Morgunblaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019
✝ Jóhann VísirGunnarsson, oft
kallaður Jói dúkari,
fæddist 20. janúar
1951. Hann lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 18. nóv-
ember 2019. Jóhann
Vísir var sonur
hjónanna Þuríðar
Kristjánsdóttur, f.
9.1. 1921, d. 28.4.
1991, frá Krithóli, Lýtings-
staðahreppi, Skagafirði og Gunn-
ars Jóhannssonar, f. 9.2. 1922, d.
9.1. 1979, frá Mælifellsá í sama
hreppi. Foreldrar Þuríðar voru
Ingibjörg Jóhannsdóttir, f. í Þor-
steinsstaðakoti 1888, d. 1947, og
Kristján Árnason frá Gili í Svart-
árdal, f. 1885, d. 1964. Foreldrar
Gunnars voru Lovísa Sveins-
dóttir frá Mælifellsá, f. 1894, d.
1979, og Jóhann Pétur Magn-
ússon frá Gilhaga í Lýtings-
staðahreppi, f. 1892, d. 1979. For-
eldrar Jóhanns voru búsett að
bænum Varmalæk í Skagafirði til
ársins 1954 þar sem þau ráku
saumastofu og verslun en fluttu
þá til Reykjavíkur. Þau slitu síðar
þeirra eru Flóki Kristján Hall, f.
22.4. 2004, og Hilda Lóa Hall, f.
28.4. 2010. Móðir Rakelar er
Svanhvít Albertsdóttir, f. 1956. 3)
Ásgeir Vísir Jóhannsson, f. 26.9.
1988, er í sambúð með Öldu Dís
Arnardóttur, f. 9.1. 1993. Dóttir
þeirra er Ásthildur Erna Ásgeirs-
dóttir, f. 2.10. 2017. Móðir Ás-
geirs er Sigrún Einarsdóttir, f.
1961. 4) Þuríður Blær Jóhanns-
dóttir, f. 16.1. 1991, er í sambúð
með Guðmundi Felixsyni, f. 6.4.
1990. Móðir Blævar er Ilmur
Árnadóttir, f. 1958.
Jóhann gekk í Langholtsskóla
frá 1959-1961 og í Hlíðaskóla þar
til hann lauk fullnaðarprófi 1966.
Á sumrin var hann í sveit á ýms-
um stöðum á landinu. Jóhann
gekk síðar í Iðnskólann og lærði
veggfóður og dúklagningar,
starfaði við það og fékk í kjöl-
farið viðurnefnið Jói dúkari. En
hann starfaði einnig við ýmis
önnur störf, svo sem múrvið-
gerðir, að reisa ljósastaura, grafa
skurði og sigla á millilandaskipi.
Jóhann var alltaf með liti við
hönd og teiknaði ótal myndir.
Hann hafði skoðanir á þjóðfélags-
málum og skrifaði nokkrar grein-
ar í blöðin. Svo var hann mikill
uppfinningamaður og rissaði upp
þónokkur tæki og tól, t.a.m.
hnakk fyrir fatlaða.
Jóhann verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju í dag, 28. nóvem-
ber 2019, og hefst athöfnin kl. 15.
samvistum. Jóhann
var fimmta barn for-
eldra sinna en börn
þeirra voru átta tals-
ins. 1) Bragi Gunn-
arsson, f. 21.6. 1944,
d. 16.1. 2006, 2)
Sveinn Þröstur Gunn-
arsson, f. 26.7. 1945,
3) Hjörtur Þór Gunn-
arsson, f. 16.9. 1946,
d. 1.11. 2007, 4) Krist-
ján Ingi Gunnarsson,
f. 25.9. 1949, 5) Jóhann Vísir
Gunnarsson f. 20.1. 1951, d.
18.11. 2019 6) Svanhildur Helga
Gunnarsdóttir, f. 27.11. 1952, 7)
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, f.
26.11. 1955, d. 28.12. 2010, 8)
Gunnar Þórir Gunnarsson, f. 2.5.
1962, d. 18.9. 2017.
Jóhann Vísir átti fjögur börn.
1) Þröstur Rúnar Jóhannsson, f.
