Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 2

Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 OPIÐ ALL A DAGA TIL JÓLA FRÁ 10-19 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þegar svona gerist er ekki á það bætandi að hafa kalt í húsum líka. Hérna gat fólk verið með kerti og spil þótt rafmagnið vantaði,“ segir Gunnar Björn Rögnvaldsson, verk- efnastjóri hjá Skagafjarðarveitum. Þótt Skagfirðingar hafi glímt við rafmagnsleysi í liðinni viku eins og fleiri var heitt vatn á öllum hús- um. Það mátti teljast munaður mið- að við hvað margir aðrir þurftu að þola meðan óveður gekk yfir landið. Ástæða þessa er að varaaflstöðvar hafa verið í öllum dælustöðvum hita- veitunnar frá upphafi. Segir sagan að hlegið hafi verið að þessari fyrir- hyggjusemi á sínum tíma en það hlógu ekki margir í óveðrinu nú. „Við höfum ekkert hlustað á at- hugasemdir annarra,“ segir Gunnar Björn. „Við höfum notað varaafl í 300 klukkustundir í straumleysi síð- an 2007, það eru nokkuð margir dag- ar. Aðalflöskuhálsinn nú var að nálg- ast olíu á vélarnar. Allar dælu- stöðvar voru niðri og við þurftum að sæta lagi þegar rafmagn komst á til að sækja olíu,“ segir hann en um 3.000 lítrar af díselolíu hafa farið í varaaflstöðvarnar. Hann segir að starfsmenn Skagafjarðarveitna hafi unnið fjöru- tíu tíma í beit fyrsta kastið þegar óveðrið skall á. Langt sé á milli veitna og færið þungt. „Við erum ekki bara að selja heitt vatn, við er- um að selja vöru og viljum tryggja afhendingaröryggi hennar.“ Varaafl tryggði heitt vatn Þungfært Rúnar og Alex Már dæla olíu til að ferja um Skagafjörð.  Skagafjarðarveitur með vaðið fyrir neðan sig  „Hlust- um ekki á athugasemdir annarra“  3.000 lítrar af olíu Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég nefni þetta bara sem eitt dæmi en þau eru auðvitað fleiri. Þetta er dálítið svekkjandi, sérstaklega varð- andi sjúkrahúsið, því við vitum að við hefðum getað reddað því,“ segir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik. Í eftirköstum óveðursins er horft til raforkukerfisins og þess hve erf- iðlega hefur gengið að tryggja raf- magn víða um land, einkum á Norð- urlandi. Meðal þess sem bent hefur verið á er að tregða landeigenda hafi víða komið í veg fyrir að hægt væri að leggja rafstrengi í jörð. Jarð- strengir þola almennt betur álag af völdum óveðurs en loftlínur. Dæmið sem Tryggvi vísar til er af 1,5 kílómetra kafla í Víðidal þar sem enn er loftlína. Allt í kring hefur strengurinn verið lagður í jörð. Segir forstjórinn að sú ákvörðun hafi verið tekin í aðdraganda óveðursins að taka umrædda línu úr sambandi svo þessi kafli setti ekki út kerfi raf- strengja í Víðidal og nágrenni. „Kerfi sem annars hefði verið hægt að nota til að hjálpa Hvammstanga. Svo á miðvikudeginum ætluðum við að reyna að nýta þessa línu, setja hana inn að nýju, en þá var þessi línustubbur ísaður og við gátum ekki sett hann inn,“ segir Tryggvi. Kvöð á jörðina til eilífðar Jörðin sem umræddur línu- stubbur er á er Árnes í Víðidal. Hún er í eigu Óttars Yngvasonar hæsta- réttarlögmanns. Hann segir í sam- tali við Morgunblaðið að hann hafi ekkert á móti jarðstrengjum, and- staða sín hafi snúist um þann samn- ing sem Rarik vildi að hann skrifaði undir. „Rarik á Akureyri sendi mér upp- kast að stuttum samningi, ég held að hann hafi verið ein blaðsíða, sem heimilaði lögn þessa jarðstrengs um ótakmarkaðan tíma, til eilífðar. Hann skyldi þinglýsast sem kvöð á jörðina, kvöð á landi,“ segir Óttar sem spyr hvort Rarik hafi kannski gleymt að minnast á þetta í umfjöll- un sinni um málið. „Þetta er það sem þeir eru að bjóða landeigendum og bændum landsins upp á. Þarna hittu þeir á mann sem las samninginn og skildi hvað í honum fólst. Ég var ekki samþykkur því að heimila eða skrifa undir kvöð til þinglýsingar á landi um alla eilífð.