Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019
SMÁRALIND – KRINGLAN – DUKA.IS
Viskastykki verð 2.950
Kerti verð 1.990
Servíettur verð 990
Djásn verð 5.790
Skúlptúr kind máluð lítil verð 7.500
TVÖ TRÉ OG TRÉ
„HANN SEGIR ALDREI NEITT – NEMA
MEÐ LÍKAMSTJÁNINGU.”
„ÉG VERÐ AÐ RUKKA ÞIG AUKALEGA FYRIR
ÞESSA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að geta ekki hugsað
sér framtíðina án þín.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
FLOTT MATUR OG
MÚSÍK
HELDURÐU AÐ ÞAÐ SÉ RÉTT
SEM HELGA SEGIR, AÐ LEIÐIN
AÐ HJARTA MANNSINS LIGGI
Í GEGNUM MAGANN?
KLÁRLEGA!
SKYTTUR! MIÐIÐ Á MAGANA Á ÞEIM!
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
sjóðsins og höfundur bóka um fjár-
mál einstaklinga. Foreldrar Gunnars:
Hjónin Baldvin Einarsson, f. 22. mars
1934, d. 8. maí 2018, starfsmanna-
stjóri hjá SÍS og Sigurveig Haralds-
dóttir, f. 5. apríl 1934, matráðskona,
búsett í Reykjavík. Björg og Gunnar
eru búsett í Reykjavík, en þau eru
fimmmenningar. „Forfaðir okkar í 5.
lið var Sigurður Andrésson, f. 1792, d.
1866. Sigurður var þekktur fyrir að
hafa ,,drukknað“ í róðri. Félagar Sig-
urðar settu líkið á hest og fluttu hann
þannig heim að bæ. Við það að liggja
á hestinum var eins og hann hefði
verið hnoðaður til lífs. Þegar kom
heim að bæ var hann lagður í hlýjuna
í fjósinu svo hægt væri að ganga frá
líkinu daginn eftir. Um nóttina barði
hann á glugga á bænum og bað hús-
freyjuna að hleypa sér inn. Hún ótt-
aðist að eiginmaður hennar væri
genginn aftur og bað hann um að fara
með faðirvorið. Það gerði Sigurður
og var þá hleypt inn. Lifði hann í
mörg ár eftir þetta og skildi eftir sig
stóran ættbálk.“
Börn Bjargar og Gunnars eru 1)
Sigrún Gunnarsdóttir, f. 26. júlí
1991, lögfræðingur og starfar sem
sölustjóri hjá Icelandair hotels, bú-
sett í Reykjavík; 2) Sigurður Gunn-
arsson, f. 19. ágúst 1997, nemi í hag-
fræði við Háskóla Íslands.
Systkini Bjargar eru Jón
Sigurðsson, f. 11. september 1950,
fjármálastjóri, búsettur í Reykja-
vík; og Stefán Sigurðsson, f. 13.
mars 1954, fjármálastjóri, búsettur
í Reykjanesbæ.
Foreldrar Bjargar: Hjónin Sig-
urður Stefánsson, f. 28. júní 1923, d.
24. október 2016, löggiltur endur-
skoðandi í Reykjavík, og Anna
Jónsdóttir, f. 22. desember 1928,
húsfreyja í Reykjavík.
Björg Sigurðardóttir
Anna Jónsdóttir
húsfreyja á Seltjarnarnesi og í Reykjavík
Jón Sigurðsson
kaupfélagsstjóri á Djúpavogi
Ragnhildur Árnadóttir
húsfreyja í Álftafi rði, S-Múl.
Sigurður Jónsson
bóndi í Álftafi rði, S-Múl.
