Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 37

Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 Klarínettuleikarinn Dimitri Þór Ashkenazy leikur ein- leik á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 undir stjórn Evu Ollikainen, verðandi aðalhljómsveitarstjóra sveitarinnar. Á efnis- skránni eru Klarínettkonsert eftir Jean Françaix, Sin- fónía í D-dúr eftir Joseph Bologne og Lemminkäinen- svíta eftir Jean Sibelius. Að vanda verða tónleikarnir sendir út í beinni útsendingu á Rás 1. „Ég hef sjaldan heyrt eins vel spilað á klarínettu,“ sagði gagnrýnandi Morgunblaðins um tónleika Dimitr- is á Íslandi fyrir rúmum áratug. Samkvæmt upplýs- ingum frá hljómsveitinni ólst Dimitri upp á Íslandi til níu ára aldurs og hefur leikið með sinfóníuhljóm- sveitum og í heimsfrægum tónleikasölum víða um heim, m.a. á Proms-tónlistarhátíðinni í Royal Albert Hall. Klarínettkonsert kvöldsins er sjaldheyrður, en Françaix var „kunnur fyrir leikandi létta og skemmti- lega tónlist,“ eins og segir í tilkynningu. Þar kemur fram að tónlist Bologne sé „leikandi létt, í ætt við Haydn og Mozart“ og einnig að Lemminkäinen-svítan sé „lykilverk á ferli Sibeliusar, glæsilegt hljómsveitar- verk sem raunar átti upphaflega að verða ópera.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Dimitri Þór leikur Françaix í Eldborg Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari hlaut í vikunni náms- styrk úr Minningarsjóði Jean-Pierre Jacquillat, fyrrverandi aðal- stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Þetta var í 28. skipti sem efni- legur tónlistarmaður hlýtur styrk úr sjóðnum, en styrkupphæðin er ein og hálf milljón króna. Geirþrúður Anna er fædd árið 1994. Hún útskrifaðist frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík og hélt til framhaldsnáms við Northwestern University í Illinois, þar sem hún lauk BA-prófi. Hún hefur unnið til verðlauna í ýmsum keppnum, meðal annars í Thaviu String Competition, The Evanston Music Club Competi- tion og samkeppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands efnir til. Árið 2013 kom Geirþrúður Anna í fyrsta skipti fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveitinni og kem- ur hún reglulega fram sem einleik- ari og í kammertónlist. Hún hefur hafið meistaranám við Juilliard- skólann í New York. Geirþrúður hlaut Jacquillat-styrkinn Efnileg Geirþrúður Anna hlaut styrkinn í 28. skipti er hann var veittur. Ráðstefna verður haldin á Kjarvals- stöðum á morgun, föstudag, um list í almannarými, þýðingu hennar og uppsprettu. Ráðstefnan hefst kl. 10 í fyrramálið og stendur til kl. 16. Á ráðstefnunni verður rætt um list í almannarými og þýðingu hennar fyrir nærsamfélög og sam- félög í heild. Sérstakur gaumur verður gefinn að uppsprettu slíkra verkefna, hvernig verða þau til, hvernig eru þau fjármögnuð, skipu- lag og utanumhald. Aðalfyrirlesari er Tyra Dokke- dahl, sjálfstætt starfandi sýning- arstjóri og blaðamaður sem sérhæf- ir sig í list í almannarými. Áður vann hún hjá dönsku stofnuninni Bygningsstyrelsen og stýrði þar kaupum á listaverkum og fjár- mögnun listrænna verkefna. Aðrir fyrirlesarar eru arkitekt- inn Steve Christer hjá Stúdíó Granda, Ágústa Kristófersdóttir, safnstjóri Hafnarborgar, lista- mennirnir Anna Hallin, Olga Berg- mann, Carl Boutard og Ólöf Nordal ásamt Erni Baldurssyni frá Fram- kvæmdasýslu ríkisins. Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Lista- safns Reykjavíkur, heldur opn- unarávarp og Sigurður Trausti Traustason stýrir ráðstefnunni. Ráðstefna um list í almannarými Morgunblaðið/Kristinn Almannarými Leikið á nýlegu verki eftir Guðjón Ketilsson á Klambratúni. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Hornsófi Chicago 2 horn 3, hægt að panta sem tungusófa, U sófa eða bara eins og hentar. ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is Afmælisbíó Í Sambíóunum um land allt stendur til boða að halda afmælisveislur fyrir alla aldurshópa. Sjá nánar sambio.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.