“ Óttar segir að engar fjárkröfur hafi verið settar fram en hann hafi sent Rarik til baka endurbætta út- gáfu samningsins þar sem umrædd kvöð var til að mynda bundin við ákveðinn árafjölda. „Ég lagfærði orðalagið aðeins enda vildi ég gjarn- an að þeir gætu lagt strengskratt- ann. Þeir hefðu getað þinglýst þeirri útgáfu ef þeir vildu en það gerðu þeir ekki og svarið var á þá leið að ef ég treysti mér ekki til að samþykkja staðlaðan samning sæju þeir sér ekki fært annað en að láta línuna standa um ókomin ár. Þeir hafa örugglega ekki viljað að þetta færi í loftið. Það væri eflaust ekki gott gagnvart öðrum landeigendum og bændum í landinu.“ Óttar er ósáttur við framgöngu Rarik. „Það nær ekki nokkurri átt þegar ríkisstofnanir eru að reyna að plata menn. Þetta ástand vegna óveðurs- ins er til komið vegna viðhaldsleysis og vanrækslu hjá tveimur stofn- unum; Rarik og Landsneti,“ segir lögmaðurinn. Hann segir aðspurður að Rarik standi enn til boða að leggja jarðstreng í gegnum Árnes ef það verði með eðlilegum formerkjum. „Við hefðum getað reddað sjúkrahúsinu“  Óánægja með að lína hafi ekki verið lögð í jörð  Ósáttur við kröfur Rarik Morgunblaðið/Eggert Hvammstangi Sjúkrahúsið þurfti að glíma við rafmagnsleysi. Höskuldur Daði Magnússon Þorgerður Anna Gunnarsdóttir „Það eru smátruflanir hér og þar en annars eru flestir með rafmagn,“ segir Tryggvi Þór Haraldsson, for- stjóri Rarik. Enn er víða unnið að viðgerðum á raflínum í kjölfar ofsaveðurs liðinn- ar viku og eftirkasta þess. Rafmagn fór af í Skagafirði í gærmorgun. Í fyrrinótt var unnið að hreins- un á tengivirki í Hrútatungu. Undir morgun í gær fór virkið aftur út vegna seltu. Virðist sem högg hafi komið á kerfið í kjölfar- ið og sló meðal annars út á Sauð- árkróki og Hofsósi. Tryggvi sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að víða ylli selta truflunum í kerfinu af og til. „Það eru einhverjar bilanir í Blöndudaln- um og Svartárdalnum og verið að vinna þar. Svo vonumst við til þess að vinnu á austanverðum Skaga sé að ljúka,“ sagði Tryggvi. „Allt kerf- ið er viðkvæmt. Það er selta og það eru truflanir af og til. Það er mjög erfitt að eiga við það, í raun og veru þyrfti að fara upp í hvern einasta staur og hreinsa. Svo má vonast til þess að það rigni eitthvað aðeins svo það skolist af,“ segir Tryggvi. Í gær voru enn keyrðar díselvél- ar á Dalvík, fjórar frá Rarik og ein í varðskipinu Þór. Sama gilti með Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafjörð og fleiri staði. Í tilkynningu bað Rarik notendur sem tengdir eru varaafli að spara rafmagn eins og unnt er. Mun Ra- rik þurfa að keyra varaafl þangað til búið er að gera við flutningskerfi Landsnets. Einhverja daga mun taka að lagfæra bilanir og áfram má búast við rafmagnstruflunum. Þá kann að vera að gripið verði til þess að skammta rafmagn. „Þetta tekur einhverja daga enn,“ segir Tryggvi Þór. Hann seg- ir jafnframt að ekki hafi enn gefist tími til að meta tjón. „Við vitum að tjón hleypur væntanlega á hundr- uðum milljóna. Nú erum við að bjarga rafmagni. Kostnaður er að hlaðast upp en við tökumst á við hann seinna. Það er sömuleiðis mik- ið tjón hjá viðskiptavinum okkar. Við munum skoða þetta tjón betur síðar.“ Ljósmynd/Rarik Annir Starfsmenn Rarik unnu að viðgerðum á Skaga. Enn er glímt við bilanir og truflanir á kerfinu. Kerfið enn viðkvæmt og truflanir eru víða  Enn unnið að viðgerðum á raflínum  Tjónið er mikið Tryggvi Þór Haraldsson Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráðuneytið birtu í gær í samráðsgátt stjórnvalda skýrslu dr. Hjartar Jóhanns- sonar um mat á möguleikum þess að nýta jarðstrengi við uppbyggingu flutningskerfis raforku. Ráðuneytin kölluðu eft- ir þessari úttekt í samræmi við þingsályktun 26/148, frá júní 2018, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Gefst áhugasömum nú tækifæri til að senda inn athugasemdir en að því loknu verður metið hvort skýrslan og innsendar umsagnir kalli á breytingar á þeim viðmiðum og meginreglum sem gilda um lagningu jarðstrengja og loft- lína. Flutnings- kerfið skoðað NÝ SKÝRSLA BIRT Afleiðingar ofsaveðurs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.