Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 21

Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 ✝ Jóhann VísirGunnarsson, oft kallaður Jói dúkari, fæddist 20. janúar 1951. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 18. nóv- ember 2019. Jóhann Vísir var sonur hjónanna Þuríðar Kristjánsdóttur, f. 9.1. 1921, d. 28.4. 1991, frá Krithóli, Lýtings- staðahreppi, Skagafirði og Gunn- ars Jóhannssonar, f. 9.2. 1922, d. 9.1. 1979, frá Mælifellsá í sama hreppi. Foreldrar Þuríðar voru Ingibjörg Jóhannsdóttir, f. í Þor- steinsstaðakoti 1888, d. 1947, og Kristján Árnason frá Gili í Svart- árdal, f. 1885, d. 1964. Foreldrar Gunnars voru Lovísa Sveins- dóttir frá Mælifellsá, f. 1894, d. 1979, og Jóhann Pétur Magn- ússon frá Gilhaga í Lýtings- staðahreppi, f. 1892, d. 1979. For- eldrar Jóhanns voru búsett að bænum Varmalæk í Skagafirði til ársins 1954 þar sem þau ráku saumastofu og verslun en fluttu þá til Reykjavíkur. Þau slitu síðar þeirra eru Flóki Kristján Hall, f. 22.4. 2004, og Hilda Lóa Hall, f. 28.4. 2010. Móðir Rakelar er Svanhvít Albertsdóttir, f. 1956. 3) Ásgeir Vísir Jóhannsson, f. 26.9. 1988, er í sambúð með Öldu Dís Arnardóttur, f. 9.1. 1993. Dóttir þeirra er Ásthildur Erna Ásgeirs- dóttir, f. 2.10. 2017. Móðir Ás- geirs er Sigrún Einarsdóttir, f. 1961. 4) Þuríður Blær Jóhanns- dóttir, f. 16.1. 1991, er í sambúð með Guðmundi Felixsyni, f. 6.4. 1990. Móðir Blævar er Ilmur Árnadóttir, f. 1958. Jóhann gekk í Langholtsskóla frá 1959-1961 og í Hlíðaskóla þar til hann lauk fullnaðarprófi 1966. Á sumrin var hann í sveit á ýms- um stöðum á landinu. Jóhann gekk síðar í Iðnskólann og lærði veggfóður og dúklagningar, starfaði við það og fékk í kjöl- farið viðurnefnið Jói dúkari. En hann starfaði einnig við ýmis önnur störf, svo sem múrvið- gerðir, að reisa ljósastaura, grafa skurði og sigla á millilandaskipi. Jóhann var alltaf með liti við hönd og teiknaði ótal myndir. Hann hafði skoðanir á þjóðfélags- málum og skrifaði nokkrar grein- ar í blöðin. Svo var hann mikill uppfinningamaður og rissaði upp þónokkur tæki og tól, t.a.m. hnakk fyrir fatlaða. Jóhann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, 28. nóvem- ber 2019, og hefst athöfnin kl. 15. samvistum. Jóhann var fimmta barn for- eldra sinna en börn þeirra voru átta tals- ins. 1) Bragi Gunn- arsson, f. 21.6. 1944, d. 16.1. 2006, 2) Sveinn Þröstur Gunn- arsson, f. 26.7. 1945, 3) Hjörtur Þór Gunn- arsson, f. 16.9. 1946, d. 1.11. 2007, 4) Krist- ján Ingi Gunnarsson, f. 25.9. 1949, 5) Jóhann Vísir Gunnarsson f. 20.1. 1951, d. 18.11. 2019 6) Svanhildur Helga Gunnarsdóttir, f. 27.11. 1952, 7) Hrafnhildur Gunnarsdóttir, f. 26.11. 1955, d. 28.12. 2010, 8) Gunnar Þórir Gunnarsson, f. 2.5. 1962, d. 18.9. 2017. Jóhann Vísir átti fjögur börn. 1) Þröstur Rúnar Jóhannsson, f. 13.10 1971, giftur Sandy Ng Jo- hannsson, f. 2.1. 1973. Börn þeirra eru Coco Margaret Jo- hannsson, f. 26.2. 2005, og Magn- us Prostur Johannsson f. 16.12. 2006. Móðir Þrastar er Margrét Þrastardóttir, f. 1953. 2) Rakel Jóhannsdóttir, f. 9.3. 1977, gift Konráði Hall f. 13.11. 