Morgunblaðið - 28.11.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 28.11.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 HELENA RUBINSTEIN KYNNING FIMMTUDAG TIL FÖSTUDAGS 30% AFSLÁTTUR AF HELENA RUBINSTEIN VÖRUM GLÆSILEGUR KAUPAUKI AÐ HÆTTI HELENA RUBINSTEIN ÞEGAR KEYPT ER ANDLITSKREM FRÁ HELENA RUBINSTEIN ÁRALANGAR RANNSÓKNIR GEFA HÚÐINNI BJARTARI FRAMTÍÐ: Prodigy CELLGLOW línan með jurtastofnfrumum úr hinu ofursterka EDELWEISS blómi úr Svissnesku Ölpunum, gefur ljóma, þéttari og stinnari húð og dregur sjáanlega úr flestum merkjum öldrunar. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 NÝ STJARNA DJÚPENDURNÝJANDI SERUM GEFUR LJÓMA OG OG VINNUR GEGN ÖLDRUNAREINKENNUM Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook 20% afsláttur fimmtudag og föstudag AF ÖLLUM Kjólum Túnikum Skyrtum Peysum Bolum Toppum Jökkum Str. 36-56 Svartur föstudagur Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Nokkur spenningur var í mönnum þegar starfsmenn Navis og Green- volt prufukeyrðu frumgerð af fyrsta íslenska rafmagnsbátnum sem búinn hefur verið til hérlendis. Báturinn er hannaður þannig að rafhleðslan er inni í byggingarefn- inu sjálfu og hluti af báts- skrokknum. Reynslusiglingin gekk framar vonum á þessu rúmlega metra langa líkani, að sögn Bjarna Hjartarsonar, hönnuðar hjá Navis. Báturinn er kallaður Magnea og var skrokkurinn smíðaður hér á landi, en síðan sendur til Króatíu þar sem plötur úr koltrefjum voru festar á hann. Á sama tíma var yfirbyggingin byggð hérlendis og fyrri hluti vikunnar var síðan not- aður til að ganga frá bátnum þann- ig að hann yrði sjófær. Tvíþætt verkefni Magnea-verkefnið er tvíþætt. Annars vegar er verið að leggja lokahönd á hönnun á rafmagnsbát, sem gengur fyrir hefðbundnum Lithium-rafhlöðum. Bjarni segir að stefnt sé á að byrja að smíða tæp- lega 15 metra 30 brúttótonna línu- bát í byrjun næsta árs. Mikill áhugi hefur verið frá útgerðum á verk- efninu sem getur haft gífurlega já- kvæð áhrif á kolefnisspor íslenska skipaflotans, að sögn Bjarna. Báturinn var kynntur á Sjávarútvegssýningunni í haust og í grein í Morgunblaðinu kom fram að þessi orkugjafi yrði til muna umhverfisvænni heldur en þeir sem áður hafa verið notaðir. Einn- ig yrði báturinn hljóðlátari heldur en þeir eldri og rafhlaðan þjónaði um leið sem ballest þannig að aukið rými fengist um borð. Ótrúleg tækni Hins vegar er um nýja tækni að ræða sem íslenska fyrirtækið Greenvolt er að þróa með þennan bát í huga. „Við vonum að þessi nýja tegund af rafmagnsbátum verði að veruleika á næstu miss- erum,“ segir Bjarni. „Þessi nýja tækni er ótrúleg en með nanó- tækni og koltrefjum í lögum er sama efnið bæði rafhlaða og báts- skrokkur sem er byggður úr þess- um koltrefjum þannig að báturinn sjálfur verður ein stór fljótandi rafhlaða. Þessi nálgun gjörbreytir möguleikunum í hönnun rafmagns- báta en lausnin er fullkomlega um- hverfisvæn. Plássið sem vanalega væri nýtt fyrir rafhlöður er þá hægt að nýta í þarfari hluti. Rafhlaða framtíðarinnar Enn er unnið að þróun á rafhlöð- um, fjármögnun verkefnisins og svo þarf að skoða regluverkið sam- hliða þessu. Við höfum sagt að við séum sannfærðir um að lithium- rafhlöður verði ekki ráðandi í framtíðinni og sannarlega er gam- an að fá að taka þátt í þróun á framtíðinni. Við stefnum á að byrja með hefðbundnar rafhlöður og eft- ir því sem verkefnið þróast sjáum við fyrir okkur að geta framleitt Magneu í fullri stærð með skrokk- inn sem risastóra rafhlöðu,“ segir Bjarni. Í