Morgunblaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.12.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2019 Spegill Vætusamt hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðastliðna daga og bólar lítið á snjókomu í kortum Veðurstofunnar. Jólaskrautið er því eitt um að minna á komandi hátíð. Kristinn Magnússon Borgin eyðir tugum milljóna í auglýsingar og umsýslukostnað til að láta íbúa kjósa um sjálfsögð viðhaldsverkefni sem borgin á að sinna. Nú er komið í ljós að verkefnið, sem að mestu snýst um að setja upp grenndargáma og ruslafötur, fór 60 millj- ónum fram úr áætlun. Hugmyndin um Hverfið mitt er prýðileg. Íbúar vita betur en stjórnmálamenn í hvaða framkvæmdir þarf að ráðast í hverfinu þeirra. Það er gott að virkja borgarbúa til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt. Það gerir hverfin betri og borgina um leið. Það er líka gott að færa fjárveitingarvald til íbúa því meirihlutinn í Reykjavík hefur hingað til ekki gefið tilefni til að láta treysta sér fyrir peningum skattgreiðenda. En verkefnið virðist bara dýrt skálkaskjól. Er um raunverulegt íbúalýðræði að ræða þegar borgarbúar eru látnir kjósa á milli þess að setja upp gönguljós eða ungbarnarólu? Hvort vill fólk grenndargáma eða körfuboltavöll? Á að laga vatnsskemmdir á skólalóð eða setja nýja rennibraut í Laugardalslaug? Það getur varla talist íbúalýðræði að fá að kjósa um að setja sjálf- sagt viðhald borgarinnar eða umferðaröryggi á oddinn. Ég fékk nýlega svar við fyrirspurn minni um sundurliðaðan heildarkostnað við Hverfið mitt á árinu 2018. Það var eins og marga grunaði. Tugir milljóna fara í auglýsingar og annan umsýslukostnað, til að leyfa íbúum að kjósa að mestu um sjálfsögð viðhalds- verkefni. Svo hljómaði kunnuglegt stef, verkefnið fór 60 milljónum fram úr áætlun. Væri ekki nær að þessir peningar, sem koma úr vasa skattgreiðenda, færu í að laga það sem er bilað og í að setja upp ruslafötur þar sem þarf? Spörum okkur að minnsta kosti rándýrt sýndarlýðræði. Eftir Katrínu Atladóttur »Hverfið mitt er rándýrt sýndarlýðræðis- verkefni. Katrín Atladóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. katrin.atladottir@reykjavik.is Keisarinn er nakinn Sameining Íslandsbanka og Arion banka skapar hag- ræðingu, betri rekstur og er verðmætasköpun. Flestir eru sammála um að sameining framangreindra banka búi til stærri og söluvænlegri banka með fjölbreytt eignarhald og eignarhlutur ríkissjóðs í Ís- landsbanka verði verðmætari í kjölfarið. Flestir sem fylgj- ast með bankamarkaði eru sammála um að hagræðing og hagkvæmni í rekstri banka þurfi að aukast til lækkunar á verði á veittri þjón- ustu. Sameining fyrrgreindra banka gæti sparað um 15 ma.kr. árlega í rekstrar- kostnað. Með sameiningu Íslandsbanka og Arion banka gæti ríkissjóður átt um 40% hlut í stórum banka sem skráður yrði á markað bæði í Svíþjóð og á Íslandi. Stærð- arhagkvæmni er lykilþáttur í rekstri banka í nútímahagkerfi. Evrópskir bankar hafa verið í miklum niðurskurði og kostn- aðarhagræðingu á undanförnum tveimur árum. Samkvæmt framtíðarsýn Banka- sýslu ríkisins frá 12. mars 2012 kemur fram varðandi tímasetningu söluferlis bankanna: „Bankasýsla ríkisins telur hyggilegt að ráðast fyrst í sölu minnstu eignarhluta, sem stofnunin fer með, og selja síðar stærri eignarhluti, og þá í nokkrum áföngum. Í þessu felst að fyrst verður ráðist í sölu eignarhlutar í Íslands- banka hf., en þó ekki fyrr en í fyrsta lagi á síðari hluta þessa árs. Stofnunin gerir ekki ráð fyrir að sala eignarhluta í Arion banka hf. og Landsbankanum hf. hefjist fyrr en á næsta ári og að sala í Lands- bankanum hf. verði jafnvel framkvæmd í nokkrum áföngum.