1973. Börn Við eftirlifandi systkini þín vilj- um hér minnast þín og votta börn- um, tengdabörnum, barnabörn- um og öðrum ættingjum samúð okkar. Þótt þú hafir valið að ganga þá lífsins braut sem þú gerðir áttum við margar góðar stundir saman. Þú hafðir stórt hjarta, varst trú- aður og vinur litla mannsins. Hugsaðir stórt og áttir margar góðar hugmyndir þótt fáar þeirra kæmust svo langt að vera fram- kvæmdar. Þú hannaðir t.d. hnakk fyrir fatlaða, í samstarfi við frænda þinn, Jóhann Pétur Sveinsson. Þú lærðir dúklagningar og vannst við þær í nokkuð mörg ár og gerðir vel. Þú þurftir stundum á hjálp okkar að halda en áttir það til að fara yfir strikið. Þú varst hjálp- samur og réttir okkur oft hjálp- arhönd, einkum þegar þú varst að vinna að iðn þinni. Útigangsfólkið í Reykjavík á þér margt að þakka. Þegar þú hafðir ráð á húsnæði skaust þú oft skjólshúsi yfir það fólk og gafst bæði mat og drykk ef eitthvað var þá til. Þú hafðir hug á að stofna samtök útigangsfólks en af því varð ekki. Ef lögreglan var spurð um þína hagi var svarið gjarnan: Já, Jói, hann er vinur okkar. Þakkað skal hér öllum þeim sem studdu þig á erfiðum seinni árum lífs þíns, s.s. starfsfólki á geðdeildum og umsjónarmönnum félagsmálaráðs Reykjavíkurborg- ar, sem voru með mál þín á sinni könnu. Blessuð sé minning þín, kæri bróðir, Guð varðveiti þig. Fyrir hönd systkina þinna, Svanhildur Helga. Elsku bróðir. Við andlát þitt rifjast upp góðar minningar frá æsku okkar. Við syskinin voru átta, ég sá fjórði og þú fimmti strákurinn, síðan tvær systur og Gunnar Þórir yngstur. Þú varst skírður í höfuðið á ömmu og afa, Lovísu Sveinsdótt- ur og Jóhanni Magnússyni. Hlaust þú nafnið Jóhann Vísir, sem hluti af nafni ömmu. Fyrstu ár okkar vorum við á Varmalæk í Skagafirði. Ein fyrsta minning mín er að ég datt í sund- laug, sem var milli tveggja gróð- urhúsa. Ég var með húfu, með skyggni og bundna undir hökuna. Þú dróst mig upp, með því að toga í skyggnið, og þarna stóðum við fjögurra og fimm ára, ég holdvot- ur og þú grenjandi og sagðir „ég greip í giggnið á Djána“. Eitt sinn er við vorum að fara í sveitina fengum við að gista hjá afa og ömmu á Bergþórugötunni. Sveinn föðurbróðir okkar átti að taka okkur öll norður snemma morguns. Amma var í sloppnum sínum að taka til morgunverð og nesti, en afi og Sveinn voru að spjalla. Afi sat á rúmstokknum og taldi sig vera að fara í buxurnar sínar. Leitaði hann margoft að seinni skálminni, en var með í höndunum pils ömmu, sem var eins á litinn og buxurnar hans. Við tístum og hlógum að þessu. Afi sagði að það væri með ólík- indum með strákana. „Þeir gera hvor annan vitlausan þegar þeir eru saman, en ágætir sinn í hvoru lagi.“ Afi sagði þessa sögu marg- oft fyrir norðan og var mikið hlegið að. Svo liðu árin og við náð- um að verða blaðsöludrengir og fórum á afgreiðslu Vísis í Þing- holtsstræti. Voru þar mættir 12- 15 strákar. Afgreiðslumaðurinn spurði þig um nafn og sagðir þú Jóhann Vísir. Nokkrum sinnum spurði hann og sagði svo: Láttu ekki eins og fífl, út með þig. Þá sagði ég: Jú, hann heitir Jóhann Vísir og fengum við þá blöðin í hendur. Var þá haldið niður á torg og Austurstræti og kallað: Vísir, Vísir. Seinna fékkst þú fría áskrift að