13.10 1971, giftur Sandy Ng Jo-
hannsson, f. 2.1. 1973. Börn
þeirra eru Coco Margaret Jo-
hannsson, f. 26.2. 2005, og Magn-
us Prostur Johannsson f. 16.12.
2006. Móðir Þrastar er Margrét
Þrastardóttir, f. 1953. 2) Rakel
Jóhannsdóttir, f. 9.3. 1977, gift
Konráði Hall f. 13.11. 1973. Börn
Við eftirlifandi systkini þín vilj-
um hér minnast þín og votta börn-
um, tengdabörnum, barnabörn-
um og öðrum ættingjum samúð
okkar.
Þótt þú hafir valið að ganga þá
lífsins braut sem þú gerðir áttum
við margar góðar stundir saman.
Þú hafðir stórt hjarta, varst trú-
aður og vinur litla mannsins.
Hugsaðir stórt og áttir margar
góðar hugmyndir þótt fáar þeirra
kæmust svo langt að vera fram-
kvæmdar. Þú hannaðir t.d. hnakk
fyrir fatlaða, í samstarfi við
frænda þinn, Jóhann Pétur
Sveinsson.
Þú lærðir dúklagningar og
vannst við þær í nokkuð mörg ár
og gerðir vel.
Þú þurftir stundum á hjálp
okkar að halda en áttir það til að
fara yfir strikið. Þú varst hjálp-
samur og réttir okkur oft hjálp-
arhönd, einkum þegar þú varst að
vinna að iðn þinni.
Útigangsfólkið í Reykjavík á
þér margt að þakka. Þegar þú
hafðir ráð á húsnæði skaust þú oft
skjólshúsi yfir það fólk og gafst
bæði mat og drykk ef eitthvað var
þá til. Þú hafðir hug á að stofna
samtök útigangsfólks en af því
varð ekki. Ef lögreglan var spurð
um þína hagi var svarið gjarnan:
Já, Jói, hann er vinur okkar.
Þakkað skal hér öllum þeim
sem studdu þig á erfiðum seinni
árum lífs þíns, s.s. starfsfólki á
geðdeildum og umsjónarmönnum
félagsmálaráðs Reykjavíkurborg-
ar, sem voru með mál þín á sinni
könnu.
Blessuð sé minning þín, kæri
bróðir, Guð varðveiti þig.
Fyrir hönd systkina þinna,
Svanhildur Helga.
Elsku bróðir. Við andlát þitt
rifjast upp góðar minningar frá
æsku okkar. Við syskinin voru
átta, ég sá fjórði og þú fimmti
strákurinn, síðan tvær systur og
Gunnar Þórir yngstur.
Þú varst skírður í höfuðið á
ömmu og afa, Lovísu Sveinsdótt-
ur og Jóhanni Magnússyni.
Hlaust þú nafnið Jóhann Vísir,
sem hluti af nafni ömmu.
Fyrstu ár okkar vorum við á
Varmalæk í Skagafirði. Ein fyrsta
minning mín er að ég datt í sund-
laug, sem var milli tveggja gróð-
urhúsa. Ég var með húfu, með
skyggni og bundna undir hökuna.
Þú dróst mig upp, með því að toga
í skyggnið, og þarna stóðum við
fjögurra og fimm ára, ég holdvot-
ur og þú grenjandi og sagðir „ég
greip í giggnið á Djána“.
Eitt sinn er við vorum að fara í
sveitina fengum við að gista hjá
afa og ömmu á Bergþórugötunni.
Sveinn föðurbróðir okkar átti að
taka okkur öll norður snemma
morguns. Amma var í sloppnum
sínum að taka til morgunverð og
nesti, en afi og Sveinn voru að
spjalla. Afi sat á rúmstokknum og
taldi sig vera að fara í buxurnar
sínar. Leitaði hann margoft að
seinni skálminni, en var með í
höndunum pils ömmu, sem var
eins á litinn og buxurnar hans.
Við tístum og hlógum að þessu.