“ Nú eru liðin sjö ár frá þessari framtíðarsýn og ennþá er beðið eftir ákvörðunum. Miklar tæknibreytingar með fjártækni og stafrænni þróun munu leiða til lækkunar á verðmæti hefðbund- inna viðskiptabanka. Greiðslu- miðlun og hefðbundinn rekst- ur fjármálafyrirtækja er undir mikilli samkeppni frá nýjum samkeppnisfyrirtækjum eins og Apple, Amazon, Google og öðrum fjártæknifyrirtækjum. Flestir eru sammála um að áhætta ríkissjóðs vegna eign- arhluta í bönkum sé mikil og því mikilvægt að móta stefnu um að minnka þessa áhættu með sölu að hluta, í heilu lagi eða með sameiningu í stærri heild, t.a.m. með samruna Ís- landsbanka og Arion banka. Með samruna væri hægt að spara 15 ma.kr. í árlegan rekstrarkostnað auk stærðarhagkvæmni, skilvirkni og að stærri banki væri skráður í kauphöll bæði á Íslandi og Svíþjóð. Sam- kvæmt nýlegri Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið er talið skynsamlegt að selja eignarhluti ríkissjóðs í áföngum. Framtíðarsýn fjármálakerfisins þarf að móta með hliðsjón af þremur megin- stoðum sem eru gott regluverk og öflugt eftirlit, önnur stoðin að fjármálakerfið þjóni heimilum og fyrirtækjum á skilvirk- an hátt og þriðja stoðin sé traust eignar- hald fjármálafyrirtækja sem stuðlar að heilbrigðum og traustum rekstri með langtímasjónarmið að leiðarljósi. Lækkun rekstrarkostnaðar um 15 ma.kr. eykur verðmæti Nú er rétti tíminn til að hefja söluferli á eignarhlutum ríkissjóðs í Íslandsbanka og Landsbanka og minnka þannig áhættu ríkissjóðs til lengri tíma. Stefna íslenska ríkisins er að eiga 34% hlut í Landsbank- anum til að stuðla að stöðugleika í fjár- málakerfinu en fjárfestingin er um 3% af landsframleiðslu. Mikilvægt er að auka samkeppni á fjármálamarkaði með heil- brigðu regluverki og heilbrigðu eignar- haldi sem tekur mið af sjónarmiðum einkarekstrar og skýru regluverki sem virkar. Aukin samkeppni frá tæknifyr- irtækjum eins og Apple, Google, Amazon og fjártæknifyrirtækjum mun leiða til virkari og meiri samkeppni á fjár- málamarkaði á næstu árum. Tilgangur með sölu á eignarhlutum ríkissjóðs í tveimur fjármálastofnunum er að koma á aukinni samkeppni sem lækkar verð á veittri þjónustu auk þess að auka skil- virkni og arðsemi til lengri tíma með lækkun á rekstrarkostnaði. Skynsamlegt væri að sameina Íslandsbanka og Arion banka þannig að ríkissjóður ætti 40% hlut í sameinuðum banka. Síðan væri hægt að selja 66% hlut í Landsbanka Íslands en ríkissjóður ætti 34% kjölfestuhlut. Einnig væri það snjöll leið að senda öllum lands- mönnum hlutfallslegan hlut sinn í þessum 2/3 hluta í Landsbanka Íslands í kjölfar skráningar bankans á hlutabréfamarkað og efla þannig íslenska hlutabréfamark- aðinn. Með þessum aðgerðum myndi verða til mikil verðmætasköpun fyrir ríkissjóð og alla landsmenn. Mikilvægt er að auka samkeppni á fjármálamarkaði með heil- brigðu regluverki og heilbrigðu eignar- haldi sem tekur mið af sjónarmiðum einkarekstrar. Nú er rétti tíminn til að hefja söluferli á eignarhlutum ríkissjóðs í Landsbanka Íslands og Íslandsbanka og minnka þannig áhættu ríkissjóðs til lengri tíma og skapa verðmæti fyrir íslenska skattgreiðendur og almenning. Eftir Albert Þór Jónsson »Nú er rétti tíminn til að hefja söluferli á eignar- hlutum ríkissjóðs í Íslands- banka og Landsbanka og minnka þannig áhættu ríkissjóðs til lengri tíma. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur, MCF í fjár- málum fyrirtækja og með 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. albertj@simnet.is Sameining á íslenskum banka- markaði er verðmætasköpun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.