blaðinu út á nafnið, enda eini nafni Vísis. Eitt sinn þegar þú komst norð- ur var ég fyrir í sveitinni. Þegar bíllinn stöðvaði á melnum við Varmalæk varst þú svo spenntur að sjá kýrnar. Þú hljópst beint úr bílnum að fjósinu og beint upp á fjóshauginn, sem virtist traustur. Þar seigstu hægt niður og stóð loks aðeins höfuðið upp úr. Ég tók þátt í að draga þig upp og taldi mig þar með launa þér björg- unina úr lauginni forðum. Svona eru brot af æskuminn- ingum um okkur, kæri bróðir, og gott að ylja sér við þær, þegar stóru tímamótin eru komin. Þú fórst í iðnnám í dúklagningum og varst mjög hugmyndaríkur, m.a. veggfóðraðir þú sturtuklefa hjá mér með rósamynstruðu ál- þynnuveggfóðri. Reyndist þetta mjög vel. Ýmsar nýjungar komst þú með í iðn þinni. Líf þitt var ekki dans á rósum. Í síðasta sím- tali okkar sagðir þú mér að þú hefðir mátt sinna börnum þínum og barnabörnum betur. „Þau eru perlurnar mínar og ég er stoltur af þeim.“ Takk fyrir allt og allt, elsku bróðir. Kristján Ingi Gunnarsson. Hallærisplanið seinnihluta árs- ins 1970. Ég, nýlega orðin 17, sit í aftursætinu, bílstjórinn skrúfar niður rúðuna. Strákur stingur inn höfðinu rétt til að segja hæ við bíl- stjórann, er að flýta sér. Oh my lord með George Harrison hvað hann er sætur. Sá sæti sem er á hraðferð ákveður fljótlega að hægja á ferðinni og sest aftur í hjá mér, kynnir sig sem Jóa og það er spjallað eða öllu heldur, hann talar. Um allt mögulegt. Hve ljótt er að dæma fólk án þess að þekkja til. Hvort lífvænlegt sé handan við Vetrarbrautina eða hinumegin við sólina. Spáir og spekúlerar, alls kyns hugmyndir. Hann er Skagfirðingur og fer með vísur, kann ógrynni af þeim. Segir einstaklega skemmtilega frá. Ég er heilluð af þessum heim- spekilegu vangaveltum og er með stjörnur í augum þótt hann sé reyndar svakalega gamall, segist verða 20 ára í janúar. Hann má ekki slóra lengur, það er beðið eftir honum. Hann lítur á mig með sínu strákslega heillandi brosi og segir: Við sjáumst. Og við sáumst oft, alltaf gam- an. Þú hjálpaðir mér inn um glugga í Glaumbæ svo ég, of ung til að komast inn, gæti tekið þátt í gleðinni, reddaðir inn í Sigtún, spilaðir á skeiðar, fórst með vísur og sagðir sögur úr fortíð og af framtíð. Við kæró í nokkrar vikur og ég varð ófrísk. Þrátt fyrir að vera ekki kæró vorum við góðir vinir í mörg ár. Svo góðir að mér fannst alltaf að ég gæti boðið mér heim til þín í tíma og ótíma þegar mig langaði að spjalla eða fá sögu- stund. Alltaf velkomin. Þú kenndir mér á þinn velvilj- aða máta að taka tillit til annarra og að ekki væri fallegt að særa náungann. Aldrei sagðirðu styggðaryrði við mig, ekki einu sinni þegar ég hellti niður 150 lítrum af spíra sem einhver hafði komið fyrir í kjallaratröppunum hjá þér. Ekki heldur þegar ég stóð uppi með súlulaust tjald í Þórsmörk og rændi súlum úr næsta tjaldi, vissi ekki að það var þitt. Magga, svona lagað gerir maður ekki. En allt var samt í lagi fyrst það var tjaldið þitt sem var ónothæft. Vildir ekki súlurnar. Ég gisti bara hjá þér ef ég fæ hvergi næturstað, sagðirðu kank- vís. Þú varst einstaklega glaðlynd- ur, blátt áfram, ljúfur og fróður en með afleitt