samtali við viðskiptablað Morgunblaðsins í byrjun þessa mánaðar sagði Ármann Kojic, stofnandi og framkvæmdastjóri Greenvolt meðal annars: „Við höf- um unnið að því að skapa rafhlöðu framtíðarinnar sem notar svokall- aða nanótækni og örefni (e. micro- forms) til að ná fram auknu yfir- borðssvæði innan rafhlöðunnar til að geyma orku betur en áður hefur verið hægt. Um leið hefur okkar aðferð þann kost að nota má raf- hlöðuna sem byggingarefni þeirra tækja sem hún knýr áfram – sem „strúktúr-rafhlöðu“ – og þannig getur t.d. húddið á bílnum, grindin á rafmagnshjólinu, eða jafnvel heill flugvélarvængur verið rafhlaða.“ Í viðtalinu kom fram að það ylli ekki hættu ef gat kæmi á Green- volt-rafhlöðu eða hún dældaðist. Ef einhver t.d. boraði gat á rafhlöðu- þynnuna myndi hann ekki fá í sig straum, og afkastageta rafhlöð- unnar minnka aðeins sem næmi stærð gatsins. Rafhleðslan er hluti af bátsskrokknum  „Gaman að fá að taka þátt í þróun á framtíðinni“  Green- volt og Navis í samstarfi  Rafhleðslan inni í byggingarefninu Morgunblaðið/Árni Sæberg Tilraunabáturinn Magnea Sverrir Bjarnason, Kári Logason, Antonio Licit- ar og Bjarni Hjartarson við sjósetningu rafbátsins Magneu í gær. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Atkvæðagreiðsla kúabænda um endurskoðun búvörusamningsins frá 2016 hófst á hádegi í gær og stendur í rétta viku. Eftir að at- kvæðagreiðslunni var frestað fyrir viku náðu fulltrúar bænda og rík- isins samkomulagi um bókun um umgjörð væntanlegra kvótavið- skipta á nýju ári. Hópur bænda lýsti óánægju með samkomulagið sem fulltrúar bænda og ríkisins gerðu og greiða átti at- kvæði um á dögunum. Skoruðu þeir á forystu Bændasamtaka Íslands að taka upp viðræður við ríkið að nýju. Það var gert. Hægt að setja hámarksverð Gagnrýnin beindist meðal annars að umgjörð kvótaviðskipta og að samningum um verðlagsmálin var ekki lokið. Gert er ráð fyrir því í samkomulaginu frá því í haust að greidd verði atkvæði að nýju um niðurstöðu viðræðna um verðlags- málin. Í nýju bókuninni er vikið að þremur atriðum: Hámarksverði greiðslumarks, aðilaskiptum og til- færslu greiðslumarks á milli lög- býla. Kveðið er á um það að ef ákveðið verður að setja hámarks- verð á greiðslumark í upphafi nýs árs skuli það ekki vera hærra en þrefalt lágmarksverð mjólkur til framleiðenda. Í samkomulaginu sjálfu var talað um að hægt yrði að setja hámarksverð ef verðið færi yf- ir óskilgreind rauð strik. Drög að reglugerð um kvóta- markaðinn hafa verið kynnt í sam- ráðsgátt stjórnvalda. Gert er ráð fyrir að fyrsti markaðsdagurinn verði 1. apríl á næsta ári. Skref í rétta átt Þröstur Aðalbjarnarson, bóndi á Stakkhamri og einn af þeim bænd- um sem stóðu fyrir söfnun undir- skrifta gegn efni endurskoðunarinn- ar, segir að bókunin sé skref í rétta átt og kveðst ánægður með að hlust- að hafi verið á grasrótina. „Þetta er í þá veru sem við höfum verið að hugsa. Við vildum að einnig yrði tekið á verðlagsmálunum og von- andi verður það gert sem fyrst. Við gerum okkur grein fyrir því að þeg- ar átt er við ríkið er það oftar en ekki í sterkari stöðu,“ segir Þröstur og tekur fram að hann efist ekki um að Guðrún S. Tryggvadóttir, for- maður Bændasamtakanna, og for- ystusveitin hafi gert sitt besta. Þak sett á kvótaverð  Bókun um umgjörð kvótaviðskipta  Hafin er atkvæða- greiðsla meðal kúabænda um endurskoðun búvörusamnings Morgunblaðið/Eggert Kýr Hægt verður að kaupa og selja kvóta þrisvar sinnum á ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.