Morgunblaðið - 28.11.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 28.11.2019, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 Raðauglýsingar Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Allt að 6 MW virkjun í Þverá, Vopnafjarðarhreppi Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam- kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Þverárdals ehf. er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Hreyfisalurinn er opinn kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. Ukulele kl. 10, ókeypis kennsla og hljóðfæri á staðnum. Myndlist kl.13. Söngfugl- arnir kl. 13. Bókmenntaklúbbur kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Gönguhópur með göngustjóra kl. 10. Samvera með presti kl. 10.30. Opin vinnustofa kl. 9-15. Myndlist með Elsu kl. 13-17. Söngstund kl. 13.45-14.45. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535 2700. Boðinn Botsía og gönguhópur kl. 10.30. Brids og kanasta kl. 13. Dalbraut 27 Prjónakaffi kl. 13.30 í vinnustofu. Stólajóga í bókastofu kl. 11. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Postu- línsmálun kl. 9. Föndurhornið kl. 9. Leikfimi kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Selmuhópur kl. 13. Söngur kl. 13.30- 14.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Minnum á Jólabingó Hollvina á föstu- dag kl. 13. Einnig minnum við á Jólamarkaðinn á laugardag kl. 10-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9. Handavinnuhópar/opin handverkstofa kl. 9-12. Vítamín í Valsheimilinu kl. 9.45. Frjáls spila- mennska kl. 13-16.30. Prjónakaffi kl. 13. Ferð í Fly Over Iceland kl. 12.30. Verið öll hjartanlega velkomin. Nánari uppl. í síma 4119450. Flatahrauni 3 Dansleikur verður haldinn í Hraunseli Flatahrauni 3 laugardaginn 30. nóv. Dansbandið leikur fyrir dansi frá kl. 20- 23. Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Frí Vatnsleikfimi kl. 7.30/15.15. Qi-gong Sjálandi kl. 9. Frí, Liðstyrkur Ásgarði kl. 11.15. Frí karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Málun Smiðja Kirkjuhvoli kl. 13. Saumanámskeið í Jónshúsi kl. 13. Aðventustund í Jónshúsi. Nemendur úr Garðaskóla verða með jólaföndur frá kl. 9.30- 12. Allir velkomnir. Senjoríturnar syngja fyrir okkur í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg 3-5 111 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Línudans kl. 12.30-13.30, perlusaumur kl. 13-16. Bútasaumur kl.13-16. Myndlist kl. 13-16. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 leikfimi, kl. 10.50 jóga, kl. 13 bók- band, kl. 13 bingó, kl. 16 myndlist, kl. 19 Bridsfélag Kópavogs. Grensáskirkja Á fimmtudögum kl. 18.15-18.45 er boðið upp á núvit- undariðkun á kristnum grunni í kapellu Grensáskirkju. Stundin er öllum opin og skráning óþörf. Gullsmári Handavinna kl. 9 og 13, jóga kl. 9.30 og 17. Brids kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30. Bænastund kl. 9.30-10. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl. 12.30-14. Brids kl. 13-15. Jóga kl. 14.15-15.15. Samsöngur kl. 15.30-16.15, Matthías Ægisson leikur undir á píanó og allir eru velkomnir að vera með. Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl 8-12 alla daga. Dansleikfimi kl. 9. Qi-gong kl. 10. Pílukast kl. 13. Opið hús auglýst sérstaklega. Vatns- leikifimi í Ásvallalaug kl 14.40. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Jóga með Carynu kl. 9. Opin vinnustofa kl. 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Botsía með Elínu kl. 10. Jóga með Ragnheiði 11.10-12. Jóga með Ragnheiði kl. 12.05-13. Félagsvist kl. 13.15. Síðasti dagur til að skrá sig í bíóferð! Korpúlfar Pútt kl. 10 á Korpúlfsstöðum, styrktarleikfimi með sjúkra- þjálfara kl. 10 í Borgum, leikfimi í Egilshöll kl. 11 og tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. Leshópur Korpúlfa kl. 13 í Borgum. Skákmót i Borgum, ungir og aldnir keppa, hefst kl. 14 tefldar verða 7 umferðir, 10 mín. skákir, allir hjartanlega velkomnir. Botsía fellur niður vegna skákmótsins. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, opin lista- smiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, göngu- hópurinn kl. 14. Tölvu-og snjalltækjakennsla kl. 15. Uppl. í s. 411 2760. Selfoss Kl. 9-14.30 dagskrá samkvæmt stundatöflu. Kl. 14.45-10 opið hús, nemendur Tónlistarskólans koma og spila fyrir okkur. Bjartmar sér um kaffi og meðlætið. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Bókband Skóla- braut kl. 9. Billjard, Selinu kl. 10. Jóga með Öldu í salnum á Skóla- braut kl. 11. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Karlakaffi í safnaðar- heimilinu kl. 14. Ath. þið sem skráð eru á ,,Gaman saman" í salnum á Skólabraut að byrjað er kl. 17. Léttar veitingar, söngur, dans og gleði. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík ZUMBA Gold byrjendur kl. 9.20. ZUMBA Gold framhald kl.10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi kl. 11.30. Bókmenntahópur FEB síðasti tíminn fyrir jól verður fimmtudaginn 28. nóv. kl. 13-15. Þá verður lokið við að lesa og ræða bók Bergsveins Birgissonar, Lifandi lífslækur. Kl. 14. fáum við höfundinn í heimsókn. Endilega notfærið ykkur tækifærið til að kynnast hugarheimi Berg- sveins. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.þ.h. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Eco Fi - Stærðir M-XXL Svart og hvítt. Verð 1.790 kr. Tahoo Maxi - Stærðir S-3XL Svart, hvítt og beige. Verð 1.790 kr. Eco Si - Stærðir M-XXL Svart og hvítt. Verð 1.790 kr. Laugavegi 178, 105 Reykjavík sími 551 3366. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Húsviðhald atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Vantar þig dekk? FINNA.is Hjörtur Hjartar er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Ég kynntist Hirti ungur að ár- um þegar hann var að slá sér upp með Jöggu móðursystur minni. Þau voru oft fengin til að passa mig sem eflaust hefur ekki verið það rómantískasta sem þau gerðu í tilhugalífinu. Ég var oftar en ekki með eyrnabólgu og org- aði út í eitt. Hjörtur sagði að eina ráðið við þessu hefði verið bíltúr á malarveginum í kringum Rauða- vatn. Þessi ósköp gerðu þau sem betur fer ekki afhuga barneign- um. Frumburðurinn, Klemmi frændi, varð strax mikill vinur minn og ég hef varið ófáum stundum á heimili þeirra. Hjört- ur og Jagga bjuggu um árabil í Álaborg þar sem hann stundaði nám. Á sama tíma bjó fjölskylda mín í Stokkhólmi og var hist við hvert tækifæri sem gafst. Það rifjast upp margar skemmtilegar sögur frá þessum tímum. Í einni heimsókninni fóru Hjörtur og pabbi ásamt okkur frændum að sækja jólatré út í skóg á Þorláks- messu. Eitthvað gekk erfiðlega að finna rétta tréð og var farið að rökkva verulega þegar það tókst. Stórglæsilegt tré, að þeirra sögn. Þegar aðfangadagur rann upp og skreyta átti tréð reyndist það hinsvegar arfaljótt, bæði illa gulnað og visið, skógarhöggs- mönnum til mikillar undrunar. Þá voru góð ráð dýr. Þeir svilar enduðu með því að stöðva vöru- bílstjóra á leið með afgangstré á haugana og fengu að nappa einu slíku. Það fer fáum sögum af ánægju systranna með jólatréð þetta árið. Hjörtur J. Hjartar ✝ Hjörtur Jóns-son Hjartar fæddist 11. júní 1948. Hann lést 17. nóvember 2019. Útför hans var gerð 23. nóvember 2019. Hjörtur starfaði lengi vel hjá Eim- skip og sinnti for- stöðustarfi m.a. í Rotterdam, Ham- borg og Gautaborg. Þegar ég ákvað að fara í framhaldsnám varð Erasmus í Rot- terdam fyrir valinu eftir ráðleggingar Hjartar. Þar kynnt- ist ég Ásthildi, til- vonandi eiginkonu minni, sem svo skemmtilega vildi til að hafði áð- ur starfað sem ritari hjá Hirti. Ég hef oft hugsað hvað þessi góðu ráð réðu miklu um framtíð mína. Fyrir um níu árum fjárfesti Klemmi ásamt félögum í Orf líf- tækni. Hjörtur tók sæti í stjórn félagsins og gerðist síðar stjórn- arformaður þess. Í stjórnartíð hans þróaðist félagið úr því að vera lítið sprotafyrirtæki í arð- bært alþjóðlegt líftæknifyrirtæki sem selur húðvörur um allan heim. Fyrir um þremur árum tók ég sjálfur sæti í stjórn Orf og varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að starfa með Hirti. Þegar hann þurfti frá að hverfa sökum veikinda tók ég við keflinu af hon- um. Hjörtur var alla tíð mjög áhugasamur um félagið. Hann gladdist mjög yfir velgengni þess og var ávallt spenntur að fá nýj- ustu fréttir af starfseminni. Það var alltaf gott að leita til hans og ég á góðar minningar af sam- starfi okkar. Hjörtur tókst á við veikindi sín af miklu æðruleysi og lífsvilja. Hann setti sig vel inn í hlutina og hafði mikla skoðun á meðhöndlun sinni. Hann klæddist og fór fram úr á hverjum einasta degi og leit- aðist við að lifa sem eðlilegustu lífi allt til loka. Það hefði ekki ver- ið hægt án stuðnings Jöggu sem stóð ávallt eins og klettur við hlið hans. Þau hjónin voru vinmörg sem reyndist mikið happ á þess- um erfiðu tímum. Ég mun sakna Hjartar. Bless- uð sé minning hans. Sigtryggur Hilmarsson. Eins og gengur halda menn áfram í lífinu, sama hvað brýtur á. Stundum er lífið sanngjarnt og stundum bara alls ekki. Árið 1977 byrjaði ég í barna- skóla ásamt góðum krökkum úr sveitunum sunnan Skarðsheiðar. Einn af þeim sem byrjuðu þá með mér í bekk var Gunnar Tryggvi frá Svarfhóli, næsta bæ norðan við Saurbæ en þar ólst ég upp. Gunnar var 14 dögum eldri en ég, gengum við grunnskóla- gönguna saman. Eins og gengur fóru menn í hver í sína áttina þegar grunn- Gunnar Tryggvi Reynisson ✝ GunnarTryggvi Reyn- isson fæddist 1. mars 1971. Hann lést 6. nóvember 2019. Útför Gunnars Tryggva fór fram 25. nóvember 2019. skóla sleppti. En við fylgdumst alltaf hvor með öðrum og kannski enn meira eftir að innlitsbókin (Facebook) kom til. En svo barst mér sú frétt að Gunnar hefði þurft að lúta í lægra haldi fyrir dauðanum. Gunnar er sá fyrsti af okkur bekkjasystkinunum sem kveður þessa jarðvist. Þótt aldur færist yfir okkur öll er þetta alltof fljótt farið héðan. Ég vil votta eiginkonu hans, börnum og fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Megi algóður guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur.) Einar Kristján Jónsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.