tímaskyn. Sem dæmi þegar kom að fermingu sonar okkar og þú vildir kaupa í matinn fyrir ferminguna, matur- inn kom, bara viku eftir fermingu. Svo heyrði ég ekki í þér í mörg ár, ekki fyrr en þú varst kominn á spítalann í haust. Vildir fá fréttir af frumburðinum okkar. Varst ákaflega stoltur af börnunum þín- um og barnabörnum. Sást eftir að hafa ekki gefið þeim meiri tíma, nú átti að bæta úr. Varst bjart- sýnn á framtíðina og bata. Ekki hræddur við dauðann, þegar stundin kemur þá horfist maður í augu við það. Stundin kom svo miklu fyrr en búist var við. Kannski hefur þú nú séð hvað leynist handan við sól og vetrarbraut, fundið sælureit fyrir heimilislausa og aðra bágstadda og vinnur að úrræðum að koma þeim þangað á sem bestan hátt. Leikur glaður með skeiðar, málar listaverk og heillar stjörnur him- inhvolfsins. Takk Jói minn fyrir vináttu, ást og hlýju. Margrét Hrönn Þrastardóttir. Jói dúkari var mikill ákafa- maður, stórhuga með ríkt hug- myndaflug. Hann fór ekki framhjá neinum þar sem hann var. Var góður fagmaður og harð- duglegur til verka þegar hann tók á því. Uppátækjasamur, dansari og duflari á yngri árum og eign- aðist börn með nokkrum konum. Vel greindur en hneigður fyrir loftkastala og nýtti því miður ekki gáfur sínar sér og sínum til heilla. Lifði síðari hluta ævinnar óreglu- sömu lífi áfengis- og vímuefna- neytandans. Hann var að nálgast fertugt þegar við kynntumst honum. Varð hálfgildings tengdasonur í nokkur ár og áttum við töluvert saman við hann að sælda en yngsta dóttir hans varð heima- gangur hjá okkur, afa sínum og fósturömmu. Jói átti einstöku barnaláni að fagna og var mjög stoltur af börn- um sínum, sem eru hvert öðru betur gerð og hefur vegnað vel. Og þrátt fyrir kannski óhefð- bundin fjölskyldusamskipti hefur aldrei leynt sér gagnkvæm vænt- umþykja þeirra í milli. Það var fátt sem hann hefði ekki viljað gera fyrir börn sín hefðu aðstæð- ur hans verið hagstæðari. Samskiptin við Jóa gátu verið dálítið krefjandi því hugmyndir hans og fyrirætlanir, sem hann átti til að lýsa í löngu og ítarlegu máli og gátu vissulega verið heillandi, voru oftar en ekki harla fjarri raunveruleikanum. Þrátt fyrir löngum hráslaga- legt líf og samneyti við fólk sem ekki fylgdi alltaf lögum og reglum varðveitti hann sitt góða innræti og hann hafði sína eigin réttlæt- iskennd. Hún var kannski ekki al- veg sú sama og hin almennt við- urkennda, en samt laus við allt refsivert og hann var alla tíð heið- arlegur í samskiptum við okkur. Þegar Blær yngsta dóttir Jóa var á sjötta ári tókum við hana eitt sinn með okkur í ferð norður í land og heimsóttum þá skyldfólk pabba hennar á Varmalæk í Skagafirði. Þar fékk hún að heyra ýmsar sögur af honum og ævin- týrum hans þegar hann var krakki. Á ferð um sveitina gátum við svo sýnt henni ýmsa staði sem við sögu höfðu komið. Eitt sinn þegar þessi bráðgera telpa hafði setið lengi þegjandi í aftursætinu heyrum við að hún segir: Mér finnst eitthvað bogið við þetta. Nú hvað er það? Að pabbi sem er svona gleði- maður og kvennamaður og drykkjumaður hafi einu sinni ver- ið lítill strákur. Þetta mætti kannski kalla stutt ævisöguágrip. Það er gott að