Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 4

Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður Komdu með skó í yfirhalningu fyrir jólin Við erum hér til að aðstoða þig! -- Baldur Arnarson Ragnhildur Þrastardóttir Sú niðurstaða dómnefndar að þrír af átta umsækjendum um stöðu hæsta- réttardómara séu jafn hæfir hefur dregið athyglina að nýjum aðferðum við dómaraval. Urðu þær tilefni mála- ferla tveggja umsækjenda á hendur Sigríði Á. Andersen, þáverandi dóms- málaráðherra, fyrir að víkja frá til- nefningum dómnefndar. Sigríður sagði af sér 13. mars sl. eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) kvað upp dóm sinn í tengslum við Landsréttarmálið. Áður höfðu nokkrir umsækjendur um dómarastöðurnars skotið málum sínum til íslenskra dómstóla. Raðaði 33 umsækjendum Forsaga málsins er að hæfnisnefnd skilaði árið 2017 Sigríði niðurstöðum á hæfni 33 umsækjenda um stöðu dómara við Landsrétt. Tók rétturinn til starfa 1. janúar 2018 en skipaðir voru 15 dómarar. Að mati nefndar- innar voru 15 umsækjendur hæfastir. Valið byggði á 12 matsþáttum með mismunandi vægi. Niðurstaðan varð því mjög nákvæm og munaði aðeins 0,03 á þeim sem lentu í 15. og 16. sæti. Til að setja það í samhengi fékk sá sem lenti í 16. sæti 5,45 í einkunn. Til upprifjunar sagði í niðurstöðu dómnefndar vegna Landsréttar að hún hefði „í mati sínu á hæfni um- sækjenda að því er varðar röðun inn- an einstakra þátta beitt eins mikilli nákvæmni og kostur er, en mats- grundvöllurinn er bæði fjölþættur og margbrotinn. Á hinn bóginn speglar endanlegur útreikningur í saman- lögðum þáttum matsniðurstöður af mikilli nákvæmni“. Umdeild aðferðafræði Skiptar skoðanir hafa verið um þessa aðferðafræði. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmála- fræði við Háskóla Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að þrátt fyrir vaxandi faghyggju væri „alltaf ákveðið svigrúm í ráðningarferlinu fyrir [hið] huglæga mat“. Þá fjallaði Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, um aðferðir við hæfnismat á umsækjendum um opinberar stöður í skýrslu sinni fyrir árið 2016 sem birt var í ágúst 2017. Tilefnið var þróun sem umboðsmaður taldi sig hafa séð þar sem notast væri öðru fremur við stigagjöf á kostnað efnislegs mats á umsækjendum. Umboðsmaður hefði hins vegar á síðari árum „orðið þess var að fram- angreindri aðferð sé beitt með of formlegum eða fortakslausum hætti en minna fari fyrir efnislegu mati á þekkingu og getu umsækjenda“. Vikið frá fyrri aðferðafræði Aðferðir við val á dómurum komu næst til umræðu í febrúar 2018. Fram kom í Morgunblaðinu að dómsmálaráðherra fékk ekki skor- blað frá dómnefnd vegna umsagnar um 31 umsækjanda um stöðu dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Við valið á dómara í Héraðsdóm Reykjavíkur var slík stigagjöf þannig ekki notuð heldur var valið rökstutt með almennum orðum. Með því virtist dómnefndin víkja frá fyrri aðferðafræði. Vísað var til breytinga á lögum um dómstóla frá 2010 um að ráðherra skuli skipa fimm manna dómnefnd til að fjalla um hæfni umsækjenda um embætti hæstaréttar- og héraðsdómara. Hlýtur að styðjast við reynslu „Ákvæði laga nr. 15/1998, reglna nr. 620/2010, meginreglur stjórn- sýsluréttar og hefðbundið vinnulag dómnefndar a.m.k. frá 2010 krefjast þess að matsþættir sem tilteknir eru