Morgunblaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 32
MEISTARADEILDIN Kristján Jónsson kris@mbl.is Evrópumeistararnir í Liverpool mega ekki við því að tapa í loka- umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Liverpool er í efsta sæti E-riðilsins eftir leiki gærkvöldsins en liðið á eftir að mæta Salzburg á útivelli sem er þremur stigum á eft- ir. Liverpool er með 10 stig, Napolí 9, Salzburg 7 og Genk 1. Napolí fær Genk í heimsókn og eru yfirgnæf- andi líkur á því að Napolí fari upp í 12 stig. Með sigri myndi Salzburg jafna Liverpool að stigum. Fyrri leikur liðanna á Anfield fór 4:3 fyrir Liverpool en innbyrðisviðureignir gilda séu lið með jafn mörg stig. Jafntefli í Austurríki dugir því Liv- erpool til að komast áfram. Dries Mertens kom Napoli yfir á Anfield á 21. mínútu en króatíski miðvörðurinn Dejan Lovren jafnaði með skalla eftir hornspyrnu á 65. mínútu. Norski framherjinn Erling Braut Håland hélt uppteknum hætti og skoraði fyrir Salzburg í 4:1 sigri á móti Genk á útvelli eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann hefur þar með skorað í öllum fimm leikjum Salzburg í keppninni. Ajax efst í H-riðli Ekki vantaði fjörið hjá Valencia og Chelsea á hinum glæsilega Mestalla-leikvangi á Spáni. Nið- urstaðan varð 2:2 jafntefli eftir gal- opinn lokakafla þar sem bæði lið fengu fjölda tækifæra. Carlos Soler kom Valencia yfir á 40. mínútu en Mateo Kovacic og Christian Pul- isic snéru taflinu við með mörkum sitt hvorum megin við hlé. Kepa, markvörður Chelsea, varði víta- spyrnu frá Daniel Parejo á 65. mín- útu en það dugði ekki til sigurs því Daniel Wass jafnaði á 82. mínútu þegar fyrirgjöf hans varð að glæsi- legu marki. Chelsea og Valencia eru bæði með 8 stig. Chelsea er í býsna góðri stöðu því liðið á eftir að mæta Lille á heimavelli í loka- umferðinni en Frakkarnir eiga ekki möguleika á að komast áfram. Lille átti litla möguleika gegn stórliði Ajax í norðurhluta Frakk- lands í gær en Ajax vann 2:0 og hafði forystu frá því á 3. mínútu. Hakim Ziyech og Quincy Promes skoruðu fyrir Ajax sem er efst í H- riðlinum með 10 stig. Ajax tekur á móti Valencia í lokaumferðinni og þar þurfa Spánverjarnir vænt- anlega á sigri að halda. Lionel Messi lék sinn 700. leik fyrir Barcelona þegar liðið komst áfram úr F-riðli með 3:1 sigri gegn Dortmund. Messi skoraði eitt og lagði upp tvö fyrir þá Luis Suárez og Antoine Griezmann. Dortmund og Inter eru jöfn með 7 stig. Í loka- umferðinni þarf Inter að mæta Barcelona í Mílanó en Dortmund fær Slavia Prag í heimsókn. Barcelona komst áfram  Enn óútkljáð mál í þremur riðlum AFP Skoruðu Antoine Griezmann og Lionel Messi fagna marki í gær. 32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 Meistaradeild Evrópu E-RIÐILL: Genk – Salzburg ....................................... 1:4 Liverpool – Napoli.................................... 1:1 Staðan: Liverpool 5 3 1 1 11:8 10 Napoli 5 2 3 0 7:4 9 Salzburg 5 2 1 2 16:11 7 Genk 5 0 1 4 5:16 1 F-RIÐILL: Barcelona – Dortmund ............................ 3:1 Slavia Prag – Inter Mílanó ...................... 1:3 Staðan: Barcelona 5 3 2 0 7:3 11 Inter Mílanó 5 2 1 2 9:7 7 Dortmund 5 2 1 2 6:7 7 Slavia Prag 5 0 2 3 3:8 2  Barcelona komið áfram. G-RIÐILL: Zenit Pétursborg – Lyon......................... 2:0 RB Leipzig – Benfica ............................... 