Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 25

Morgunblaðið - 17.12.2019, Side 25
EM 2020 Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðmundur Guðmundsson, lands- liðsþjálfari karla í handknattleik, og aðstoðarmenn hans hafa sett saman nítján manna hóp leikmanna í að- draganda lokakeppni EM. Tilkynnt var í gær hvaða leikmenn eru í hópn- um en landsliðið kemur að hluta til saman til æfinga þegar líður á vik- una. Þá hefst undirbúningurinn fyrir EM með formlegum hætti. Búist er við því að HSÍ fari með sautján leik- menn á EM í janúar sem fram fer í Malmö í Svíþjóð. Ekki er því um endanlegan hóp að ræða en Guðmundur lagði einnig á það áherslu á blaðamannafundi í gær að þær aðstæður gætu komið upp að einhver úr 28 manna hópn- um, sem ekki er í nítján manna hópnum, myndi fara á EM. Liðin hafa svigrúm til að gera breytingar eftir að keppnin hefst. Verði einhver skakkaföll, til dæmis vegna meiðsla, þá er spurning hver myndi henta best til að koma inn í stað þess sem frá þyrfti að hverfa. Kynslóðaskipti hafa orðið í liðinu síðustu árin og eru margir leikmenn í hópnum í yngri kantinum eins og við mátti búast. Með þeim eru nokkrir reyndir menn og má nefna að þrír þeirra sem unnu til silfur- verðlauna á Ólympíuleikunum í Pek- ing eru í hópnum: Björgvin Páll Gústavsson, Guðjón Valur Sigurðs- son og Alexander Petersson. Fimm leikmenn eru í hópnum sem unnu bronsverðlaun á EM 2010 en þá höfðu þeir Aron Pálmarsson og Ólaf- ur Guðmundsson bæst við. Þá er Kári Kristján Kristjánsson í nítján manna hópnum en hans fyrsta stór- mót með landsliðinu var HM í Sví- þjóð árið 2011. Björgvin og Kári eru jafnframt þeir einu sem eftir eru úr liðinu sem varð Evrópumeistari 18 ára og yngri árið 2003. Gísli og Ómar meiddir Tveir þeirra ungu manna sem fengið hafa hlutverk í landsliðinu á síðustu árum voru ekki valdir í nítján manna hópinn vegna meiðsla. Ómar Ingi Magnússon hefur ekki jafnað sig af höfuðáverkum og var raunar ekki í 28 manna hópnum. Gísli Þorgeir Kristjánsson fór úr axlarlið í leik með Kiel. Þá er Ólafur Gústafsson ekki í nítján manna hópnum en hann var í stóru hlut- verki í vörninni á HM í Þýskalandi fyrir ári. Fari svo að Gísli muni ekki koma við sögu þá eru engu að síður fram- tíðarmenn í leikstjórnandahlutverk- inu. Elvar Örn Jónsson og Haukur Þrastarson hafa sýnt að þeir eru framtíðarmenn og Janus Daði Smárason hefur minnt á sig í vetur með góðri frammistöðu í Danmörku og Meistaradeildinni. Guðmundur nefndi að ekki væri endilega heilagt hvort leikmönnum væri raðað í stöðu leikstjórnanda eða vinstri skyttu þegar hópurinn var kynntur. Leik- menn eins og Aron, Elvar og Hauk- ur geta allir hvort heldur sem er ver- ið á miðjunni eða í skyttunni eftir því hvað verður fyrir þá lagt. Björgvin inni í myndinni Björgvin Páll hefur ekki verið fastamaður í landsliðinu að undan- förnu og verður áhugavert að sjá hvort hann fer á EM. Viktor Gísli Hallgrímsson er geysilega spenn- andi markvörður og Ágúst Elí Björgvinsson varð sænskur meistari síðasta vor. Samkeppnin um mark- mannsstöðuna er því töluverð. Einnig er heilbrigð samkeppni um stöðurnar í hornunum. Ef til vill sýn- ir það ágætlega hversu vel landsliðið