Afi sagði að það væri með ólík-
indum með strákana. „Þeir gera
hvor annan vitlausan þegar þeir
eru saman, en ágætir sinn í hvoru
lagi.“ Afi sagði þessa sögu marg-
oft fyrir norðan og var mikið
hlegið að. Svo liðu árin og við náð-
um að verða blaðsöludrengir og
fórum á afgreiðslu Vísis í Þing-
holtsstræti. Voru þar mættir 12-
15 strákar. Afgreiðslumaðurinn
spurði þig um nafn og sagðir þú
Jóhann Vísir. Nokkrum sinnum
spurði hann og sagði svo: Láttu
ekki eins og fífl, út með þig. Þá
sagði ég: Jú, hann heitir Jóhann
Vísir og fengum við þá blöðin í
hendur. Var þá haldið niður á
torg og Austurstræti og kallað:
Vísir, Vísir. Seinna fékkst þú fría
áskrift að blaðinu út á nafnið,
enda eini nafni Vísis.
Eitt sinn þegar þú komst norð-
ur var ég fyrir í sveitinni. Þegar
bíllinn stöðvaði á melnum við
Varmalæk varst þú svo spenntur
að sjá kýrnar. Þú hljópst beint úr
bílnum að fjósinu og beint upp á
fjóshauginn, sem virtist traustur.
Þar seigstu hægt niður og stóð
loks aðeins höfuðið upp úr. Ég tók
þátt í að draga þig upp og taldi
mig þar með launa þér björg-
unina úr lauginni forðum.
Svona eru brot af æskuminn-
ingum um okkur, kæri bróðir, og
gott að ylja sér við þær, þegar
stóru tímamótin eru komin. Þú
fórst í iðnnám í dúklagningum og
varst mjög hugmyndaríkur, m.a.
veggfóðraðir þú sturtuklefa hjá
mér með rósamynstruðu ál-
þynnuveggfóðri. Reyndist þetta
mjög vel. Ýmsar nýjungar komst
þú með í iðn þinni. Líf þitt var
ekki dans á rósum. Í síðasta sím-
tali okkar sagðir þú mér að þú
hefðir mátt sinna börnum þínum
og barnabörnum betur. „Þau eru
perlurnar mínar og ég er stoltur
af þeim.“
Takk fyrir allt og allt, elsku
bróðir.
Kristján Ingi Gunnarsson.
Hallærisplanið seinnihluta árs-
ins 1970. Ég, nýlega orðin 17, sit í
aftursætinu, bílstjórinn skrúfar
niður rúðuna. Strákur stingur inn
höfðinu rétt til að segja hæ við bíl-
stjórann, er að flýta sér. Oh my
lord með George Harrison hvað
hann er sætur. Sá sæti sem er á
hraðferð ákveður fljótlega að
hægja á ferðinni og sest aftur í
hjá mér, kynnir sig sem Jóa og
það er spjallað eða öllu heldur,
hann talar. Um allt mögulegt.
Hve ljótt er að dæma fólk án þess
að þekkja til. Hvort lífvænlegt sé
handan við Vetrarbrautina eða
hinumegin við sólina. Spáir og
spekúlerar, alls kyns hugmyndir.
Hann er Skagfirðingur og fer
með vísur, kann ógrynni af þeim.
Segir einstaklega skemmtilega
frá. Ég er heilluð af þessum heim-
spekilegu vangaveltum og er með
stjörnur í augum þótt hann sé
reyndar svakalega gamall, segist
verða 20 ára í janúar. Hann má
ekki slóra lengur, það er beðið
eftir honum. Hann lítur á mig
með sínu strákslega heillandi
brosi og segir: Við sjáumst.
Og við sáumst oft, alltaf gam-
an. Þú hjálpaðir mér inn um
glugga í Glaumbæ svo ég, of ung
til að komast inn, gæti tekið þátt í
gleðinni, reddaðir inn í Sigtún,
spilaðir á skeiðar, fórst með vísur
og sagðir sögur úr fortíð og af
framtíð. Við kæró í nokkrar vikur
og ég varð ófrísk. Þrátt fyrir að
vera ekki kæró vorum við góðir
vinir í mörg ár. Svo góðir að mér
fannst alltaf að ég gæti boðið mér
heim til þín í tíma og ótíma þegar
mig langaði að spjalla eða fá sögu-
stund. Alltaf velkomin.