hugsa til þess að í erfiðum veikindum síðustu mánuði fékk Jói góða aðhlynn- ingu og viðmót af hálfu starfs- fólks Landspítalans, sem ein- kenndist af fagmennsku og velvild. Komið var fram við hann af skilningi og virðingu; krabba- meinslækninum hans þótti hann skemmtilegur og hafði gaman af sögunum hans. Árni Björnsson og Ingibjörg Helgadóttir. Jóhann Vísir Gunnarsson Við spegilsléttan fjörð og stjörnubjartan himin yfirgaf okkar yndislegi HALLDÓR PÁLS FRIÐBJARNARSON þessa jarðnesku veröld í mikilli kyrrð og ró á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði aðfaranótt 26. nóvember. Útför verður í Ísafjarðarkirkju laugardaginn 30. nóvember klukkan 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Tinda í Hnífsdal. Fjölskyldan vill nota þetta tækifæri og senda bestu kveðjur til alls starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar fyrir góða umhyggju fram á síðustu stund. Sigrún Jóna Guðmunda Sigurðardóttir Herdís, Ragnar Jón, Auður, Ólöf Mjöll, Halldór Kristinn, Erla Sigrún Elísabet, Halldóra Sigrún, Henrý Ottó Páll Halldór, Kristín, Sólveig Steinunn, Bjössi, Rebekka Helga, Birnir Karl, Auður Margrét, Birgir, Rebekka Rós, Ísak, Þórunn Eva, Kjartan Róbert H. Hnífsdal, Rún, Lydía Björk, Ómar, Katrín Ösp, Magdalena, Harpa Lind, Hreinn Nebojsa, Vesna, Jelena, Jovana, Gauti og öll barnabarnabörnin Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN PÁLSDÓTTIR Siglufirði, lést aðfaranótt mánudagsins 25. nóvember á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 30. nóvember klukkan 14. Þökkum starfsfólki HSN og starfsfólki krabbameinsdeildar Sjúkrahússins á Akureyri fyrir ómetanlega umönnun og stuðning. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að hafa samband við Slysavarnardeildina Vörn. Hans Ragnar Ragnarsson María Hansdóttir Anna Soffía Halldórsdóttir Ólöf Gréta Hansdóttir Birkir Ingi Símonarson Ragnar Már Hansson Vigdís Guðmundsdóttir og barnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI INGVAR GUÐMUNDSSON vörubílstjóri, Gullsmára 9, Kópavogi, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 24. nóvember. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi þriðjudaginn 3. desember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast Helga Ingvars er bent á styrktarsjóð Kiwanisklúbbsins Eldeyjar, 0536-26-008567, kt. 571178-0449. Nanna S. Þorleifsdóttir Margrét Helgadóttir Guðjón Halldórsson Guðmundur Þ. Helgason Linda Líf Margrétardóttir Hildur Helgadóttir Sindri Guðjónsson Helgi Ævar Guðmundsson Trausti Marel Guðmundsson og langafastelpurnar Okkar ástkæra KARÓLÍNA EIRÍKSDÓTTIR, Eiðistorgi 13, Seltjarnarnesi, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 12. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þakkir sendum við starfsfólki líknardeildar, HERU og heimahjúkrunar. Fyrir hönd aðstandenda, Rafn Vídalín Friðriksson og Sóley Ösp Vilhjálmsdóttir Eiginkona mín og móðir okkar, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR geðlæknir, er látin. Páll Sigurðsson Jónína Pálsdóttir Ingibjörg Pálsdóttir Dögg Pálsdóttir Sigurður Páll Pálsson Jón Rúnar Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.