býr varðandi hornamenn að þeir Óð- inn Þór Ríkharðsson og Oddur Gret- arsson bíða fyrir utan nítján manna hópinn. Báðir hafa þeir staðið sig vel í háum gæðaflokki. Við það má bæta að Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í 28 manna hópnum vegna meiðsla. Alexander Petersson snýr aftur í skyttustöðuna hægra megin. Þar er einnig Viggó Kristjánsson sem ekki hefur leikið á stórmóti en hefur stimplað sig vel inn í þýsku bundes- liguna í vetur. Fari svo að hann kom- ist á EM munu Seltirningar væntan- lega eiga tvo fulltrúa í hópnum en þaðan er einnig Guðjón Valur Sig- urðsson, einn af leiðtogum liðsins. Viggó fékk tækifæri í vináttulands- leikjum gegn Svíum í október og nýtti það greinilega afar vel. Sama má segja um línumanninn Svein Jó- hannsson sem einnig er í hópnum. Báðir þóttu þeir standa sig vel gegn Svíum og gripu tækifærið sem gafst. Hverjir verða í miðri vörninni? Líklega verður snúið fyrir Guð- mund að átta sig á hverja hann vill veðja á í miðri vörninni. Sérstaklega þegar haft er í huga að Daníel Þór Ingason og Arnar Freyr Arnarsson voru báðir meiddir fyrr í vetur. Þeir ættu hins vegar að vera orðnir heilir. Samkeppnin um stöðurnar í miðri vörninni og á línunni er mikil. Þar er einnig Ýmir Örn Gíslason sem er mjög klókur varnarmaður. Vert er að geta þess að Ólafur Guðmunds getur leyst það verkefni ágætlega að leika í miðri vörninni ef á þarf að halda.  Á mbl.is/sport/handbolti er að finna viðtal við Guðmund. Gott jafnvægi reynslu og ungdóms í landsliðinu  Nítján manna hópur fyrir EM karla í handknattleik liggur fyrir Morgunblaðið/Golli Reyndir Aron Pálmars, Guðjón Valur, Björgvin Páll og Kári Kristján eru í hópnum. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 2019 Duncan Ferguson, tíma- bundinn knattspyrnustjóri Ever- ton, vakti athygli og furðu margra þegar hann tók Moise Kean af velli í leiknum gegn Man- chester United í ensku úrvals- deildinni á sunnudag. Ferguson hafði skipt Kean inn á 18 mínútum áður. Skipt- ingin sem slík er auðvitað furðu- leg, en starf knattspyrnustjórans snýst um að hafa hag liðsins að leiðarljósi og að tefla fram liði sem á hve mesta möguleika á að ná í sigur. Það er því hægt að réttlæta skiptinguna, hafi Fergu- son talið hana vera það besta í stöðunni fyrir sitt lið. Hegðun skoska stjórans eft- ir að hann tók Kean af velli var hins vegar fáránleg. Hann lét sem framherjinn væri ekki til. Kean er aðeins 19 ára gamall og hefur tíminn hans hjá Everton verið erfiður til þessa. Ferguson hefur væntanlega farið afar illa með piltinn unga með tilburð- unum. Hann varði sjálfan sig í viðtali eftir leik og sagðist hafa skipt honum út af til að eyða tíma og tefja. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, bað Bjarka Stein Bjarkason afsökunar er hann skipti stráknum unga af velli í leik gegn Breiðabliki í sumar. Kristján Jónsson, kollegi minn, ritaði pistil um atvikið á þessum stað í blaðinu síðasta ágúst og furðaði sig á því að biðja þyrfti leikmenn afsökunar á því að taka þá af velli í fyrri hálfleik. Jóhann- es taldi það besta í stöðunni fyrir sitt lið að breyta til fyrir leikhlé. Bjarki fékk auk þess að spila meira en fjórir leikmenn sem sátu allan tímann á vara- mannabekknum. Það ætti ekki að þurfa að biðja menn afsök- unar á að skipta þeim út af, en á sama tíma er óþarfi að gera lítið úr þeim, líkt og Ferguson gerði. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.isÍtalski knattspyrnustjórinn Carlo Ancelotti hefur samþykkt að taka við enska úrvalsdeildarliðinu Everton. Félagið sjálft hafði ekki staðfest tíð- indin þegar blaðið fór í prentun, en Sky segir samkomulag í höfn. Ancel- otti, sem var sagt upp störfum hjá Napoli í síðustu viku, hefur unnið fjölmarga titla á stjóraferli sínum, þar á meðal Meistaradeild Evrópu með AC Milan 2003 og 2007 og með Real Madríd árið 2014. Duncan Ferguson verður áfram í þjálfara- teymi Everton, en hann hefur stýrt liðinu í síðustu tveimur leikjum. Gylfi leikur undir stjórn Ancelottis AFP Stjórinn Carlo Ancelotti verður næsti knattspyrnustjóri Everton. Frederik Schram, einn af markvörð- um íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er á förum frá danska félaginu SønderjyskE þegar samn- ingur hans rennur út um áramótin. SønderjyskE tilkynnti í gær að þrír leikmenn myndu yfirgefa félag- ið við samningslok í lok ársins og Frederik er einn þeirra. Hann kom til félagsins síðasta sumar frá Rosk- ilde en hefur verið í láni hjá Lyngby, sem einnig leikur í úrvalsdeildinni, frá því í ágúst. Þar hefur Frederik verið í hlutverki varamarkvarðar og ekkert komið við sögu. Landsliðsmaður færir sig um set Morgunblaðið/Eggert Samningslaus Frederik Schram verður samningslaus eftir tímabilið. Knattspyrnu- maðurinn Aron Sigurðarson gekk í gær til liðs við belgíska B- deildarfélagið Royale Union Saint-Gilloise. Kemur hann til félagsins frá Start í Noregi, þar sem hann er nýbúinn að fara upp í efstu deild með liðinu. Royale Union Saint-Gilloise, eða USG, er í fjórða sæti belgísku B- deildarinnar með 30 stig eftir 18 leiki og er liðið í hörðum slag um sæti í efstu deild. Félagið er staðsett í Brussel og leikur heimaleiki sína á Stade Joseph Marien, sem tekur 8.000 áhorfendur. Liðið var sigursælt í upphafi síð- ustu aldar og vann belgíska meist- aratitilinn ellefu sinnum á árunum 1904 til 1935. Þá hefur félagið unnið bikarmeistaratitilinn í tvígang, síð- ast árið 1914. Aron er uppalinn í Fjölni, en hefur leikið sem atvinnumaður frá 2016, fyrst með Tromsø og síðan Start. Sóknarmaðurinn átti afar góða leik- tíð með Start, þar sem hann skoraði 15 mörk í 32 leikjum og átti stóran þátt í að liðið tryggði sér sæti í efstu deild. Aron hefur leikið sex A- landsleiki og skorað í þeim tvö mörk. Aron frá Kristiansand til Brussel Aron Sigurðarson MARKVERÐIR: Ágúst Elí Björgvinsson Björgvin Páll Gústavsson Viktor Gísli Hallgrímsson HORNAMENN: Bjarki Már Elísson Guðjón Valur Sigurðsson Arnór Þór Gunnarsson Sigvaldi Björn Guðjónsson LÍNUMENN: Arnar Freyr Arnarsson Kári Kristján Kristjánsson Sveinn Jóhannsson Ýmir Örn Gíslason SKYTTUR: Aron Pálmarsson Ólafur Guðmundsson Alexander Petersson Viggó Kristjánsson LEIKSTJÓRNENDUR: Elvar Örn Jónsson Haukur Þrastarson Janus Daði Smárason VARNARMAÐUR: Daníel Þór Ingason Nítján manna hópurinn LANDSLIÐIÐ TEKUR Á SIG SKÝRARI MYND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.