Þú kenndir mér á þinn velvilj-
aða máta að taka tillit til annarra
og að ekki væri fallegt að særa
náungann. Aldrei sagðirðu
styggðaryrði við mig, ekki einu
sinni þegar ég hellti niður 150
lítrum af spíra sem einhver hafði
komið fyrir í kjallaratröppunum
hjá þér. Ekki heldur þegar ég
stóð uppi með súlulaust tjald í
Þórsmörk og rændi súlum úr
næsta tjaldi, vissi ekki að það var
þitt. Magga, svona lagað gerir
maður ekki. En allt var samt í lagi
fyrst það var tjaldið þitt sem var
ónothæft. Vildir ekki súlurnar.
Ég gisti bara hjá þér ef ég fæ
hvergi næturstað, sagðirðu kank-
vís.
Þú varst einstaklega glaðlynd-
ur, blátt áfram, ljúfur og fróður
en með afleitt tímaskyn. Sem
dæmi þegar kom að fermingu
sonar okkar og þú vildir kaupa í
matinn fyrir ferminguna, matur-
inn kom, bara viku eftir fermingu.
Svo heyrði ég ekki í þér í mörg
ár, ekki fyrr en þú varst kominn á
spítalann í haust. Vildir fá fréttir
af frumburðinum okkar. Varst
ákaflega stoltur af börnunum þín-
um og barnabörnum. Sást eftir að
hafa ekki gefið þeim meiri tíma,
nú átti að bæta úr. Varst bjart-
sýnn á framtíðina og bata. Ekki
hræddur við dauðann, þegar
stundin kemur þá horfist maður í
augu við það.
Stundin kom svo miklu fyrr en
búist var við. Kannski hefur þú nú
séð hvað leynist handan við sól og
vetrarbraut, fundið sælureit fyrir
heimilislausa og aðra bágstadda
og vinnur að úrræðum að koma
þeim þangað á sem bestan hátt.
Leikur glaður með skeiðar, málar
listaverk og heillar stjörnur him-
inhvolfsins.
Takk Jói minn fyrir vináttu,
ást og hlýju.
Margrét Hrönn
Þrastardóttir.
Jói dúkari var mikill ákafa-
maður, stórhuga með ríkt hug-
myndaflug. Hann fór ekki
framhjá neinum þar sem hann
var. Var góður fagmaður og harð-
duglegur til verka þegar hann tók
á því. Uppátækjasamur, dansari
og duflari á yngri árum og eign-
aðist börn með nokkrum konum.
Vel greindur en hneigður fyrir
loftkastala og nýtti því miður ekki
gáfur sínar sér og sínum til heilla.
Lifði síðari hluta ævinnar óreglu-
sömu lífi áfengis- og vímuefna-
neytandans.
Hann var að nálgast fertugt
þegar við kynntumst honum.
Varð hálfgildings tengdasonur í
nokkur ár og áttum við töluvert
saman við hann að sælda en
yngsta dóttir hans varð heima-
gangur hjá okkur, afa sínum og
fósturömmu.
Jói átti einstöku barnaláni að
fagna og var mjög stoltur af börn-
um sínum, sem eru hvert öðru
betur gerð og hefur vegnað vel.
Og þrátt fyrir kannski óhefð-
bundin fjölskyldusamskipti hefur
aldrei leynt sér gagnkvæm vænt-
umþykja þeirra í milli. Það var
fátt sem hann hefði ekki viljað
gera fyrir börn sín hefðu aðstæð-
ur hans verið hagstæðari.
Samskiptin við Jóa gátu verið
dálítið krefjandi því hugmyndir
hans og fyrirætlanir, sem hann
átti til að lýsa í löngu og ítarlegu
máli og gátu vissulega verið
heillandi, voru oftar en ekki harla
fjarri raunveruleikanum.
Þrátt fyrir löngum hráslaga-
legt líf og samneyti við fólk sem
ekki fylgdi alltaf lögum og reglum
varðveitti hann sitt góða innræti
og hann hafði sína eigin réttlæt-
iskennd. Hún var kannski ekki al-
veg sú sama og hin almennt við-
urkennda, en samt laus við allt
refsivert og hann var alla tíð heið-
arlegur í samskiptum við okkur.
Þegar Blær yngsta dóttir Jóa
var á sjötta ári tókum við hana
eitt sinn með okkur í ferð norður í
land og heimsóttum þá skyldfólk
pabba hennar á Varmalæk í
Skagafirði. Þar fékk hún að heyra
ýmsar sögur af honum og ævin-
týrum hans þegar hann var
krakki. Á ferð um sveitina gátum
við svo sýnt henni ýmsa staði sem
við sögu höfðu komið. Eitt sinn
þegar þessi bráðgera telpa hafði
setið lengi þegjandi í aftursætinu
heyrum við að hún segir:
Mér finnst eitthvað bogið við
þetta.