í reglum nr. 620/2010 séu greindir af eins mikilli nákvæmni og unnt er. Þrátt fyrir þetta hlýtur matið einn- ig að byggjast á lögfræðilegri þekk- ingu nefndarmanna, reynslu þeirra af dómstörfum við dómstóla, í lög- mennsku og stjórnsýslu og dóm- greind þeirra ... Þótt þættir séu metnir samviskusamlega breytir það því ekki að slíkt mat verður ekki unnið af vélrænni nákvæmni og þýð- ingarlaust að láta sem svo sé,“ sagði m.a. í rökstuðningi dómnefndar vegna umsóknar um stöðu dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Varað við „boxamerkingum“ Meðal nefndarmanna var Jakob R. Möller en hann vék að slíkri samlagn- ingu við dómaraval á fundi lagadeild- ar Háskólans í Reykjavík í janúar 2018. Þar sagði Jakob m.a. að „hætt- an í sambandi við boxamerking- arnar“ væri t.d. sú að sá sem hefði verið lögmaður allt sitt líf væri merktur í tiltekið box og síðan væri lesið úr því. „Það er gagnlegt að kynna sér inngang álits umboðs- manns [Alþingis] fyrir … 2016, þar sem er einmitt varað við því að vera með svona tölulega meðferð. Þ.e.a.s. einhver [sem] hefur unnið í 10 ár … er fimm sinnum betri en sá sem hefur unnið í 2 ár. Þetta er hætta sem ber mjög víða á þar sem mann- auðsfræðingarnir hafa ráðið ríkjum,“ sagði Jakob m.a. í fyrirlestri sínum. Nú hafa þessi sjónarmið aftur komið til umræðu vegna umsagnar dómnefndar um dómara í Hæstarétt. Þar eru áðurnefnd sjónarmið um- boðsmanns Alþingis rifjuð upp: Vitna til umboðsmanns „Niðurstaða umboðsmanns var sú að gæta yrði varfærni við mat sem þetta. Nefndin getur tekið undir þessi sjónarmið og hefur horft til þeirra við mat á hæfni umsækjenda. Kjarni máls er sá að samkvæmt 12. gr. laga nr. 50/2016 ber nefndinni að framkvæma efnislegt mat á því hvaða umsækjandi teljist hæfastur til að gegna því dómaraembætti sem hefur verið auglýst til umsóknar. Þá segir í 4. gr. reglna nr. 620/2010 að niðurstaðan um þetta eigi að ráð- ast af „heildarmati“ og því sé varhugavert að leggja um of áherslu á eitt atriði umfram annað. Þetta orð- aði nefndin svo í áliti sínu frá 22. júlí 2019 að sjónarmiðin sem komi til álita hljóti eðli máls samkvæmt að hafa ólíkt vægi innbyrðis, en ekkert eitt þeirra geti ráðið úrslitum. Síðan skal tekið fram að þótt nefndin hafi við gerð fyrri umsagna stuðst við reikn- iskjöl við mat á umsækjendum þá hefur nefndin aldrei gert þau að hluta að áliti sínu. Þess í stað hefur nefndin ályktað um hverjir teljist hafa verið hæfastir án þess að gefa þeim inn- byrðis einkunnir í niðurstöðum sín- um,“ sagði í nýju umsögninni. Bindur ekki hendur nefndar Nefndarmenn rökstuddu mál sitt frekar með vísan til reikniskjalsins í Landsréttarmálinu. „Því sjónarmiði hefur verið hreyft að staða umsækj- enda í umræddum reikniskjölum sem nefndin studdist við í eldri umsögn- um bindi mögulega hendur nefnd- arinnar. Á þetta getur nefndin ekki fallist, enda er henni skylt samkvæmt lögum og reglum að leggja heildar- mat á hæfni umsækjenda á grund- velli þeirra upplýsinga sem fyrir liggja. Auk þess verður að gæta var- úðar, eins og umboðsmaður Alþingis hefur bent á, þegar unnið er með reikniskjöl sem þessi,“ skrifa nefnd- armenn. Af þessum orðum má álykta að gagnrýni á reikniskjölin hafi verið tekin til greina og vægi þeirra minnkað hjá dómnefndinni. Þau málalok vekja athygli í ljósi áðurnefndra dóma gegn