Morgunblaðið - 17.12.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Bergsveinn
S: 863 5868
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Magnús
S: 861 0511
Ólafur
S: 824 6703
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Til sölu heil skrifstofuhæð á 2. hæð við Tryggvagötu 11 í miðbæ Reykjavíkur.
Laus við kaupsamning. Glæsilegt skrifstofurými sem skiptist í móttöku, opin
vinnurými, 2 fundarherbergi og 13 lokaðar skrifstofur. Við inngang er opið
rými sem getur nýst sem móttaka eða setustofa. Eldhús, tvær snyrtingar og
ræstikompa. Stórt fundaherbergi er staðsett í miðju húsnæðisins.
Tölvulagnir eru í stokkum. Lyfta er í húsinu.
TIL SÖLU
Tryggvagata 11, 101 Rvk.
Gerð: Skrifstofuhúsnæði
Stærð: 386,6 m2
Verð: 110.000.000 kr.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Bergsveinn Ólafsson
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasali, löggiltur leigumiðlari
og rekstrarfræðingur
863 5868 | 534 1028
bergsveinn@jofur.is
Enn óeirðir á Indlandi
Sex látnir og 200 særðir í mótmælum gegn nýrri löggjöf um ríkisborgararétt
AFP, Nýja Delí Narendra Modi, for-
sætisráðherra Indlands, kallaði eftir
ró í gær eftir að óeirðir héldu áfram
í landinu fimmta daginn í röð. Sex
manns hafa látist og um 200 særst í
mótmælum síðustu daga sem beint
er gegn nýrri löggjöf stjórnvalda á
Indlandi um ríkisborgararétt sem
sögð er fjandsamleg múslimum.
Samkvæmt löggjöfinni verður
auðveldara fyrir fólk úr nágranna-
ríkjunum Pakistans, Bangladess og
Afganistan, sem játar ekki íslam, að
öðlast indverskan ríkisborgararétt.
Andstæðingar Modis segja löggjöf-
ina miða að því að draga úr vægi
múslima á Indlandi, en þeir eru nú
um 200 milljónir af þeim tæplega 1,4
milljörðum sem þar búa. Modi hefur
hafnað þeim ásökunum og sagði í
gær að löggjöfin hefði engin áhrif á
nokkurn indverskan þegn, heldur
væri henni ætlað að verja fólk sem
hefði búið við áralangar ofsóknir er-
lendis og hefði ekki í nein önnur hús
að venda en Indland. Sagði hann að
löggjöfin næði því ekki til múslima
frá ríkjunum þremur, enda hefðu
þeir ekki verið ofsóttir.
Lokað á netaðgang
Yfirvöld á Indlandi hafa farið
ýmsar leiðir til þess að koma í veg
fyrir frekari mótmæli, og var meðal
annars lokað á netaðgang í sumum
héruðum landsins um helgina.
Mótmælin héldu engu að síður
áfram í gær í mörgum af helstu
stórborgum Indlands, sem og í
norðausturhluta landsins þar sem
þau hófust og hafa verið hvað hörð-
ust.
Lögreglan í höfuðborginni Nýju
Delí hefur verið sökuð um harðræði
gegn stúdentum við Jamia Millia Is-
lamia-háskólann þar, en 35 nemend-
ur þar voru handteknir um helgina.
Segja forsvarsmenn háskólans að
lögreglan hafi farið án leyfis inn á
lóð skólans og ráðist þar á bæði
nemendur og starfsfólk.
Talsmenn lögreglunnar segja
hins vegar að algjöru lágmarksafli
hafi verið beitt til að binda enda á
óeirðirnar, en mótmælendur höfðu
meðal annars kveikt í þremur rútum
og grýtt lögregluþjóna. sgs@mbl.is
AFP
Óeirðir Hörð mótmæli hafa verið
síðustu daga á Indlandi.
Demókratar á Bandaríkjaþingi til-
kynntu í gær að þeir væru að búa
sig undir átök um það hvaða vitni
ætti að kalla til í öldungadeildinni,
komi til þess að ákærur til embætt-
ismissis á hendur Donald Trump
Bandaríkjaforseta verði samþykkt-
ar í fulltrúadeild þingsins í vikunni.
Chuck Schumer, leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni, sagði að
hann vildi að réttarhöldin hæfust 6.
janúar næstkomandi og kallaði eft-
ir því að réttlætinu yrði fullnægt á
„snarpan en sanngjarnan hátt“.