Nú hvað er það?
Að pabbi sem er svona gleði-
maður og kvennamaður og
drykkjumaður hafi einu sinni ver-
ið lítill strákur.
Þetta mætti kannski kalla stutt
ævisöguágrip.
Það er gott að hugsa til þess að
í erfiðum veikindum síðustu
mánuði fékk Jói góða aðhlynn-
ingu og viðmót af hálfu starfs-
fólks Landspítalans, sem ein-
kenndist af fagmennsku og
velvild. Komið var fram við hann
af skilningi og virðingu; krabba-
meinslækninum hans þótti hann
skemmtilegur og hafði gaman af
sögunum hans.
Árni Björnsson og
Ingibjörg Helgadóttir.
Jóhann Vísir
Gunnarsson
Við spegilsléttan fjörð og stjörnubjartan
himin yfirgaf okkar yndislegi
HALLDÓR PÁLS FRIÐBJARNARSON
þessa jarðnesku veröld í mikilli kyrrð og ró
á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði
aðfaranótt 26. nóvember.
Útför verður í Ísafjarðarkirkju laugardaginn 30. nóvember
klukkan 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Tinda í
Hnífsdal.
Fjölskyldan vill nota þetta tækifæri og senda bestu kveðjur til
alls starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar fyrir góða umhyggju
fram á síðustu stund.
Sigrún Jóna Guðmunda Sigurðardóttir
Herdís, Ragnar Jón, Auður, Ólöf Mjöll,
Halldór Kristinn, Erla
Sigrún Elísabet, Halldóra Sigrún, Henrý Ottó
Páll Halldór, Kristín, Sólveig Steinunn, Bjössi, Rebekka
Helga, Birnir Karl, Auður Margrét, Birgir, Rebekka Rós,
Ísak, Þórunn Eva, Kjartan
Róbert H. Hnífsdal, Rún, Lydía Björk, Ómar, Katrín Ösp,
Magdalena, Harpa Lind, Hreinn
Nebojsa, Vesna, Jelena, Jovana, Gauti
og öll barnabarnabörnin
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KRISTÍN PÁLSDÓTTIR
Siglufirði,
lést aðfaranótt mánudagsins 25. nóvember
á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
30. nóvember klukkan 14.
Þökkum starfsfólki HSN og starfsfólki krabbameinsdeildar
Sjúkrahússins á Akureyri fyrir ómetanlega umönnun og
stuðning. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að
hafa samband við Slysavarnardeildina Vörn.
Hans Ragnar Ragnarsson
María Hansdóttir Anna Soffía Halldórsdóttir
Ólöf Gréta Hansdóttir Birkir Ingi Símonarson
Ragnar Már Hansson Vigdís Guðmundsdóttir
og barnabörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HELGI INGVAR GUÐMUNDSSON
vörubílstjóri,
Gullsmára 9, Kópavogi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 24. nóvember.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi
þriðjudaginn 3. desember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast
Helga Ingvars er bent á styrktarsjóð Kiwanisklúbbsins Eldeyjar,
0536-26-008567, kt. 571178-0449.
Nanna S. Þorleifsdóttir
Margrét Helgadóttir Guðjón Halldórsson
Guðmundur Þ. Helgason Linda Líf Margrétardóttir
Hildur Helgadóttir
Sindri Guðjónsson
Helgi Ævar Guðmundsson Trausti Marel Guðmundsson
og langafastelpurnar
Okkar ástkæra
KARÓLÍNA EIRÍKSDÓTTIR,
Eiðistorgi 13, Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild Landspítalans
þriðjudaginn 12. nóvember. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þakkir sendum við starfsfólki líknardeildar, HERU og
heimahjúkrunar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rafn Vídalín Friðriksson og Sóley Ösp Vilhjálmsdóttir
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
geðlæknir,
er látin.
Páll Sigurðsson
Jónína Pálsdóttir
Ingibjörg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Sigurður Páll Pálsson
Jón Rúnar Pálsson