í röð eftir einkunnum sem þær fá fyrir ýmsa þætti, svo sem efnahag, póli- tískan stöðugleika, lífslíkur, almenn lífsgæði, ferðafrelsi og möguleika á atvinnu í öðrum löndum. QNI-listinn er hugarfóstur háskólaprófessorsins Dimitry Kochenov og Christian Käl- in, stjórnarformanns ráðgjafarfyr- irtækisins Henley & Partners. Frakkland er í efsta sæti listans að þessu sinni. Franska þjóðin fær 83,5% í einkunn af 100% mögulegum. Skammt undan koma Þýskaland og Holland með 82,8%. Danir sitja í þriðja sætinu og Norðmenn og Svíar deila fjórða sætinu með 81,5% í ein- kunn. Íslenska þjóðin fær fimmtu bestu einkunnina, 81,4%. Þar á eftir koma Finnar, Ítalir, Bretar, Írar og Spánverjar. Í þremur neðstu sætunum í ár eru Suður-Súdan, Afganistan og Sómalía. Ísland hefur sveiflast nokkuð til á þessum lista síðustu ár. Undanfarin þrjú ár hefur Ísland setið í þriðja sæti listans en fellur nú í fimmta sætið. hdm@mbl.is Ísland í fimmta sæti yfir lífsgæði  Föllum um tvö sæti á listanum milli ára  Frakkar þykja hafa það best Morgunblaðið/Eggert Lífsgæði Þessi ærslabelgur í Kópavogi telst til lífsgæða hjá mörgum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.