Sendi Schumer bréf til Mitch
McConnells, leiðtoga repúblíkana í
deildinni, þar sem hann krafðist
þess að fjögur „lykilvitni“ myndu
koma fyrir öldungadeildina. Þeirra
á meðal yrði Mick Mulvaney, starf-
aði skrifstofustjóri Hvíta hússins,
og John Bolton, fyrrverandi þjóð-
aröryggisráðgjafi Trumps.
Greiða atkvæði á morgun
Jerry Nadler, formaður dóms-
málanefndar fulltrúadeildarinnar,
sendi frá sér í gær 658 blaðsíðna
skýrslu þar sem rökin fyrir því að
svipta Trump embætti sínu voru
sett fram. Er þar haldið fram að
forsetinn hafi gerst sekur um al-
varleg afbrot og
að framkoma
Trumps í emb-
ætti sé án nokk-
urra fordæma í
sögu Bandaríkj-
anna.
Fulltrúadeild-
in mun greiða
atkvæði á morg-
un, miðvikudag,
um það hvort
ákæra eigi Trump og er fastlega
gert ráð fyrir að þar verði sam-
þykkt að vísa málinu til öldunga-
deildarinnar. Trump yrði þá ein-
ungis þriðji forseti Bandaríkjanna
í sögunni til þess að verða ákærð-
ur, á eftir Andrew Johnson árið
1868 og Bill Clinton árið 1998. Þá
stefndi allt í að Richard Nixon yrði
ákærður til embættismissis vegna
Watergate-málsins árið 1974 en
hann sagði af sér áður en til þess
kom. Hvorki Johnson né Clinton
voru sakfelldir af öldungadeildinni
og ólíklegt er að breyting verði þar
á í tilfelli Trumps, þar sem nokkrir
af þingmönnum repúblíkana í
deildinni hafa lofað að þeir muni
verja hann gegn „pólitískum of-
sóknum“.
Kalla eftir „snörp-
um“ réttarhöldum
Saka Trump um alvarleg afbrot
Chuck
Schumer
Gröf nasistaforingjans Reinhardts
Heydrichs var opnuð um miðja síð-
ustu viku að næturlagi. Lögreglan í
Berlín segir að rannsókn sé hafin á
því hverjir hafi verið að verki en svo
virðist sem ekkert hafi verið fjarlægt
úr gröfinni.
Heydrich var yfirmaður öryggis-
skrifstofu þriðja ríkisins, sem hafði
meðal annars yfirumsjón með leyni-
lögreglunni alræmdu Gestapo. Hann
þótti grimmur, jafnvel meðal sam-
herja sinna í efstu lögum þýska nas-
istaflokksins. Kallaði Adolf Hitler
hann „manninn með járnhjartað“.
Heydrich var einn af aðal-
hugmyndafræðingunum á bak við
helförina gegn gyðingum og stýrði
meðal annars Wannsee-ráðstefnunni
20. janúar 1942, þar sem lögð voru á
ráðin um útrýmingu gyðinga í Evr-
ópu.
Heydrich stýrði einnig hernámi
Þjóðverja í Tékkóslóvakíu meðan á
heimsstyrjöldinni stóð og fékk við-
urnefnið „slátrarinn frá Prag“. Tékk-
neskir andspyrnumenn, sem fengið
höfðu þjálfun í Bretlandi, réðu Heyd-
rich af dögum í maí 1942. Á tímum
kalda stríðsins lenti gröfin á milli
Austur- og Vestur-Berlínar og minn-
ismerki á leiði hans var tekið niður.
Málið þykir minna á svipað mál
nasistans Horsts Wessels, en andfas-
ísk samtök sögðu árið 2000 að þau
hefðu opnað gröf hans og hent höf-
uðkúpunni í Spree-ána. Líkt og nú
sagði lögreglan að ekki hefði verið
hróflað við jarðneskum leifum.
Legstaður
Heydrichs
opnaður
Einn aðalhöf-
undur Helfararinnar
AFP
Gröfin Lögreglan í Berlín sagði að
ekki hefði verið hróflað við neinu.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands,
heimsótti í gær Sedgefield, hið gamla kjördæmi
Tonys Blairs, fyrrverandi forsætisráðherra.
Kjósendur þar völdu sér þingmann úr röðum
Íhaldsflokksins í fyrsta sinn frá árinu 1935 í ný-
afstöðnum kosningum og þóttu nokkur tíðindi.
Heimsótti óvænta kjósendur Íhaldsflokksins
AFP