2:2 Staðan: RB Leipzig 5 3 1 1 8:6 10 Lyon 5 2 1 2 7:6 7 Zenit 5 2 1 2 7:6 7 Benfica 5 1 1 3 7:11 4 H-RIÐILL: Valencia – Chelsea ................................... 2:2 Lille – Ajax................................................ 0:2 Staðan: Ajax 5 3 1 1 12:5 10 Chelsea 5 2 2 1 9:8 8 Valencia 5 2 2 1 8:7 8 Lille 5 0 1 4 3:12 1 England B-deild: Blackburn – Brentford ........................... 1:0  Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Brentford. Hull – Preston........................................... 4:0 Middlesbrough – Barnsley...................... 1:0 QPR – Nottingham Forest...................... 0:4 Sheffield Wed. – Birmingham................. 1:1 WBA – Bristol City .................................. 4:1 Staða efstu liða: WBA 18 11 6 1 35:19 39 Leeds 18 11 4 3 24:10 37 Fulham 18 9 5 4 29:18 32 Nottingham F. 17 9 5 3 24:13 32 Preston 18 9 4 5 31:22 31 Swansea 18 8 6 4 23:18 30 Bristol City 18 7 8 3 26:25 29 Brentford 18 8 3 7 22:14 27 Hull 18 7 5 6 29:23 26 Unglingadeild UEFA 2. umferð, seinni leikur: Derby – ÍA ................................................ 4:1  Derby áfram, 6:2 samanlagt. KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Sauðárkrókur: Tindastóll – Þór Þ....... 19.15 Njarðtaksgr.: Njarðvík – Haukar....... 19.15 Origo-höllin: Valur – Þór Ak ............... 19.15 Hertz-hellirinn: ÍR – Grindavík .......... 19.15 1. deild karla: Borgarnes: Skallagrímur – Álftanes .. 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Fylkishöll: Fylkir – ÍBV U ....................... 18 Í KVÖLD! HANDBOLTI Danmörk Nordsjælland – Aalborg ..................... 25:32  Janus Daði Smárason skoraði 4 mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er frá vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð- arþjálfari liðsins. Skjern – SönderjyskE......................... 30:25  Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir Skjern og Björgvin Páll Gústavsson varði 16 skot í markinu. Patrekur Jóhannesson þjálfar liðið.  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2 mörk fyrir SönderjyskE og Sveinn Jó- hannsson 1.  Efstu lið: Aalborg 23, Holstebro 17, Skjern 17, SönderjyskE 16, Skanderborg 15, Bjerringbro/Silkeborg 14. GOG – Fredericia ................................ 39:36  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk fyrir GOG Arnar Freyr Arnarsson lék ekki með. Viktor G. Hallgrímsson varði 9 skot. Noregur Arendal – Elverum.............................. 31:31  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 10 mörk fyrir Elverum. Follo – Drammen................................. 22:22  Óskar Ólafsson skoraði ekki fyrir Dram- men. Frakkland París SG – St. Raphaël........................ 39:26  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk fyrir PSG. Meistaradeild karla D-RIÐILL: Kristianstad – Wisla Plock................. 24:20  Ólafur Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad og Teitur Einarsson 2. Aalborg er með sex stiga forskot á toppi efstu deildar í danska hand- boltanum. Liðið vann Nordsjælland á útivelli í gær 32:25. Skoraði Janus Daði Smárason 4. Björgvin Páll Gústavsson var með 40% mark- vörslu fyrir Skjern í sigri á Sönder- jyskE 30:25 og varði 16 skot. Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir liðið. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2 og Sveinn Jóhannsson 1 fyrir gestina. Þá skoraði Óðinn Þór Ríkharðsson 6 mörk fyrir GOG sem vann Fredericia 39:36. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 9 skot. Sex stiga forskot hjá Aalborg Morgunblaðið/Hari 40% Björgvin Páll Gústavsson átti góðan leik í marki Skjern í gær. Guðjón Valur Sigurðsson og sam- herjar hans í franska meistaralið- inu Paris SG héldu sigurgöngu sinni áfram í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Paris SG vann Saint-Raphaël örugglega 39:26. Guðjón Valur skoraði tvö mörk úr þremur skotum en danski lands- liðsmaðurinn Mikkel Hansen var markahæstur með 5 mörk. Hansen er nýlega kominn á ferðina eftir heilahristing. Paris SG er með fullt hús í topp- sæti deildarinnar en liðið hefur unnið alla ellefu leiki sína. Ellefti sigurinn hjá Paris SG Ljósmynd/PSG Á toppnum Guðjón og samherjar hafa unnið fyrstu ellefu leikina. FÓTBOLTI Kristján Jónsson Víðir Sigurðsson Verða tímabundnar skiptingar leyfðar í knattspyrnunni á meðan sjúkrateymi athugar afleiðingar höfuðhöggs hjá leikmanni? Sky Sports greindi frá því í gær að slík- ar breytingar á reglunum væru til skoðunar. Samkvæmt fréttinni gæti farið svo að breytingin yrði komin í gagnið áður en lokakeppni EM karlalandsliða hefst næsta sumar. Sérfræðingar á vegum Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA, telja óheppilegt að gefa lækna- teymi liðanna einungis þrjár mín- útur til að skera úr um hvort leik- maður sem fengið hefur höfuðhögg geti haldið leik áfram eða ekki. Slíkt setji of mikla pressu á þá sem í hlut eiga og slík skoðun sé ófull- nægjandi. Í knattspyrnuheiminum hefur orðið vakning um afleiðingar heila- hristings og er því farið að taka höfuðhögg alvarlega eins og í fleiri íþróttagreinum. Í ýmsum hóp- íþróttum eru hins vegar frjálsar skiptingar en því er ekki að heilsa í knattspyrnunni. Fyrir vikið er áhyggjuefni fyrir liðin að vera leik- manni færri á meðan athugað er hvort leikmaður gæti hafa fengið heilahristing eða ekki. Fyrirmynd úr rugby Hefur þetta þegar verið tekið upp í rugby-íþróttinni á Bretlands- eyjum. Ef leikmaður fær höf- uðhögg í leik og læknir vill meta betur stöðu hans, og hættuna á að hann hafi fengið heilahristing, má setja varamann inn á í hans stað og taka hann síðan aftur af velli ef sá sem fékk höfuðhöggið reynist í lagi. Sky Sports segir að Alþjóðlega knattspyrnustjórnin, IFAB, sem heldur utan um regluverkið í knatt- spyrnunni, sé að velta fyrir sér sams konar fyrirkomulagi og það yrði notað í fyrsta skipti á EM 2020. Samkvæmt heimildum Sky Sports verður málið tekið fyrir á árlegri ráðstefnu IFAB í Belfast næsta þriðjudag og síðan greidd um það atkvæði á þingi nefnd- arinnar á sama stað í lok febrúar. Verði breytingin samþykkt, tek- ur hún gildi 1. júní 2020 og EM yrði þá fyrsta alþjóðlega mótið sem háð yrði samkvæmt þessum nýju reglum. Þær yrðu síðan alls staðar í gildi frá og með næsta keppn- istímabili. Þá vaknar sú spurning hvort tímabundnar skiptingar verði leyfðar á Íslandsmótinu næsta sumar. Íslensku félagsliðin yrðu þá með þeim fyrstu sem myndu geta nýtt þennan mögu- leika. Of snemmt er að segja til um hvort það sé líklegt. Fari svo að þessi breyting verði þá væri allt eins líklegt að hún yrði komin í gagnið við upphafi Íslands- mótsins frekar en að hér yrði mið- að við 1. júní. AFP Hnjaskvagninn Knattspyrnumaður fær skutl út af vellinum. Tímabundnar skiptingar?  Til skoðunar að gefa meira svigrúm til að kanna höfuðáverka í knattspyrnuleikjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.