ríkinu. Fulltrúar dómnefndarinnar báðust undan viðtölum vegna málsins. En Sigríður skrifaði í Morgun- blaðið í gær að íslenska ríkið hlyti að vísa til umsagnar dómnefndarinnar í málaferlunum fyrir Mannréttinda- dómstól Evrópu í Strassborg. Mál Arnfríðar Einarsdóttur verður tekið fyrir í yfirdeild dómsins í febrúar. Dómaravalið er komið í hring  Dómnefnd vegna skipunar eins dómara í Hæstarétt vísar til gagnrýni umboðsmanns Alþingis á notkun reikniskjala við dómaraval  Ríkið var dæmt brotlegt fyrir að fylgja ekki forskrift skjalanna Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Skipun dómara á nýju millidómstigi vakti umtal og deilur. Fram kom í Morgunblaðinu þriðju- daginn 6. mars 2018 að Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, væri að afla gagna vegna starfa dómnefndar um umsækjendur um stöðu dómara. Tilefnið var bréf umboðsmanns til stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar vegna Landsréttarmáls- ins. Fram kom í bréfinu að um- boðsmanni hefði borist kvörtun vegna starfa dómnefndar um um- sækjendur um stöðu dómara. Mál- ið varðaði ekki Landsrétt. Spurður um stöðu málsins sagði Tryggvi málið enn í vinnslu. „Við höfum haldið áfram að safna í sarpinn. Það er margt að gera. Það hefur því ekki tekist að ljúka málinu,“ sagði Tryggvi. Algengt sé að stigagjöf sé beitt við ráðningar hjá hinu opinbera. Því teldi hann tilefni til að fara yfir almenn atriði sem þar kunni að reyna á. Embættið hefur heimildir til að hefja rannsóknir á málum að eigin frumkvæði. „Möguleikar okkar til að sinna því eru mjög takmarkaðir núna vegna takmarkaðs mannafla og fjölda kvartana sem við erum að fást við,“ sagði Tryggvi. Dómnefnd vegna umsækj- enda um stöðu dómara við Hæstarétt vitn- ar í löngu máli til skýrslu umboðs- manns Alþingis í rökstuðningi fyrir breyttri nálgun við matið. Þegar dómnefnd vegna umsækj- enda um dómarastöður við Lands- rétt útbjó skorblaðið var Aðal- steinn E. Jónasson metinn sá fimmti hæfasti en Ingveldur Ein- arsdóttir kom næst. Fengu þau 6,5 og 6,3 í einkunn. Þau voru bæði umsækjendur um stöðu dómara við Hæstarétt í haust en þá komst dómnefnd að þeirri niðurstöðu að Ingveldur væri hæfust þriggja og var Aðalsteinn ekki meðal þeirra. Hafa þau því haft sætaskipti í hæfnismati á dómaraefnum. Annríki tefur athugun um- boðsmanns á dómaranefnd TÆP TVÖ ERU LIÐIN FRÁ UPPHAFI RANNSÓKNAR Tryggvi Gunnarsson Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kveðst nú munu fara yfir umsögnina um stöðu dóm- ara við Hæstarétt. Sér þyki ekki rétt að tjá sig um einstaka mál. Áslaug Arna telur það þó vænleg vinnubrögð að ráðherra fái að velja milli fleiri umsækjenda en emb- ættin eru sem sóst er eftir. Slík vinnubrögð voru viðhöfð í nýju um- sögninni en ekki í Landsréttarvali. „Ég held að svona niðurstöður séu betri því ábyrgðin liggur hjá ráðherra og þá þarf ábyrgðin líka að vera slík. Það er alltaf mats- kennd ákvörðun að meta hæfi sem þetta. Þarna er aðeins öðruvísi nálgun, sem ég er ánægð með,“ segir Áslaug sem studdi niðurstöðu Sigríðar í Landsréttarmálinu. Þá m.a. með vísan til kynjasjónarmiða. Áslaug Arna kveðst aðspurð telja þau meðal þeirra þátta sem skuli líta til þegar skipað er í embætti „eins og lög segja líka til um“. Gott að ráðherra geti valið úr fólki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.