Stefán Sigurðsson
fjármálastjóri í Reykjanesbæ
Jón Sigurðsson
fjármálastjóri í
Reykjavík
Pétur Árni Jónsson
útgefandi og
framkvæmda stjóri
Heildar fasteignafélags
Sigríður Stefánsdóttir
húsfreyja í Njarðvíkum
og Reykjavík
Guðrún Bjarnadóttir
Bergese kjörin
alheims fegurðar-
drottning, Miss
International, árið
1963 og fv. fyrirsæta
Anna Kristrún Finnsdóttir
húsfreyja á Djúpavogi, varð 102 ára
Lúðvík Jón Jónsson
trésmiður í Álftafi rði, S-Múl.
Sigurbjörg Lúðvíksdóttir
húsfreyja á Djúpavogi og í Reykjavík
Finnur Jónsson listmálari
Ríkarður Jónsson
myndhöggvari
Ólöf Finnsdóttir húsfreyja á Strýtu í Hamarsfi rði
Rósa Sigurðardóttir
húsfreyja í Kefl avík
Sigurður Þóroddsson
formaður og útvegsbóndi
á Litlahólma í Gerðahreppi,
afi Sigurðar var Sigurður
Andrésson bóndi á Núpi
undir Eyjafjöllum og víðar
Jóhanna Sigurðardóttir
húsfreyja á Vatnsleysuströnd
og í Innri-Njarðvík
Stefán Sigurfi nnsson
útvegsbóndi á Auðnum á
Vatnsleysuströnd og í Innri-Njarðvík
Sigríður Stefánsdóttir
húsfreyja í Gerðahreppi
Sigurfi nnur Sigurðsson
formaður á Stóru-Vatnsleysu
Úr frændgarði Bjargar Sigurðardóttur
Sigurður Stefánsson
löggiltur endurskoðandi í Innri-Njarðvík
á Seltjarnarnesi og í Reykjavík
Ragnar Skjóldal sendi Vísna-horni línu, sem mér er ljúft að
birta, og gef ég honum orðið: „Til-
efnið er að Úlfur Ragnarsson,
tengdapabbi minn og faðir Karls
Ágústs Úlfssonar leikara, verður
áttræður næsta aðfangadag. Úlfur
starfaði eitt sinn í Sómalíu fyrir
Rauða krossinn. Þar orti hann eft-
irfarandi limru um það sem fyrir
augu hans bar í sómölsku borginni
Hargeisa. Þar var þurrviðri svo
mikið að ekki var hægt að stunda
siglingar á hraðbátum, sem úr
munni Úlfs kallaðist marþeysa.
Limran hefur hvergi birst á prenti“:
Helþurr er staður Hargeisa
haldin þar engin marþeysa.
Ég hef rekið mig á
að flestallir fá
fjölmargar pestir sem þar geisa.
Í Vísnahorni á dögunum orti
Kristján Snorrason til kattarins Jós-
efínu Meulengracht Dietrich:
Ekki vera að ybba gogg
á auðnuvegi hálum.
En ef þú ríst svo upp við dog
ertu í vondum málum.
Kötturinn Jósefína sendi boltann
til baka og brá á orðaleik:
Að upp við „dog“ ég ekki mun
aldurhnigin rísa
er hafið yfir efa og grun.
Nú endar þessi vísa.
En ef ég þarf að ybba gogg
eða renna mús um skjá
oftast rís ég upp við dogg
ellin þó mig sé að hrjá.
Guðrún Bjarnadóttir var með á
nótunum og orti „til að minna okk-
ur á að ellin er svipuð vísunni, tóm-
ar úrfellingar“:
Ekk’er sama dog og dogg.
Duldið líkt samt hljóma,
end’er þetta ágætt blogg.
Átt’í kæli rjóma?
Jósefína Meulengracht Dietrich
svaraði:
Úr kæliskápnum skenki mér
– skáld og augun ljóma –
því fagurrauð ein fernan er
og full er hún af rjóma.
Jón Thoroddsen kvað:
Skáldið gekk um skimandi
skrapp til brókarlallinn
rófubeinið riðandi
rakst af krafti í pallinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Staður Hargeisa
og dog eða dogg